Fleiri
Þorri afskrifta vegna kvótakaupa 25.4.2012 07:00 Búist við sölu Actavis í dag eða á morgun Gengið verður frá sölu á Actavis til bandaríska samheitalyfjafyrirtækisins Watson í dag eða á morgun ef marka má frétt Financial Times um málið frá því í gær. Samkvæmt heimildum blaðsins verður kaupverðið um 4,5 milljarðar evra, jafngildi 750 milljarða íslenskra króna. 25.4.2012 07:00 Minkabændur seldu fyrir um 400 milljónir í Kaupmannahöfn Metverð fékkst fyrir íslensk minkaskinn á uppboði hjá Kopenhagen Fur í Kaupmannahöfn í upphafi vikunnar. 25.4.2012 06:57 Öll olíufélögin nema Skeljungur lækkuðu bensínverðið Öll olíufélögin lækkuðu verð á bensínlítranum um tvær krónur í gær, nema Skeljungur þar sem bensínið er nú tveimur krónum dýrara en hjá öðrum. 25.4.2012 06:55 Bjartsýni Íslendinga eykst með hækkandi sól Bjartsýni eykst nú að nýju með hækkandi sól og styrkingu á gengi íslensku krónunnar. 25.4.2012 06:48 Sjá næstu 50 fréttir
Hagnaður Nýherja 15 milljónir á 1. ársfjórðungi Hagnaður Nýherjasamstæðunnar á fyrsta ársfjórðungi 2012 er tæpar 15 milljónir og EBITDA er 123 milljónir króna. 27.4.2012 16:54
Bandaríkjadalur besti kosturinn fyrir Ísland Hinds var meðal fyrirlesara á fundi VÍB, eignastýringar Íslandsbanka, í morgun, en þar voru kostir Íslands í gjaldmiðlamálum til skoðunar og ræddir. Hinds var ráðgjafi stjórnvalda í El Salvador þegar Bandaríkjadalur var þar tekinn upp einhliða um síðustu aldamót, en hann er auk þess fyrrverandi fjármálaráðherra landsins. 27.4.2012 12:03
Helgi Magnússon kaupir fyrir 75 milljónir í Marel Helgi Magnússon formaður Samtaka iðnaðarins hefur aukið töluvert við hlut sinn í Marel en hann á sæti í stjórn félagsins. 27.4.2012 10:36
Gjaldþrotum fækkar um tugi prósenta Gjaldþrotum fyrirtækja á fyrstu þremur mánuðum ársins fækkaði um 21% frá sama tíma í fyrra, en 348 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta á fyrstu þremur mánuðum ársins. Í mars 2012 voru 153 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 214 fyrirtæki í mars 2011. Eftir bálkum atvinnugreina voru flest gjaldþrot í Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum. Fyrstu 3 mánuði ársins 2012 er fjöldi nýskráninga 460 sem er um 4% aukning frá sama tímabili árið 2011 þegar 441 fyrirtæki voru nýskráð. 27.4.2012 09:18
Verðbólgan mælist óbreytt í 6,4% Ársverðbólgan mælist 6,4% í apríl og er óbreytt frá fyrri mánuði. Þetta er mun verri útkoma en sérfræðingar spáðu en þeir gerðu yfirleitt ráð fyrir að verðbólgan myndi lækka í 6,1%. 27.4.2012 09:10
S&P lækkar lánshæfiseinkunn Spánar í annað sinn á árinu Matsfyrirtækið Standard & Poor's (S&P) hefur lækkað landshæfiseinkunn Spánar. Einkunn Spánar er lækkuð úr A í BBB+. 27.4.2012 07:48
Hagnaður Marel 2,2 milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Marel skilaði 2,2 milljarða króna hagnaði á fyrsta ársfjórðungi ársins. Hagnaðurinn jókst um 48% miðað við sama tímabil í fyrra. 27.4.2012 07:40
Kínverjar vilja hraða námuvinnslu sinni á Grænlandi Fjölmenn kínversk sendinefnd með auðlindaráðherra landsins í broddi fylkingar er nú stödd á Grænlandi. Þar ræða Kínverjarnir við grænlenska ráðamenn um starfsemi kínverskra námufyrirtækja í landinu en þeir vilja hraða framkvæmdum við ýmis námuverkefni. 27.4.2012 06:51
Delta tekur upp þráðinn Bandaríska flugfélagið Delta Air Lines mun taka upp þráðinn þar sem frá var horfið síðastliðið haust og hefja flug til Íslands frá New York yfir sumarmánuðina. Í tilkynningu frá félaginu segir að á síðasta ári hafi Delta flutt yfir 20.000 farþega til Íslands og þar með átt stóran þátt í mikilli fjölgun ferðamanna frá Norður-Ameríku til landsins á síðasta ári. "Félagið mun halda áfram dyggri þjónustu við íslenskan markað og hefja á ný beint flug á milli Keflavíkurflugvallar og JFK flugvallar í New York, fimm sinnum í viku yfir sumarmánuðina, í samvinnu KLM flugfélagið,“ segir í tilkynningu. 26.4.2012 13:34
Næsti snjallsími Samsung verður einn sá öflugasti Samsung Galaxy S III verður einn öflugast snjallsími veraldar. Síminn verður knúinn af byltingarkenndum örgjörva sem býður upp á háskerpu afspilun og upptöku. 26.4.2012 12:22
Krónan réttir úr kútnum Svo virðist sem lát hafi nú orðið á veikingu krónunnar, en gengi hennar hefur verið nokkuð stöðugt í aprílmánuði. Gengisvísitalan stendur nú í rétt rúmlega 227 stigum og hefur gengi krónunnar gagnvart helstu gjaldmiðlum nú styrkst um 0,7% frá því í mánaðarbyrjun. 26.4.2012 11:59
Höskuldur Skúli nýr útibússtjóri Íslandsbanka Höskuldur Skúli Hallgrímsson hefur verið ráðinn útibússtjóri Íslandsbanka á Húsavík og tekur hann við starfinu 1. júlí nk. Lilja Rögnvaldsdóttir, sem gegnt hefur útibússtjórastöðunni undanfarin tæp 4 ár heldur nú á önnur mið og er henni þakkað gott starf, að því er segir í tilkynningu frá Íslandsbanka. 26.4.2012 10:46
UPS kaupir metansendibíla frá Mercedes Benz Hraðsendingarfyrirtækið UPS hefur fengið afhenta þrjá Mercedes-Benz Sprinter sendibíla sem eru allir metanknúnir. Bílarnir eru notaðir til útkeyrslu á hraðsendingum og almennum flugsendingum frá Keflavíkurflugvelli til höfuðborgarsvæðisins og Suðurnesja. 26.4.2012 09:57
Verulega dregur úr fjölda langtímaatvinnulausra Verulega hefur dregið úr fjölda þeirra sem verið hafa án atvinnu í ár eða meira og teljast langtímaatvinnulausir . Á fyrsta ársfjórðungi ársins voru þeir 1,6% af öllu vinnuaflinu en á sama tímabili í fyrra var hlutfallið 2,2%. 26.4.2012 09:18
Atvinnulausum fækkaði um 1.000 manns milli ára Á fyrsta ársfjórðungi ársins voru að meðaltali 12.700 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 7,2% vinnuaflsins. Fækkaði atvinnulausum um þúsund manns frá sama tímabili í fyrra. 26.4.2012 09:08
Skeljungur mögulega á markað Skeljungur hf. hagnaðist um 629 milljónir króna á árinu 2011, sem er um 200 milljónum krónum minna en árið áður. Rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir og fjármagnsliði var 1,7 milljarðar króna og jókst um 754 milljónir króna milli ára. Þetta var tilkynnt á aðalfundi Skeljungs sem fór fram síðastliðinn mánudag. 26.4.2012 08:00
Heildareignir innlánsstofnana tæplega 3.000 milljarðar Heildareignir innlánsstofnana námu tæpum 3.000 milljörðum kr. í lok mars og lækkaðu um 18,5 milljarða kr. frá því í febrúar. 26.4.2012 07:00
Deutsche Bank afskrifar 43 milljarða vegna Actavis Deutsche Bank, aðallánadrottinn Actavis, mun afskrifa 257 milljónir evra, eða um 43 milljarða króna vegna sölunnar á Actavis til bandaríska lyfjafyrirtækisins Watson. Þetta kemur fram í frétt á Bloomberg fréttaveitunni. 26.4.2012 06:51
Erlendir og innlendir vilja Magma-bréf Einn erlendur aðili og nokkrir innlendir aðilar, að mestu leyti lífeyrissjóðir, eru á meðal þeirra sem nú skoða að kaupa svokallað Magma-skuldabréf af Reykjanesbæ, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Niðurstaða í málinu gæti legið fyrir á allra næstu vikum. 26.4.2012 06:00
Watson kaupir Actavis fyrir 700 milljarða Bandaríska lyfjafyrirtækið Watson hefur gengið frá samningum um kaup á Actavis. Kaupverðið er samtals 4,25 milljarðar evra, eða um 700 milljarðar króna samkvæmt tilkynningu frá Björgólfi Thor Björgólfssyni. 25.4.2012 20:37
Orkuveitan ræðir við lífeyrissjóði um byggingu á Hverahlíðarsvæðinu Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur veitti forstjóra fyrirtækisins umboð til viðræðna við fulltrúa íslenskra lífeyrissjóða, og eftir atvikum Norðurál Helguvík ehf., um samning sem feli m.a. í sér að stofnað verði sérstakt fyrirtæki með þátttöku Orkuveitunnar um byggingu orkuvers á Hverahlíðarsvæðinu og sölu þess fyrirtækis á orku til Norðuráls að öðrum skilyrðum uppfylltum. Þetta var samþykkt á stjórnarfundi OR í dag. 25.4.2012 18:21
Rekstrartekjur Skeljungs námu 31 milljarði 2011 Rekstrartekjur Skeljungs hf. á síðasta ári námu rúmum 31 milljarði. Samkvæmt rekstrarreikningi félagsins var hagnaður af reglubundinni starfsemi fyrir afskriftir og fjármagnsliði 1.7 milljarður. 25.4.2012 14:32
Viðsnúningur til hins verra hjá móðurfélagi Norðuráls Mikil viðsnúningur til hins verra hefur orðið á reksti Century Aluminium, móðurfélags Norðuráls á Grundartanga, á fyrstu mánuðum ársins miðað við sama tímabil í fyrra. 25.4.2012 09:15
Virði fasteigna N1 lækkaði um tvo milljarða á sex mánuðum Virði þeirra fasteigna sem hýsa starfsemi N1 rýrnaði um tæpa tvö milljarða króna á tæplega sex mánaða tímabili í lok árs 2011. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins fyrir það ár. 25.4.2012 08:00
Matarkarfan ódýrust í Bónus Matarkarfa Alþýðusambands Íslands reyndist vera ódýrust í Bónus þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í lágvöruverslunum og stórmörkuðum víðsvegar um landið síðastliðinn mánudag. 25.4.2012 13:50
Google opinberar afritunarlausn Tæknirisinn Google hefur sjósett afritunarlausn sína sem bíður notendum allt að 16 terabæta geymslupláss á veraldarvefnum. 25.4.2012 13:35
Ekki áhugi á Perlunni Dagur B. Eggertsson formaður borgarráðs segir að sú niðurstaða að enginn þeirra sem bauð í Perluna hafi viljað kaupa hana án breytinga á lóðinni vera ákveðin skilaboð um að Perlan eins og sér sé ekki góð söluvara. 25.4.2012 13:02
Draghi: Það verður engin lausafjárþurrð í Evrópu Mario Draghi, bankastjóri evrópska seðlabankans, segir að engin lausafjárþurrð muni koma upp í Evrópu og að bankarnir séu ekki farnir að draga úr lánum vegna hræðslu við lausafjárþurrð. Draghi segir, í viðtali við breska ríkisútvarpið BBC, að vopnin séu nú í höndum ríkisstjórna að banka, þegar kemur að því að styrkja stöðu fjármálakerfisins á evrusvæðinu. 25.4.2012 12:30
Getum stytt okkur leið út úr gjaldeyrishöftunum Ísland gæti komið krónunni í skjól fram að upptöku evrunnar, einungis fáeinum mánuðum, eftir að við fengjum formlega aðild að Evrópusambandinu. Þetta segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra í nýrri skýrslu um utanríkismál og aðildarviðræður við Evrópusambandið sem dreift hefur verið á Alþingi. 25.4.2012 11:02
Hættir við að kaupa Perluna Hópur sem hugðist kaupa Perluna ásamt meðfylgjandi lóð hefur ákveðiðað falla frá tilboði sínu. Ástæðan er sú að hópurinn telur að ekki hafi náðst að uppfylla fyrirvara sem voru gerðir við tiloðið. Hópurinn telur einsýnt að yfirvöld í Reykjavíkurborg ætli ekki að leyfa neinar framkvædir eða byggingar á lóð Perlunnar. Framkvæmdirnar hafi verið forsenda þess að hægt væri að greiða það kaupverð sem boðið var. Hópurinn hugðist reka heilsutengda ferðaþjónustu í tengslum við Perluna. 25.4.2012 10:06
Einfaldari aðgangur að fjárstýringu Innlánamarkaður H.F. Verðbréfa hefur síðustu misseri notið nokkurra vinsælda meðal innlendra fyrirtækja. Innlánamarkaðurinn er aðgengilegur í gegnum upplýsingaveituna Kelduna.is en hann gerir notendum kleift að fá tilboð frá innlánastofnunum í innlán sín til allt að tólf mánaða ávöxtunar. 25.4.2012 10:00
Soros: Margvísleg vandamál í Evrópu George Soros, fjárfestirinn þekkti, segist svartsýnn á stöðu efnahagsmála í Evrópu. Evran henti ekki öllum evruríkjunum sautján, sem grafi undan trúverðugleika alls fjármálakerfis Evrópu. Það gerist hins vegar ekki yfir nótt, heldur sé að gerast hægt og bítandi. 25.4.2012 09:51
Sædís Íva ráðin útibústjóri Arion banka á Selfossi Sædís Íva Elíasdóttir hefur verið ráðin útibússtjóri Arion banka á Selfossi. Sædis Íva mun jafnframt gegna stöðu svæðisstjóra Arion banka á Suðurlandi. 25.4.2012 09:38
Nauðasamningur gömlu Sjóvár orðinn endanlegur Nauðasamningsumleitunum SJ Eignarhaldsfélags, sem áður hét Sjóvá, lauk 3. apríl síðastliðinn. Því er nauðasamningur félagsins orðinn endanlegur. Í honum felst að kröfuhafar fá 7% af 12 milljarða króna kröfum sínum, eða rúmlega 800 milljónir króna. 25.4.2012 09:00
Bræðurnir munu tapa Bakkavör Bakkavör Group, móðurfélag rekstrarfélagsins Bakkavarar, mun breyta kröfum sínum á félagið í nýtt hlutafé á næstu dögum. Umbreytingin á sér stað rúmum tveimur árum fyrr en upphaflega var áætlað. 25.4.2012 09:00
Töpuðu hálfum milljarði króna Skjá miðlar ehf., sem meðal annars eiga og reka sjónvarpsstöðina Skjá einn, töpuðu 458 milljónum króna á árinu 2010. Eigið fé félagsins var neikvætt um 154 milljónir króna í lok þess árs. Þetta kemur fram í ársreikningi sem skilað var inn til ársreikningaskrár 14. mars síðastliðinn. 25.4.2012 08:00
Fréttaskýring: Skipti ekki á leið í endurskipulagningu Hvorki helstu kröfuhafar né eigendur Skipta eru að þrýsta á að félagið fari í fjárhagslega endurskipulagningu. Það er gríðarlega skuldsett og vaxtaberandi skuldir eru um 60 milljarðar króna. Félagið er þó í skilum með afborganir. 25.4.2012 08:00
Efnahagshremmingar Grikkja halda áfram Ekkert lát er á efnahagshremmingum Grikkja. Nú er ljóst að landsframleiðsla landsins um skreppa saman um yfir 5% í ár sem er nokkuð meir en fyrri spár gerðu ráð fyrir. Hefur landsframleiðslan þá minnkað fimm ár í röð í Grikklandi. 25.4.2012 07:15
Hagnaður Össurar 1,3 milljarðar Stoðtækjaframleiðandinn Össur hf. skilaði 1,3 milljarða króna hagnaði á fyrsta ársfjórðungi ársins. Það er um 22% aukning frá sama tímabili í fyrra. 25.4.2012 07:13
Niðurstöðu að vænta í SpKef deilu í síðasta lagi 10. maí Úrskurðanefnd um fjárhagslegt uppgjör milli Landsbankans og íslenska ríkisins vegna yfirtöku bankans á SpKef mun skila niðurstöðu sinni í síðasta lagi 10. maí næstkomandi. Málflutningur deiluaðila fyrir úrskurðarnefndinni fór fram 28. og 29. mars síðastliðinn og hefur hún sex vikur frá lokum hans til að skila niðurstöðu. Ragnar H. Hall hæstaréttarlögmaður, sem er formaður nefndarinnar, segir niðurstöðuna ekki liggja fyrir en að það styttist í hana. 25.4.2012 07:00
Búist við sölu Actavis í dag eða á morgun Gengið verður frá sölu á Actavis til bandaríska samheitalyfjafyrirtækisins Watson í dag eða á morgun ef marka má frétt Financial Times um málið frá því í gær. Samkvæmt heimildum blaðsins verður kaupverðið um 4,5 milljarðar evra, jafngildi 750 milljarða íslenskra króna. 25.4.2012 07:00
Minkabændur seldu fyrir um 400 milljónir í Kaupmannahöfn Metverð fékkst fyrir íslensk minkaskinn á uppboði hjá Kopenhagen Fur í Kaupmannahöfn í upphafi vikunnar. 25.4.2012 06:57
Öll olíufélögin nema Skeljungur lækkuðu bensínverðið Öll olíufélögin lækkuðu verð á bensínlítranum um tvær krónur í gær, nema Skeljungur þar sem bensínið er nú tveimur krónum dýrara en hjá öðrum. 25.4.2012 06:55
Bjartsýni Íslendinga eykst með hækkandi sól Bjartsýni eykst nú að nýju með hækkandi sól og styrkingu á gengi íslensku krónunnar. 25.4.2012 06:48
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf