Viðskipti innlent

Viðsnúningur til hins verra hjá móðurfélagi Norðuráls

Mikil viðsnúningur til hins verra hefur orðið á reksti Century Aluminium, móðurfélags Norðuráls á Grundartanga, á fyrstu mánuðum ársins miðað við sama tímabil í fyrra.

Tap upp á tæplega 4 milljónir dollara eða nær 500 milljónir króna varð af rekstri Century á fyrsta ársfjórðungi ársins samanborið við 25 milljón dollara hagnað á sama tímabili í fyrra.

Þetta kemur fram í tilkynningu um uppgjörið til Kauphallarinnar. Munar þar mestu um 5 milljón dollara tap á framvirkum samningum um álverð.

Í tilkynningunni segir Michael Bless að rekstur Norðuráls hafi gengið vel á ársfjórðungnum. Einnig að á næstu mánuðum verði Century að taka mikilvægar ákvarðanir um framtíð nýs álvers í Helguvík. Ákvarðanir sem munu ráða því hvenær framkvæmdir við byggingu álversins hefjist aftur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×