Viðskipti innlent

Helgi Magnússon kaupir fyrir 75 milljónir í Marel

Helgi Magnússon formaður Samtaka iðnaðarins hefur aukið töluvert við hlut sinn í Marel en hann á sæti í stjórn félagsins.

Samkvæmt flöggun í Kauphöllinni hefur Helgi keypt 477.000 hluti á verðinu 157,50 kr. á hlut eða samtals fyrir um 75 milljónir króna.

Það er Hofgarðar, eignarhaldsfélag Helga, sem stendur að kaupunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×