Viðskipti innlent

Hagnaður Össurar 1,3 milljarðar

Stoðtækjaframleiðandinn Össur hf. skilaði 1,3 milljarða króna hagnaði á fyrsta ársfjórðungi ársins. Það er um 22% aukning frá sama tímabili í fyrra.

Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar segir í tilkynningu um uppgjörið að söluvöxtur á fyrsta ársfjórðungi hafi verið góður og í takt við áætlanir félagsins fyrir árið í heild. Eins og á undanförnum ársfjórðungum var vöxtur á öllum heimssvæðum þar sem Össur starfar en þó sérstaklega í Evrópu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×