Fleiri fréttir

Ný höfn í Nuuk fyrir gámaskip og olíuleit

Gerð nýrrar stórskipahafnar fyrir Nuuk, höfuðstað Grænlands, er nú í undirbúningi og er markmiðið að hún verði tilbúin á árinu 2014. Kostnaður við hafnargerðina er áætlaður um 500 milljónir danskra króna, eða sem nemur um 11 milljörðum íslenskra króna.

Spænskir bankar sagðir fallvaltir

Spænskir bankar eru sagðir fallvaltir og hugsanlega þarf að koma þeim til bjargar með fjárframlagi frá spænska ríkinu og evrópska seðlabankanum, að því er greint er frá í New York Times í dag.

Snjallsímaörgjörvar seljast hratt

Arm Holdings, félag sem framleiðir örgjörva í snjallsíma, hagnaðist um 61 milljóna punda, jafnvirði um 11,8 milljarða króna, á fyrstu þremur mánuðum ársins. Félagið hefur vaxið ógnarhratt með snjallasímavæðingunni, en örgjörvar frá félaginu eru notaðir bæði í I phone síma Apple og síma með Android stýrikerfinu.

Borin von að Ísland geti rekið sinn eigin gjaldmiðil

Jón Steinsson hagfræðingur við Columbia háskólann í New York segir að ef Íslendingar ekki haldið aftur af verðbólgu þegar hagkerfið er verndað á bak við gjaldeyrishöft og atvinnuleysi er 6%, er borin von að þeir geti rekið sinn eigin gjaldmiðil með góðum árangri í opnu hagkerfi.

Launavísitalan heldur áfram að hækka

Launavísitala í mars s.l. er 431,7 stig og hækkaði um 1,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 12,1%.

Gott uppgjör hjá Nordea

Nordea, stærsti banki Norðurlandanna, skilaði mun betra uppgjöri á fyrsta ársfjórðungi ársins en sérfræðingar spáðu fyrir.

Markaðir lækka vegna slæmra frétta frá Evrópu

Markaðir í Evrópu og Bandaríkjunum tóku dýfu í dag vegna neikvæðra frétta af mörkuðum í Evrópu, einkum Hollandi og Frakklandi. Pólítískur óróleiki í Hollandi jókst til muna eftir að ríkisstjórnin féll þar í landi, vegna deilna um ríkisfjármál og niðurskurð sem ráðgert var að ráðast í.

Mozilla kynnir snjallsíma í vetur

Mozilla, framleiðandi Firefox vafrans, mun opinbera snjallsíma seinna á þessu ári sem knúinn verður af sérhönnuðu stýrikerfi fyrirtækisins. Stýrikerfið er kallað "Gecko“ og er ætlað að fara í beina samkeppni við Android-stýrikerfið.

Byggingakostnaður hækkar áfram

Byggingakostnaður heldur áfram að hækka á Íslandi. Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan apríl 2012 er 115,0 stig sem er hækkun um 1,4% frá fyrri mánuði.

Litlar líkur á að Björgólfur Thor fái nokkuð úr Actaviskaupum

Reiknað er með að bandaríska lyfjafyrirtækið Watson tilkynni um tilboð sitt í Actavis á morgun, þriðjudag. Litlar sem engar líkur eru á að Björgólfur Thor Björgólfsson muni ríða feitum hesti frá kaupum Watson á Actavis ef marka má frétt á Bloomberg fréttaveitunni.

Spá minnkandi verðbólgu á næstu mánuðum

Verðbólgan mun fara minnkandi á næstu mánuðum ef spá greiningar Íslandsbanka gengur eftir. Þegar í þessu mánuði mun verðbólgan minnka úr 6,4% og niður í 6,1%.

Opið hús næsta laugardag

Í grein á forsíðu fasteignablaðsins í dag misfórst í texta að opið hús væri í dag í íbúðum að Vatnsstíg 16-18. Hið rétta er að Stakfell fasteignasala er með opið hús næstkomandi laugardag, 28. apríl. Eru viðkomandi beðnir velvirðingar á þessu.

Pólitísk yfirlýsing hjá Evrópska fjárfestingarbankanum

"Þetta er svolítið pólitísk yfirlýsing, því þetta er ekki venjulegur einkabanki heldur alþjóðastofnun í eigu opinberra aðila. Það að þannig stofnun geri það er alvarlegra en ef einkabanki færi fram á slíka skilmála,“ segir Gylfi Magnússon, dósent í hagfræði um þá ákvörðun Evrópska fjárfestingarbankans að fara fram á skilmála um drökmuna í lánasamningum við grísk fyrirtæki.

Tvíburar sviku milljónir út úr fjárfestum

Breskir tvíburar, nýskriðnir af unglingsaldri, eru sakaðir um að hafa svikið 1,2 milljónir dollara út úr bandarískum fjárfestum. Brot bræðranna, þeirra Alexanders og Thomas Hunters, eru talin hafa átt sér stað fyrst árið 2007 þegar þeir voru aðeins sextán ára, samkvæmt kæru bandaríska verðbréfaeftirlitsins á Wall Street en frá þessu er greint í Financial Times.

Evrópski fjárfestingarbankinn vildi ákvæði um drökmuna í samninga

Svo virðist sem Evrópski fjárfestingarbankinn telji það ekki útilokað að Grikkland fari úr evrunni því bankinn hóf fyrir tveimur vikum að setja ákvæði í nýja lánasamninga við grísk fyrirtæki, sem heimila að endursemja um lánin verði gamli þjóðargjaldmiðill Grikkja, drakman, tekin upp á ný eða ef evrusvæðið sundrast.

Deutsche þarf að afhenda gögn um fléttu Kaupþings banka

Deutsche Bank þarf samkvæmt úrskurði dómstóla í Bretlandi að afhenda gögn um hvað lá að baki viðskiptum tveggja aflandsfélaga, sem voru í eigu vildarviðskiptavina Kaupþings, með skuldabréf sem félögin keyptu af þýska bankanum. Gögnin gætu skipt sköpum fyrir rannsókn sérstaks saksóknara.

Sparað með hópferðum

Flugfélag Íslands býður upp á mjög hagstætt verð fyrir hópa. "Það getur jafnvel verið ódýrara að bóka flug og gistingu á þessum sérkjörum heldur en að bóka bara flugið án hópafsláttar,“ segja þær Bergþóra Ragnarsdóttir og Ingibjörg Dís Gylfadóttir.

Icelandic fær sjálfbærnivottun

Icelandic Group hefur fengið vottun Marine Stewardship Council (MSC) fyrir allar afurðir úr þorski og ýsu frá Íslandi. Í kjölfarið mun allur þorsk- og ýsuafli af Íslandsmiðum fá heimild til að bera vottunarmerki MSC.

James Cameron ætlar að breyta heiminum

Nafntogaðir auðmenn í Bandaríkjunum munu opinbera nýtt geimfyrirtæki í næstu viku. Talið er að fyrirtækið muni sérhæfa sig í námugröfti á smástirnum.

Icelandic Group fær vottun MSC

Icelandic Group hefur fengið vottun Marine Stewardship Council (MSC) fyrir allar afurðir úr þorsk og ýsu frá Íslandi.

"Íslensk ferðaþjónusta hefur mikil sóknarfæri"

Skúli Mogensen fjárfestir, stærsti eigandi MP banka og Wow air flugfélagsins, segir að ferðaþjónustan á Íslandi hafi mikil sóknarfæri til framtíðar litið og er bjartsýnn á að umfang ferðaþjónustunnar í íslenska hagkerfinu muni tvöfaldast á næstu fimm til sex árum.

Marel tekur stökk upp á við

Gengi bréfa í Marel hefur hækkað mikið í dag, eða um 4,45 prósent. Gengi bréfa félagsins stendur nú í 152,2. Gengi bréfa í Össuri hefur lækkað í dag um 0,47 prósent og stendur í 212. Gengi bréfa í Högum hefur hækkað um 0,27 prósent og stendur nú í 18,9. Gengi bréfa í Icelandair hefur hækkað um 0,32 prósent í dag og stendur nú í 6,32.

Ferðamönnum frá Kína fjölgaði um 80%

Ferðamönnum frá Kína fjölgaði um 80% í fyrra og útflutningur frá Íslandi til Kína jókst um tæp 60%. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti fund með Chen Deming, viðskiptaráðherra Kína, í morgun en hann fer með utanríkisviðskipti og er í föruneyti Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, sem er í opinberri heimsókn hér í dag og á morgun.

Aurum er ekki Aurum Holding

Á síðu 4 í Fréttablaðinu á fimmtudag, og á Vísi.is síðar sama dag, birtist frétt með fyrirsögninni "Sérstakur saksóknari fær gögn frá Lúxemborg um Aurum“. Að gefnu tilefni er rétt að árétta að fyrirtækið sem vísað er til í fyrirsögninni er hið breska Aurum Holding, ekki íslenska skartpgripafyrirtækið Aurum ehf. Hið síðarnefnda tengist ekki rannsókn sérstaks saksóknara með nokkrum hætti.

Háskólabíó í fjárhagsvandræðum

Háskólabíó á í verulegum fjárhagsvandræðum samkvæmt Fréttatímanum í dag. Þar er greint frá því að alls hvíli 230 milljónir króna í lánum á húsnæði Háskólabíós sem er í raun og veru að sliga starfsemina. Mánaðarlegar afborganir af húsnæðinu eru 3,5 til 4 milljónir króna á mánuði samkvæmt Guðmundi R. Jónssyni, framkvæmdastjóra fjármála og reksturs Háskóla Íslands.

Fréttaskýring: Kínverski risinn lítur í kringum sig

Kína er að vaxa hratt "að innan“ sem utan. Samfellt hagvaxtarskeið í Kína undanfarin 15 ár er mesta hagvaxtarskeið ríkis í hagsögunni en árlegur vöxtur hagkerfisins hefur verið á bilinu 8 til 11 prósent á þessu tímabili. Í nýjustu endurskoðaðri hagspá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er því spáð að hagvöxtur í Kína verði 8,8 prósent á þessu ári og mun hann standa undir stórum hluta af öllum vexti á heimsvísu, eða yfir 34 prósent af honum.

Gistinóttum fjölgaði um 8,3% í fyrra

Gistinætur voru rúmar 3,2 milljónir hér á landi árið 2011 og fjölgaði um 8,3% frá fyrra ári. Erlendir ríkisborgarar gistu flestar nætur, þ.e. 75% af heildarfjölda gistinátta, og fjölgaði um 14% milli ára. Gistinóttum Íslendinga fækkaði hinsvegar um 6%.

Alisher Usmanov orðinn auðugasti maður Rússlands

Úsbekinn Alisher Usmanov er orðinn auðugasti maður Rússlands. Auður hans er metinn á 19 milljarða dollara eða um 2.400 milljarða króna og jókst um 1,6 milljarða dollara í fyrra að því er segir í frétt um málið á Bloomberg fréttaveitunni.

Gjaldeyrisforðinn minnkaði um 118 milljarða í mars

Gjaldeyrisforði Seðlabankans minnkaði um 118 milljarða króna í marsmánuði. Munar þar mestu um ákvörðun bankans og ríkisstjórnarinnar að endurgreiða hluta af lánum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og hinna Norðurlandanna áður en að gjalddaga þeirra kom.

Gleraugu á viðráðanlegu verði

Í Gleraugnaversluninni Eyesland á fimmtu hæð í Glæsibæ er að finna mikið úrval af gleraugum, linsum og sjóntækjum á mun viðráðanlegra verði en almennt þekkist.

Topparnir yfirgefa efnahagsbrotadeild

Phillippa Williamson, framkvæmdastjóri efnahagsbrotadeildar bresku lögreglunnar (Serious Fraud Office) hefur sagt upp störfum óvænt. Einungis nokkrir dagar eru þangað til að forstjóri stofnunarinnar hættir störfum. Williamson bar ábyrgð á daglegum rekstri stofnunarinnar, en Richard Alderman forstjóri bar ábyrgð á stefnumótun.

Segir ríkið þurfa stórar fjárfestingar í gagnaverum

Greenstone ehf.hefur undanfarin ár unnið að byggingu stórs gagnavers á Blönduósi með hátt í 120 framtíðarstörfum. Sveinn Óskar Sigurðsson fyrrverandi talsmaður Greenstone segir að þau áform hafi nú verið lögð til hliðar.

Vaxtarsprotar visna í höftunum

Hvorki ríkisstjórn né Seðlabanki hafa að mati Vilmundar Jósepssonar, formanns Samtaka atvinnulífsins (SA), úrræði eða djörfung til að afnema gjaldeyrishöft á næsta ári.

Sjá næstu 50 fréttir