Viðskipti innlent

Gjaldþrotum fækkar um tugi prósenta

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Gjaldþrotum fyrirtækja á fyrstu þremur mánuðum ársins fækkaði um 21% frá sama tíma í fyrra, en 348 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta á fyrstu þremur mánuðum ársins. Í mars 2012 voru 153 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 214 fyrirtæki í mars 2011. Eftir bálkum atvinnugreina voru flest gjaldþrot í Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum. Fyrstu 3 mánuði ársins 2012 er fjöldi nýskráninga 460 sem er um 4% aukning frá sama tímabili árið 2011 þegar 441 fyrirtæki voru nýskráð.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×