Viðskipti innlent

Ekki áhugi á Perlunni

Dagur B. Eggertsson formaður borgarráðs segir að sú niðurstaða að enginn þeirra sem bauð í Perluna hafi viljað kaupa hana án breytinga á lóðinni vera ákveðin skilaboð um að Perlan eins og sér sé ekki góð söluvara.

Eins og fram kom í fréttum í morgun hefur hópurinn sem átti hæsta tilboð í Perluna rift viljayfirlýsingu um sölu á henni. Hópurinn segir að ástæðan fyrir riftuninni sé sú að ekki sé vilji hjá borgaryfirvöldum til að leyfa neinar framkvæmdir eða byggingar á lóð Perlunnar.

Dagur bendir á að komið hafi fram mikill áhugi á svæðinu í kringum Perluna og mun hugmyndasamkeppni um það fara fram í haust í samstarfi við Arkitektafélagið. Farið verður yfir stöðuna sem komin er upp í söluferli Perlunnar með stjórnendum Orkuveitunnar á næstunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×