Viðskipti innlent

Hagnaður Marel 2,2 milljarðar á fyrsta ársfjórðungi

Marel skilaði 2,2 milljarða króna hagnaði á fyrsta ársfjórðungi ársins. Hagnaðurinn jókst um 48% miðað við sama tímabil í fyrra.

Í tilkynningu um uppgjörið segir að góður vöxtur hafi verið á mörkuðum félagsins í Asíu og Suður Ameríku sem vegið hafi upp á móti hægari vexti í Bandaríkjunum.

Theo Hoen forstjóri Marels er bjartsýnn á framtíðina hjá félaginu og segir að mikil aukning hafi orðið á pöntunum hjá Marel á fyrstu mánuðum ársins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×