Viðskipti innlent

Öll olíufélögin nema Skeljungur lækkuðu bensínverðið

Mynd/Vísir.
Öll olíufélögin lækkuðu verð á bensínlítranum um tvær krónur í gær, nema Skeljungur þar sem bensínið er nú tveimur krónum dýrara en hjá öðrum.

Algengasta verðið er tæpar 264 krónur, og 20 aurum lægra á mannlausu stöðvunum.

Dísilolían lækkaði hinsvegar ekki í gær og er nú ekki nema rúmlega tveggja króna munur á dísil og bensínverði og er dísilolían ódýrari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×