Viðskipti innlent

Rekstrartekjur Skeljungs námu 31 milljarði 2011

Rekstrartekjur Skeljungs hf. á síðasta ári námu rúmum 31 milljarði. Samkvæmt rekstrarreikningi félagsins var hagnaður af reglubundinni starfsemi fyrir afskriftir og fjármagnsliði 1.7 milljarður.

Aðalfundur Skeljungs hf. var haldinn í gær og var rekstrarreikningur fyrirtækisins kynntur þar.

Afkoma eftir skattar nam 629 milljónum og voru heildar eignir félagsins tæpir 12.5 milljarðar á síðasta ári.

Þá voru langtímaskuldir félagsins 3.5 milljarðar og heildar skuldir 8.7 milljarðar.

Hjá Skeljungi störfuðu 250 manns í loks árs 2011 og starfrækir félagið 67 bensínstöðvar.

Ný stjórn félagsins var kjörin í gær og var Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir valin stjórnarformaður.

Hægt er að lesa nánar um rekstur Skeljungs á síðasta ári hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×