Viðskipti innlent

Hættir við að kaupa Perluna

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hópur sem hugðist kaupa Perluna ásamt meðfylgjandi lóð hefur ákveðiðað falla frá tilboði sínu. Ástæðan er sú að hópurinn telur að ekki hafi náðst að uppfylla fyrirvara sem voru gerðir við tiloðið.

Hópurinn telur einsýnt að yfirvöld í Reykjavíkurborg ætli ekki að leyfa neinar framkvæmdir eða byggingar á lóð Perlunnar. Framkvæmdirnar hafi verið forsenda þess að hægt væri að greiða það kaupverð sem boðið var. Hópurinn hugðist reka heilsutengda ferðaþjónustu í tengslum við Perluna.

Garðar Vilhjálmsson, talsmaður hópsins, gagnrýnir borgaryfirvöld harðlega fyrir framgöngu þeirra og segir borgina hafa eyðilagt söluferlið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×