Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Niðurskurður ríkisfjármála getur kæft vaxtamöguleika hagkerfa Framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins varar við að óviðeigandi niðurskurður ríkisfjármála geti kæft vaxtamöguleika hagkerfa. Aðlaga þurfi niðurskurðaráætlanir við hvert hagkerfi fyrir sig. 28.1.2012 12:49
Eitt af stærstu flugfélögum Spánar rambar á barmi gjaldþrots Spanair, eitt af stærstu flugfélögum Spánar, hefur aflýst öllum flugferðum vegna mikillar óvissu um fjárhagslega framtíð fyrirtækisins. Spanair hefur átt við mikla rekstrarerfiðleika að glíma frá því að vél þess fórst í flugslysi fyrir fjórum árum. 28.1.2012 12:12
Tekjurnar af Contraband stefna í 7,5 milljarða Heildartekjurnar af Contraband, mynd Baltasar Kormáks, stefna í 60,8 milljónir dollara eða um 7,5 milljarða króna. Vefsíðan boxoffice.com áætlar að tekjurnar, verði 7,2 milljónir dollara um helgina en áður hafa selst miðar á hana fyrir 53,6 milljónir dollara. 28.1.2012 09:09
Verðbólgan aftur á skrið Tólf mánaða verðbólga er nú 6,5 prósent og hefur ekki mælst hærri síðan í maí 2010. Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í þessum mánuði hækkaði um 0,28 prósentustig í mánuðinum sem er nokkuð umfram væntingar. 28.1.2012 06:00
Millibankamarkaðir enn frostnir Mario Draghi, bankastjóri evrópska seðlabankans, segir að enn sé langt þangað til fjármagnsmarkaðir komist í það sem talist geti eðlilegt ástand. Þetta kom fram í erindi sem Draghi hélt á ráðstefnu Alþjóðaefnahagsráðsins (World Economic Forum) í Davos í Sviss. 28.1.2012 01:06
Ágreiningur blasir við vegna tillagna stjórnlagaráðs Það blasir við ágreiningur fyrir dómstólum verði tillögur stjórnlagaráðs samþykktar óbreyttar. Þetta segir Hafsteinn Þór Hauksson, lektor við lagadeild HÍ. 27.1.2012 18:55
Ferðaþjónustan malar gull og er ein af grunnstoðum hagkerfisins Árið 2011 var besta ár í íslenskri ferðaþjónustu frá upphafi á flesta mælikvarða. Met var slegið í komu erlendra ferðamanna til landsins og fjölda gistinátta. Á fjórum dögum í október eyddu ferðamenn hálfum milljarði hér á landi. 27.1.2012 19:00
Gift til rannsóknar hjá Sérstökum saksóknara Embætti sérstaks saksóknara rannsakar nú hvort Gift fjárfestingafélag hafi fengið óeðlilega fyrirgreiðslu hjá Kaupþingi fyrir hrun, en félagið var meðal stærstu hluthafa bankans. Rannsókn starfsmanna endurskoðunarfyrirtækisins PWC er meðal þeirra gagna sem liggja til grundvallar í málinu. 27.1.2012 18:33
Hæstiréttur vísar máli Hauks aftur í hérað Hæstiréttur Íslands ómerkti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Hauki Þór Haraldssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Landsbankanum. Er málinu vísað til héraðsdóms til löglegrar meðferðar. Haukur var ákærður fyrir fjárdrátt á 118 milljónum króna. 27.1.2012 18:05
Jón Ólafsson átti að greiða skatt á Íslandi Héraðsdómur Reykjavíkur hefur staðfest úrskurð ríkisskattstjóra frá desember 2003 um að Jón Ólafsson athafnamaður hafi skattalega heimilisfesti og beri fulla og ótakmarkaða skattskyldu hér á landi í skilningi laga um tekjuskatt. Jón Ólafsson stefndi íslenska ríkinu fyrir héraðsdómi eftir úrskurð ríkisskattstjóra og birti Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurð sinn í dag. 27.1.2012 15:37
Hagar hagnast um 1,9 milljarða Smásölurisinn Hagar, sem rekur m.a. Bónus og Hagkaup, hagnaðist um tæplega 1,9 milljarða króna frá 1. mars í fyrra fram til 30. nóvember sama, það er til og með þriðja ársfjórðungi reikningsárs félagsins, sem lýkur í lok febrúar nk. 27.1.2012 13:54
Valdimar Halldórsson nýr aðstoðarmaður Steingríms Valdimar Halldórsson viðskiptafræðingur hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Steingríms J. Sigfússonar efnahags- og viðskiptaráðherra. 27.1.2012 19:39
Nýherji tapaði 72 milljónum Nýherji tapaði 72 milljónum króna á síðasta ári samkvæmt ársreikningi félagsins. Rekstrarhagnaður Nýherja fyrir afskriftir nam 532 mkr á árinu 2011. 27.1.2012 18:07
Felur lögmönnum hagsmunagæslu í uppgjöri gjaldmiðlavarnarsamninga Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna hefur falið lögmönnum hagsmunagæslu vegna ágreinings við slitastjórnir Glitnis banka hf. annars vegar og Kaupþings banka hf. hins vegar vegna uppgjörs gjaldmiðlavarnarsamninga. Í frétt á heimasíðu sjóðsins segir að þrátt fyrir að í rúm þrjú ár hafi verið leitað samkomulags um lausn þessa ágreinings hafi ekki tekist að ná niðurstöðu. "Allra leiða verður leitað, með eða án atbeina dómstóla, til að tryggja best hagsmuni sjóðfélaga,“ segir ennfremur. 27.1.2012 15:48
Bein útsending frá Nexpo-vefverðlaununum Bein útsending frá Nexpo-vefverðlaununum á efri hæð Sólon við Bankastræti hefst hér á Vísi klukkan 20. Mikil eftirvænting ríkir fyrir afhendingunni en síðustu vikur hefur farið fram kosning meðal almennings hér á Vísi þar sem bárust ríflega 16 þúsund atkvæði. 27.1.2012 14:58
Nethagkerfið mun tvöfaldast á fjórum árum Vefhagkerfi heimsins mun tvöfaldast að stærð á næstu fjórum árum samkvæmt skýrslu sem Boston Consulting Group vann fyrir hugbúnaðarrisann Google. Velta þeirrar þjónustu sem boðið er upp á vefnum nemur 2.300 milljörðum dollara á ári eða sem nemum 285 þúsund milljörðum króna. Talið er að veltan muni fara í 4.200 milljarða dollara, yfir 5.000 milljarða króna, á árinu 2016 að því er fram kemur í skýrslunni. 27.1.2012 13:35
Rússar neyðast til að lækka skatta á olíu- og gasvinnslu Það eru ekki aðeins íslensk stjórnvöld sem neyðast til að breyta skattareglum vegna olíu- og gasvinnslu. Nú hafa rússnesk stjórnvöld tilkynnt að endurskoða þurfi rússnesku skattalöggjöfina vegna olíu- og gasvinnslu á hafsbotni. Með því vonast þau til að uppbygging hefjist á rússneska Shtokman-svæðinu í Barentshafi, djúpt norðaustur af Múrmansk. 27.1.2012 12:43
Sekt á Símann lækkuð um 20 milljónir Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti í morgun að Síminn skuli greiða sekt vegna brota sem voru framin þegar Síminn keypti Íslenska sjónvarpsfélagið, móðurfélag Skjás eins, árið 2004. 27.1.2012 12:28
Helmingur Spánverja á aldrinum 16 til 24 ára án vinnu Atvinnuleysi á Spáni mælist nú með allra mesta móti. Samkvæmt mælingum sem kynntar voru í morgun er atvinnuleysi á Spáni nú 22,85 prósent, sem jafngildir því að 5,3 milljónir manna séu án vinnu. 27.1.2012 10:25
H&M draumur Íslendinga rætist ekki í bráð Svo virðist sem H&M draumur Íslendinga rætist ekki í bráð. Eins og Vísir greindi frá í nótt var búið að birta auglýsingaskilti á glugga á Laugavegi, þar sem verslunin Sautján stóð áður, en á rúðunni stóð að til stæði að opna H&M verslun á Íslandi. "Þetta eru gjörningamenn sem eru búnir að festa McDonalds merki á einum stað og H&M á öðrum,“ segir Jakob Frímann Magnússon miðborgarstjóri. Upplýsingadeild H&M í Svíþjóð staðfestir líka í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis að engar fyrirætlanir séu um að opna verslun á Íslandi. Búið var að fjarlægja merkið úr glugganum þegar fréttastofu bar þar að garði í morgun. 27.1.2012 10:15
Hagnaður H&M 123 milljarðar á síðasta ársfjórðungi Hagnaður sænsku verslunarkeðjunnar Hennes & Mauritz á fjórða ársfjórðungi í fyrra nam 6,8 milljörðum sænskra króna eða sem svarar til 123 milljarða króna. 27.1.2012 09:36
Verðbólgan komin í 6,5% Ársverðbólgan mælist nú 6,5% og hefur hækkað verulega frá því í desember þegar hún mældist 5,3%. Þessi hækkun er umfram spár sérfræðinga sem gerðu yfirleitt ráð fyrir að hún yrði 6,3%. Aukin verðbólga er einkum keyrð áfram af hækkunum á opinberum gjöldum. 27.1.2012 09:04
Smjörkreppa Norðmanna breytist í nautakjötskreppu Smjörkeppan sem skall á Norðmönnum fyrir síðustu jól er nú að breytast í nautakjötskreppu þar í landi. 27.1.2012 07:14
Loðnukvótinn eykur landsframleiðsluna um eitt prósent Mikill hugur er nú í loðnusjómönnum eftir ljóst varð í gær að endanlegur loðnukvóti íslenskra skipa fyrir vertíðina, sem hófst í haust og stendur nú sem hæst, verður tæp 600 þúsund tonn og hefur ekki verið meiri í áratug. 27.1.2012 06:55
Íranir ætla að stöðva strax alla olíusölu til Evrópu Stjórnvöld í Íran ætla sér að stöðva strax allan útflutning sinn á olíu til Evrópu. Búist er við að frumvarp þess efnis verði samþykkt á íranska þinginu um helgina. 27.1.2012 06:47
Gates gefur 92 milljarða til baráttu gegn sjúkdómum Milljarðamæringurinn Bill Gates er með gjafmildari mönnum heimsins. Nú hefur hann og eiginkona hans Melinda tilkynnt að þau muni gefa 750 milljónir dollara eða sem svarar til 92 milljarða króna í þágu baráttunnar gegn eyðni, berklum og malaríu. 27.1.2012 06:41
Boða opnun H&M á Íslandi Svo virðist vera sem búið sé að ákveða að opna H&M verslanir á Íslandi. Í það minnsta hafði sjónarvottur samband við fréttamann á fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis þegar að hann sá nú í kvöld að á Laugavegi, þar sem verslunin 17 var áður, er búið að hengja upp skilti þar sem opnun verslunarinnar er boðuð. 27.1.2012 01:31
Taldi sig enga heimild hafa til að grípa inn í starfsemi bankanna Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra telur sig enga heimild hafa haft til að grípa inn í starfsemi bankanna í aðdraganda hrunsins. Þá hafi aðgerðir til að flytja bankanna úr landi verið óraunhæfar. Þetta er á meðal þess sem Geir ætlar að nota í vörn sinni þegar málið verður tekið fyrir. 26.1.2012 18:57
Hlutabréf hækkuðu og lækkuðu Yfirlýsing Seðlabanka Bandaríkjanna frá því í gær, þess efnis að bankinn ætlaði að halda vöxtum niðri fram til ársins 2014, hafði þau áhrif á mörkuðum í Evrópu í dag að þeir sýndu grænar hækkunartölur víðast hvar, að því er fram kemur á vefsíðu The New York Times. 26.1.2012 00:01
Byggðamál að heimila sölu á áfengi í matvöruverslunum Ef sala á áfengi yrði heimiluð í matvöruverslunum myndi það styrkja rekstur slíkra verslana á fámennum stöðum. Þetta segir Finnur Árnason, forstjóri Haga sem á og rekur verslanir á borð við Hagkaup og Bónus. 26.1.2012 21:37
Hæstiréttur staðfesti kyrrsetningu á eignir Steingríms Hæstiréttur staðfesti í dag kyrrsetningargerð sýslumannsins í Reykjavík gegn Steingrími P. Kárasyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Kaupþingi. 26.1.2012 18:11
Breytist í takt við breytt heilsufar þjóðarinnar Stoðtækjafyrirtækið Stoð hf. heldur upp á þrjátíu ára afmæli á þessu ári. Til að halda upp á tímamótin stendur fyrirtækið fyrir opnum fræðslufundum allt árið og fer sá fyrsti fram í dag. 26.1.2012 17:30
Angela Merkel: Þörf á alveg nýrri nálgun Angela Merkel, kanslari Þýskalands, sagði á ráðstefnu Alþjóðaefnahagsráðsins (World Economic Forum) í Davos í Sviss, að þörf væri á alveg nýrri nálgun á stjórnun ríkisfjármála og efnahagsmála. "Kerfislægar breytingar sem leiða til þess að fleiri störf skapist er það sem þarf að gera núna,“ sagði Merkel á blaðamannafundi, eftir fundahöld leiðtoga víða að. 26.1.2012 16:58
iPhone 5 í júní? Það eru margir sem bíða spenntir eftir nýjustu útgáfunni af iPhone-símanum sem er gríðarlega vinsæll á meðal Íslendinga. Í haust kom út iPhone 4S en margir aðdáendur símans urðu fyrir miklum vonbrigðum enda voru margir búnir að spá fyrir að iPhone 5 kæmi út í haust. 26.1.2012 14:04
Arion banki verðlaunar skilvísa Skilvísir einstaklingar í viðskiptum við Arion banka munu á morgun, föstudaginn 27. janúar, fá sérstakan afslátt af greiðslum síðasta árs vegna lána þeirra hjá bankanum. Upphæð sem nemur afslættinum verður lögð inn á reikning þeirra hjá Arion banka samkvæmt tilkynningu frá bankanum. 26.1.2012 13:30
Kröfuhafar vilja raunhæfa áætlun Grikkja Stjórnvöld í Grikklandi freista þess enn að ná samkomulagi við kröfuhafa sína, en skuldir ríkisins eru almennt álitnar það íþyngjandi fyrir rekstur ríksins, að óhjákvæmilegt sé að afskrifa stóran hluta skuldanna. Þetta kemur fram á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC. 26.1.2012 12:14
Eygir í málslok hjá Viggó eftir fimm ára rannsókn Eftir fimm ára rannsókn sér nú loks fyrir endann á máli fyrrverandi framkvæmdastjóra Verðbréfaþjónustu sparisjóðanna (VSP), Viggós Þóris Þórissonar, sem hefur verið ákærður fyrir umboðssvik og tilraun til fjársvika, en aðalmeðferð í máli hans stendur nú yfir. 26.1.2012 12:07
Sértryggð skuldabréf Kaupþings flutt til Arion banka Náðst hefur samkomulag við eigendur sértryggða skuldabréfa sem Kaupþings gaf út um að eignir og skuldbindingar þeim tengdum verði fluttar yfir til Arion banka. 26.1.2012 10:27
Lögreglan í Frakkland handtekur forstjóra PIP Lögreglan í Frakklandi hefur handtekið Jean-Claude Mas forstjóra PIP fyrirtækisins, sem framleiðir samnefndar sílikonfyllingar í konubrjóst. 26.1.2012 09:31
Talsverðar aðgangshindranir á dagvörumarkaði Samkeppniseftirlitið birtir í dag skýrslu sína "Verðþróun og samkeppni á dagvörumarkaði“. Í skýrslunni er varpað ljósi á verðþróun sl. sex ár hjá birgjum og smásölum og lýst þeim aðstæðum sem nýir og smærri smásalar standa frammi fyrir í verðsamkeppni. 26.1.2012 09:26
Gjaldþrotum fyrirtækja fjölgaði um rúm 60% í fyrra Í desember síðastliðnum voru 137 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 105 fyrirtæki í desember 2010. Eftir atvinnugreinum voru flest gjaldþrot í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. 26.1.2012 09:13
Baldur, Ármann og Kjartan nýir eigendur Baldur Guðlaugsson, fyrrum ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, Kjartan Gunnarsson, fyrrum framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, og Ármann Þorvaldsson, fyrrum forstjóri Kaupþing Singer&Friedlander, skráðu sig fyrir hlutafjáraukningu í BF-útgáfu um miðjan september síðastliðinn. Öld ehf., félag í eigu Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar, var áður eini eigandi útgáfunnar. Öld á nú helmingshlut. 26.1.2012 09:11
OR eflir áhættuvarnir sínar Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur (OR) hefur samþykkt áhættustefnu fyrir rekstur fyrirtækisins. Jafnframt hefur verið komið á fót endurskoðunarnefnd stjórnar og samið um fjárhagslegar áhættuvarnir gagnvart sveiflum á álverði og vöxtum á erlendum lánum. 26.1.2012 07:55
Lán ÍLS til heimilanna nema tæpum 600 milljörðum Fjárhæð lána Íbúðalánasjóðs (ÍLS) til heimila námu tæpum 600 milljörðum kr. um síðustu áramót. Hefur sú fjárhæð hækkað úr rétt tæpum 380 milljörðum kr. frá árslokum 2007 eða um 220 milljarða króna á fjórum árum. 26.1.2012 07:00
Töluverð fjölgun eftirlitsmála hjá Kauphöllinni milli ára Kauphöllin afgreiddi alls 78 eftirlitsmál á síðasta ári og af þeim var 20 málum vísað til Fjármálaeftirlitsins til nánari rannsóknar. 26.1.2012 06:57
Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun Viðskipti innlent