Felur lögmönnum hagsmunagæslu í uppgjöri gjaldmiðlavarnarsamninga GRV skrifar 27. janúar 2012 15:48 Helgi Magnússon er stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verzlunarmanna.
Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna hefur falið lögmönnum hagsmunagæslu vegna ágreinings við slitastjórnir Glitnis banka hf. annars vegar og Kaupþings banka hf. hins vegar vegna uppgjörs gjaldmiðlavarnarsamninga. Í frétt á heimasíðu sjóðsins segir að þrátt fyrir að í rúm þrjú ár hafi verið leitað samkomulags um lausn þessa ágreinings hafi ekki tekist að ná niðurstöðu. „Allra leiða verður leitað, með eða án atbeina dómstóla, til að tryggja best hagsmuni sjóðfélaga," segir ennfremur. Fyrir fall viðskiptabankanna gerði Lífeyrissjóður verzlunarmanna gjaldmiðlavarnarsamninga við Kaupþing banka hf. og Glitni banka hf. „Um var að ræða tvíhliða samninga sem ættlaðir voru til að takmarka gjaldmiðlaáhættu sjóðsins. Lífeyrissjóðurinn hafði nýtt slíka samninga í nokkur ár fyrir fall bankanna í þeim tilgangi að jafna sveiflur í ávöxtun erlendra eigna sem voru rúmur þriðjungur af eignum sjóðsins á sama tíma og allar skuldbindingar sjóðsins eru verðtryggðar í íslenskum krónum," segir í yfirlýsingu frá stjórn sjóðsins.Telja kröfur ekki standast lög Þá segir að slitastjórnir hinna föllnu banka hafi hvor um sig krafið lífeyrissjóðinn um greiðslur sem þær ætla að sjóðurinn skuldi hinum föllnu bönkum vegna uppgjörs samninganna. „Lífeyrissjóðurinn telur að þær kröfur standist ekki lög. Það byggir m.a. á því að allar forsendur fyrir gerð samninganna hafi brostið við þrot bankanna og algjör markaðsbrestur hafi orðið á innlendum gjaldmiðlamarkaði sem m.a. megi rekja til hegðunar hinna föllnu banka á gjaldeyrismarkaði." Þess er einnig getið að um tvíhliða samninga hafi verið að ræða „þar sem vangeta bankanna varð algjör til að standa við sínar skuldbindingar eigi síðar en við fall fyrsta viðskiptabankans 7. október 2008. Þá hafa verið færð efnisleg rök fyrir því að ákveðnir stjórnendur hinna föllnu banka hafi hagað sér með þeim hætti að allar líkur séu til þess að þeir hafi skaðað hagsmuni lífeyrissjóðsins með ólögmætum hætti. Þannig hafi framganga þessara aðila á verðbréfamarkaði og gjaldeyrismarkaði orðið til þess að veikja krónuna með óforsvaranlegum hætti," segir einnig. „Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna ákvað því í dag að fela hæstaréttarlögmönnunum Helga Birgissyni og Ólafi Erni Svanssyni að gæta hagsmuna sjóðsins gagnvart slitastjórnum Glitnis banka hf. annars vegar og Kaupþings banka hf. hins vegar varðandi uppgjör gjaldmiðlavarnarsamninga. Þegar hefur verið hafinn undirbúningur að höfðun máls fyrir dómstólum til að afla nauðsynlegra gagna til lögfullrar sönnunar á þeim rökstudda grun stjórnar sjóðsins að forsvarsmenn hinna föllnu banka hafi hagað ráðum sínum með þeim hætti að það hafi valdið sjóðnum fjárhagstjóni. Sú háttsemi hafi jafnframt leitt til þess að slitastjórnum hinna föllnu banka sé ekki stætt að fara fram með fjárkröfur á hendur sjóðnum með þeim hætti sem gert hefur verið. Þá verði jafnframt metnir möguleikar þess að sækja bætur á hendur þeim aðilum sem kunna að hafa valdið lífeyrissjóðnum fjártjóni í þessu sambandi."Árangurslausar samningaumleitanir Að lokum segir að sjóðfélögum til upplýsingar sé rétt að geta þess að frá október 2008 hafi lífeyrissjóðurinn, ásamt öðrum lífeyrissjóðum, leitast við að ná samkomulagi við skilanefndir og svo slitastjórnir framangreindra banka um uppgjör gjaldmiðlavarnarsamninganna. „Af hálfu lífeyrissjóðanna var m.a. lagt fram sáttarboð um uppgjör samninganna í árslok 2008. Því miður hafa samningaumleitanir til þessa ekki borið árangur. Eins og að framan er rakið er nú svo komið að mati stjórnar sjóðsins að nær fullreynt er að ná niðurstöðu með almennum viðræðum. Því verður málum nú fylgt eftir með eða án atbeina dómstóla til að gæta ítrustu hagsmuna sjóðsins í þeim tilgangi að ljúka málinu og binda þar með enda á þá óvissu sem fylgir óuppgerðum samningum."
Mest lesið John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Viðskipti innlent Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Viðskipti innlent Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Viðskipti erlent Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Viðskipti innlent Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Viðskipti innlent Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Viðskipti innlent Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Viðskipti innlent Að fólk skilji garðhúsgagnabúslóðirnar eftir heima Neytendur Milla ætlar í formanninn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Milla ætlar í formanninn Efna til útboðs hlutabréfa að virði 125 milljóna dala Tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis valið Ekki sést til lands í deilunni sem hefur haft áhrif á yfir sjö þúsund farþega Sigurjón nýr framkvæmdastjóri Mediacom Ógnarlöng stefna Samkeppniseftirlitsins kemst að eftir allt saman Hakkarar geti lesið gögn af læstri tölvu á tíu mínútum án lykilorðs Sýndareftirlit ef fylgjast eigi með skemmtistöðum á skrifstofutíma Tillögur ráðherra sagðar rýra virði bankanna um tugi milljarða Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Sjá meira