Arion banki verðlaunar skilvísa 26. janúar 2012 13:30
Skilvísir einstaklingar í viðskiptum við Arion banka munu á morgun, föstudaginn 27. janúar, fá sérstakan afslátt af greiðslum síðasta árs vegna lána þeirra hjá bankanum. Upphæð sem nemur afslættinum verður lögð inn á reikning þeirra hjá Arion banka samkvæmt tilkynningu frá bankanum. Að langstærstum hluta er um að ræða afslátt vegna íbúðalána. Nemur afslátturinn tveimur gjalddögum síðasta árs miðað við að 12 gjalddagar hafi verið greiddir, eða 16,7% af greiddum gjalddögum. Einnig er veittur 30% afsláttur af vaxtagreiðslum síðasta árs vegna yfirdráttarlána. Frá því Arion banki var stofnaður hafa aðgerðir bankans fyrst og fremst beinst að þeim hópi viðskiptavina sem glímt hefur við mestan greiðslu- og skuldavanda. Því átaki fer að ljúka og þar með verða ákveðin kaflaskil í starfsemi bankans. Aðgerðin nú er annars eðlis og snertir alla skilvísa lánþega bankans. Hún kemur í kjölfar yfirtöku bankans á lánasafni þrotabús Kaupþings. Að meðaltali nemur greiðsla vegna íbúðalána 125 þúsund krónum og greiðsla vegna yfirdráttalána 13 þúsund krónum. Samtals fá um 33 þúsund viðskiptavina bankans greitt til baka frá Arion banka föstudaginn 27. janúar. Kostnaður vegna þessa er áætlaður um 2,5 milljarðar króna. Þar með er kostnaður bankans vegna aðgerða er snúa að einstaklingum og heimilum orðinn rúmir 40 milljarðar króna sem er rúmum 5 milljörðum umfram það svigrúm bankans sem skapaðist við yfirtöku lánanna.
Mest lesið Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf „Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ Atvinnulíf „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira