Fleiri fréttir

Tæplega 1200 hross til fimmtán landa

Tæplega tólfhundruð hross voru flutt úr landi á síðasta ári. Hrossin, sem alls voru 1136, voru flutt til fimmtán landa að því er fram kemur á síðunni hestafrettir.is. Þar segir að langflest hafi hrossin farið til Þýskalands, eða 444 og virðist útflutningur þangað hafa aukist töluvert eftir samdráttarskeið. Þá segir einnig að næstflest hrossin hafi farið til Svíþjóðar, eða 151. Að síðustu segir að heildarfjöldi útfluttra hrossa árið áður hafi verið 1158.

Stórfelld svik Skota við makrílveiðar

Fjórir skipstjórar hafa játað fyrir yfirrétti í Edinborg að hafa veitt rangar upplýsingar um landaðan afla að verðmæti 8 milljónir punda eða um 1,5 milljarða kr. Áður höfðu 17 aðrir og tvö fiskvinnslufyrirtæki verið sakfelld fyrir sambærileg brot.

Bankaráðið vill fá að ákveða laun Steinþórs

Bankaráð Landsbanka Íslands vill að bankaráðið sjálft, en ekki kjararáð, úrskurði um laun bankastjórans. Þetta kemur fram í umsögn bankaráðsins við frumvarpi fjármálaráðherra um kjararáð, sem Steingrímur J. Sigfússon lagði fram 2. desember síðastliðinn, tæpum mánuði áður en hann sagði skilið við embættið.

Endurálagning RSK getur veitt náðarhögg

Sum þeirra fyrirtækja sem þurfa að greiða endurálagningu skatta gætu farið á hausinn. Greiða þarf skattaskuldina áður en endanleg niðurstaða fæst um lögmæti endurálagningarinnar. Vilhjálmur Egilsson segir málið bagalegt.

Góð söluaukning hjá House of Fraser

Breska verslunarkeðjan House of Fraser jók sölu sína um 11% á síðustu fimm vikunum fyrir síðustu jól samanborið við sama tímabil árið áður. Það sem einkum olli þessari söluaukningu var netverslun keðjunnar en þar jókst veltan um 124% milli ára.

Tugum tilkynnt um hleranir

Tugum einstaklinga hefur á síðustu vikum verið tilkynnt um símhleranir sérstaks saksóknara. Langur tími getur liðið frá því hlerað er þar til tilkynning berst. Símhleranirnar á gráu svæði segir hæstaréttarlögmaður.

Aflaverðmæti 19 skipa yfir 2 milljarðar í fyrra

Aflaverðmæti 19 íslenskra skipa á síðasta ári var yfir 2 milljarðar kr. á hvert skip. Þar af náðu fjögur skipana að fiska fyrir yfir 3 milljarða kr. og eitt yfir 4 milljarða kr.

Slitastjórn krefur níu manns um milljarða

Lárusi Welding, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og allri fyrrverandi stjórn Glitnis stefnt vegna fimmtán milljarða víkjandi láns til Baugs í árslok 2007. Lánið er til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara. Tjónið er metið á sex og hálfan milljarð.

Ætla að dæla 14 milljónum tunna af olíu á dag á markaðinn

Háttsettar heimildir innan Alþjóðlegu orkumálastofnunarinnar herma að þar sé nú rætt um áætlun sem feli í sér að 14 milljónir tunna af olíu verði settar á markað daglega ef Íranir gera alvöru úr hótunum sínum um að loka Hormuz sundi.

Heimsins stærsti iPod hátalari - iNuke

Hljómburðarunnendur geta fagnað því raftækjaframleiðandinn Behringer hefur opinberað stærsta iPod hátalara veraldar. Tækið er rúmlega 400 kíló að þyngd og kostar tæpar 4 milljónir íslenskar krónur.

Mugison hagnaðist um 22 milljónir á Hagléli

Tónlistarmaðurinn Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem Mugison, græddi tæplega 22 milljónir á plötu sinni Haglél sem kom út fyrir jólin. Hann seldi um 28 þúsund diska.

Twitter og Google takast á

Talsmenn samskiptasíðunnar Twitter hafa lýst yfir óánægju með þær breytingar sem tæknifyrirtækið Google hefur gert á leitarvél sinni. Niðurstöður leitarvélarinnar munu nú birta upplýsingar af samskiptasíðunni Google+.

Kia Rio sópar að sér verðlaunum

Kia Motors er einn mest vaxandi bílaframleiðandi heims og sendir nú frá sér hvern endurhannaðan bílinn á fætur öðrum. Kia-bílarnir hafa fengið mikið lof fyrir flotta og nútímalega hönnun og hafa sópað til sín hönnunarverðlaunum víða um heim.

Ný kynslóð M-línunnar frá Mercedes Benz

Þriðja kynslóð M-línunnar frá Mercedes-Benz er væntanleg til Íslands í vikunni. M-línan setur ný viðmið í flokki jeppa vegna lítillar eldsneytisnotkunar og lítils koltvísýrings í útblæstri. Í nýju línunni lækkar eldsneytisnotkunin um allt að 28% miðað við

Skoda á Íslandi með hæstu markaðshlutdeild V-Evrópu

Tékkneski bílaframleiðandinn Skoda er sífellt að sækja í sig veðrið bæði hér heima og erlendis. Skoda Octavia var mest seldi bíllinn á Íslandi í fyrra og hefur markaðshlutdeildin aldrei verið meiri.

GT 86 er hugarfóstur nýs forstjóra Toyota

Nýr sportbíll sem nefnist GT 86 er væntanlegur í sumar. Hann er hugarfóstur hins nýja forstjóra Toyota sem hefur ástríðu fyrir bílum, enda er einn þeirra sem stofnaði Toyota forfaðir hans.

Byrjum árið á stórri bílasýningu

Bílasýning verður laugardaginn 14. janúar hjá öllum söluaðilum Toyota á Íslandi, á Nýbýlaveginum í Kópavogi, í Reykjanesbæ, á Selfossi og á Akureyri. Páll Þorsteinsson, upplýsingafulltrúi Toyota, er bjartsýnn á nýju ári.

Með 35 ára reynslu

Þótt Jóhann Berg Þorgeirsson, söluráðgjafi hjá fyrirtækjaþjónustu Ingvars Helgasonar og B&L, hafi bæst í hóp afbragðs starfsmanna fyrirtækisins um nýliðin áramót, er hann þó langt í frá nýr í faginu.

Spennandi, vandaðir fararskjótar

Það eru spennandi tímar fram undan hjá aðdáendum BMW, Land Rover og Range Rover á Íslandi. Ekki skemmir fyrir að framleiðendur þessa heimsþekktu bifreiða hafa mætt landsmönnum á miðri leið þegar kemur að buddunni.

Appelsínusafinn aldrei verið dýrari

Appelsínusafi hefur aldrei verið dýrari á heimsmörkuðum en nú um stundir. Helstu ástæður hækkunarinnar eru áhyggjur vegna safa frá Brasilíu sem sagður er innihalda ólöglegt sveppaeitur og nokkur kuldatíð í Flórída sem hefur áhrif á uppskeruna þar. Brasilía er stærsti framleiðandi appelsínusafa í heiminum og því koma fréttirnar af sveppaeitrinu sér illa fyrir útflytjendur. Appelsínusafi hefur hækkað um 25 prósent frá áramótum.

Berlingske hættir útgáfu fríblaðsins Urban

Fjölmiðlarisinn Berlingske Media í Danmörku hefur ákveðið að hætta útgáfu fríblaðsins Urban. Tilkynnt var um þetta á starfsmannafundi í dag en 87 starfsmönnum verður sagt upp. Ástæðan sem útfefandinn gefur eru sparðaðaraðgerðir. Síðasta tölublaðið kemur út á morgun en útgáfan hófst í september 2001. Á tímabili var blaðinu dreift í tæpum 200 þúsund eintökum.

Segja að ríkisstjórnin eigi eftir að uppfylla fjölmörg atriði

Samtök atvinnulífsins segja að 2/3 hluti þeirra atriða sem ríkisstjórnin hafi lofað að hrinda í framkvæmd við undirritun kjarasamninga hafi ekki náð fram að ganga. Alls hafi 24 mál af 36 ekki gengið eftir, 7 atriði hafi gengið eftir eins og talað var um og í fimm atriðum séu mál enn í gangi og gæti hugsanlega lokið farsællega. Þetta kemur fram í bréfi sem Samtök atvinnulífins rituðu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í dag. Samtök atvinnulífsins segja afdrifaríkast að fjárfestingar í atvinnulífi og opinberar framkvæmdir hafi ekki aukist eins og lagt hafi verið upp með.

Smálánafyrirtæki sátt við ný lánalög

Innleiðing Evróputilskipunar um neytendalán skyldar smálánafyrirtæki til að gera greiðslumat á viðskiptavinum. Rekstur fyrirtækjanna gengur vel og þau skila hagnaði. Efnahags- og viðskiptaráðuneytið stefnir að því að leggja fram til umsagnar drög að frumvarpi um neytendalán í næsta mánuði. Með því verður innleidd Evróputilskipun um neytendalán sem eykur og skýrir réttindi neytenda og lánveitendum verður meðal annars gert að framkvæma greiðslumat áður en samið er um lán.

Kia Optima á leiðinni

Kia Optima er væntanlegur síðar á þessu ári en þar er um að ræða fallegan og spennandi bíl í C-stærðarflokki.

Gerum gott enn betra, öllum til góða

Bjarni Benediktsson er nýr aðstoðarframkvæmdastjóri þjónustusviðs hjá Ingvari Helgasyni og B&L. Hann segir fyrirmyndarþjónustu vera í brennidepli hjá fyrirtækinu sem aldrei fyrr.

Enn betri Avensis

Toyota Avensis er að koma út í nýrri og endurbættri útgáfu. „Þetta er kannski ekki alveg ný kynslóð af Avensis en hann er talsvert breyttur,“ segir Páll Þorsteinsson, upplýsingafulltrúi Toyota, og nefnir endurbætta fjöðrun og stýrisbúnað, aukna hljóðeinangrun og endurhönnun á sætum og mælaborði.

Spennandi nýjungar í boði

Nokkrar nýjungar verða í boði hjá Subaru og Nissan þetta árið. Subaru XV sportjeppinn er glæsilegur á að líta og umhverfisvænn. Þá er von á nýjum dísilvélum í Nissan Qashqai í febrúar. Rúnar Bridde sölustjóri veit meira.

Grænu bílalánin njóta vinsælda hjá viðskiptavinum Ergo

Hækkandi eldsneytisverð hefur leitt til þess að bílaframleiðendur sjá hag sinn í framleiðslu sparneytinna bíla sem menga minna. Ergo styður þessa þróun og býður viðskiptavinum svokölluð græn lán til kaupa á slíkum bílum.

Lífeyrissjóðirnir telja að fjárfestingarkostum fjölgi

Ríkisskuldabréf verða líklega áfram fyrirferðarmikil í fjárfestingum lífeyrissjóða á árinu 2012. Sjóðirnir telja þó líklegt að fjárfestingarmöguleikum fjölgi á árinu. Greiningaraðilar telja að krafa á ríkisbréf lækki vegna minni fjárþarfar ríkissjóðs en lítið breyttrar eftirspurnar.Árin frá hruni hafa verið gjöful á skuldabréfamarkaði. Til marks um það hefur ríkisskuldabréfavísitala ráðgjafar- og fjárfestingarfyrirtækisins Gamma rúmlega tvöfaldast frá upphafi árs 2008. Það jafngildir meðalraunávöxtun upp á 11,3 prósent á ári frá byrjun 2008.

Bandaríkjadalur ekki dýrari í átján mánuði

Gengi bandaríkjadals gagnvart íslenskri krónu hefur ekki verið hærra í átján mánuði, eða frá því í júlí í hitteðfyrra. Gengisvísitala krónunnar hefur veikst um rúm 3% frá því í lok október. Af helstu viðskiptamyntum hefur krónan veikst einna mest gagnvart Bandaríkjadollar á þessu tímabili, eða sem nemur rúmlega 9%. Dalurinn kostar nú um 124 krónur.

Dress Up Games malar gull - 300 milljónir í hagnað á þremur árum

Dress Up Games ehf. hagnaðist um 88,3 milljónir króna á árinu 2010. Á árunum 2008 og 2009 nam hagnaður félagsins samtals um 213 milljónum króna. Það hefur því hagnast um rúmlega 300 milljónir króna á þriggja ára tímabili. Þetta kemur fram í síðustu ársreikningum Dress Up Games ehf.

Yfir 6.000 tonnum af gulllax landað í Reykjavík

Í aflatölum Fiskistofu er að finna 82 fisktegundir sem hafa komið á land á Íslandi á s.l. ári. Margt af þessum nöfnum eru kynleg og fjarlæg nútíma íslendingnum og má þar nefna sem dæmi stórkjöftu, langlúru, spærling og gulllax en af síðastnefndu tegundinni var rúmlega 6.000 tonnum landað í Reykjavík 2011.

Samdráttur í Þýskalandi

Um 0,25% samdráttur varð á landsframleiðslu í Þýskalandi á fjórða ársfjórðungi síðasta árs, samkvæmt opinberum tölum þar í landi. um 3% hagvöxtur varð í landinu þegar horft er á árið í heild, en hagvöxturinn mun hafa verið mestur fyrri hluta ársins. Tölur Hagstofunnar í Þýskalandi benda til þess að ástæður hagvaxtarins megi að mestu leyti rekja til innanlandseftirspurnar.

Bláa lónið tapaði 135 milljónum 2010

Bláa lónið hf. tapaði 856 þúsund evrum, um 135,2 milljónum króna, á árinu 2010. Alls námu rekstrartekjur félagsins 16,8 milljónum evra, tæpum 2,7 milljörðum króna. Þar af skilaði aðgangseyrir 6,3 milljónum evra, tæpum milljarði króna, í kassann. Þetta kemur fram í ársreikningi Bláa lónsins hf. sem skilað var inn til ársreikningaskráar um miðjan desember síðastliðinn.

Tim Ward flytur málið fyrir Íslendinga

Utanríkisráðherra kynnti ríkisstjórninni í gær, að undangengnu samráði við utanríkismálanefnd, ákvörðun sína um að ráða Tim Ward til að vera aðalmálflytjandi í samningsbrotamálinu sem Eftirlitsstofnun EFTA hefur höfðað fyrir EFTA-dómstólnum vegna Icesave málsins.

LSR hefur afskrifað 40,7 milljarða króna frá bankahruni

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) hefur fært 40,7 milljarða króna á afskriftarreikning frá bankahruni. Það svarar til 13,3% af meðaleignum sjóðsins á þeim árum sem afskriftir voru færðar í reikning sjóðsins. Þetta kemur fram í svari Steingríms J. Sigfússonar, fyrrum fjármálaráðherra, við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur.

Sjá næstu 50 fréttir