Bláa lónið tapaði 135 milljónum 2010 11. janúar 2012 10:14 Mynd/GVA
Bláa lónið hf. tapaði 856 þúsund evrum, um 135,2 milljónum króna, á árinu 2010. Alls námu rekstrartekjur félagsins 16,8 milljónum evra, tæpum 2,7 milljörðum króna. Þar af skilaði aðgangseyrir 6,3 milljónum evra, tæpum milljarði króna, í kassann. Þetta kemur fram í ársreikningi Bláa lónsins hf. sem skilað var inn til ársreikningaskráar um miðjan desember síðastliðinn. Samkvæmt verðskrá sem félagið birtir á heimasíðu sinni kostar 4.800 krónur fyrir fullorðinn einstakling að fara í Bláa lónið. Meðlimir í Vinaklúbbi þess fá þó sérkjör. Í ársreikningnum kemur fram að "þann 30. september 2010 voru tilteknir starfsþættir samstæðunnar færðir yfir í ný félög utan samstæðunnar. Tilgangurinn með skiptingunni var að skerpa á áherslum í rekstri og auka áhersluna á kjarnastarfsemi félagsins. Þau félög sem urðu til við skiptinguna heita Hótel Bláa lónið ehf., Blue Lagoon International ehf., Hreyfing Fasteignir ehf. og Hreyfing eignarhaldsfélag ehf.". Þar segir enn fremur að "ef kröfuhafi í félagi, sem tekið hefur þátt í skiptingunni, fær ekki fullnustu kröfu sinnar í því félagi sem kröfuna skal greiða ber hvert hinna þátttökufélaganna óskipta ábyrgð á skuldbindingum sem stofnast höfðu þegar upplýsingar um skiptingaráætlunina voru birtar". HS Orka á 24,4% hlut, Landsbankinn 24,3% hlut og Hvatning ehf., á 17,3% hlut. Eigendur Hvatningar eru meðal annars Grímur Sæmundsen og Edvard Júlíusson. Samtals skuldar Bláa lónið hf. 24,9 milljónir evra, 3,9 milljarða króna, eftir skiptinguna. Félagið metur eignir sínar á 36,7 milljónir evra, 5,8 milljarða króna. Næst á eftir aðgangseyri hafði félagið mestar tekjur upp úr vörusölu eða 4,2 milljónir evra, um 664 milljónir króna. Félagið hefur einkaleyfi til ársloka 2044 frá HS Orku hf. til notkunar á jarðhitavökva Í Svartsengi. - þsj
Mest lesið „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Sjá meira