Viðskipti innlent

Slitastjórn krefur níu manns um milljarða

Glitnir fundur þjóðnýting Lárus Welding bankastjóri Davíð Oddsson seðlabankastjóri
Glitnir fundur þjóðnýting Lárus Welding bankastjóri Davíð Oddsson seðlabankastjóri
Lárusi Welding, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og allri fyrrverandi stjórn Glitnis stefnt vegna fimmtán milljarða víkjandi láns til Baugs í árslok 2007. Lánið er til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara. Tjónið er metið á sex og hálfan milljarð.

Slitastjórn Glitnis mun á allra næstu dögum stefna níu manns til greiðslu skaðabóta að upphæð sex og hálfur milljarður króna vegna víkjandi láns sem veitt var til Baugs í desember 2007.

Heimildir Fréttablaðsins herma að um sé að ræða Lárus Welding, þáverandi forstjóra bankans, Jón Ásgeir Jóhannesson, þáverandi aðaleiganda Baugs og stjórnarformann FL Group, og alla sjö manna stjórn bankans á þeim tíma.

Í stjórninni sátu þá formaðurinn Þorsteinn M. Jónsson, kenndur við Coke, Jón Sigurðsson, þá glænýr forstjóri FL Group, Skarphéðinn Berg Steinarsson, fyrrverandi stjórnarformaður FL Group, Pétur Guðmundarson, lögmaður hjá Logos, Björn Ingi Sveinsson, forstjóri Saxbygg, Haukur Guðjónsson og Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis.

Stefnan hafði ekki verið birt neinum nímenninganna í gær en hún hafði verið boðuð í samtölum við lögmenn sumra þeirra.

Málið snýst um fimmtán milljarða víkjandi lán sem áhættunefnd bankans samþykkti að veita Baugi 20. desember 2007. Lánið fékk Baugur til að taka þátt í hlutafjárútboði FL Group, en Baugur var stærsti eigandi FL Group á þeim tíma. Slitastjórnin metur skaðann af lánveitingunni hóflega á 6,5 milljarða króna.

Sérstakur saksóknari hefur lánveitinguna og sölutryggingu Glitnis á hlutafjárútboðinu til rannsóknar. Sú rannsókn lá meðal annars til grundvallar gæsluvarðhaldsúrskurðunum yfir Lárusi og tveimur öðrum Glitnismönnum fyrir jól.

Fjórir þeirra sem stefnt verður í þessu máli, Lárus, Jón Ásgeir, Þorsteinn og Jón, voru meðal stefndu í 250 milljarða skaðabótamáli sem slitastjórnin höfðaði í New York í fyrra. Því máli var vísað frá dómi og í kjölfarið boðaði slitastjórnin að höfðuð yrðu sambærileg skaðabótamál hér á landi, hugsanlega í annarri mynd, í mörgum hlutum og að einhverju leyti á hendur öðru fólki.

Slitastjórnin hefur þegar höfðað eitt stórt skaðabótamál hér heima, svokallað Aurum-mál, þar sem Lárus, Jón Ásgeir, Pálmi Haraldsson í Fons og þrír fyrrverandi starfsmenn Glitnis eru krafðir um sex milljarða.

stigur@frettabladid.is





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×