Fleiri fréttir

Simmi og Jói íhuga að kaupa Dominos

"Það eru sennilega allir í veitingabransanum að skoða þetta,“ segir Sigmar Vilhjálmsson einn af eigendum Hamborgarafabrikkunnar, eða Simmi eins og hann er oftast kallaður, en afþreyingasíðan Menn.is greindi frá því í dag að Simmi og félagi hans Jóhann Ásbjörnsson, oftast kallaður Jói, væru að fara kaupa pítsufyrirtækið Dominos sem Landsbankinn tók yfir á dögunum.

Keyptu verðlaus hlutabréf rétt fyrir ríkisvæðingu

Styrkur Invest, eitt margra félaga sem tengdust Baugi Group, gerði tvo framvirka samninga um kaup á hlutum í fjárfestingafélaginu FL Group, langt yfir markaðsverði bréfanna á þeim tíma, samkvæmt frétt Morgunblaðsins um málið.

Óttast að íbúðalánasjóður verði heildsölubanki

Formaður Hagsmunasamtaka heimilanna óttast að gera eigi Íbúðalánasjóð að heildsölubanka til að útvega bönkunum lánsfé. Velferðarráðherra segir það ekki standa til, hann hyggist berjast fyrir því að hlutverk sjóðsins verði ekki skert.

61 kaupsamningur þinglýstur

Sextíu og einum kaupsamningi vegna fasteignakaupa var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku.

Samningar um endurfjármögnun All Saints á lokastigi

Samningar um endurfjármögnun tískuvöruverslunarkeðjunnar All Saints er nú á lokastigi en fyrirtækið hefur glímt við rekstrarerfiðleika undanfarið. Breska blaðið Guardian greinir frá þessu.

Hagnaður Nýherja 64 milljónir

Heildarhagnaður Nýherja nam 64 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi ársins. Fyrirtækið tapaði hins vegar 130 milljónum króna á sama tímabili í fyrra. EBITDA var 160 milljónir króna á fyrta ársfjórðungi núna en var 35 milljónir króna á tímabilinu á undan. Þetta kemur fram í ársfjórðungsuppgjörinu sem Nýherji birti í dag.

Beita Seðlabankann dagsektum

Samkeppniseftirlitið hefur ákveðið að leggja dagsektir á Seðlabanka Íslands. Ástæaðn er sú að við vinnslu skjals um Samkeppni á bankamarkaði óskaði Samkeppniseftirlitð eftir upplýsi9ngum frá Seðlabanka Íslands um útlán einstakra banka og sparisjóða. Seðlabankinn hafnaði þeirri beiðni. Samkeppniseftirlitið ítrekaði beiðni sína og hefur í framhaldinu tekið ákvörðun um að leggja dagsektir á Seðlabanka Íslands, að fjárhæð 1,5 milljónir króna á dag til þess að knýja á um gagnaskilin.

Bensínið komið upp fyrir 240 krónur

Bensínverð hækkaði í dag og er nú komið upp fyrir 240 krónur. Lægst er verðið hjá Orkunni, Atlantsolíu og ÓB þar sem það er rétt undir 241 krónu. Það kostar svo 241,4 hjá N1 og Olís. Dýrast er bensínið hjá Skeljungi en þar kostar það 242,8 krónur. Ríkisstjórnin ákvað í vetur að skipa starfshóp til að meta viðbrögðin við hækkununum. Ekkert bólar á niðurstöðum.

Auður tapaði 76 milljónum

Það var 76 milljóna króna tap á rekstri Auðar Capital á síðasta ári. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins sem birtur hefur verið. Niðurstaðan er öllu betri en árið 2009 en þá hafði verið 88 milljóna króna tap á rekstri félagsins. Eigið fé Auðar Capital er rétt rúmur milljarður króna.

Beið í 75 daga eftir ákvörðun Seðlabankans um smáaura

Lúðvík Júlíusson segir farir sínar ekki sléttar í samskiptum sínum við Seðlabankann vegna umsóknar á undanþágu frá skilaskyldu samkvæmt gjaldeyrishöftunum. Lúðvík þurfti að bíða í 75 daga eftir ákvörðun bankans í máli sem snérist um 27 dollara eða rétt tæpar 3.000 kr.

Áskorun frá SAF um að lækka álögur á eldsneyti

Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) taka undir áskorun FÍB, Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands til stjórnvalda um að lækka álögur hins opinbera á eldsneyti. Vegagerðin spáir verulegum samdrætti í umferð framundan og er ljóst að það mun koma fram í fækkun ferðamanna úti á landsbyggðinni, sérstaklega í þeim byggðum sem langt er að sækja.

Dópsalar tapa tugum milljóna á dag

Danskir dópsalar tapa nú tugum milljóna kr. á hverjum degi þar sem Kristjanía í Kaupmannahöfn er lokuð og hefur verið svo undanfarna þrjá daga. Það eru íbúar Kristjaníu sem hafa sjálfir lokað staðnum en lokunin er mótmæli gegn áformum stjórnvalda um að gera Kristjaníu að venjulegu íbúðahverfi.

Fyrirtaka í riftunarmálum á sölu World Class

Hinn 5. maí næstkomandi verður fyrirtaka í tveimur riftunarmálum þar sem skiptastjóri einkahlutafélagsins ÞS69, sem átti líkamsræktarstöðvarnar World class áður en það varð gjaldþrota á síðasta ári, krefst riftunar á sölu World Class.

Dollarinn heldur áfram að veikjast

Ekkert lát virðist vera á lækkun á gengi Bandaríkjadollars gagnvart helstu myntum. Þá þróun má einna helst rekja til væntinga markaðsaðila um að peningastefna Seðlabanka Bandaríkjanna verði slakari þegar fram í sækir en peningastefna ýmissa annarra seðlabanka.

Milljón manns sóttu um vinnu á McDonalds

Alls sóttu milljón manns um 50.000 laus störf hjá hamborgarakeðjunni McDonalds í apríl mánuði. Raunar voru 62.000 manns ráðnir eða um 24% fleiri en upphaflega var gert ráð fyrir. 938.000 manns máttu hinsvegar sjá á eftir starfi hjá keðjunni.

Tók Samherja tvo daga að taka út gjaldeyri af reikningi

Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja segir að það hafi tekið ekki færri en 13 starfsmenn fjögurra fyrirtækja í tvo daga að taka út farareyri í evrum til handa þeim starfsmönnum Samherja sem sækja sjávarútvegssýninguna í Brussel í næstu viku. Upphæðin sem um var að ræða nam 7.400 evrum eða um 1,2 milljón króna.

Verðhækkanir á kaffi gætu farið úr böndunum

Ekkert lát er á verðhækkunum á kaffibaunum á heimsmarkaðinum og nú lítur út fyrir að þær gætu farið úr böndunum. Mikið úrhelli í Brasilíu og Kólombíu ásamt hættu á frosti í Brasilíu valda því að kaffibaunir gætu hækkað um 40%.

Lögheiti Landsbankans verður Landsbankinn hf.

Samþykkt var á aðalfundi NBI hf. sem haldin var í gær að breyta lögheiti bankans í Landsbankinn hf. Er þetta í fullu samræmi við yfirlýsta stefnu bankans um að mikilvægara sé að breyta hugarfari en að skipta um nafn. Nafnið Landsbankinn hefur verið og verður vörumerki bankans. Nafnið NBI hf. sem verið hefur lögheitið verður með þessu lagt niður.

Deutsche Bank tapaði 9 milljörðum á Actavis

Deutsche Bank bókfærði 55 milljón evra eða um 9 milljarða kr. tap vegna Actavis á fyrsta ársfjórðungi ársins. Þetta kemur fram í umfjöllun Bloomberg fréttaveitunnar um uppgjör Deutsch Bank fyrir ársfjórðunginn sem reyndist töluvert yfir væntingum sérfræðinga.

Hefja olíuleit við Jan Mayen í sumar

Norðmenn munu hefja olíuleit við Jan Mayen í sumar. Leitin hefst þann 10. júní n.k. og mun standa yfir í að minnsta kosti þrjá mánuði.

Gjaldeyrishöftin valda hækkunum á húsnæðisverði

Ein afleiðing gjaldeyrishaftanna er að húsnæðisverð er á uppleið. Þetta kemur fram í Markaðspunktum greiningar Arion banka þar sem fjallað er um verðbólgumælinguna í apríl. Húsnæðisliðurinn var einn af þeim þáttum sem juku verðbólguna í mánuðinum.

Sum fyrirtæki myndu ekki lifa af verkfall

Andrés Magnússon framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir í Morgunblaðinu í dag að sum fyrirtæki myndu ekki lifa af allsherjarverkfall og hrynja hvert af öðru. Hann bendir á að um 40 prósent launafólks á almennum vinnumarkaði vinni í verslun og ferðaþjónustu. Andrés segir hættu á að lífskjör á Íslandi sigli hraðbyr í átt til þess sem þekkist í Austur Evrópu.

Smáralind tapaði næstum 600 milljónum króna

Tap af rekstri Smáralindar nam 562 milljónum króna á síðasta ári. Leigutekjur félagsins námum 1119 milljónum króna. Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir 11.901 milljónum króna í árslok en eigið fé nam 1128 milljónum króna.

Nýsköpunarsjóðurinn fjárfestir í Mint

Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins ásamt sprotafjárfestum, þar á meðal fjárfestingafélaginu Investa, hafa gert samning um kaup á hlutafé í fyrirtækinu Mint Solutions ehf. Markmið fyrirtækisins er að vera leiðandi í gerð lausna til lyfjaeftirlits á sjúkrastofnunum og hefja markaðssetningu erlendis.

RÚV skilar hagnaði - afkoman betri en búist var við

Hagnaður RÚV var 257 milljónir króna á tímabilinu 1. september 2010 til 28. febrúar á þessu ári. Samkvæmt efnahagsreikningi var verðmæti eigna í lok tímabilsins 5.920 milljónir króna., skuldir námu 4.942 milljónum króna. og eigið fé 978 milljónum króna. Eiginfjárhlutfall félagsins var 16,5%. Afkoma félagsins er um 52 milljónir króna betri en áætlun rekstrarársins. Hún gerði ráð fyrir um 205 milljóna króna hagnaði fyrri hluta rekstrarársins en um 200 milljónir tapi seinni helming þess, þannig að rekstur ársins í heild yrði í jafnvægi. Þessi mikli munur á fyrri og seinni hluta rekstrarársins skýrist af tvennu. Annars vegar er það eðli starfseminnar að afkoman sé betri fyrstu sex mánuði rekstrarársins þar sem stærstu tekjumánuðir í auglýsingum eru á því tímabili. Hins vegar er munurinn milli árshluta nú óvenjumikill vegna þess að þjónustutekjur lækkuðu um rúmlega 21 milljónir á mánuði frá og með janúar 2011. Þær verða því 85 milljónum króna lægri á seinnihluta rekstrarársins sem ýkir venjubundna sveiflu milli árshlutanna.

Kristján Freyr verður framkvæmdastjóri Innovit

Á stjórnarfundi Innovit, nýsköpunar- og frumkvöðlaseturs, sem fram fór í gær var Kristján Freyr Kristjánsson ráðinn nýr framkvæmdastjóri félagsins frá og með 1. júlí næstkomandi. Kristján tekur við af Andra Heiðari Kristinssyni sem stýrt hefur félaginu frá stofnun þess en lætur nú af störfum til að hefja framhaldsnám í Bandaríkjunum að því er fram kemur í tilkynningu frá Innovit.

Jákup hagnaðist um tæplega tvo milljarða í síðustu viku

Færeyingurinn Jákup Jacobsen hagnaðist um tæpa tvo milljarða á eignasafni sínu í Bandaríkjunum í liðinni viku og á þar að auki eignasafn í hlutabréfum fyrir um átta milljarða króna. Forbes-bloggaranum Brendan Coffey þykir reyndar svo mikið til Jákups koma að hann bloggar um viðskiptaafrekin hans.

Glitnir og Kaupþing fá 3,7 milljarða fyrir All Saints

Stjórnendur tískuvöruverslunarinnar All Saints eru á lokastigum samningaviðræðna um 102 milljóna sterlingspunda björgunarpakka fyrir fyrirtækið. Fjárfestingafélögin Goode Partners og Lion Capital munu koma inn með nýtt eigið fé í fyrirtækið.

208 gjaldþrot í mars - aukningin nemur 94% á milli ára

208 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta í mars síðastliðnum og er um aukningu upp á 94 prósent að ræða miða við mars í fyrra. Þá voru 107 fyrirtæki tekin til gjalþrotaskipta að því er fram kemur á heimasíðu Hagstofunnar. Flest gjaldþrotin nú eru í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. Fyrstu þrjá mánuði ársins 2011 hafa 433 fyrirtæki orðið gjaldþrota sem er rúmlega 47 prósenta aukning frá sama tímabili í fyrra þegar 294 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta.

Nýskráningum hlutafélaga fjölgar

Í mars 2011 voru skráð 178 ný einkahlutafélög (ehf) samanborið við 164 einkahlutafélög í mars 2010, sem jafngildir um 8,5% fjölgun á milli ára, samkvæmt upplýsingum á vef Hagstofunnar.

Aðalfundur Landsbankans er í dag

Aðalfundur Landsbankans verður haldinn í dag, klukkan 15.00, á Hilton Reykjavík Nordica. Ársreikningur bankans hefur nú þegar verið kunngerður. Á dagskrá fundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf. Að dagskrá lokinni mun Steven Davis, framkvæmdastjóri og stofnandi ráðgjafafyrirtækisins Davis International Banking Consultants (DIBS), halda fyrirlestur um reynslu Norðmanna og Dana af endurreisn bankakerfisins á tíunda áratugnum. Steven Davis er ráðgjafi Landsbankans. Hann hefur unnið að stefnumótun, samrunum og skipulagsmálum fjármálafyrirtækja um áratuga skeið og ritað fjölda bóka og rannsóknargreina um helstu viðfangsefni sem bankar og tryggingarfélög standa frammi fyrir í alþjóðlegu umhverfi. 1. Skýrsla Bankaráðs um starfsemi bankans árið 2010. 2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðanda lagður fram til staðfestingar. 3. Ákvörðun um meðferð hagnaðar á reikningsárinu 2010. 4. Tillaga Bankaráðs um starfskjarastefnu lögð fram til samþykktar. 5. Tillögur um breytingar á samþykktum. 6. Kosning Bankaráðs. 7. Kosning endurskoðenda. 8. Ákvörðun um þóknun til bankaráðsmanna fyrir störf þeirra fram að næsta aðalfundi. 9. Önnur mál.

10-11 til sölu

Arion banki hefur ákveðið að bjóða verslunarkeðjuna 10-11 til sölu. Verslunin er í eigu Eignabjargs, dótturfélags Arion banka og var áður í eigu Haga, sem var tekið yfir af bankanum á síðasta ári.

Hvetur til meiri olíuframleiðslu

Barack Obama Bandaríkjaforseti hvetur Sádi-Arabíu og önnur olíuframleiðsluríki til þess að herða olíuframleiðslu sína vegna þeirrar óvissu og samdráttar í framleiðslu sem orðið hefur vegna Líbíustríðsins og ólgunnar víðar í ríkjum Norður-Afríku og Mið-Austurlöndum undanfarið.

Viðræður um sölu á eignum Icelandic Group sagðar langt komnar

Fjölmörg fyrirtæki í alþjóðlegum sjávarútvegi og fjárfestar hafa sýnt áhuga á eignum Icelandic Group. Bank of America Merrill Lynch í Bandaríkjunum hefur verið ráðgjafi um mögulega sölu á hlut í félaginu og eignum þess. Þeim sem áhuga hafa á fyrirtækinu er vísað til bankans, að sögn Péturs Þ. Óskarssonar, talsmanns Framtakssjóðs Íslands, aðaleiganda Icelandic Group.

Stöndum verr en Skandínavíuþjóðir

Íslendingar eru í níunda sæti yfir meðvitaða neytendur í Evrópu. Um 74 prósent þjóðarinnar telja sig vera vel að sér í neytendamálum og 56 prósent telja lög um neytendavernd nægilega sterk.

Endurreisnin eftir hrun verður dýrkeypt

Matsfyrirtækið Standard & Poor‘s, S&P, segir að endurrreisnarstarf í Japan eftir náttúruhamfarir og kjarnorkuslys fyrir rúmum mánuði verði svo kostnaðarsamt að það kunni að hafa neikvæð áhrif á ríkisreksturinn.

Stærsti gullforðinn er í Sviss - miðað við mannfjölda

Gullverð er í hæstu hæðum þessa dagana og kemur það sér vel fyrir þau lönd sem hafa verið dugleg við að safna í forðann. Tímaritið The Economist hefur tekið saman töflu yfir þau lönd sem eiga mest af gulli miðað við hvert mannsbarn. Sviss trónir á toppi listans en forðinn þar nemur rúmum sex þúsund dollurum á hvert mannsbarn, eða um 670 þúsund krónum. Það nemur um fjórum únsum á hvert mannsbarn. Heildar gullforði Svisslendinga nemur rúmum þúsund tonnum. Líbanon fylgir í kjölfarið þegar hlutfallslegur forði er mældur og Þjóðverjar eru í þriðja sæti.

Milljarðahagnaður Marel í ársbyrjun

Hagnaður Marel nam um 1450 milljónum íslenskra króna, eða um 8,8 milljónum evra á fyrsta ársfjórðungi. Þetta kemur fram í árshlutauppgjöri sem birt var í dag. Tekjur félagsins á tímabilinu námu um 25 milljörðum íslenskra króna. Tekjurnar jukust um 19% frá sama tímabili í fyrra.

Sendinefnd AGS kemur í kvöld

Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins kemur til Íslands í kvöld vegna fimmtu endurskoðunar sjóðsins á efnahagsáætluninni. Fundir nefndarinnar munu svo hefjast á morgun. Reuters hafði í gær eftir Julie Kozack, einum sendifulltrúanna, að ágætis útlit væri fyrir bata í efnahagslífinu á Íslandi þrátt fyrir ótta um að niðurstöður Icesave kosninganna myndu hægja á bataferlinu. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hér á Íslandi er búist við því að sendinefndin fari af landi brott þann 5. maí.

Kemur seint í kapphlaupið

Japanska tæknifyrirtækið Sony tilkynnti um helgina að það ætlaði að demba sér í slaginn um spjaldtölvurnar og setja tvær slíkar á markað í haust.

Sjá næstu 50 fréttir