Tók Samherja tvo daga að taka út gjaldeyri af reikningi 29. apríl 2011 10:13
Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja segir að það hafi tekið ekki færri en 13 starfsmenn fjögurra fyrirtækja í tvo daga að taka út farareyri í evrum til handa þeim starfsmönnum Samherja sem sækja sjávarútvegssýninguna í Brussel í næstu viku. Upphæðin sem um var að ræða nam 7.400 evrum eða um 1,2 milljón króna. Þorsteinn Már fjallar um málið á vefsíðu Samherja. Þar segir hann að um langt árabil hafa Ice Fresh Seafood og Samherji tekið erlenda mynt út af reikningum sínum fyrir starfsmenn sem þeir hafa síðan haft með sér erlendis í farareyri til að greiða útlagðan kostnað fyrir fyrirtækin. Þetta hefur verið gert til þæginda fyrir þá sem ferðast á vegum félaganna auk þess sem hingað til hefur þetta spara tíma og fjármuni. „Nú er öldin önnur og þegar óskað var eftir að taka jafngildi 7.400 evra út af eigin reikningi í farareyri handa starfsmönnum Ice Fresh Seafood, sem veltir 150.000.000 evrum árlega eða 26 milljörðum íslenskra króna, kom í ljós að það er virkt og öflugt eftirlit sem búið er að byggja upp með gjaldeyrisviðskiptum á Íslandi. Upphæðin jafngildir rúmlega 1,2 milljónum ISK," segir Þorsteinn Már. „Fjármálastjóri Ice Fresh Seafood óskaði eftir að taka út 7.400 evrur í tveimur bönkum án árangurs. Evrurnar sem sannarlega eru í eigu Ice Fresh Seafood og nota á erlendis í þeim tilgangi að greiða kostnað Ice Fresh Seafood. Leiðirnar sem okkur voru boðnar voru meðal annars, að selja okkar evrur og leggja andvirðið í íslenskum krónum inn á reikning starfsmanna, en einungis ef þeir áttu launareikning í viðkomandi útibúi! Starfsmennirnir máttu síðan hver og einn fara í bankann og kaupa sér evrur fyrir andvirðið gegn framvísun farseðils. Fjármálastjóranum hugnaðist ekki þessi leið og ákvað að sjá hvað þyrfti til að ná þessum evrum út af reikningnum. Það leiddi að lokum til að sótt var formlega um undanþágu til Seðlabanka Íslands vegna 7.400 evra með tilheyrandi bréfaskriftum. Þetta ferli að fá að nota evrur Ice Fresh Seafood til að greiða kostnað félagsins spannaði tvo vinnudaga. Það komu ekki færri en 13 starfsmenn fjögurra fyrirtæka og stofnanna að verkefninu og varlega áætlað má ætla að þeir hafi samtals notað meira en 15 vinnustundir til að leysa þetta viðamikla verkefni. Það voru skrifuð tvö formleg bréf, það voru skrifaðir fjöldi tölvupósta og símtölin eru talin í tugum. Við náðum að fá undirskrift aðstoðarseðlabankastjóra Íslands á annað bréfið og ætla má að kostnaður við að afgreiða okkur um þessar Evrur af eigin reikningi nemi um þriðjungi af heildar upphæðinni sem óskað var eftir að taka út. Að undanförnu hefur verið fjallað nokkuð um starfsumhverfi fyrirtækja á Íslandi. Er óeðlilegt í því sambandi að maður spyrji sig : Er hagkvæmt að reka alþjóðlegt sölu- og markaðsfyrirtæki á Íslandi ef það tekur tvo daga að taka út farareyri af reikningi fyrirtækis, handa starfsmönnum þess?"
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp í hópuppsögnum Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp í hópuppsögnum Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Sjá meira