Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Walesbúar brunnu inni með milljarða í íslensku bönkunum Bæjar-og sveitarfélög, lögregluembætti, háskólar og aðrar opinbear stofnanir í Wales brunnu inni með 74 milljónir punda, eða tæplega 14 milljarða kr. í íslensku bönkunum þegar þeir komust í þrot s.l. haust. 14.4.2009 10:14
Landsbankinn lækkar vexti Landsbankinn hefur tilkynnt um lækkun vaxta og tók vaxtabreytingin gildi 11. apríl. 14.4.2009 09:39
Goldman Sachs fyrsti bankinn á leið út úr kreppunni Goldman Sachs skilaði hagnaði upp á 1,8 milljarða dollara eða rúmlega 200 milljarða kr. á fyrsta ársfjórðungi ársins. Er þetta uppgjör töluvert umfram væntingar sérfræðinga og virðist Goldman vera fyrsti bandaríski bankinn sem er að komast út úr fjármálakreppunni. 14.4.2009 09:02
Heimsmarkaðsverð á olíu aftur undir 50 dollara Heimsmarkaðsverð á olíu féll aftur undir 50 dollara tunnan á markaðinum í New York í nótt eða í 49,55 dollara sem er lækkun um 1%. 14.4.2009 08:46
Stjórn JJB Sports reynir að finna þann sem keypti hlut Kaupþings Stjórn JJB Sports hefur sent bréf til allra hluthafa í sportvöruverslanakeðjunni með kröfu um að þeir upplýsi hvort þeir hafi keypt ráðandi hlut í keðjunni. Stjórnin er að reyna að finna út hver hafi eignast hlut þann sem Kaupþing seldi nýlega í keðjunni. 14.4.2009 08:28
Spyr hvort nýtt Enron-mál bíði íslenskra rannsakenda Þegar rannsakendur bankahrunsins á Íslandi fara að komast til botns í því sem þeir eru að skoða er hugsanlegt að þeirra bíði nýtt Enron-mál, skrifar Rowena Mason, blaðamaður Daily Telegraph á vefsíðu blaðsins í gærkvöldi. 14.4.2009 08:12
Samið um uppbyggingu gagnavera á Íslandi Greenstone ehf., félag í eigu íslendinga, hollendinga og bandarískra aðila, hefur ritað undir samning við við bandarískt stórfyrirtæki um uppbyggingu gagnavera á Íslandi. Áform eru uppi um að framkvæmdir geti hafist á þessu ári og að fyrstu gagnaverin verði komið í notkun í janúar 2011. 14.4.2009 07:19
Kaup Gaums á fasteignum Baugs til skoðunar Skiptastjóri þrotabú Baugs er með til skoðunar kaup Gaums á fasteignum frá Baugi skömmu áður en félagið fór í gjaldþrot. Breska dagblaðið The Daily Telegraph greinir frá þessu. 13.4.2009 19:00
Gísli Þór Reynisson er látinn Athafnamaðurinn Gísli Þór Reynisson er látinn. Gísli lést eftir skammvinn veikindi á gjörgæsludeild Landsspítalann við Hringbraut aðfaranótt sunnudags. Gísli sem var 43 ára gamall skilur eftir sig eiginkonu og fjögur börn. 13.4.2009 13:51
Útrásarvíkingarnir sjást ekki á Íslandi Útrásarvíkingarnir voru eitt sinn hetjur á Íslandi, hetjur sem færðu landinu stolt um leið og þeir keyptu upp eignir í Bretlandi og víða um Evrópu. En fall bankanna og krónunnar hefur lækkað rostann í þessu litla landi. Þúsundir íslendinga hafa tapað ævisparnaðinum, atvinnuleysi er komið yfir 9% og stýrivextir daðra við 18%. Mótmæli hafa fellt ríkisstjórnina og bankastjóra seðlabankans. Með þessum orðum hefst grein eftir Rowena Mason í breska blaðinu Daily Telagraph í dag. 13.4.2009 10:38
Efnahagskerfi Kínverja styrkist Efnahagskerfi Kína hefur styrkst að undanförnu en fjármálakreppan hefur líkt og í öðrum ríkjum komið niður á efnahag landsins, að mati Wen Jiabao forsætisráðherra Kína. 12.4.2009 19:45
600 Bretar á Spáni undirbúa málsókn á hendur Landsbankanum Um 600 Bretar sem eiga húsnæði á Spáni undirbúa nú málssókn á hendur Landsbankanum. Þeir reyna nú hvað þeir geta til að koma í veg fyrir að þeir missi heimili sín. 12.4.2009 13:30
Íslandsbanki lækkar vexti Íslandsbanki hefur ákveðið að lækka vexti í kjölfar stýrivaxtalækkunar Seðlabanka Íslands. Kaupþing og Landsbankinn hafa ekki tilkynnt um slíkt. 12.4.2009 12:32
Kínverskur bílaframleiðandi íhugar kaup á Vauxhall Kínverskur bílaframleiðandi íhugar nú kaup á framleiðslu Vauxhall bifreiðanna í Bretlandi. Yfir 5000 manns starfa hjá fyrirtækinu í Bretlandi. 12.4.2009 12:00
Skilanefndin og Tchenguiz deila um Somerfield Skilanefnd Kaupþings og breski auðkýfingurinn Robert Tchenguiz eiga nú í deilum um hvernig skipta eigi söluverði verslunarkeðjunnar Somerfield. Þetta kemur fram í the Observer í dag. Kaupþing og Tchenguiz áttu hlut í Somerfield en verslunarkeðjan var seld í mars fyrir tæplega 30 milljarða króna. 12.4.2009 10:45
Ódýrara að kaupa nýjan bíl heldur en notaðan Í Bretlandi eru nú sumar bifreiðar ódýrari heldur en notaðar. Þetta er þó mismunandi eftir tegundum. Fjármálakreppan hefur haft þessi áhrif. Neytendur geta sparað allt að 1000 pund eða rúmlega 190 þúsund íslenskar krónur ef þeir kaupa nýja bifreið í stað bifreiðar sem búið er að aka nokkur þúsund kílómetra. 12.4.2009 07:00
Forsvarsmenn Goldman Sachs reyna að kveða bloggara í kútinn Forsvarsmenn bandaríska bankans Goldman Sachs reyna nú hvað þeir geta til að fá bloggara til að hætta að blogga um bankann. 11.4.2009 22:00
Samrunaviðræður Yahoo og Microsoft hafnar að nýju Viðræður um samruna Yahoo og Microsoft eru hafnar á nýjan leik en upp úr slitnaði í maraþonviðræðum stjórnenda fyrirtækjanna um samruna þeirra í lok síðasta árs. Jerry Yang, fyrrum forstjóri Yahoo, var þá sakaður um að hafa verið helsti þröskuldurinn sem Microsoft komst ekki yfir þegar fyrirtækið gerði tilboð í Yahoo. 11.4.2009 16:30
Fjársvikamaðurinn Madoff þvingaður í gjaldþrot Fjársvikamaðurinn Bernard Madoff gæti verið þvingaður í persónulegt gjaldþrot til að tryggja að allar eignir hans verði notaðar til að greiða þeim fjárfestum sem hann sveik til baka. Dómari í New York greindi frá þessu í dag. 11.4.2009 15:00
Tveir bandarískir bankar gjaldþrota Regluverðir í Bandaríkjunum lokuðu tveimur bönkum þar í landi í gær, en alls hafa 23 bankar orðið gjaldþrota í Bandaríkjunum það sem af er ári. 11.4.2009 13:00
Japanir örva hagkerfið með innspýtingu Stjórnvöld í Japan hafa greint frá þeirri fyrirætlun sinni að veita 150 milljörðum dollurum í efnahagshvetjandi aðgerðir. Upphæðin samsvarar rúmlega 19 þúsund milljörðum íslenskra króna. 11.4.2009 11:07
Beðnir um að lækka eigin laun Framkvæmdastjórar og aðrir yfirmenn banka- og tryggingarstofnana í Kína hafa verið beðnir um að lækka eigin laun til að draga úr bilinu á milli þeirra og almennra launamanna í landinu. 11.4.2009 10:47
Hollenskir Icesaveeigendur skora á Jóhönnu Hópur sparifjáreigenda sem átti fé á reikningum Icesave í Hollandi hefur ritað Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðehrra bréf og krafist lausna á sínum málum 10.4.2009 14:46
Kaupþing dottið af lista Forbes Kaupþing banki, sem var í 593 sæti á lista Forbes, yfir stærstu 2000 fyrirtæki heims í fyrra er dottinn út af listanum. Þetta þarf ef til vill ekki að koma á óvart enda hrundi bankinn í október og enn hefur ekki tekist að ljúka við gerð efnahagsreiknings hans að nýju. 10.4.2009 10:39
Landsbankinn tekur yfir hlut Magnúsar Ármanns í Byr Landsbankinn er orðinn stærsti hluthafinn í Byr með rétt rúmlega 7,5% hlut samkvæmt nýjum hluthafalista sjóðsins sem birtur var á miðvikudag. Landsbankinn hefur tekið yfir hlut Imons, félags athafnamannsins Magnúsar Ármanns, vegna skulda. 10.4.2009 10:00
MP Banki á ekki Arkea eða Exeter Stjórnarformaður MP Banka, Margeir Pétursson, segir í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér fyrir stuttu að bankinn tengist á engan hátt deilumáli vegna lánveitinga stjórnar Byrs vegna eigin stofnfjárbréfa. 9.4.2009 15:47
Tchenquiz að missa kráarkeðju Athafnamaðurinn Robert Tchenguiz, sem fékk hundruði milljarða lánaða frá Kaupþingi, er nú við það að missa kráarkeðjuna Globe Pub Company. Ástæðan er að skuldabréf að verðmæti 44 milljarðar er gjaldfallið þar sem kráarkeðjan hefur brotið lánaskilmála. 9.4.2009 09:38
Lánshæfi sjóðs Buffetts fellur Moody's hefur lækkað lánshæfismat Berkshire Hathaway, fjárfestingasjóð Warrens Buffet, um tvo stig úr AAA í Aa2. Þetta kemur í kjölfarið á versta afkomuári sjóðsins frá því Buffet eignaðist hann árið 1965. 9.4.2009 09:19
Vextir jöklabréfa lítið tengdir stýrivöxtum Vextir svonefndra jöklabréfa eru ekki nema að litlu marki tengdir stýrivöxtum Seðlabankans, að mati seðlabankastjóra. Bankinn lækkaði stýrivexti í gær. 9.4.2009 08:00
Sparisjóðirnir lækka vexti inn- og útlána Sparisjóðirnir munu flestir lækka inn- og útlánsvexti frá og með 11. apríl. Breytingin er á bilinu 0,5 til 1,5%. 8.4.2009 16:07
Samkomulag um greiðslujöfnun gengistryggðra lána Viðskiptaráðuneytið, Samtök fjármálafyrirtækja og skilanefnd SPRON hafa í dag gert samkomulag um að tryggja greiðslujöfnun gengistryggðra fasteignaveðlána einstaklinga. Samhliða því gera Samtök fjármálafyrirtækja, Landssamtök lífeyrissjóða, skilanefnd SPRON og Íbúðalánasjóður með sér samkomulag um samþykki síðari veðhafa. Markmið samkomulagsins er að tryggja þau áform ríkisstjórnarinnar, að lækka greiðslubyrði á myntkörfulánum þannig að lántekendur geti staðið í skilum, án þess þó að grípa til afskrifta úr bankakerfinu og/eða verulegs kostnaðar úr ríkissjóði. 8.4.2009 15:25
Stýrivaxtalækkunin meiri en almennt hafði verið spáð Stýrivaxtalækkun Seðlabankans var öllu meiri en almennt hafði verið spáð en markaðir hafa þó tekið tíðindunum með ró. Þetta kemur fram í Morgunkorni Íslandsbanka. Í hádeginu höfðu tiltölulega litlar breytingar orðið á kröfu verðtryggðra sem óverðtryggðra skuldabréfa. 8.4.2009 13:20
Stýrivaxtalækkunin vonbrigði Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir það vera vonbrigði að stýrivaxtalækkunin hafi ekki verið meiri en raun ber vitni. Þrátt fyrir lækkunina í dag eru stýrivextir hér á landi með þeim hæstu í heiminum. 8.4.2009 12:20
Teymi leitar eftir heimild til nauðasamninga Fjarskipta- og hugbúnaðarfyrirtækið Teymi hefur ákveðið að leita eftir heimild hluthafa sinna til þess að hefja formlegar viðræður um nauðasamninga. Í tilkynningu frá félaginu segir að stjórnin fagni vilja stærstu kröfuhafa til að taka þátt í endurskipulagningu félagsins þá segir að umræddar aðgerðir muni ekki hafa áhrif á daglegan rekstur og þjónustu dótturfélaga Teymis. 8.4.2009 11:42
Byr semur við erlenda lánardrottna Byr sparisjóður og erlendir lánveitendur sjóðsins hafa gert með sér samkomulag vegna lánasamninga sem kveða á um lágmarks eiginfjárhlutfall umfram það sem fram kemur í lögum um fjármálafyrirtæki. Fram kemur í tilkynningu að allir lánveitendur samþykktu samkomulagið samhljóða. 8.4.2009 11:39
Gengi Eimskips fellur um 20 prósent Gengi hlutabréfa í Eimskipafélaginu féll um 20 prósent í fyrstu viðskiptum dagsins. Þá lækkaði gengi bréfa í Össuri á sama tíma um 0,11 prósent. 8.4.2009 10:36
Þrír starfsmenn Askar Capital grunaðir um lögbrot Fjárfestingabankinn Askar Capital hefur sent tilkynningu til Fjármálaeftirlitsins um meint brot þriggja fyrrverandi starfsmanna á lögum og verklagsreglum bankans. 8.4.2009 09:40
Stýrivextir verða 15,5 prósent Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti um eitt og hálft prósentustig, úr 17 prósentum í 15,5. Peningastefnunefnd bankans mun kynna rökstuðning fyrir ákvörðun sinni klukkan 11 í dag. 8.4.2009 08:59
Alcoa tapaði tæpum hálfum milljarði dollara Álframleiðandinn Alcoa, sem meðal annars á Fjarðarál á Reyðarfirði, tapaði 497 milljónum dollara, jafnvirði um 63 milljarða króna, á fyrsta fjórðungi ársins en fyrirtækið var einnig rekið með tapi ársfjórðunginn þar á undan. 8.4.2009 07:12
Lækkun á Asíumarkaði Hlutabréf á Asíumörkuðum féllu í verði í morgun og voru það bréf fjármálafyrirtækja og námufyrirtækja sem mest lækkuðu. 8.4.2009 06:45
Alcoa tapar 63 milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Álframleiðandinn Alcoa, sem meðal annars á Fjarðarál á Reyðarfirði, tapaði 497 milljónum dollara, jafnvirði um 63 milljarða króna, á fyrsta fjórðungi ársins en fyrirtækið var einnig rekið með tapi ársfjórðunginn þar á undan. 8.4.2009 06:41
MP með mesta veltu Fyrstu þrjá mánuði ársins var MP Banki með mesta markaðshlutdeild í viðskiptum með skuldabréf í Kauphöllinni, samkvæmt nýju yfirliti Nasdaq OMX Iceland. Markaðshlutdeild MP Banka var 24,4 prósent á tímabilinu. Í öðru sæti var Íslandsbanki með 21,29 prósenta hlutdeild og Straumur í því þriðja með 17,35 prósent. 8.4.2009 05:00
Skilanefndir banka og kröfuhafar í uppnámi „Með frumvarpi um slitameðferð fjármálafyrirtækja er verið að setja greiðslustöðvun þeirra í lögformlegt ferli byggt á gjaldþrotaskiptalögum. Við höfum fengið álit við það og umsagnir og skoðum málið þegar það kemur aftur til okkar eftir aðra umræðu á Alþingi," segir Álfheiður Ingadóttir, formaður Viðskiptanefndar Alþingis. 8.4.2009 05:00
Kreppan ekki látin fara til spillis „Synd væri að láta kreppuna fara til spillis,“ segir Barbara Gordon, aðstoðarforstjóri sölusviðs Microsoft til fyrirtækja og samstarfsaðila (Enterprise & Partner Group, EMEA). 8.4.2009 04:30
Vaxandi óþol gagnvart varkárni Seðlabankans „Miðað við aðstæður á markaði og ástand efnahagslífsins eiga vextir að fara mjög hratt niður í eins stafs tölu,“ segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA). 8.4.2009 04:00
Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent