Uppsagnir og launalækkanir hjá SPRON 28. janúar 2009 17:25 Guðmundur Hauksson forstjóri SPRON.
Undanfarna mánuði hefur verið unnið að endurskipulagningu á starfsemi SPRON til þess að mæta breyttum aðstæðum í íslensku efnahagslífi. Meginmarkmið breytinganna er að auka hagræðingu í rekstri og mæta þeim tekjusamdrætti sem fyrirsjáanlegur er næstu misserin. Nauðsynlegt er að bregðast við breyttu rekstrarumhverfi nú og eru aðgerðirnar óháðar áformum um sameiningu SPRON, Sparisjóðsins í Keflavík og Byrs en munu styðja við þau áform. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SPRON nú síðdegis. „Ljóst er að með vaxandi efnahagsþrengingum munu verkefni banka og sparisjóða breytast og tekjumöguleikar þeirra dragast verulega saman næstu misserin. Endurskipulagning á starfsemi SPRON nú er því óhjákvæmileg til þess að mæta breyttum aðstæðum og óháð því hvort af sameiningu við Sparisjóðinn í Keflavík og Byr verður eða ekki," segir Guðmundur Hauksson forstjóri SPRON. Þá segir að breytingar hafi verið gerðar á skipuriti SPRON með það fyrir augum að einfalda skipulag félagsins. Sviðum félagsins hefur verið fækkað í tvö, SPRON sparisjóð og fjárhagssvið. „Aðrar helstu breytingar á skipulagi félagsins er að fjárstýring verður lögð niður sem sérstakt svið og starfsemi þess færð undir Fjárhagssvið. Ósvaldur Knudsen framkvæmdastjóri fjárstýringar verður með breytingunni nú forstöðumaður fjárstýringar. Áhættustýring verður ennfremur færð undir Fjárhagssvið og verður Páll Árnason áfram forstöðumaður áhættustýringar. Valgeir M. Baldursson er framkvæmdastjóri fjárhagssviðs. Þjónustusvið verður lagt niður og hluti starfseminnar færð undir Mannauð og rekstur og hluti undir SPRON sparisjóð. Harpa Gunnarsdóttir verður framkvæmdastjóri Mannauðs og reksturs en hún var framkvæmdastjóri þjónustusviðs áður. Ólafur Haraldsson verður framkvæmdastjóri SPRON sparisjóðs eins og áður. Upplýsingatæknisvið verður lagt niður og verða verkefni sviðsins færð undir Mannauð og rekstur að hluta og SPRON sparisjóð að hluta. Ólafur Haraldsson framkvæmdastjóri SPRON sparisjóðs gegndi stöðu framkvæmdastjóra upplýsingatæknisviðs fyrir breytingarnar. Starfsemi Netbankans verður óbreytt en Geir Þórðarson framkvæmdastjóri Netbankans mun hætta hjá Netbankanum samhliða þessum breytingum og hefja störf hjá SPRON sparisjóði. Sævar Þórisson tekur við starfi framkvæmdastjóra Netbankans en hann var áður markaðsstjóri Netbankans. Unnið er að endurskoðun á starfsemi Frjálsa fjárfestingabankans og SPRON verðbréfa með það að markmiði að ná fram frekari hagræðingu með samþættingu verkefna milli félaganna og SPRON. Kristinn Bjarnason er framkvæmdastjóri Frjálsa Fjárfestingabankans og Björg Kristinsdóttir er framkvæmdastjóri SPRON verðbréfa. Útibú SPRON í Skeifunni og Borgartúni sameinuð, stöðugildum fækkað og laun lækkuð. Við breytingarnar verður útibúi SPRON í Skeifunni lokað og starfsemi þess færð í útibú SPRON í Borgartúni. Útibú SPRON verða sex eftir breytingarnar. Stöðugildum fækkar um 10 og verða starfsmenn SPRON nú 190. Til þess að lágmarka fjölda uppsagna var samið um lækkun starfshlutfalls við nokkra starfsmenn og yfirvinna og hlunnindi lágmörkuð. Stefnt er að allt að 50% lækkun rekstrarkostnaðar á árinu 2009 frá fyrra ári og verið er að endurskoða alla kostnaðarliði til lækkunar en m.a. hefur verið samið um lækkun launa við þá starfsmenn sem eru með laun yfir 450 þúsund krónur. Lækkunin mun nema á bilinu 10-30% og fer stighækkandi eftir því sem launin eru hærri."
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Sjá meira