Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Milljarðabónusar til starfsmanna UBS vekja ofsareiði í Sviss Ofsareiði ríkir nú meðal almennings í Sviss eftir að ljóst varð að stjórn UBS bankans ætlar að borga starfsmönnum sínum samtals 2 milljarða franka eða um 210 milljarða kr. í bónusgreiðslur fyrir árið í fyrra. 27.1.2009 13:17
Norskir þingmenn kynna sér starfsemi LÍÚ Um 20 manna hópur þingmanna norska Stórþingsins sótti höfuðstöðvar LÍÚ heim í morgun. Heimsóknin var hluti af dagskrá þingmannanna í ferð þeirra til Íslands. 27.1.2009 12:57
Íslenskir neytendur hafa aldrei verið jafn svartsýnir Íslenskir neytendur eru afar svartsýnir um þessar mundir, enda leggjast á eitt ótíðindi úr efnahagslífinu, ört vaxandi atvinnuleysi og órói í stjórnmálunum. Hefur væntingavísitala Gallup aldrei verið lægri en nú. 27.1.2009 12:14
Greining Glitnis spáir 18,7% verðbólgu Hagstofan birtir í fyrramálið vísitölu neysluverðs (VNV) fyrir janúar. Greining Glitnis spáir 0,7% hækkun vísitölunnar á milli mánaða, sem jafngildir 18,7% verðbólgu undanfarna 12 mánuði. 27.1.2009 12:10
Vildi kaupa verðbréfamiðlun Landsbankans í Noregi Jon H. Nordbrekken stofnandi og eigandi Bank2 í Noregi reyndi fyrir jól að kaupa verðbréfamiðlun Landsbankans í Noregi. Ætlunin var að tæpur tugur af lykilstarfsmönnum miðlunarinnar myndu koma í vinnu hjá Bank2. 27.1.2009 11:18
Vill draga gíruga bankastjóra fyrir dómstóla í Bretlandi David Cameron formaður breska Íhaldsflokksins segir að hann vilji að gírugir bankastjórar landsins verði dregnir fyrir dómstóla fyrir að hafa komið Bretlandi á hnéin. 27.1.2009 10:43
Enn hækkar Straumur Gengi hlutabréfa í Straumi hefur hækkað um 4,93 prósent síðan viðskipti hófust í Kauphöllinni í dag. Á eftir fylgir gengi bréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum, sem hefur farið upp um 3,6 prósent, og í Össuri, sem hefur hækkað um 2,0 prósent. 27.1.2009 10:37
Hafa áhuga á að leggja sæstreng til Bandaríkjanna Kristján L. Möller samgönguráðherra tók nýlega á móti þremur mönnum frá Bandaríkjunum sem kanna hugsanlega lagningu sæstrengs milli Íslands og Bandaríkjanna. Þeir kynntu ráðherra áform sín en engar ákvarðanir hafa verið teknar. 27.1.2009 10:10
Hagfræðideild Landsbankans spáir óbreyttum stýrivöxtum Hagfræðideild Landsbankans spáir því að Seðlabankinn haldi stýrivöxtum sínum óbreyttum við vaxtaákvörðun sína á fimmtudag. Er deildin þar sem sammála greiningu Glitnis um vextina. 27.1.2009 09:31
Vetrarhörkur vestanhafs hækka olíuverðið Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað hratt undanfarna daga eftir að að fór niður í 34 dollara á tunnuna í síðustu viku. Í morgun var verðið á markaðinum í New York komið í 46 dollara og er skýringin sú að miklar vetrarhörkur eru nú í Bandaríkjunum. 27.1.2009 08:59
Vogunarsjóður græddi 46 milljarða kr. á að skortselja RBS Vogunarsjóðurinn Paulson & Co, einn sá stærsti í heiminum, græddi 270 milljón pund eða um 46 milljarða kr. á því að skortselja hluti í Royal Bank of Scotland (RBS). 27.1.2009 08:38
Sparifjáreigendur Kaupþings í Bretlandi enn í biðstöðu Yfir 6.000 manns sem áttu fé inni á reikningum hjá Singer & Friedlander, banka Kaupþings í Bretlandi, hafa enn ekki fengið innistæður sínar greiddar. Upphaflega lofaði bankatryggingarsjóður landsins (FSCS) að borga féið út fyrir jólin í fyrra. 27.1.2009 08:22
Hækkun á Asíumörkuðum Hlutabréf á Asíumörkuðum hækkuðu í verði í morgun með aukinni bjartsýni fjárfesta á að lánsfé verði aðgengilegra í heiminum í kjölfar aðgerða ýmissa ríkisstjórna til að glæða efnahagslífið. 27.1.2009 08:09
Árvakur í söluferli Árvakur hf., útgáfufélag Morgunblaðsins, hefur falið Fyrirtækjaráðgjöf Nýja Glitnis banka hf. að annast ráðgjöf og formlegt ferli sem lýtur að öflun hlutafjár fyrir félagið. Bankinn mun á næstu dögum auglýsa eftir tilboðum í nýtt hlutafé Árvakurs, sem gefið verður út eftir að núverandi eigendur færa niður eign sína í félaginu. 26.1.2009 17:16
Straumur hækkaði um rúm 15% í dag Það var Straumur sem keyrði úrvalsvísitöluna aðeins upp á við í dag en félagið hækkaði um 15,4%. 26.1.2009 16:34
Almenningur aldrei eins jákvæður gagnvart Íbúðalánasjóði Viðhorf almennings gagnvart Íbúðalánasjóði hefur aldrei mælst eins jákvætt og nú ef marka má viðhorfsrannsóknir Capacent Gallup. Aðeins 3,9% segjast nú vera frekar eða mjög neikvæðir gagnvart sjóðnum, en 14,3% 26.1.2009 16:05
Krónan heldur áfram að styrkjast Krónan hélt áfram að styrkjast í dag og lækkaði gengisvísitalan um 1,3%. Hefur því þróunin á gjaldeyrismarkaðinum frá í síðustu viku haldið áfram að krónan styrktist um rúm 4% í síðustu viku. 26.1.2009 15:47
Yfir 44.000 manns misstu vinnuna í dag Yfir 44.000 manns misstu vinnu sína í dag, beggja megin við Atlantshafið. Stærstur hluti hópsins, eða 20.000 manns, voru reknir frá vinnuvélaframleiðandanum Caterpiller í Bandaríkjunum. 26.1.2009 15:21
Icelandair semur við Nýja Glitni um endurfjármögnun Icelandair Group hefur, í samstarfi við viðskiptabanka sinn Nýja Glitni, lokið við endurfjármögnun á víxlum til skamms tíma eða þriggja mánaða. 26.1.2009 14:31
Sparisjóðabankinn fær viðbótarfrest fyrir tryggingum Sparisjóðabanki Íslands hf. hefur fengið frest til 28. febrúar n.k. til að leggja fram frekari tryggingar í kjölfar veðkalls sem Seðlabanki Íslands sendi bankanum hinn 20. október sl.. 26.1.2009 13:45
Verð á gulli rýfur 900 dollara múrinn Heimsmarkaðsverð á gulli er nú komið yfir 900 dollara á únsuna og hefur ekki verið hærra í tæpa fjóra mánuði. Fjárfestar hópast í verðbréf sem byggja á gullbirgðum auk þess sem mikil ásókn er í gullpeninga og gullstangir. 26.1.2009 13:25
Jakkaföt fyrir 5 milljónir seljast eins og heitar lummur Jakkafataframleiðandinn Brioni er ekki banginn við kreppuna og hefur sett nýja jakkafatalínu á markaðinn þar sem stykkið, án bindis, kostar rúmlega 5 milljónir kr.. 26.1.2009 12:17
Fjárfestar sækja í ríkistryggð skuldabréf Sókn fjárfesta í ríkistryggð skuldabréf er mikil þessa dagana, hvort sem um er að ræða skammtímapappíra eða langtímabréf. 26.1.2009 12:00
Spáir óbreyttum stýrivöxtum hjá Seðlabankanum á fimmtudag Greining Glitnis spáir því að stjórn Seðlabankans tilkynni á fimmtudaginn að stýrivextir verða óbreyttir að þessu sinni. Framundan er flot krónunnar og bankinn vill mæta því með mikinn mun innlendra og erlendra vaxta. 26.1.2009 11:26
Skipti Matadorpeningum fyrir danskar krónur Rúmlega sextugri konu í Svendborg í Danmörku tókst nýlega að skipta Matadorpeningum yfir í raunverulegar danskar krónur. 26.1.2009 10:57
Geir Haarde einn þeirra sem bera ábyrgð á kreppunni í heiminum Geir Haarde forsætisráðherra er meðal 25 nafna sem breska blaðið The Guardian segir að beri ábyrgð á fjármálakreppunni sem nú geysar í heiminum. 26.1.2009 10:20
Straumur stekkur upp í byrjun dags Gengi hlutabréfa í Straumi hefur rokið upp um rúm 8,9 prósent frá því viðskipti hófust í Kauphöllinni fyrir rúmum stundarfjórðungi. Á eftir fylgir gengi bréfa í Marel Food Systems, sem hefur hækkað um 0,77 prósent, og í Össuri, sem hefur hækkað um 0,62 prósent. 26.1.2009 10:16
McDonald´s fitnar í fjármálakreppunni McDonald´s hamborgarakeðjan hefur tilkynnt að hún muni opna 240 nýja staði í Evrópu með um 12.000 starfsmönnum í ár. Um er að ræða mesta vöxt McDonald´s í Evrópu undanfarin fimm ár. 26.1.2009 09:33
Hættir sem stjórnarformaður Tandberg Data og selur hluti sína Guðmundur Einarsson er hættur sem stjórnarformaðir tölvufyrirtækisins Tandberg Data í Noregi og hefur hann jafnfram selt alla hluti sína í fyrirtækinu. 26.1.2009 09:17
Hollenski stórbankinn ING rekur 7.000 starfsmenn Hollenski stórbankinn ING ætlar að reka um 7.000 starfsmenn sína í ár og reyna með því að spara um einn milljarð evra eða hátt í 170 milljarða kr.. 26.1.2009 09:02
Lækkun á Asíumörkuðum Hlutabréf á Asíumörkuðum lækkuðu í verði í morgun og hefur staða hlutabréfavísitalna þar ekki verið lægri við lok viðskiptadags í tæpa þrjá mánuði. Afkomuviðvörun frá vinnuvélaframleiðandanum Komatsu vó þungt í lækkunum dagsins en á meðan hækkuðu bréf nokkurra annarra framleiðslufyrirtækja, meðal annars í lyfjageiranum. 26.1.2009 08:11
Hagvöxtur í heiminum 2009 minni en spáð var Hagvöxtur í heiminum á þessu ári verður mun minni en Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn spáði í október, að hann yrði. Þá spáði hann 2,2 prósenta hagvexti en i nýrri spá spáir hann aðeins 1 til 1,5 prósenta hagvexti í ár. Það eru einkum Indland og Kína sem halda hagvextinum uppi en samdráttur er á Vesturlöndum. 26.1.2009 07:24
Bankastjóri bjartsýnn á 2010: Óvissa á evrusvæðinu í ár Jean-Claude Trichet, bankastjóri Seðlabanka Evrópu, sagði á fundi efnahagsnefndar Evrópuþingsins í síðustu viku að bankinn ætli að leggja sitt af mörkum svo aðstæður í hagkerfi evrulandanna versni ekki frekar. Hann studdi aðgerðir Breta og Frakka til að koma bönkum til bjargar og sagði útlit fyrir að ríkisstjórnir evrulandanna verði ráðandi aflið sem knýja muni hagkerfið áfram á meðan versti samdrátturinn gangi yfir. Bankastjórinn sagði mikla óvissu um þróun efnahagsmála á evrusvæðinu á þessu ári. Reikna megi með batamerkjum á næsta ári. - jab 26.1.2009 01:30
AGS breytir spá um hagvöxt Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn mun á næstu dögum lækka hagvaxtaspá sína fyrir 2009 frá því sem birt var í nóvember. Þá var spáð að hagvöxtur í heiminu yrði 2,2% en í október hafði sjóðurinn spáð 3% hagvexti. Talið er að spáin lækki nú niður í 1 til 1,5% sem sérfræðingar segja umtalsverða breytingu. Sérfræðingur hjá sjóðnum segir útlit á alþjóðamörkuðum mjög dökkt. 25.1.2009 14:03
Selja tvær þyrlur á 700 milljónir Sportvöruverslunarkeðjan JJB Sports, þar sem Exista er stærsti hluthafinn, hefur ákveðið að selja tvær þyrlur sem voru í eigu fyrirtækisins fyrir um sjö hundruð milljónir. JJB Sports rær nú lífróður til að bjarga sér frá gjaldþroti. 25.1.2009 09:26
Skilanefndirnar munu kosta 1,8 milljarð Kostnaður við skilanefndir bankanna verður orðinn 1,8 milljarðar króna ef þær starfa í óbreyttri mynd næstu þrjú árin eins og gert er ráð fyrir að þær muni gera. 24.1.2009 18:55
Sala á Harley-Davidson mótorhjólum dregst saman um 58% Harley-Davidson mótorhjólaframleiðandinn neyðist til að draga úr framleiðslu sinni og segja upp rúmlega 1100 starfsmönnum í kjölfar aðkomuviðvörunnar. Eftirspurn og sala á mótorhjólunum hefur dregist saman um 58% frá því 2007. 24.1.2009 12:52
Forstjórinn tekur poka sinn Kenneth Lewis, forstjóri Bank of America, umsvifamesta banka Bandaríkjanna, sparkaði í vikunni John Thain, forstjóra fjárfestingabankans Merrill Lynch. 24.1.2009 06:00
Skoða Árvakur og tónlistarhús Ástralski fjárfestirinn Steve Cosser og hollenskur viðskiptafélagi hans, Everhard Vissers, hafa gert tilboð í Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins. Þeir hafa sömuleiðis sýnt áhuga á tilboði í tónlistar- og ráðstefnuhúsið við Reykjavíkurhöfn. 24.1.2009 05:00
Microsoft dregur saman seglin Bandaríski hugbúnaðarrisinn Microsoft ætlar að segja upp fimm þúsund manns í hagræðingarskyni til að mæta minni eftirspurn eftir hugbúnaði og öðrum vörum fyrirtækisins. Þetta jafngildir fimm prósentum af starfsliði fyrirtækisins. 24.1.2009 03:30
Kreppa í Bretlandi Hagvöxtur dróst saman um 1,5 prósent á síðasta fjórðungi nýliðins árs, samkvæmt nýjustu tölum bresku hagstofunnar frá í gær. Þetta bætist við 0,6 prósenta samdrátt á þriðja fjórðungi og er því kreppa komin að ströndum landsins, samkvæmt helstu skilgreiningum. 24.1.2009 02:30
Kosningar í vor auka ekki tiltrú á íslenskt efnahagslíf Kosningar á Íslandi í vor munu lítil áhrif hafa á erlenda fjárfesta og tiltrú þeirra á íslenskt efnahagslíf og krónuna. Þetta er mat þeirra sérfræðinga sem Reuters fréttastofan ræddi við í dag eftir að Geir Haarde tilkynnti um vilja sinn til þess að halda kosningar í maí. „Vandræði Íslendinga hafa lítið með pólitík að gera," segir Chris Turner, sérfræðingur hjá ING í Bretlandi. Hann segir stjórnmálin á Íslandi vera aukaatriði frá sjónarmiði viðskiptaheimsins. 23.1.2009 21:36
Fyrrverandi stjórnarmenn í Glitni ætla að áfrýja Fyrrverandi stjórnarmenn Glitnis hafa sent frá sér tilkynningu þess efnis að þeir muni áfrýja til Hæstaréttar dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Vilhjálms Bjarnasonar gegn stjórninni vegna kaupa Glitnis á hlutabréfum Bjarna Ármannssonar í apríl 2007. Héraðsdómur komst í dag að þeirri niðurstöðu að greiða ætti Vilhjálmi, sem var hluthafi í bankanum, um tvær milljónir króna í skaðabætur. 23.1.2009 17:53
1,2 milljarðar í tap hjá Nýjerja - fjármagnsgjöld aukast verulega Tap Nýherja á síðasta ári nemur 1.201 milljónir króna samanborið við hagnað upp á 420 milljónir árið 2007. Hrein fjármagnsgjöld voru 1.480 milljónir í samanburði við rúmlega 92 milljónir á sama tímabili árið 2007. Þetta kemur fram í árshlutauppgjöri sem birt var í dag. 23.1.2009 20:26
Century Aluminum lækkaði mest Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, féll um 3,16 prósent í Kauphöllinni í dag. Á eftir fylgdi gengi bréfa í Marel Food Systems, sem lækkaði um 1,66 prósent, í Eimskipi, sem lækkaði um 0,77 prósent og Össur, sem fór niður um 0,21 prósent. 23.1.2009 16:57