Viðskipti innlent

Engar stórar upphæðir fóru til Tchenguiz síðustu vikurnar fyrir hrunið

Hreiðar Már Sigurðsson.
Hreiðar Már Sigurðsson.

Hreiðar Már Sigurðsson fyrrverandi forstjóri Kaupþings segir að engar stórar upphæðir hafi farið út úr bankanum til Roberts Tchenguiz síðustu vikurnar fyrir fall bankanna.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Hreiðar sendir frá sér í kjölfar umfjöllunar í Kastljósi Sjónvarpsins í gærkvöldi. Yfirlýsinguna má sjá hér að neðan:

„Yfirlýsing frá Hreiðari Má Sigurðssyni fyrrverandi forstjóra Kaupþings

Vegna umfjöllunar í Kastjósi Sjónvarpsins í gærkvöldi varðandi lán Kaupþings banka til breska kaupsýslumannsins Robert Tchenguiz vil ég koma eftirgreindu á framfæri:

Robert Tchenguiz og fyrirtæki hans voru einn af stærstu viðskiptavinum Kaupþings. Lánveitingar Kaupþings til hans námu mun lægri fjárhæð en kom fram í Kastljósi í gær.

Umrædd viðskipti byggðust að hluta á lánafyrirgreiðslu en að mestu leyti á endurhverfum verðbréfaviðskiptum þar sem bankinn var milliliður á milli fyrirtækja hans og alþjóðlegra fjármálastofnana sem fjármögnuðu viðskiptin. Að gefnu tilefni skal jafnframt áréttað að engar stórar upphæðir fóru út úr bankanum á síðustu vikunum fyrir fall bankans til þessa viðskiptavinar né fyrirtækja honum tengdum."




Tengdar fréttir

FME segir rakalausar dylgjur og ásakanir í Kastljósi

Í tilkynningu á vef Fjármálaeftirlitsins segir að í Kastljósi þann 27. janúar hafi þeir Helgi Seljan og Kristinn Hrafnsson fjallað um viðskipti Roberts Tchenguiz við Kaupþing. Í umfjölluninni komu fram alvarlegar missagnir um starfsemi Fjármálaeftirlitsins og rakalausar ásakanir og dylgjur sem ekki er hægt að láta ósvarað.

Fengu tugmilljarða lán frá Kaupþingi

Tchenguiz bræður fengu tugi milljarða lánaða frá Kaupþingi hér á landi, í Bretlandi og Lúxemborg mánuðina fyrir bankahrunið. Veðin fyrir lánunum eru að mestum hluta í breskum fasteignafélögum en breskur fasteignamarkaður er gott sem hruninn. Lánin voru veitt á sama tíma og nær ógjörningur var fyrir íslensk fyrirtæki að fá fyrirgreiðslu í íslenskum bönkum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×