Viðskipti innlent

Úrvalsvísitalan komin aftur á miðjan síðasta áratug

Úrvalsvísitalan féll um rúm 40% í dag og er gildi hennar, 395 stig, því komið aftur á þær slóðir sem það var um miðjan síðasta áratug.

Hlutabréf í Exista hrundu um 97% og Straumur hrundi einnig eða um tæp 59% en bæði þessi félög voru tekin aftur í viðskipti í kauphöllinni eftir hlé frá bankahruninu í október. Þá lækkaði Bakkavör um rúm 15%.

Mesta hækkun varð hjá Atlantic Petroleum eða 2,5%, Foryoa Banki hækkaði um 0,8% og Marel um 0,2%.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×