Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Enn samdráttur í verslun Tæplega níu prósent samdráttur varð á veltu í dagvöruverslun miðað við sama mánuð í fyrra. Þetta kemur fram í tölum sem Rannsóknasetur verslunarinnar hefur tekið saman. Um er að ræða tölur á föstu verðlagi en miðað við breytilegt verðlag jókst velta dagvöruverslunar um 19,1% miðað við sama mánuð í fyrra. Samdráttur í verslun miðað við sömu mánuði í fyrra hefur nú varað í fjóra mánuði. Talið er líklegt að jólaverslunin muni einnig dragast saman. 9.12.2008 11:38
Góður árangur ef stöðug króna næst á tveimur mánuðum Poul Thomsen forstöðumaður aðstoðar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins við Ísland, segir að það verði metið sem góður árangur ef tekst að koma stöðugleika á gengi krónunnar á næstu tvéimur mánuðum. Thomsen reiknar með að eftir það verði dregið úr þeim hömlum sem nú eru á viðskipti með erlendan gjaldeyri. 9.12.2008 11:33
Christie Hefner hættir sem forstjóri Playboy Christie Hefner hefur ákveðið að hætta sem forstjóri og stjórnarformaður Playboy-veldisins en þessum störfum hefur hún gengt undanfarin 20 ár. 9.12.2008 11:07
ILS lánaði 4,3 milljarða kr. í nóvember Alls námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs (ILS) rúmlega 4,3 milljörðum króna í nóvember. Þar af voru tæplega 3,2 milljarðar kr. vegna almennra lána og tæpir 1,1 milljarður kr. vegna leiguíbúðalána. 9.12.2008 10:52
Nóbelsjóðurinn hefur tapað 10 milljörðum króna Nóbelsjóðurinn, sem stendur á bakvið Nóbelsverðlaunin, hefur tapað 650 milljónum norskra kr, eða um 10 milljörðum kr. á þessu ári. Þetta kemur fram´í Finansavisen sem reiknaði út tapið miðað við hluta- og verðbréfaeign sjóðsins í upphafi ársins. 9.12.2008 10:36
Krónan heldur áfram að styrkjast Gengi krónunnar hélt áfram að styrkjast fjórða daginn í röð. Gengisvísitalan hefur lækkað um 1,30% í morgun og stendur í 191 stigi. 9.12.2008 10:27
Trichet segir Ísland verða að ganga í ESB til að taka upp evruna Jean-Claude Trichet seðlabankastjóri Evrópubankans segir að Ísland verði að ganga í Evrópusambandið ef þjóðin ætlar að taka upp evruna. Þetta kom fram í máli Trichet á fundi með efnahagsnefnd ESB í gærdag. 9.12.2008 10:00
Exista á 10 aura og - Straumur á rúman túkall Gengi hlutabréfa í Existu hrundi um 97,8 prósent og bréf Straums 64,7 prósent við upphaf viðskiptadagsins í Kauphöllinni. Viðskipti með bréf beggja félaga hafa verið á salti í rúma tvö mánuði. 9.12.2008 10:00
Fjárfestingasjóður kaupir Wyndeham prentsmiðjuna Afskiptum Íslendinga af Wyndeham prentsmiðjunni er endanlega lokið en fjárfestingasjóðurinn Walstead Investments hefur fest kaup á prentsmiðjunni að mestu með yfirtöku á skuldum. 9.12.2008 09:25
Bakkavör í samningum við 17 banka með aðstoð Rothschild Bakkavör á nú í samningum um sambankalán hjá 17 bönkum og nýtur til þess ráðgjafar frá Rothschild fjárfestingarbankanum. Að sögn Financial Times eru samningar þessir tilkomnir vegna þess að innistæða Bakkavarar upp á 150 milljón pund, eða um 26 milljarða kr., brann inni í gamla Kaupþingi er bankinn hrundi. 9.12.2008 08:44
Lán til bílaframleiðenda í sjónmáli Ekki er útilokað að bílaframleiðendurnir General Motors og Chrysler fái 15 milljarða dollara neyðarlán um miðjan mánuðinn til framdráttar í efnahagslægðinni. 9.12.2008 08:17
Efnahagsáætlanir Obama hækka heimsvísitöluna Hlutabréf á Asíumörkuðum hækkuðu í verði í morgun og telja greiningaraðilar að það megi þakka áætlunum nokkurra ríkisstjórna allt frá Bandaríkjunum til Indlands um örvun efnahagslífsins með ýmsum hætti. 9.12.2008 08:10
Stofna eignarhaldsfélag Nýja Kaupþing stofnar fjárfestingar- og fasteignafélag til að halda utan um eignir sem bætast kunna í safn bankans á næstu mánuðum vegna erfiðleika í rekstri stærri fyrirtækja sem eru í viðskiptum við bankann. 9.12.2008 06:00
Ekki aðhafst vegna kaupa Birnu í Glitni Fjármálaeftirlitið (FME) telur ekki tilefni til aðgerða af hálfu eftirlitsins gagnvart Birnu Einarsdóttur, forstjóra Nýja Glitnis, eða Melkorku ehf., fjárestingarfélagi hennar. 9.12.2008 06:00
Búist við betri þátttöku núna Útboð verður haldið á nýjum flokki ríkisbréfa klukkan tvö á morgun, miðvikudag. Um er að ræða óverðtryggð ríkisbréf sem bera 13,75 prósenta vexti sem greiddir eru árlega. 9.12.2008 06:00
Vilja setja 1700 milljarða króna í bílaiðnaðinn Demókratar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings vilja verja 15 milljörðum bandaríkjadala, eða 1700 milljarða íslenskra króna, til að styðja við bílaframleiðendur í Bandaríkjunum. Heimildarmenn AFP fréttastofunnar segja óvíst að Bush forseti samþykki hugmyndina. 8.12.2008 00:01
Obama kætir bandaríska fjárfesta Bandarísk hlutabréf hækkuðu almennt í verði í dag en fjárfestar þykja afar bjartsýnir á að átak Baracks Obama, verðandi forseta landsins, til endurreisnar á bandarísku efnahagslífi muni ganga eftir. 8.12.2008 21:13
Nýja Kaupþing unir ekki kaupum Bakkabræðra í Exista Stjórn Nýja Kaupþings banka hf. unir ekki sölu stjórnar Exista hf. á nýjum hlutum í félaginu til Kvakks ehf./BBR ehf., eignarhaldsfélags í eigu stjórnarformanns Exista og bróður hans. 8.12.2008 18:33
New York Times tekur risalán Bandaríska dagblaðið New York Times ætlar að taka að láni allt að 225 milljónum dollara til þess að létta lausafjárstöðu sína. 8.12.2008 17:43
Bakkabræður eignast megnið af Exista fyrir milljarð króna Lýður og Ágúst Guðmundssynir, eigendur Bakkavarar, hafa ákveðið að leggja Existu til 1 milljarð kr. í reiðufé í flóknum viðskiptum með tvö óskráð félög í eigu þeirra bræðra, Kvakki ehf/BBR ehf. Í framhaldinu eignast þeir 88% af Exista. 8.12.2008 17:10
FME: Birna keypti í Glitni í góðri trú Fjármálaeftirlitið hefur lokið rannsókn sinni á viðskiptum Birnu Einarsdóttur, núverandi forstjóra Nýja Glitnis, þegar hún, eða félag hennar Melkorka ehf., keypti hlutabréf í bankanum. Kaupin gengu aldrei í gegn og því slapp Birna við tap sem varð þegar bréf í Glitni misstu verðgildi sitt. FME kemst að þeirri niðurstöðu að gögn málsins sýni að viðskiptin hafi ekki náð fram að ganga vegna vanrækslu af hálfu gamla Glitnis. „Ekkert í gögnum málsins bendir til annars en að Birna Einarsdóttir hafi verið í góðri trú og að vanefnd stafi af ástæðum sem eru óviðkomandi henni,“ segir í frétt á heimasíðu FME. 8.12.2008 16:56
Century Aluminum hækkar um fimmtung Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, stökk upp um 19,85 prósent í Kauphöllinni á miklum uppsveifludegi í dag. Á eftir fylgdu bréf Atlantic Petroleum, sem hækkaði um 9,65 prósent, Bakkavör, sem fór upp um 8 prósent, Marel Food Systems, sem hækkaði um 4,66 prósent og Össur, en gengi bréfa í félaginu hækkaði um 4,17 prósent. Þá hækkaði gengi bréfa Eimskips um 0,76 prósent. 8.12.2008 16:39
Ekkert lát á styrkingu krónunnar Ekkert lát er á styrkingu krónunnar síðan hún var sett á flot með kút og korki í síðustu viku. Gengið styrktist um 5,8% í dag og hefur því styrkst um 25% frá flotinu. 8.12.2008 16:27
Fréttaskýring: Var símtal Árna dýrasti misskilningur Íslandssögunnar? Það er athyglisvert að hvorki Árni Mathiesen fjármálaráðherra eða Björgvin G. Sigurðsson bankamálaráðherra eiga til minnismiða í fórum sínum um Icesave fundi sína og samtöl við breska ráðamenn. Vitað er að bresk stjórnvöld höfðu mikinn áhuga á að setja Icesave inn í breskt dótturfélag í haust þegar vitað var að hverju stefndi með íslenska bankakerfið. 8.12.2008 15:49
Eyrir tapaði engu á bönkunum, NBI orðinn hluthafi Eyrir Invest varð ekki fyrir skakkaföllum af völdum bankahrunsins í byrjun október. Félagið hefur náð samkomulagi um að taka yfir hlut Nýja Landsbankans (NIB) í London Acquisition í hollensku iðnsamsteypunni Stork. Félagið er í eigu Landsbankans, Eyris og breska fjárfestingafélagsins Candover. 8.12.2008 14:44
Nýja Kaupþing ræður umboðsmann viðskiptavina Stjórn Nýja Kaupþings banka hefur ákveðið að auglýsa eftir umboðsmanni viðskiptavina. Þetta er í samræmi við tillögur sem vinnuhópur á vegum ríkisstjórnarinnar kynnti þann 2. desember síðastliðinn. Umboðsmaðurinn verður óháður og starfar í umboði stjórnar bankans. 8.12.2008 14:11
Harvard háskólinn tapar miklum fjárhæðum í kreppunni Hinn þekkti Harvard háskóli í Bandaríkjunum fer ekki varhluta af fjármálakreppunni. Fjárfestingarsjóður skólans hefur tapað nær 900 milljörðum kr. á síðustu fjórum mánuðum. 8.12.2008 13:54
Omnis fær gullvottun hjá Microsoft Fyrirtækið Omnis hefur hlotið gullvottun sem Microsoft-samstarfsaðili, sem þýðir að Omnis og starfsmenn þess hafi staðist ítrustu kröfur Microsoft og séu í hópi þeirra sem mesta þekkingu hafa á lausnum fyrirtækisins. 8.12.2008 13:11
Vilja kanna kosti á einhliða upptöku annars gjaldmiðils Stjórn Samtaka fiskvinnslustöðva skorar á stjórnvöld að kanna nú þegar kosti þess að taka einhliða upp annan gjaldmiðil í stað krónunnar. Þetta var tekið til umræðu og afgreiðslu á stjórnarfundi SF. 5. desember og samþykkt einróma. 8.12.2008 12:54
Actavis selur eina af verksmiðjum sínum í Búlgaríu Actavis skrifaði í morgun undir viljayfirlýsingu um sölu á einni af lyfjaverksmiðjum félagsins í Búlgaríu og gerir um leið framleiðslusamning við nýja eigendur. 8.12.2008 12:49
Söluferli Kaupþings í Lúxemborg í biðstöðu Söluferli Kaupþings banka í Lúxemborg er í biðstöðu vegna lagalegra vandkvæða, en náist ekki að selja bankann fljótlega verður hann tekinn til gjaldþrotaskipta. Við sögðum frá því í fréttum okkar í gærkvöldi að Líbýskur fjárfestingarbanki í ríkiseigu vilji fjárfesta í bankanum. 8.12.2008 12:47
Bankarnir eru aðalsökudólgar fjármálakreppunnar Bankarnir bera sjálfir sökin á því hvernig fyrir þeim er komið í fjármálakreppunni. Þetta er álit formanns Fjármálaráðsins danska (Finansrådet). 8.12.2008 12:34
Vélar Sterlings settar á flugvélakirkjugarð Fjórar af flugvélum Sterling hafa endað feril sinn á flugvélakirkjugarði í Bandaríkjunum. Þegar Sterling varð gjaldþrota var félagið með 24 vélar í rekstri en allar voru þær á leigu. 8.12.2008 12:29
Engin samdráttur í jólaversluninni þrátt fyrir kreppuna Kaupmenn segjast, þrátt fyrir kreppu, ekki finna fyrir samdrætti í jólaverslun. Skýringu á því gæti verið að finna í að Íslendingar kaupa nú gjafir í verslunum hérna heima í stað þess að ferðast í stórum flokkum erlendis til að kaupa gjafirnar eins og tíðkaðist fyrir kreppu. 8.12.2008 11:57
Raungengi krónunnar í sögulegum lægðum Raungengi krónu náði sögulegum lægðum í nóvember og var það ríflega fimmtungi lægra en þegar krónan stóð sem veikust í árslok 2001. Verðlag hérlendis er þannig orðið afar lágt miðað við helstu viðskiptaþjóðir okkar, og það sama gildir um kaupmátt Íslendinga erlendis. 8.12.2008 11:26
Gunnar nýr forstjóri Opinna kerfa Gunnar Guðjónsson hefur verið ráðinn forstjóri Opinna kerfa og tekur hann við starfinu af Agnari Má Jónssyni sem hefur látið af störfum. 8.12.2008 11:07
Marel rýkur upp í morgunsárið Gengi hlutabréfa í Marel Food Systems hefur rokið upp um 4,14 prósent í byrjun dags í Kauphöllinni. Þetta er mesta hækkun dagsins. Á eftir fylgir gengi bréfa í stoðtækjafyrirtækinu Össur, sem hefur hækkað um 1,67 prósent. Þá hefur gengi Bakkavarar hækkað um 0,67 prósent. 8.12.2008 10:15
Viðskipti með bréf í Straumi hefjast ekki í dag Viðskipti með hlutabréf í Straumi mun ekki hefjast í kauphöllinni í dag. Í tilkynningu frá Straumi segir að þegar sú ákörðun verði tekin muni Fjármálaeftirlitið tilkynna Kauphöllinni það samdægurs. 8.12.2008 10:10
Atlantic Petroleum úthlutað stóru olíuleitarsvæði Atlantic Petroleum hefur fengið úthlutað stóru nýju olíuleitarsvæði fyrir utan Færeyjar en þetta var í þriðja sinn sem færeysk stjórnvöld úthluta leitarsvæðum við eyjarnar. 8.12.2008 10:08
Gengisvísitalan komin niður fyrir 200 stig Gengi íslensku krónunnar heldur áfram að styrkjast í dag. Gengisvísitalan er nú komin niður fyrir 200 stig og stendur í rétt rúmum 199 stigum. 8.12.2008 10:02
Skuldabréfamarkaður aðeins að taka við sér Heildarviðskipti með skuldabréf námu alls 94 milljörðum kr. í nóvember, og eru þá orðin samtals 5.047 milljarðar kr. það sem af er árinu. Viðskiptin voru umtalsvert minni í október en nóvember. 8.12.2008 09:51
Árni með titilinn versti bankamaður heims í hendi sér Árni Mathiesen fjármálaráðherra er nú með titilinn versti bankamaður heimsins í hendi sér. Hann er með örugga forystu í netkosningu vefsíðunnar The Huffington Post um titilinn. 8.12.2008 09:43
Lánatryggjendur spá í framtíð Bakkavarar í Bretlandi Nokkrir af lánatryggjendur hjá byrgjum Bakkavarar í Bretlandi eru hættir að veita þeim tryggingar fyrir vörukaupum sínum. Sökum þessa eru uppi vangaveltur um framtíð Bakkavarar meðal þessara lántryggjenda en fyrirtækið er stærsti söluaðili á ferskum matvælum til veitingastaða og stórmarkaða í Bretlandi. 8.12.2008 09:23
Nettóskuldir þjóðarinnar eru nú 2.300 milljarðar kr. Hrein skuldastaða þjóðarbúsins við útlönd var neikvæð um 2.302 milljarða kr. í lok þriðja ársfjórðungs og versnaði um 184 milljarða kr. á ársfjórðungnum. 8.12.2008 09:21
Straumur í viðskipti í kauphöllinni í vikunni Það vakti nokkra undrun í morgun að hlutabréf með Straum voru ekki tekin til viðskipta í kauphöllinni. Það mun hinsvegar gerast fyrr en síðar í þessari viku samkvæmt heimildum visir.is. 8.12.2008 08:53