Viðskipti erlent

Bílarisar bíða lengur eftir láni

Ríkisstjórn George W. Bush, fráfarandi forseta Bandaríkjanna, hefur ekki nægan stuðning öldungadeildarþingmanna vestanhafs til að búa til embætti aðgerða- eða skiptastjóra, sem muni knýja bílarisana General Motors og Chrysler í þrot nái stjórnendur fyrirtækjanna ekki að leggja fram nýja rekstraráætlun í mars á næsta ári.

Bílarisarnir allir bíða þess að bandarískir þingmenn samþykki að veita þeim neyðarlán til að ýta þeim yfir erfiðasta hallan svo fyrirtækin fari ekki í þrot. Verði sú raunin muni það hafa alvarlegar afleiðingar fyrir bandarískt efnahagslíf. Þar af þurfa bílaframleiðendurnir tveir fjórtán milljarða dala stuðning.

Gengi bréfa í General Motors féll um þrjú prósent í dag. Gengi bréfa Ford lækkaði lítillega á sama tíma.

Bloomberg-fréttaveitan hefur eftir Richard Shelby, öldungadeildarþingmanni Repúlikana frá Alabama, að hann reikni ekki með því að þingið samþykki lánveitingu til fyrirtækjanna alveg á næstunni. Þó megi reikna með að ný tillaga komi inn á borð. Þó megi vel vera að ekkert gerist fyrr en í næstu viku.

S&P 500-hlutabréfavísitalan hækkaði þrátt fyrir þetta um 1,19 prósent. Dow Jones-vísitalan hækkaði minna, eða um 0,81 prósent. 





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×