Viðskipti erlent

Alþjóðabankinn spáir mun minni hagvexti en áður

Alþjóðabankinn spáir því að hagvöxtur á heimsvísu verði 0,9% árið 2009 sem er talsvert minni hagvöxtur en stofnunin gerir ráð fyrir á þessu ári eða 2,5%.

 

Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Glitnis en Alþjóðabankinn birti í gær nýja hagspá sína fyrir alþjóðahagkerfið þar sem vandlega er farið yfir áhrif fjármálakreppunnar.

 

Alþjóðabankinn gerir ráð fyrir að í fyrsta sinn síðan árið 1982 munu alþjóðaviðskipti dragast saman á næsta ári eða um 2,1%. Gert er ráð fyrir minni alþjóðaviðskiptum vegna samdráttar eftirspurnar sem mun leiða til minni viðskipta.

 

Þá munu erfiðleikar vegna láns- og lausafjárþurrðar einnig hrjá útflutningsfyrirtæki víða um heim og verða til þess að framleiðslugeta dragist saman.

 



Alþjóðabankinn gerir nú ráð fyrir að fjármálakreppan nái alla leið til þróunarheimsins sem hingað til hefur verið tiltölulega ónæmur fyrir þeim sviptivindum sem hafa geisað á alþjóðlegum fjármálamörkuðum síðan kreppan braust út árið 2007. Alþjóðabankinn gerir nú ráð fyrir að hagvöxtur þróunarríkja verði 4,5% á næsta ári sem er mikill viðsnúningur frá því sem áður var enda var hagvöxtur þróunarríkja 8% árið 2007.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×