Viðskipti erlent

Bylgja af gjaldþrotum skellur á Danmörku

Bylgja af gjaldþrotum fyrirtækja skellur nú á Danmörku af miklum krafti og sjá því margir Danir fram á fremur döpur jól í ár.

Verst er ástandið á Kaupmannahafnarsvæðinu þar sem gjaldþrot hafa aldrei verið fleiri en þessa daganna.

Við Sjó- og kaupréttinn hafa yfir 80 gjaldþrotabeiðnir verið afgreiddar í viku hverri og búist er við að þær verði yfir 200 talsins nú í desember.

Í venjulegu árferði eru um 80 gjaldþrot að jafnaði afgreidd við réttinn á mánuði. Það eru einkum félög í verktaka- og byggingarstarfsemi sem gerð eru upp þessa dagana í Danmörku.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×