Krónan styrkist áfram 9. júlí 2008 16:34
Krónan hefur styrkst nær samfellt síðan 24. júní þegar hún náði sínu lægsta sögulega gildi í kringum 170 stigin. Í dag styrktist krónan um 1,21% og stendur gengisvísitalan í rúmum 152 stigum, evran stendur í 118,8 og dollar í 75,5. Það sem vekur kannski nokkra furðu er að þessi styrking skuli eiga sér stað á sama tíma og þróun á hlutabréfamörkuðum hérlendis og erlendis hefur verið neikvæð sem allajafna veikir krónuna. Þetta kemur fram í hálffimm fréttum Kaupþings. Þar segir einnig: „Á undanförnum mánuðum hefur vaxtamunur við útlönd á svokölluðum skiptamarkaði nánast þurrkast út og jafnvel verið neikvæður. Skiptamarkaður hefur verið helsti farvegur erlendra fjárfesta til að tryggja sér háa íslenska vexti og þegar sá farvegur lokaðist var kannski ekki skrýtið að krónan skyldi veikjast í kjölfarið. Nú hafa krónuvextir á skiptamarkaði verið að hækka töluvert upp á síðkastið, aðallega þó á samningunum sem eru bundnir í styttri tíma en til tveggja vikna. Sömuleiðis hafa krónuvextir hækkað á lengri samningum en ekki nánda nærri eins mikið og á þeim styttri. Því má segja að skammtímastöðutaka með krónunni sé fýsilegri og dýrara sé að tryggja sig fyrir veikingu krónunnar. Þessi auknu möguleikar til að ná í vaxtamun mun þó sennilega ekki duga til að stuðla að framlengingu megin hluta krónubréfa sem eru á gjalddaga á næstu mánuðum. Til þess að svo verði þarf vaxtamunur á lengri samningum að vera í boði og slíkt gerist varla nema að fjármögnunarskilyrði viðskiptabankanna lagist mikið og á tiltölulega skömmum tíma. "
Mest lesið „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Sjá meira