Eignir lífeyrissjóðanna rýrna að raunvirði 10. júlí 2008 11:24
Aukning á hreinni eign lífeyrissjóða hélt ekki í við verðbólgu á tímabilinu frá maílokum 2007 til sama tíma á þessu ári. Þetta kemur fram í Morgunkorni Glitnis. Greiningadeild Glitnis segir þó að lífeyrissjóðirnir virðist í heildina tekið hafa haldið nokkuð vel sjó í þeim erfiðu markaðsskilyrðum sem hafa verið að undanförnu. Í nýbirtum tölum Seðlabanka um efnahag lífeyrissjóða kemur fram að hrein eign þeirra í lok maí nam 1.764 milljörðum króna og hafði aukist um 10,6% undangengna tólf mánuði. Verðbólga á Íslandi var hins vegar 12,3% á sama tímabili samkvæmt vísitölu neysluverðs og því minnkaði hrein eign til greiðslu lífeyris að raunvirði um 1,5% á tímabilinu. Innlend hlutabréfaeign rýrir eignir lífeyrissjóðanna Greining Glitnis segir að innlend hlutabréfaeign hafi verið sá hluti eignasafns lífeyrissjóðanna sem dregið hafi niður heildarávöxtun þeirra, ef marka megi yfirlit Seðlabankans. Að nafnvirði hafi eign lífeyrissjóðakerfisins í innlendum hlutabréfum og hlutabréfasjóðum minnkað um rúm 35% á ofangreindu tímabili, en til samanburðar þá hafi OMXI15 hlutabréfavísitalan lækkað um ríflega 40% á sama tíma. Þróun á erlendum eignum sjóðanna hafi verið hagstæðari, en þeir hafi aukist um rúm 22% milli maíloka 2007 og 2008. Greining Glitnis segir að gengisþróun krónu leiki væntanlega stórt hlutverk, en krónan hafi veikst um fjórðung á tímabilinu. Á móti vegi væntanlega að erlend hlutabréf hafi fallið í verði líkt og innlend.Skuldabréfaeign arðsöm Greining Glitnis segir jafnframt að sjóðfélagalán hafi aukist mikið hjá lífeyrissjóðunum undanfarið. Í lok maí hafi útistandandi lán til sjóðfélaga numið 145 milljörðum króna og hafi þau aukist um 28% frá sama tíma árið áður. Þar sem lánin séu verðtryggð skýrist hluti aukningarinnar af verðbólgu á tímabilinu, en þrátt fyrir það sé ljóst af þessum tölum að talsverð aukning hafi verið í útlánum á þessum tíma, enda kjör lífeyrissjóðanna á húsnæðislánum í mörgum tilfellum fremur hagstæð. Auk sjóðfélagalána sé eign lífeyrissjóðanna í verðtryggðum skuldabréfum veruleg, en í heild hafi verið 19% aukning á eign sjóðanna í innlendum skuldabréfum og verðbréfasjóðum.Mikill raunvöxtur undanfarinn áratug Greining Glitnis segir að lífeyrissjóðirnir hafi verið allvel varðir fyrir þeim sviptivindum sem hafa leikið um hagkerfið undanfarið og orsakað fall krónu og verðbólguskot. Einnig þurfi að hafa í huga að þótt hrein eign þeirra hafi skroppið lítillega saman að raunvirði á síðustu mánuðum hafi eignir þerra aukist að raungildi um 12% á ári undanfarinn áratug, bæði vegna þess að iðgjöld hafi jafnan verið hærri en lífeyrisgreiðslur en ekki síður sakir þess að ávöxtun eigna þeirra hafi verið með ágætum stærstan hluta þessa tímabils.
Mest lesið „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Sjá meira