Fleiri fréttir

Straumur kaupir ráðgjafa í London

Straumur Burðarás hyggst opna útibú í London. Fyrstu skrefin að innkomu á breska markaðinn hafa verið stigin með kaupum á helmingshlut í virtu ráðgjafafyrirtæki.

EasyJet enn verðmætara

Fjárfestingabankinn Morgan Stanley hefur hækkað verðmatsgengi sitt á easyJet úr 360 pensum á hlut í 450 og spáir góðu ferðamannasumri eins og sést berlega á farþegatölum í júní. EasyJet kemur einnig vel út þegar kennitölur stærstu lággjaldaflugfélaganna eru bornar saman.

Júníhallinn slær öll met

Mikil aukning varð í innflutningi á fjárfestinga- og rekstrarvörum. Samdráttar gætir í útflutningi.

Meira selt en keypt

Innlendir fjárfestar seldu erlend verðbréf fyrir 6,5 milljarða krónur meira en þeir keyptu í júní. Þetta er 15 milljarða krónu viðsnúningur á þessu fjármagnsflæði frá sama tíma í fyrra, samkvæmt greiningardeild Glitnis banka.

Aldrei meiri vöruskiptahalli

Vörur voru fluttar út fyrir 22,3 milljarða króna í júní en vörur voru fluttar inn fyrir 38,1 milljarð króna. Vöruskipti vöru því óhagstæð um 15,7 milljarða króna og er það mest vöruskiptahalli í einum mánuði, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar.

Grunnafkoma LÍ eykst milli fjórðunga

Stjórnendur Landsbankans eru ánægðir með grunnafkomu bankans á fyrri hluta ársins sem skilaði 17,6 milljarða króna hagnaði fyrir skatta, samanborið við 6,8 milljarða á sama tíma í fyrra. Hagnaður bankans fyrir skatta nam 25 milljörðum fyrstu sex mánuði ársins. Hugtakið grunnafkoma felur í sér að gengishagnaður af verðbréfum er bakfærður en á móti er vaxtamunur, sem nemur kostnaði bankans af því að vera með fjármuni geymda í bréfunum, leiðréttur. Grunnafkoman var töluvert betri á öðrum ársfjórðungi en fyrsta fjórðungi, enda var gengishagnaður neikvæður á öðrum en jákvæður á þeim fyrsta. Bankinn hefur það þó ávallt að markmiði að fjárfesta í hlutabréfum og skuldabréfum.

Sáttir við uppgjör

Hagnaður Landsbankans 6,1 milljarður á öðrum ársfjórðungi. Verðbólga skilaði mikilli aukningu vaxtatekna á öðrum ársfjórðungi en afkoma af fjármálastarfsemi var neikvæð. Áhersla lögð á fjármögnun með innlánum.

Methagnaður hjá Bakkavör

Bakkavör Group hf. skilaði 2,8 milljarða króna hagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins og er það eftir 67 prósenta aukning á milli ára. Hagnaður félagsins á öðrum ársfjórðungi nam 2 milljörðum króna sem er 83 prósenta aukning frá sama tíma fyrir ári.

Benz hagnast en Chrysler tapar

Hagnaður bandarísk-þýska bílaframleiðandans DaimlerChrysler nam 1,81 milljarði evra, jafnvirði tæpra 166 milljarða króna, á öðrum fjórðungi ársins. Þetta er rúmlega tvöfalt meiri hagnaður en á sama tíma fyrir ári.

Shell skilaði góðum hagnaði

Olíurisinn Shell skilaði 6,3 milljarða bandaríkjadala, eða rúmlega 457 milljarða króna, hagnaði á öðrum ársfjórðungi. Þetta er 36 prósenta hækkun á milli ára og jafngildir því að fyrirtækið hafi hagnast um tæpar 218 milljónir króna á hverri klukkustund á tímabilinu.

Hagnaður Landsbankans 20,4 milljarðar króna

Hagnaður Landsbankans á fyrstu sex mánuðum ársins nam 20,4 milljörðum króna eftir skatta. Hagnaður fyrir skatta nam 25 milljörðum króna á tímabilinu sem er 11,9 milljörðum krónum meira en á sama tíma fyrir ári.

Stjóraskipti hjá Icelandic

Kristján Hjaltason, framkvæmdastjóri Icelandic France, dótturfyrirtækis Icelandic Group, hefur látið af störfum hjá félaginu. Uppsögnin er samkvæmt samkomulagi og tekur gildi strax, að því er kemur fram í tilkynningu Icelandic Group til Kauphallarinnar.

Landsbankinn tekur sambankalán

Landsbankinn gekk í gær frá samningi um sambankalán upp á 600 milljón evrur, jafnvirði 54,8 milljarða íslenskra króna. Lánið er til þriggja ára. Að sögn Brynjólfs Helgasonar, framkvæmdastjóra alþjóðasviðs Landsbankans, er lánið annars vegar notað til að ljúka endurfjármögnun þessa árs og til að fylla upp í endurfjármögnun næsta árs.

Gott uppgjör KB banka hressti ekki markaðinn

Hlutabréf KB banka lækkuðu um 1,5 prósent eftir að bankinn skilaði þriggja milljarða hagnaði umfram spár markaðsaðila. Gríðarlegur vöxtur í hreinum vaxtatekjum en gengistap af hlutabréfum staðreynd.

Atlantic til Köben

Atlantic Petroleum, færeyska olíufyrirtækið sem skráð er í Kauphöll Íslands, hyggur á samhliða skráningu í Dönsku kauphöllinni. "Reglur kauphallanna í Kaupmannahöfn og Reykjavík eru áþekkar og það hafði mikil áhrif á þá ákvörðun okkar að skrá félagið í Kaupmannahöfn", sagði Wilhelm Petersen forstjóri Atlantic Petroleum.

Vísitala fasteignaverðs hækkaði í júní

Vísitala fasteignaverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 309 stig í síðasta mánuði en það er 0,6 prósenta hækkun frá maí, samkvæmt upplýsingum Fasteignamats ríkisins. Fasteignaverð hefur hækkað um 13,1 prósent síðastliðna 12 mánuði að jafnaði um 1 prósent undanfarið hálft ár. Hækkunin í júní er undir því meðaltali.

Enn eykst tapið hjá GM

Bandaríski bílaframleiðandinn General Motors tapaði 3,2 milljörðum bandaríkjadala, jafnvirði rúmra 232 milljarða íslenskra króna á öðrum fjórðungi ársins. Þetta er 2,2 milljörðum dölum meira tap en á sama tíma fyrir ári.

Tekjur Eurostar jukust um 6 prósent

Áhugi fólks á sögusviði kvikmyndarinnar Da Vinci lykillinn í París í Frakklandi og HM í knattspyrnu í Þýskalandi urðu til þess að tekjur Eurostar, lestarinnar sem gengur frá Lundúnum í Bretlandi undir Ermarsund og til Parísar í Frakklandi, námu tæpum 260 milljónum punda, eða 34,7 milljörðum íslenskra króna, á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er 6 prósenta aukning á milli ára.

Hagnaður Colgate minnkar milli ára

Bandaríski snyrtivöru- og tannkremsframleiðandinn Colgate-Palmolive hagnaðist um 283,6 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði tæplega 21 milljarðs króna, á öðrum ársfjórðungi. Þetta er tæplega 60 milljóna dala minni hagnaður en á sama tíma fyrir ári.

Taprekstur hjá Vinnslustöðinni

Vinnslustöðin á Neskaupsstað skilaði 368 milljóna króna tapi á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er mikil breyting frá sama tímabili í fyrra þegar fyrirtækið skilaði 463 milljóna króna hagnaði. Þá skilaði félagið 260 milljóna króna tapi á öðrum ársfjórðungi.

Hagnaður Kaupþings 31,8 milljarðar króna

Hagnaður Kaupþings banka nam 13,0 milljörðum króna á öðrum ársfjóðungi en hagnaður bankans á fyrstu sex mánuðum ársins nemur 31,8 milljörðum króna, sem er 7 milljörðum krónum meira en á sama tíma í fyrra. Hagnaður bankans á öðrum ársfjórðungi er hins vegar 700 milljónum krónum minni en fyrir ári. Hagnaður bankans á öðrum ársfjórðungi er um þremur milljörðum krónum meiri greiningardeildir bankanna höfðu spáð.

Actavis eykur við hlutafé

Samþykktar voru á hluthafafundi Actavis í gær tvær tillögur í tengslum við fjármögnun væntanlegs yfirtökutilboðs í króatíska samheitalyfjafyrirtækið Pliva. Var annars vegar útgáfa nýs hlutafjár að verðmæti um 20 milljarða króna að markaðsvirði samþykkt. Hins vegar var veitt heimild til útgáfu breytiréttar í hlutafé vegna skuldbindinga félagsins samkvæmt lánasamningi fyrir allt að 525 milljónir evra, um 48,7 milljarða króna. Munu handhafar breytiréttar hafa heimild til að breyta kröfum sínum í hlutabréf í Actavis.

Intrum undir væntingum

Intrum Justitia, alþjóðlega innheimtufyrirtækið sem hefur höfuðstöðvar í Svíþjóð, skilaði um 989 milljóna króna hagnaði fyrir skatta á öðrum ársfjórðungi. Það er um 28,4 prósenta minni hagnaður en á sama tímabil í fyrra.

Neytendur svartsýnir um horfurnar

Bjartsýni íslenskra neytenda minnkaði á milli mánaða og hafa þeir ekki verið svartsýnni á ástand og horfur í efnahagsmálum næsta hálfa árið síðan á haustdögum árið 2001. Þetta kemur fram í nýjustu mælingu Gallup á Væntingavísitölunni, sem birt var í gærmorgun.

Ósamræmi í túlkun kærunefndar

FME telur túlkun kærunefndar á lögum um verðbréfaviðskipti í ósamræmi við framkvæmd á markaði. Niðurstöðunni vísað til dómstóla.

Sala stórhýsis gengur vel

Fjórtán hæðum hefur verið ráðstafað í stórhýsi Rúmfatalagersins sem nú er í byggingu við Smáratorg í Kópavogi. Meðal leigjenda eru endurskoðunarfyrirtækið Deloitte sem hyggst flytja höfuðstöðvar sínar í bygginguna og KB banki sem hefur tekið frá eina hæð ofarlega í húsinu. Stórhýsið verður hið hæsta á Íslandi, 77,6 metra hátt. Turninn er alls tuttugu hæðir sem hver um sig er 780 fermetrar. Á neðstu tveimur hæðunum er gert ráð fyrir verslunarmiðstöð en veitingahúsi á þeirri efstu.

Strax more til Íslands

Evrópska dreifingarfyrirtækið Strax more, sem er að stærstum hluta í eigu íslenskra fjárfesta, hefur opnað skrifstofu á Íslandi og boðar 15-40 prósenta verðlækkun á farsímum og farsímabúnaði til endursöluaðila.

Tíðindalítið á iSEC

Engin viðskipti hafa orðið frá stofnun markaðarins. Kaup­hallarforstjóri segir erfiðar markaðsaðstæður hafa áhrif á útgefendur en biður menn um að sýna þolinmæði.

Valið stendur á milli krónu og ESB-aðildar

Fyrirkomulag gengismála leysir ekki hagstjórnarvandann sem við er að glíma að mati Viðskiptaráðs. Ábyrg hagstjórn er forsenda þess að þjóðin geti valið milli krónu og evru.

Studdu gjaldþrot Yukos

Meirihluti lánadrottna rússneska olíufyrirtækisins Yukos voru fylgjandi því á fundi þeirra í dag að lýsa fyrirtækið gjaldþrota. Líkur eru á að eignir fyrirtækisins verði seldar upp í gríðarmiklar skuldir Yukos við rússneska ríkið og ríkisolíufyrirtækið Rosneft.

Aukinn hagnaður hjá BP

Breska olíufélagið BP hagnaðist um 6,1 milljarð punda, jafnvirði rúmra 829 milljarða íslenskra króna, á fyrri helmingi ársins. Þetta er 500 milljón pundum, eða tæpum 68 milljörðum krónum, meira en á sama tímabili á síðasta ári og jafngildir því að fyrirtækið hafi hagnast um 1,4 milljónir punda, 190 milljónir króna, á hverri klukkustund á fyrstu sex mánuðum ársins.

Indverjar hækka stýrivexti

Indverski seðlabankinn hefur ákveðið að hækka stýrivexti bankans um 25 punkta. Þetta er þriðja vaxtahækkun bankans á síðastliðnum fjórum mánuðum og standa vextirnir í 6 prósentum.

Lánadrottnar ræða örlög Rosneft

Lánadrottnar Yukos funda í dag til að skera úr um örlög olíurisans fyrrverandi. Á fundinum verður ákveðið hvort hagrætt verði í starfsemi Yukos, sem eitt sinn var eitt stærsta olíufyrirtæki heims í einkaeigu, eða það verði úrskurðað gjaldþrota.

Stjórnendur vinna lengur en aðrir

Eigendur og framkvæmdastjórar lítilla og meðalstórra fyrirtækja í Bretlandi vinna oft frameftir á virkum dögum til að eiga frí um helgar. Í fyrra unnu þeir að meðaltali í um 61,1 klukkustund í hverri viku en það er 23,7 klukkustundum meira en meðal Breti vann á sama tíma.

Eldsneytisverð í hámarki

Eldsneytisverð á bensínstöðvum í Bandaríkjunum er komið í rúma 3 bandaríkjadali á gallonið og hefur aldrei verið hærra. Þetta jafngildir því að lítrinn af bensíni í Bandaríkjunum kosti um 56 krónur.

Velta í dagvöruverslun jókst um 5,3 prósent

Velta í dagvöruverslun var 5,3 prósentum meiri í júní en á sama tíma í fyrra miðað við fast verðlag. Á hlaupandi verðlagi nam hækkunin 17,5 prósentum á milli ára, samkvæmt útreikningum Rannsóknaseturs verslunarinnar við Bifröst fyrir Samtök verslunar og þjónustu.

Uppgjörin að renna í hlað

Nokkur af stærstu fyrirtækjum sem skráð eru í Kauphöll Íslands birta uppgjör sín fyrir annan ársfjórðung í vikunni. Greiningardeild Glitnis banka spáir því að hagnaður Kaupþings banka muni nema 10 milljörðum króna, hagnaður Landsbanka Íslands muni nema 3 milljörðum króna en hagnaður Bakkavarar muni verða rúmir 1,6 milljarðar króna.

AMD kaupir ATI

Bandaríski örgjörvaframleiðandinn AMD, sem er annar umsvifamesti framleiðandinn á þessu sviði í heiminum, ætlar að kaupa skjákortafyrirtækið ATI Technologies. Kaupverðið nemur 5,4 milljörðum bandaríkjadala, eða 399 milljörðum íslenskra króna. Að sögn forsvarsmanna AMD er markmiðið að auka markaðshlutdeild fyrirtækisins á íhlutamarkaði fyrir tölvur og saxa á forskot keppinautarins Intel.

Hagnaður Nintendo jókst á milli ára

Hagnaður japanska leikjatölvuframleiðandans Nintendu jókst um 10,2 prósent á öðrum ársfjórðungi vegna aukinnar sölu á Nintendo DS Lite leikjatölvunni. Karlmenn í yngri kantinum hafa fram til þessa hafa verið helstu viðskiptavinir Nintendo. Leikir fyrir Nintendo DS Lite eru sagðir reyna fremur á vitsmuni en hraða og höfða þeir fremur til kvenna. Kaup kvenna eru sögð helsta ástæða hagnaðarins.

Olíuverð lækkaði vegna viðbragða Rice

Olíuverð lækkaði á markaði í Bretlandi í dag. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fer til ófriðarsvæðanna fyrir botni Miðjarðarhafs í dag en hún hefur krafist þess að Ísraelsmenn og liðsmenn Hizbollah-samtakanna lýsi yfir vopnahléi hið snarasta.

Arsenal hleður fallbyssuna

Arsenal hefur fengið 35 milljarða í aðra hönd eftir að félagið seldi skuldabréf með veði í tekjum af miðasölu næstu þrettán árin. Félagið tekur í notkun á næstu leiktíð nýjan leikvang, Emirates Stadium, sem rúmar sextíu þúsund áhorfendur.

Hagvöxtur í Bretlandi eykst

Hagvöxtur í Bretlandi mældist 2,6 prósent á öðrum ársfjórðungi en var 1,8 prósent á sama tíma í fyrra, samkvæmt útreikningum bresku hagstofunnar sem birtir voru í gær. Hagvöxturinn var meiri en spáð hafði verið en hann má að mestu leyti rekja til aukningar í þjónustu á fjórðungnum.

Hefur lækkað um 22 prósent

Félög úrvalsvísitölunnar hafa rýrnað um tuttugu prósent á nokkrum mánuðum. Gengi alþjóðlegra vísitalna er misjafnt.

Velta Juventus gæti lækkað um tíu milljarða króna.

Sérfræðingar áætla að tekjur ítalska stórliðsins Juventus, eða "Gömlu konunnar", hrynji um helming við það að félagið falli niður úr efstu deild í þá næstefstu en forráðamenn Juve og nokkurra annarra liða hafa verið fundnir sekir um að hafa hagrætt úrslitum leikja.

Sjá næstu 50 fréttir