Fleiri fréttir

2,6 prósenta hagvöxtur í Bretlandi

Hagvöxtur í Bretlandi mældist 2,6 prósent á öðrum ársfjórðungi en var 1,8 prósent á sama tíma í fyrra, samkvæmt útreikningum bresku hagstofunnar sem birtir voru í dag. Greiningardeild Glitnis banka segir aukinn hagvöxt í Bretlandi koma sér ágætlega fyrir íslenska hagkerfið vegna mikilla viðskipta á milli Bretlands og Íslands.

Launavísitalan hækkaði um 0,4 prósent

Launavísitalan í júní hækkaði um 0,4 prósent frá maí og er 290,4 stig. Vísitalan hefur hækkað um 8,8 prósent síðastliðna 12 mánuði, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar.

Aflaverðmæti fiskiskipa minnkar milli ára

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 25 milljörðum króna á fyrstu fjórum mánuðum ársins. Þetta er einum milljarði minna en á sama tíma í fyrra og nemur samdrátturinn 3,8 prósentum, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar.

Spáir 8,6 prósenta verðbólgu í ágúst

Greiningardeild KB banka spáir 0,4 prósenta hækkun vísitölu neysluverðs í ágúst. Gangi spáin eftir fer 12 mánaða verðbólga úr 8,4 prósentum í 8,6 prósent. Útsöluáhrif draga verulega úr hækkun vísitölunnar og er búist við að útsölur hafi um 0,3 til 0,4 prósent áhrif á vísitölu neysluverðs til lækkunar. Án útsöluáhrifa hefði hækkun á milli mánaða numið 0,7 til 0,8 prósentum.

Ford tapaði 9 milljörðum króna

Bandaríski bílaframleiðandinn Ford tapaði 123 milljónum Bandaríkjadala, rúmum 9 milljörðum íslenskra króna, á öðrum fjórðungi ársins. Helsta ástæða tapsins er samdráttur í sölu á sportjeppum vegna verðhækkana á eldsneyti.

Eimskip eykur hlut sinn í Kirsiu Linija

Eimskip hefur gengið frá kaupum á auknum hlut í skipafélaginu Kursiu Linija Eimskip átti 50 prósenta hlut í félaginu en á eftir kaupin 70 prósenta hlut og er heildarkaupverð hans 5 milljónir evra, jafnvirði tæpra 465 milljóna króna. Kursiu Linija er eitt stæsta skipafélag í Eystrasaltsríkjunum í einkaeigu.

Forstjóri Yukos sagði upp

Steven Theede, forstjóri fallna rússneska olíurisans Yukos, sagði af sér í gær en í dag fundar stjórn fyrirtækisins með lánadrottnum fyrirtækisins. Búist er við að með fundinum færist fyrirtækið nær barmi gjaldþrots en nokkru sinni.

Japanir verða að fara varlega

Tíu ára kyrrstöðu efnahagslífsins í Japan er senn að ljúka en stjórnvöld verða að fara varlega í stýrivaxtahækkunum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um stöðu efnahagsmála í Japan og mælt með því að stjórnvöld bíði eftir frekari hækkun verðlags í landinu áður en þau hækka stýrivexti á nýjan leik.

75 prósenta samdráttur íbúðalána

Gríðarlegur samdráttur hefur orðið á íbúðalánum viðskiptabankanna síðan þeir hófu innreið sína á lánamarkað. Helstu orsakavaldar eru versnandi efnahagsástand, hægari fasteignamarkaður og óhagstæðari lánsskilyrði.

Hagnaður Lýsingar hf. 455 milljónir króna

Eignarleigu- og fjármögnunarfyrirtækið Lýsing hf., dótturfélag Exista hf., skilaði 455 milljóna króna hagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins. Útlán jukust um 45,8 prósent og námu þau tæpum 54 milljörðum króna í lok tímabilsins. Viðskiptamönnum Lýsingar, bæði fyrirtækjum og einstaklingum, fjölgaði verulega á tímabilinu.

Gengi bréfa í Rosneft undir væntingum

Gengi hlutabréfa í rússneska ríkisolíufyrirtæki Rosneft lækkuðu um 1 sent á hlut þegar viðskipti með 10 prósenta hlut í félaginu hófst í kauphöll Lundúna í Bretlandi í dag.

EADS landar stórum samningi

EADS, móðurfélag flugvélaframleiðandans Airbus, hefur náð samningum um þróun og framleiðslu á ratsjá fyrir þýska herinn. Ekkert hefur verið gefið upp um virði samningsins að öðru leyti en því að hann er sagður nema nálægt einum milljarði evra, jafnvirði tæpra hundrað milljarða íslenskra króna. En vel má vera að hann geti verið hærri.

Gengi Yahoo féll vegna minni hagnaðar

Gengi hlutabréfa í bandaríska netleitarfyrirtækinu Yahoo lækkaði um 13 prósent við lokun markaða í gær í kjölfar þess að fyrirtækið greindi frá minni hagnaði á öðrum ársfjórðungi en spár kváðu á um. Ástæðan fyrir því eru tafir á uppfærslu á leitarvél fyrirtækisins sem gera átti á þriðja fjórðungi ársins. Þær dragast fram á þrjá síðustu mánuði ársins.

Afkoma Straums Burðaráss vel yfir spám

Straumur Burðarás skilaði þrjúhundruð milljóna króna hagnaði en spár gerðu ráð fyrir milljarða tapi. Hagnaður það sem af er ári er liðlega nítján milljarðar.

Gull Seðlabankans ávaxtast vel

Gullforði Seðlabanka Íslands var í júní í ár rúmlega þriggja milljarða króna virði og fjögur prósent af erlendum eignum sjóðsins. Frá áramótum hefur virði gullsins aukist um 940 milljónir króna. Þá var forðinn 2.074 milljóna króna virði eða um þrjú prósent af erlendum eignum bankans.

Deilt um áhrif lánshæfismats

Lægra lánshæfismat Íbúðalánasjóðs þarf ekki að þýða hærri vexti af lánum. Sérfræðingur KB banka segir Íbúða­lánasjóð starfa í skjóli ríkisstyrkja og skekkja markaðinn.

Hátt verð á fiskmörkuðum

Fiskur var seldur fyrir 217 milljónir króna á fiskmörkuðum landsins í síðustu viku. Um er að ræða 1.482 tonn og var meðalverðið 146,33 kr/kg, sem telst mjög gott. Meðalverð á mörkuðum í júní var 148,42 kr/kg. Fiskifréttir hafa eftir Íslandsmarkaði að seld hafi verið 567 tonn af þorski í síðustu viku og var meðalverð á slægðum þorski 214,45 kr/kg. Þorskur var jafnframt söluhæsta tegundin.

Íslendingar atkvæða­­litlir í Atlantic Petrolium

Íslenskir aðilar eru ekki í hópi tuttugu stærstu hluthafa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum sem er skráð í Kauphöllina og lauk nýverið umfangsmiklu hlutafjárútboði. Þrír stærstu hluthafarnir, SP/F 14, TF Holding P/F og Föroya Sparikassi eiga meira en fimm prósent hlutafjár; fyrstnefnda félagið fer með 9,7 prósenta hluta.

Japanar fræddust um einkavæðingu

Hópur þingmanna úr allsherjarnefnd fulltrúardeildar japanska þingsins kom hingað til lands í síðustu viku til að kynna sér einkavæðingu á Íslandi. Þingmennirnir óskuðu sérstaklega eftir upplýsingum um sölu á hlut ríkisins í Símanum í fyrra en póst- og fjarskiptamál í Japan heyra undir allsherjarnefndina.

Verðbólga innan EES

Fimm hæstu: Lettland 6,3%, Ísland 5,7%, Slóvakía 4,5%, Eistland 4,4% og Spánn 4,0% Fimm lægstu: Pólland 1,5%, Finnland 1,5%, Holland 1,8%, Austurríki 1,8% og Svíþjóð 1,9%

LÍÚ býst við betri tíð

Friðrik Jón Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, gerir ráð fyrir að verðmæti útfluttra sjávarafurða muni aukast um fimmtán til tuttugu prósent á árinu 2006 miðað við árið á undan.

400 milljarða búbót símnotenda

Himinháir farsímareikningar Íslendinga á ferðalögum í Evrópu heyra sögunni til ef reglugerð sem Evrópusambandið (ESB) hefur í burðarliðnum verður að veruleika. Áætlað er að reglugerðin taki gildi strax næsta sumar.

Markaðsaðilar setji sér reglur

Viðskiptaráð telur skynsamlegra að eftirláta markaðsaðilum að setja sér eigin reglur og framfylgja þeim en að láta það í hendur hins opinbera sem myndi hafa eftirlit með fjármagnsmarkaði.

Nýr fjármála­vefur opnaður

Einn stærsti fjármálavefur landsins var opnaður á mánudag í síðustu viku á vefslóðinni M5.is. Vefurinn hefur verið lengi í þróun, að sögn fyrirtækisins Vefmiðlunar ehf. sem á og rekur vefinn.

Vænta tilboðs

Breskir fjölmiðlar bíða með óþreyju nýrra frétta af yfirtöku Baugs á bresku vöruhúsakeðjunni House of Fraser. The Scotsman og fleiri fjölmiðlar hafa fullyrt að formlegs yfirtökutilboðs sé að vænta í þessari viku. Samkvæmt heimildum Markaðarins stendur áreiðanleikakönnun þó enn yfir og ekki víst að formlegt tilboð berist fyrr en um miðjan ágúst.

Þrjú yfir milljarði

Íslensku fiskiskipin Vilhelm Þorsteinsson EA, Baldvin Þorsteinsson EA og Hákon EA skiluðu hvert um sig meira en einum milljarði króna í aflaverðmæti á árinu 2005 miðað við fob-verðmæti. Frá þessi segir í frétt á vef Fiskifrétta.

Hagnaður Straums-Burðaráss minni á milli ára

Straumur-Burðarás fjárfestingarbanki hagnaðist um 307 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi 2006. Þetta er 90 prósentum minna en á sama tíma í fyrra þegar hagnaðurinn nam rétt rúmum þremur milljörðum króna. Hagnaður bankans á fyrstu sex mánuðum ársins nemur tæpum 19,4 milljörðum króna sem er rúmum 11,7 milljörðum meira en á sama tíma fyrir ári.

Samræmd vísitala neysluverðs 5,7 prósent

Samræmd vísitala neysluverðs innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) var 102,5 stig í síðasta mánuði og er það 0,1 prósents hækkun frá maí. Vísitalan á Íslandi var 105,3 stig og hafði hún hækkað um 1,3 prósent á milli maí og júní. Verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, var 5,7 prósent á Íslandi og er hún næstmest hér af EES-ríkjunum. Mesta verðbólgan var í Lettlandi, 6,3 prósent.

Samdráttur í veltu á fasteignamarkaði

Í síðustu viku var þinglýst 116 kaupsamningum á fasteignamarkaði. Þar af var þinglýst 87 kaupsamningum um eignir í fjölbýli og 20 samningum um sérbýli. Veltan nam 3,1 milljarði króna en meðalfjárhæð kaupsamnings nam 27 milljónum króna. Veltan er 20 prósentum minni en á sama tíma í fyrra.

Lánshæfismat Íbúðalánasjóðs lækkar

Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur lækkað lánshæfismat Íbúðalánasjóðs til langs tíma úr AA+ í AA-. Um leið er lánshæfismatið fært af athugunarlista þar sem það hafði áður verið sett með neikvæðum horfum. Horfur í íslenskum krónur eru stöðugar, að mati fyrirtækisins.

Sjá næstu 50 fréttir