Föroya Sparikassi skilar metafkomu 29. júlí 2006 06:30 Þinghúsið í Þórshöfn Sparikassinn skilaði 1,5 milljarða króna hagnaði á fyrri hluta ársins.
Föroya Sparikassi Group, sem er stærsti stofnfjáreigandinn í SPRON, skilaði methagnaði á fyrra hluta ársins. Nam hagnaður bankans um 122 milljónum danskra króna, eða 1,5 milljörðum króna. Þetta er nánast jafn mikill hagnaður og bankinn skilaði allt árið í fyrra. Stjórnendur Sparikassans reikna með að hagnaður bankans á árinu verði um 2,8 milljarðar króna fyrir skatta. Af einstökum tekjuliðum hækkuðu þóknunartekjur mest milli ára eða um 92 prósent. Hreinar rekstrartekjur bankans voru 2,7 milljarðar króna. Stór hluti af tekjum Sparikassans koma nú frá dönsku dótturfélögunum EIK Bank og Ejendomsvækst. Bankinn fékk einnig 165 milljónir króna í arð frá SPRON. Eigið fé Sparikassans er nú í fyrsta skipti komið yfir einn milljarð danskra króna og eignir yfir tíu milljarða danskra króna sem gera 120 milljarða króna. Föroya Banki, hinn stóri viðskiptabankinn í Færeyjum, hagnaðist um 460 milljónir króna á fyrri hluta ársins sem er 35 prósenta minni hagnaður en á sama tíma í fyrra. Eignarhald í færeysku bönkunum er á fárra hendi. Sparikassagrunnurinn, sem er sjálfseignarstofnun, á fjóra fimmtu hluta bréfa í Sparikassanum en níu þúsund fjárfestar um fimmtung. Yfir 99 prósent hlutafjár í Föroya Banki er í eigu færeysku landsstjórnarinnar. Stjórnendur Sparikassans hafa lýst yfir áhuga sínum að skrá félagið í Kauphöll Íslands árið 2007 og nú er unnið að einkavæðingu Föroya banki.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Siggi Raggi um vaxtakjör bankanna: „Þetta láta Íslendingar bjóða sér kynslóð eftir kynslóð“ Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira
Siggi Raggi um vaxtakjör bankanna: „Þetta láta Íslendingar bjóða sér kynslóð eftir kynslóð“ Viðskipti innlent
Siggi Raggi um vaxtakjör bankanna: „Þetta láta Íslendingar bjóða sér kynslóð eftir kynslóð“ Viðskipti innlent