Viðskipti innlent

Gott uppgjör KB banka hressti ekki markaðinn

Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri KB banka
Meginverkefni bankans um þessar mundir eru að ljúka við endurfjármögnun lána sem falla til greiðslu á næsta ári og vinna úr þeim fjárfestingum sem ráðist hefur verið í á undanförnum árum.
Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri KB banka Meginverkefni bankans um þessar mundir eru að ljúka við endurfjármögnun lána sem falla til greiðslu á næsta ári og vinna úr þeim fjárfestingum sem ráðist hefur verið í á undanförnum árum. MYND/GVA

KB banki skilaði þrettán milljarða króna hagnaði á öðrum ársfjórðungi sem er þremur milljörðum meira en meðaltalsspá markaðsaðila hafði hljóðað upp á. Á sama tíma í fyrra var hagnaður bankans 13,8 milljarðar.

Á fyrri hluta ársins hagnaðist bankinn því alls um 31,8 milljarða króna og nam arðsemi eigin fjár 36,2 prósentum á ársgrundvelli.

Þessar góðu tölu frá KB banka höfðu hins vegar þau áhrif á gengi félagsins lækkaði um 1,5 prósent og endaði í 720 krónum á hlut. Markaðurinn lækkaði í heild sinni.

"Við búumst ekki við stórum yfirtökum af hálfu KB banka á næstu mánuðum," segir Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri KB banka, aðspurður um næstu skref. Mestur krafturinn á næstunni mun fara í það að vinna úr þeim fjárfestingum sem þegar hafa verið gerðar og vísar forstjórinn þar til FIH og Singer. Ef leitað verður að tækifærum verður einkum horft til banka sem fjármagna sig að stórum hluta á innlánum.

Hreiðar Már segir að endurfjármögnun bankans á árinu 2006 sé lokið og bankinn vinni nú að því hörðum höndum að ljúka við endurfjármögnun næsta árs. "Við gerum okkur góðar væntingar að í lok þessa árs verði búið að ljúka við fjármögnun bæði FIH og móðurfélagsins." Nú þegar hefur samstæðan lokið við fjármögnun 6,3 milljarða evra fyrir árið 2007.

Uppgjörið einkennist annars vegar einkum af miklum vexti hreinna vaxtatekna og hins vegar gengistapi af hlutabréfum sem teljast nýmæli þar á bæ. Þannig námu vaxtatekjur 14,4 milljörðum króna sem er 3,9 milljörðum króna hærri upphæð en á fyrsta ársfjórðungi. Hreiðar Már bendir á að há verðbólga, lækkun á gengi krónunnar, en nærri þrír fjórðu hlutar eigna bankans eru í erlendri mynt, og mikill vöxtur í starfsemi stærstu dótturfélaga skýrir þennan vöxt vaxtatekna.

Gengistap nam 2,6 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi samanborið við 13,5 milljarða gengishagnað á þeim fyrsta. Lækkanir á hlutabréfamörkuðum, einkum á Norðurlöndum, ollu þessu gengistapi. Aðrar tekjur námu 10,1 milljarði króna sem skýrist af sölu á 24 prósenta eignarhlut í VÍS til Exista.Alls námu rekstrartekjur bankans á fjórðungnum 31 milljarði króna.

Heildargjöld námu 14,8 milljörðum og jókst launakostnaður nokkuð vegna fjölgunar starfsmanna.

Forstjórinn segir að af einstök afkomusvið hafi skilað því sem ætlast var, og sum gott betur en það, nema markaðsviðskipti sem hafi verið mestu vonbrigðin.

Heildareignir KB banka voru 3.552 milljarðar króna þann 30. júní sem er tæplega fjörutíu prósenta aukning í krónum talið frá áramótum. Eigið fé bankans var á sama tíma 238,7 milljarðar króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×