Viðskipti innlent

Hefur lækkað um 22 prósent

Kauphöll Íslands
Kauphöll Íslands

Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands, ICEX-15, hefur lækkað um tæplega tuttugu og tvö prósent frá hæsta gildi. Vísitalan stendur nú í 5465 stigum en fór í 6995 stig þegar best lét snemma árs. Heildarlækkun frá áramótum nemur 1,66 prósentum.

Lækkun hefur orðið á bréfum tíu af fimmtán félögum úrvalsvísitölunnar. Mest lækkun hefur orðið í bréfum Avion Group, rúmlega tuttugu og sjö prósent. Bréf í Icelandic Group hafa lækkað um rúm sautján prósent og í Landsbankanum um tæp fimmtán prósent.

Fimm félög hafa hækkað frá áramótum. Tæplega tuttugu og sjö prósenta hækkun hefur orðið á bréfum í Actavis, Marel hefur hækkað um tólf prósent og Straumur-Burðarás um tæp sjö prósent.

NASDAQ-vísitalan bandaríska sker sig nokkuð úr á meðal helstu alþjóðlegra vísitalna, en hún hefur lækkað um tæp ellefu prósent frá áramótum. FTSE-vísitalan í Lundúnum, CAC-40 í Frakklandi og hin þýska DAX hafa allar hækkað um þrjú prósent.

Norska OBX vísitalan hefur hækkað um tæp þrettán prósent. Danska C20-vísitalan hefur lækkað um rúmlega sjö prósent frá áramótum og hin sænska OMXS um ríflega eitt prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×