Fleiri fréttir HBOS með Baugi Breski fjárfestingarbankinn HBOS verður meðal lykilfjárfesta í kaupum Baugs á bresku vöruhúsakeðjunni House of Fraser. Frá þessu sagði í The Daily Telegraph og öðrum breskum fjölmiðlum í gær. Aðrir sem vænst er að komi að yfirtökunni eru FL Group, breski fjárfestirinn Kevin Stanford auk smærri fjárfesta. 15.7.2006 07:00 Lífeyrissjóðirnir rýrna 15.7.2006 06:30 Olíuverð aldrei hærra Fat af olíu kostar tæpa áttatíu bandaríkjadali. Sérfræðingar treysta sér ekki til að spá fyrir um þróun olíuverðs. Bensín er dýrara í Danmörku en á Íslandi. 15.7.2006 06:00 Fasteignaverð lækkar í Danmörku Fasteignaverð í Danmörku lækkaði um 2,6 prósent í Danmörku á öðrum ársfjórðungi, að sögn dönsku fréttastofunnar Ritzau. Hækkun fasteignaverð í landinu hefur var óvenju mikil á fyrstu þremur mánuðum ársins eða 5,6 prósent að meðaltali. Mest var lækkunin í Kaupmannahöfn eða 9,7 prósent. 14.7.2006 16:44 Nýir í Englandsbanka 14.7.2006 12:56 Icelandic Group kaupir frystisvið Delpierre Alfesca og Icelandic Group skrifuðu síðdegis í gær undir formlegan samning um kaup Icelandic Group á frystisviði Delpierre (áður SIF France). Þetta er í samræmi við tilkynningu til Kauphallar þann 7. júlí s.l. þar sem fram kom að aðilar væru langt komnir með að ljúka samningum sín á milli. Heildarkaupverð er um 17 milljónir evra, rúmir 1,6 milljarðar króna. 14.7.2006 11:18 Virðisaukaskattsvik aukast í Bretlandi 14.7.2006 10:56 Olíuverð í nýjum hæðum 14.7.2006 10:12 Stýrivextir hækkuðu í Japan 14.7.2006 09:58 Atvinnuleysi óbreytt 1,3 prósent atvinnuleysi mældist á Íslandi í júní samkvæmt mánaðarskýrslu Vinnumálastofnunar. Um tvö þúsund manns voru að meðaltali á atvinnuleysisskrá í júní og er það svipað atvinnuleysi og verið hefur undanfarna þrjá mánuði. 14.7.2006 07:30 Eurotunnel sekkur í skuldafenið Rekstrarfélag Eurotunnel, ganganna sem liggja undir Ermarsundi frá Bretlandi til Frakklands, hefur farið fram á greiðslustöðvun. Félagið hefur átt við gríðarlegan fjárhagsvanda að stríða allt frá því gangagerðinni lauk árið 1994 og hefur farið þess á leit við lánardrottna að þeir skipti 8,7 milljarða evru skuld Eurotunnel í tvo hluta. 14.7.2006 07:15 Hlutabréfin hækka eftir hryðjuverk Sensex-30 vísitala kauphallarinnar í Bombay á Indlandi hækkaði um þrjú prósent á miðvikudag, en lækkaði aftur lítillega í gær, í kjölfar hryðjuverkaárásanna á lestarkerfi borgarinnar á þriðjudag. Tvö hundruð manns létust og fleiri hundruð slösuðust í árásunum. 14.7.2006 07:00 Innfluttar vörur hækka Innfluttar vörur hafa hækkað í verði um 7,1 prósent frá áramótum en gengisvísitala krónunnar hefur hækkað um 27 prósent á sama tímabili. Því má búast við áframhaldandi verðhækkunum á innfluttum vörum segir í Morgunkornum greiningardeildar Glitnis. 14.7.2006 06:45 Olíuverð í hámarki Olíuverð fór í tæpa 76 Bandaríkjadali á helstu mörkuðum í gær og hefur verðið aldrei verið hærra. Ástæðan fyrir hækkuninni er minni umframbirgðir af olíu í Bandaríkjunum, vaxandi spenna í Mið-Austurlöndum og sprengingar við tvær olíuleiðslur í Nígeríu í gær. 14.7.2006 06:30 Olíuverð í hæstu hæðir Verð á olíu fór í fyrsta sinn í dag yfir 76 dali á tunnu í kjölfar loftárása Ísraelsmanna í Líbanon. Olíuverðið hefur aldrei verið hærra en nú. 13.7.2006 16:10 Hagnaður umfram væntingar 13.7.2006 15:19 Hærri stýrivextir á evrusvæðinu 13.7.2006 10:03 Olíuverð í sögulegu hámarki Olíuverð fór í tæpa 76 Bandaríkjadali á helstu mörkuðum í dag og hefur aldrei verið hærra. Ástæðan fyrir verðhækkuninni eru minni umframbirgðir af olíu í Bandaríkjunum, vaxandi spenna í Mið-Austurlöndum og gruns um sprengingu í olíuleiðslu í Nígeríu, sem aðili er að samtökum olíuframleiðsluríkja, OPEC. 13.7.2006 09:14 Mæla með bréfum í Netia CA IB Securities mælir með kaupum á hlutabréfum í pólska fjarskiptafyrirtækinu Netia. Býst verðbréfafyrirtækið við því að Novator, sem er að stærstum hluta í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, auki hlut sinn á næstu tólf mánuðum en hlutur Novators í Netia fór upp í 23 prósent í janúar. 13.7.2006 07:00 Ósamstíga í spánum Töluverðu munar á afkomuspám viðskiptabankanna til FL Group, Landsbankans og Straums. Munur gæti falist í mismunandi mati á hlutabréfaeign eða gjaldeyrisstöðu. 13.7.2006 06:30 Bankar græða á verðbólgunni Greiningardeild Landsbankans reiknar með að hagnaður Glitnis og KB banka af verðbótum á öðrum ársfjórðungi hafi numið samanlagt rúmum sex milljörðum króna eða þremur milljörðum á hvorn banka. 13.7.2006 06:30 Þrír milljarðar króna í gulli Gulleign Seðlabanka Íslands nam þremur milljörðum króna þann 30. júní samkvæmt efnahagsyfirliti sem bankinn hefur sent frá sér. Frá áramótum hefur virði gullsins hækkað um 940 milljónir króna. 13.7.2006 06:00 Landsvirkjun gefur út skuldabréf Landsvirkjun hefur gefið út skuldabréf að fjárhæð 150 milljónir evra, jafnvirði 14,4 milljarða íslenskra króna, undir rammasamningi fyrirtækisins. Lánið er til 20 ára. Með útgáfunni er fjármögnun Landsvirkjunar á árinu nærri lokið en einungis er eftir að fjármagna sem svarar til um 1,6 milljarða króna. Heildarfjárþörf Landsvirkjunar er 45 milljarðar króna á árinu. 12.7.2006 17:05 Forstjóri GM fylgjandi samstarfi 12.7.2006 17:01 Engin þörf á hærri vöxtum 12.7.2006 14:39 Aukið atvinnuleysi í Bretlandi 12.7.2006 11:41 ESB sektar Microsoft 12.7.2006 11:00 Verðbólgan mælist 8,4 prósent Vísitala neysluverðs í júlí hækkaði um 0,46 prósent frá fyrri mánuði. Ef verð á húsnæði er skilið frá útreikningunum hækkaði vísitalan um 0,41 prósent á milli mánaða, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Síðastliðna 12 mánuði hefur vísitalan hækkað um 8,4 prósent, þar af 3,1 prósent síðastliðna þrjá mánuði, og jafngildir það 13 prósenta verðbólgu á ári. 12.7.2006 09:00 Erlend fjárfesting aldrei meiri Beinar fjárfestingar erlendra aðila hér á landi námu 153 milljörðum króna í fyrra og jukust um 296 prósent frá árinu á undan. Um met er að ræða. Að sögn greiningardeildar Glitnis er þetta margfalt meiri vöxtur í erlendri fjárfestingu en mældist í sama tíma í OECD löndunum. 12.7.2006 08:00 Spá yfir 23 milljarða hagnaði Greiningardeild KB banka gerir ráð fyrir að þeirra hagnaður sextán félaga, sem hún spáir fyrir, verði um 23,5 milljarðar króna á öðrum ársfjórðungi. 12.7.2006 07:45 Samdráttur milli fjórðunga Heildarhagnaður sautján félaga í Kauphöll Íslands dregst verulega saman á milli fyrsta og annars ársfjórðungs. Þetta er aðallega rakið til bankanna. 12.7.2006 07:30 Fá 25 aura fyrir krónu nafnverðs Arion verðbréfavarsla hf. mun á næstunni senda fyrstu greiðslur til hluthafa Stoke Holding vegna sölu á 67 prósenta hlut í enska fótboltafélaginu Stoke City. 12.7.2006 07:30 Auka umsvif vestanhafs Baugur hyggst auka umsvif sín á Bandaríkjamarkaði eftir því sem fram kemur í viðtali við Jón Ásgeir Jóhannesson í Wall Street Journal í gær. Baugur hefur, samkvæmt heimildum Markaðarins, þegar keypt hluti í bandaríska lággjaldaflugfélaginu JetBlue. 12.7.2006 07:30 Halldór og Davíð til Excel Airways Steven Tomlinson, rekstrarstjóri, og Paul Roberts, fjármálastjóri breska leiguflugfélagsins Excel Airways Group, dótturfélags Avion Group, sögðu báðir upp störfum í gær í kjölfar þess að innri rannsókn félagsins leiddi í ljós að góðum reikningsskilavenjum var ekki fylgt við meðhöndlun afsláttar meðal annars á mat og drykkjum, sem veittur var gegn langtímasamningi Excel og Alpha Airports. 12.7.2006 07:00 Bakkavör á 40% inni miðað við mat Greiningardeild KB banka mælir með kaupum á hlutabréfum í Bakkavör og hækkar verðmat sitt úr 58,8 krónum á hlut í 62,5 krónur samkvæmt sjóðstreymislíkani. Telur bankinn að gott tækifæri hafi myndast til kaupa í Bakkavör en gengi Bakkavarar á mánudaginn stóð í 44 krónum á hlut. Er svigrúm til 42 prósenta hækkunar. 12.7.2006 07:00 Milljarðatap í Straumi Frá kaupum FL Group á 24,2 prósenta hlut í Straumi-Burðarási hefur markaðsvirði Straums fallið um þrjátíu milljarða króna. FL Group borgaði fyrir þennan fjórðungshlut Kristins Björnssonar og Magnúsar Kristinssonar á genginu 18,9 en um hádegisbil í gær kostaði hluturinn 16,1 krónu. 12.7.2006 06:30 Minni fjárlagahalli í Bandaríkjunum Stjórnvöld í Bandaríkjunum spá því að fjárlagahalli landsins lækki um 22 milljarða Bandaríkjadali eða sem nemur 1.600 milljörðum íslenskra króna á yfirstandandi fjárlagaári sem lýkur í september. Fjárlagahallinn vestra nam 318 milljörðum dala, jafnvirði tæpra 30.000 milljarða íslenskra króna, á síðasta fjárlagaári. 12.7.2006 06:15 Hægir á í útlánum banka Vísbendingar eru um að útlán bankanna séu að dragast svo saman að Seðlabankanum sé það hugnanlegt. Öllum til hagsbóta, segir Davíð Oddsson seðlabankastjóri. 12.7.2006 06:00 AP3 íhugar sölu í Yahoo Sænski ríkislífeyrissjóðurinn AP3 hefur til skoðunar að selja öll hlutabréf sín í Yahoo, alls þrjú hundruð þúsund hluti, vegna grunsemda um að Yahoo hafi framið mannréttindabrot. Bandaríska félagið er sakað um að hafa komið gögnum til kínverskra stjórnvalda er áttu þátt í því að andófsmaðurinn, Shi Tao, var dæmdur til tíu ára tukthúsvistar. 12.7.2006 05:45 FL syndir gegn straumnum FL Group hefur verið allsráðandi á heimamarkaði síðustu vikurnar. Fjárfest fyrir 54 milljarða, einkum í Glitni og Straumi. 12.7.2006 05:00 Norræni fyrirtækjamarkaðurinn sambærilegur þeim breska Verslun með fyrirtæki blómstrar á Norðurlöndunum. Fréttaþjónustan Mergermarket gerði könnun á norræna fyrirtækjamarkaðnum sem fjallað var um í viðskiptablaðinu Börsen. Í könnuninni kemur fram að rúmlega 60% æðstu stjórnenda fyrirtækja á Norðurlöndum búast við því að umfang viðskipta með fyrirtæki eigi eftir að aukast á næstu árum. Þannig muni bæði fleiri fyrirtæki verða seld og fyrir meira fé. 11.7.2006 15:15 Enginn pantaði risaþotu á árinu 11.7.2006 13:56 Actavis og Barr berjast um bitana Lyfjafyrirtækið Actavis virðist vera að berjast við bandaríska lyfjafyrirtækið Barr á tvennum vígstöðvum, að því er fram kemur í hálf fimm fréttum KB banka. 11.7.2006 12:28 Fiskurinn dýrari 11.7.2006 12:09 Ráðleggja sölu bréfa í HB Granda Glitnir hefur gefið út nýtt verðmat á HB Granda sem er langt undir síðasta markaðsgengi, sem stóð í 12,2. Metur bankinn hlutinn í HB Granda á 7,4 krónur og hækkar eldra verðmat um nærri fimmtung. Ráðleggur bankinn fjárfestum að undirvega bréf í HB Granda til skemmri tíma og selja þau þegar til lengri tíma er litið. 11.7.2006 07:15 Sjá næstu 50 fréttir
HBOS með Baugi Breski fjárfestingarbankinn HBOS verður meðal lykilfjárfesta í kaupum Baugs á bresku vöruhúsakeðjunni House of Fraser. Frá þessu sagði í The Daily Telegraph og öðrum breskum fjölmiðlum í gær. Aðrir sem vænst er að komi að yfirtökunni eru FL Group, breski fjárfestirinn Kevin Stanford auk smærri fjárfesta. 15.7.2006 07:00
Olíuverð aldrei hærra Fat af olíu kostar tæpa áttatíu bandaríkjadali. Sérfræðingar treysta sér ekki til að spá fyrir um þróun olíuverðs. Bensín er dýrara í Danmörku en á Íslandi. 15.7.2006 06:00
Fasteignaverð lækkar í Danmörku Fasteignaverð í Danmörku lækkaði um 2,6 prósent í Danmörku á öðrum ársfjórðungi, að sögn dönsku fréttastofunnar Ritzau. Hækkun fasteignaverð í landinu hefur var óvenju mikil á fyrstu þremur mánuðum ársins eða 5,6 prósent að meðaltali. Mest var lækkunin í Kaupmannahöfn eða 9,7 prósent. 14.7.2006 16:44
Icelandic Group kaupir frystisvið Delpierre Alfesca og Icelandic Group skrifuðu síðdegis í gær undir formlegan samning um kaup Icelandic Group á frystisviði Delpierre (áður SIF France). Þetta er í samræmi við tilkynningu til Kauphallar þann 7. júlí s.l. þar sem fram kom að aðilar væru langt komnir með að ljúka samningum sín á milli. Heildarkaupverð er um 17 milljónir evra, rúmir 1,6 milljarðar króna. 14.7.2006 11:18
Atvinnuleysi óbreytt 1,3 prósent atvinnuleysi mældist á Íslandi í júní samkvæmt mánaðarskýrslu Vinnumálastofnunar. Um tvö þúsund manns voru að meðaltali á atvinnuleysisskrá í júní og er það svipað atvinnuleysi og verið hefur undanfarna þrjá mánuði. 14.7.2006 07:30
Eurotunnel sekkur í skuldafenið Rekstrarfélag Eurotunnel, ganganna sem liggja undir Ermarsundi frá Bretlandi til Frakklands, hefur farið fram á greiðslustöðvun. Félagið hefur átt við gríðarlegan fjárhagsvanda að stríða allt frá því gangagerðinni lauk árið 1994 og hefur farið þess á leit við lánardrottna að þeir skipti 8,7 milljarða evru skuld Eurotunnel í tvo hluta. 14.7.2006 07:15
Hlutabréfin hækka eftir hryðjuverk Sensex-30 vísitala kauphallarinnar í Bombay á Indlandi hækkaði um þrjú prósent á miðvikudag, en lækkaði aftur lítillega í gær, í kjölfar hryðjuverkaárásanna á lestarkerfi borgarinnar á þriðjudag. Tvö hundruð manns létust og fleiri hundruð slösuðust í árásunum. 14.7.2006 07:00
Innfluttar vörur hækka Innfluttar vörur hafa hækkað í verði um 7,1 prósent frá áramótum en gengisvísitala krónunnar hefur hækkað um 27 prósent á sama tímabili. Því má búast við áframhaldandi verðhækkunum á innfluttum vörum segir í Morgunkornum greiningardeildar Glitnis. 14.7.2006 06:45
Olíuverð í hámarki Olíuverð fór í tæpa 76 Bandaríkjadali á helstu mörkuðum í gær og hefur verðið aldrei verið hærra. Ástæðan fyrir hækkuninni er minni umframbirgðir af olíu í Bandaríkjunum, vaxandi spenna í Mið-Austurlöndum og sprengingar við tvær olíuleiðslur í Nígeríu í gær. 14.7.2006 06:30
Olíuverð í hæstu hæðir Verð á olíu fór í fyrsta sinn í dag yfir 76 dali á tunnu í kjölfar loftárása Ísraelsmanna í Líbanon. Olíuverðið hefur aldrei verið hærra en nú. 13.7.2006 16:10
Olíuverð í sögulegu hámarki Olíuverð fór í tæpa 76 Bandaríkjadali á helstu mörkuðum í dag og hefur aldrei verið hærra. Ástæðan fyrir verðhækkuninni eru minni umframbirgðir af olíu í Bandaríkjunum, vaxandi spenna í Mið-Austurlöndum og gruns um sprengingu í olíuleiðslu í Nígeríu, sem aðili er að samtökum olíuframleiðsluríkja, OPEC. 13.7.2006 09:14
Mæla með bréfum í Netia CA IB Securities mælir með kaupum á hlutabréfum í pólska fjarskiptafyrirtækinu Netia. Býst verðbréfafyrirtækið við því að Novator, sem er að stærstum hluta í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, auki hlut sinn á næstu tólf mánuðum en hlutur Novators í Netia fór upp í 23 prósent í janúar. 13.7.2006 07:00
Ósamstíga í spánum Töluverðu munar á afkomuspám viðskiptabankanna til FL Group, Landsbankans og Straums. Munur gæti falist í mismunandi mati á hlutabréfaeign eða gjaldeyrisstöðu. 13.7.2006 06:30
Bankar græða á verðbólgunni Greiningardeild Landsbankans reiknar með að hagnaður Glitnis og KB banka af verðbótum á öðrum ársfjórðungi hafi numið samanlagt rúmum sex milljörðum króna eða þremur milljörðum á hvorn banka. 13.7.2006 06:30
Þrír milljarðar króna í gulli Gulleign Seðlabanka Íslands nam þremur milljörðum króna þann 30. júní samkvæmt efnahagsyfirliti sem bankinn hefur sent frá sér. Frá áramótum hefur virði gullsins hækkað um 940 milljónir króna. 13.7.2006 06:00
Landsvirkjun gefur út skuldabréf Landsvirkjun hefur gefið út skuldabréf að fjárhæð 150 milljónir evra, jafnvirði 14,4 milljarða íslenskra króna, undir rammasamningi fyrirtækisins. Lánið er til 20 ára. Með útgáfunni er fjármögnun Landsvirkjunar á árinu nærri lokið en einungis er eftir að fjármagna sem svarar til um 1,6 milljarða króna. Heildarfjárþörf Landsvirkjunar er 45 milljarðar króna á árinu. 12.7.2006 17:05
Verðbólgan mælist 8,4 prósent Vísitala neysluverðs í júlí hækkaði um 0,46 prósent frá fyrri mánuði. Ef verð á húsnæði er skilið frá útreikningunum hækkaði vísitalan um 0,41 prósent á milli mánaða, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Síðastliðna 12 mánuði hefur vísitalan hækkað um 8,4 prósent, þar af 3,1 prósent síðastliðna þrjá mánuði, og jafngildir það 13 prósenta verðbólgu á ári. 12.7.2006 09:00
Erlend fjárfesting aldrei meiri Beinar fjárfestingar erlendra aðila hér á landi námu 153 milljörðum króna í fyrra og jukust um 296 prósent frá árinu á undan. Um met er að ræða. Að sögn greiningardeildar Glitnis er þetta margfalt meiri vöxtur í erlendri fjárfestingu en mældist í sama tíma í OECD löndunum. 12.7.2006 08:00
Spá yfir 23 milljarða hagnaði Greiningardeild KB banka gerir ráð fyrir að þeirra hagnaður sextán félaga, sem hún spáir fyrir, verði um 23,5 milljarðar króna á öðrum ársfjórðungi. 12.7.2006 07:45
Samdráttur milli fjórðunga Heildarhagnaður sautján félaga í Kauphöll Íslands dregst verulega saman á milli fyrsta og annars ársfjórðungs. Þetta er aðallega rakið til bankanna. 12.7.2006 07:30
Fá 25 aura fyrir krónu nafnverðs Arion verðbréfavarsla hf. mun á næstunni senda fyrstu greiðslur til hluthafa Stoke Holding vegna sölu á 67 prósenta hlut í enska fótboltafélaginu Stoke City. 12.7.2006 07:30
Auka umsvif vestanhafs Baugur hyggst auka umsvif sín á Bandaríkjamarkaði eftir því sem fram kemur í viðtali við Jón Ásgeir Jóhannesson í Wall Street Journal í gær. Baugur hefur, samkvæmt heimildum Markaðarins, þegar keypt hluti í bandaríska lággjaldaflugfélaginu JetBlue. 12.7.2006 07:30
Halldór og Davíð til Excel Airways Steven Tomlinson, rekstrarstjóri, og Paul Roberts, fjármálastjóri breska leiguflugfélagsins Excel Airways Group, dótturfélags Avion Group, sögðu báðir upp störfum í gær í kjölfar þess að innri rannsókn félagsins leiddi í ljós að góðum reikningsskilavenjum var ekki fylgt við meðhöndlun afsláttar meðal annars á mat og drykkjum, sem veittur var gegn langtímasamningi Excel og Alpha Airports. 12.7.2006 07:00
Bakkavör á 40% inni miðað við mat Greiningardeild KB banka mælir með kaupum á hlutabréfum í Bakkavör og hækkar verðmat sitt úr 58,8 krónum á hlut í 62,5 krónur samkvæmt sjóðstreymislíkani. Telur bankinn að gott tækifæri hafi myndast til kaupa í Bakkavör en gengi Bakkavarar á mánudaginn stóð í 44 krónum á hlut. Er svigrúm til 42 prósenta hækkunar. 12.7.2006 07:00
Milljarðatap í Straumi Frá kaupum FL Group á 24,2 prósenta hlut í Straumi-Burðarási hefur markaðsvirði Straums fallið um þrjátíu milljarða króna. FL Group borgaði fyrir þennan fjórðungshlut Kristins Björnssonar og Magnúsar Kristinssonar á genginu 18,9 en um hádegisbil í gær kostaði hluturinn 16,1 krónu. 12.7.2006 06:30
Minni fjárlagahalli í Bandaríkjunum Stjórnvöld í Bandaríkjunum spá því að fjárlagahalli landsins lækki um 22 milljarða Bandaríkjadali eða sem nemur 1.600 milljörðum íslenskra króna á yfirstandandi fjárlagaári sem lýkur í september. Fjárlagahallinn vestra nam 318 milljörðum dala, jafnvirði tæpra 30.000 milljarða íslenskra króna, á síðasta fjárlagaári. 12.7.2006 06:15
Hægir á í útlánum banka Vísbendingar eru um að útlán bankanna séu að dragast svo saman að Seðlabankanum sé það hugnanlegt. Öllum til hagsbóta, segir Davíð Oddsson seðlabankastjóri. 12.7.2006 06:00
AP3 íhugar sölu í Yahoo Sænski ríkislífeyrissjóðurinn AP3 hefur til skoðunar að selja öll hlutabréf sín í Yahoo, alls þrjú hundruð þúsund hluti, vegna grunsemda um að Yahoo hafi framið mannréttindabrot. Bandaríska félagið er sakað um að hafa komið gögnum til kínverskra stjórnvalda er áttu þátt í því að andófsmaðurinn, Shi Tao, var dæmdur til tíu ára tukthúsvistar. 12.7.2006 05:45
FL syndir gegn straumnum FL Group hefur verið allsráðandi á heimamarkaði síðustu vikurnar. Fjárfest fyrir 54 milljarða, einkum í Glitni og Straumi. 12.7.2006 05:00
Norræni fyrirtækjamarkaðurinn sambærilegur þeim breska Verslun með fyrirtæki blómstrar á Norðurlöndunum. Fréttaþjónustan Mergermarket gerði könnun á norræna fyrirtækjamarkaðnum sem fjallað var um í viðskiptablaðinu Börsen. Í könnuninni kemur fram að rúmlega 60% æðstu stjórnenda fyrirtækja á Norðurlöndum búast við því að umfang viðskipta með fyrirtæki eigi eftir að aukast á næstu árum. Þannig muni bæði fleiri fyrirtæki verða seld og fyrir meira fé. 11.7.2006 15:15
Actavis og Barr berjast um bitana Lyfjafyrirtækið Actavis virðist vera að berjast við bandaríska lyfjafyrirtækið Barr á tvennum vígstöðvum, að því er fram kemur í hálf fimm fréttum KB banka. 11.7.2006 12:28
Ráðleggja sölu bréfa í HB Granda Glitnir hefur gefið út nýtt verðmat á HB Granda sem er langt undir síðasta markaðsgengi, sem stóð í 12,2. Metur bankinn hlutinn í HB Granda á 7,4 krónur og hækkar eldra verðmat um nærri fimmtung. Ráðleggur bankinn fjárfestum að undirvega bréf í HB Granda til skemmri tíma og selja þau þegar til lengri tíma er litið. 11.7.2006 07:15