Viðskipti erlent

400 milljarða búbót símnotenda

Himinháir farsímareikningar Íslendinga á ferðalögum í Evrópu heyra sögunni til ef reglugerð sem Evrópusambandið (ESB) hefur í burðarliðnum verður að veruleika. Áætlað er að reglugerðin taki gildi strax næsta sumar.

Reglugerðin kveður á um hámarksverð sem farsímafyrirtæki geta lagt á svokölluð reikisímtöl, eða millilandasímtöl í farsíma. ESB áætlar að reglugerðin spari evrópskum neytendum rúma fjögur hundruð milljarða íslenskra króna á ári hverju.

Evrópskum fjarskiptafyrirtækjum sem stunda heildsölu til erlendra fyrirtækja verður einungis heimilt að leggja á tvöfaldan innanlandstaxta samþykki Evrópuþingið frumvarpið í núverandi mynd. Innlend fjarskiptafyriræki mega síðan leggja allt að þrjátíu prósent ofan á símtöl til viðskiptavina. Frumvarpið verður að öllum líkindum að veruleika hér á landi nokkru síðar í samræmi við EES-samninginn.

Páll Ásgrímsson, framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Símans, segir að um sé að ræða mikla búbót fyrir neytendur. Mestu muni þó um lækkun á heildsöluverði "Smásölutaxti íslensku símafyrirtækjanna er ekki hár miðað við það sem tíðkast annars staðar. Þess vegna munar mest um heildsöluákvæðið."

"Þetta þýðir lægri símreikninga fyrir Íslendinga erlendis vegna þess að við getum keypt þjónustuna á lægra verði. Það er náttúrulega fagnaðarefni," sagði Gestur Gestsson, framkvæmdastjóri tæknisviðs hjá OgVodafone. -






Fleiri fréttir

Sjá meira


×