Fleiri fréttir

Tónlistarborgin Reykjavík

Melkorka Ólafsdóttir skrifar

Á síðasta ári var settur saman starfshópur um tónlistarborgina Reykjavík. Hlutverk hópsins er að móta tillögur um undirbúning og fyrirkomulag. Slíkan stimpil hafa ýmsar vestrænar borgir, t.d. Toronto og Seattle, og hefur eflaust ýmis jákvæð áhrif, ekki síst á ímynd og markaðssetningu.

Ábyrgðin er útgerðarinnar

Þorbjörn Þórðarson skrifar

Hvar liggja sársaukamörk almannahagsmuna þegar sjómannaverkfallið er annars vegar?

Uppreisn kjósenda

Þorvaldur Gylfason skrifar

Ein líkleg skýring á bágu ástandi stjórnmálanna í Bandaríkjunum og Evrópu nú er uppreisn reiðra kjósenda gegn forréttindum, m.a. gegn stjórnmálaflokkum sem hegða sér eins og hagsmunasamtök stjórnmálamanna og bönkum sem hegða sér eins og ríki í ríkinu.

Róttækar tillögur

Frosti Logason skrifar

Mikil umræða hefur verið um áfengisfrumvarpið svokallaða undanfarið. Það er auðvitað jákvætt út af fyrir sig og leiðir okkur vonandi á endanum að skynsamlegri niðurstöðu. Sjálfum finnst mér þó ýmislegt hljóma einkennilega í umræðunni.

Pólitískar jarðsprengjur auðlindanna

Katrín Olga Jóhannesdóttir skrifar

Í dag fer Viðskiptaþing fram í 41. sinn. Þingið í ár er sérstakt fyrir margar sakir en Viðskiptaráð, sem áður hét Verzlunarráð, fagnar aldarafmæli á árinu.

Rannsóknarhagsmunir og viðskiptahagsmunir

Sigríður Á. Andersen skrifar

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, sendi mér kveðju hér í blaðinu í fyrradag. Tilefnið er að ég hafði í stuttu máli lýst athugun sem fram fór á vegum innanríkisráðuneytisins, ríkislögreglustjóra og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á árunum 2012 - 2013 á fyrirkomulagi lífsýnarannsókna í sakamálum.

Þurfum við nýja útgerðarmenn?

Bolli Héðinsson skrifar

Útgerðin skilur ekki neitt í neinu, að ekki skuli vera búið að setja lög á verkfall sjómanna eða þá að ríkisvaldið skuli ekki vera fyrir löngu búið að lofa að liðka fyrir samningum með loforðum um skattaafslátt (sem þá leggur meiri byrðar á alla hina skattgreiðendurna sem ekki njóta afsláttarins).

Lágkúruleg stjórnsýsla í Lágafellsssókn

Skírnir Garðarsson skrifar

Mosfellsbæingar búa því miður við kirkjulega stjórnsýslu sem verður að teljast langt undir meðallagi, og er þetta dapurlegt, því margt er annars ágætt í Mosfellsbæ. Þetta greinarkorn lýsir aðeins staðreyndum, og er ekki við neinn að sakast um efni greinarinnar, aðra en þá aðila sem með stjórnsýsluna fara.

Bisnessinn og börnin

Páll Valur Björnsson skrifar

Ísland fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1992 og skuldbatt sig þar með til að tryggja að lög og reglur og öll stjórnsýsluframkvæmd sé í fullu samræmi við markmið hans og ákvæði. Og ekki nóg með það. Árið 2013 var Barnasáttmálinn tekinn í íslensk lög.

Vanhugsaður virðisauki

Magnús Guðmundsson skrifar

Það verður ball á Bessastöðum í kvöld, eða því sem næst, en þá verður þar húsfyllir af ægilegum verum sem í daglegu tali kallast rithöfundar. Tilefnið er afhending Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2016, en verðlaunað er í þremur flokkum: Fræðibækur og rit almenns eðlis, barna- og ungmennabækur og loks fagurbókmenntir. Allt bækur sem skipta máli og við, bókaþjóðin á enda veraldar, eigum vonandi eftir að halda áfram að lesa um ókomin ár vegna þess að góðar bækur eru mannbætandi.

Áfengi

Bjarni Karlsson skrifar

Tekur þú eftir því hvernig veröldin er að skreppa saman um leið og fjarlægðir milli manna hafa aldrei verið ýktari? Jörð skelfur eða flugvél hrapar hinum megin á hnettinum og ljósmyndir af vettvangi eru á augabragði komnar í snjallsíma milljóna manna. Samtímis eru fleiri á vergangi en nokkru sinni í sögu mannkyns

„Í guðanna bænum gerið það ekki“

Hrafn Magnússon skrifar

Enn á ný er komið fram frumvarp á Alþingi um að heimila sölu áfengis í matvöruverslunum. Verði frumvarpið að lögum verður hægt að kaupa léttvín og bjór í verslunum frá og með næstu áramótum frá klukkan níu að morgni til miðnættis. Þetta frumvarp er lagt fram þó vitað sé að meirihluti landsmanna hefur í mörgum skoðanakönnunum lýst sig andsnúinn

Hvar á að halda Ólympíuleikana?

Björn Berg Gunnarsson skrifar

Róm, Boston og Hamborg hafa dregið til baka umsóknir sínar um að halda Ólympíuleikana árið 2024. Ósló, Stokkhólmur, Kraká og Lviv drógu til baka umsóknir sínar um að halda Vetrarleikana 2022 og íbúar St. Moritz og München höfnuðu umsókn í atkvæðagreiðslu.

Gjaldmiðilsglópska Trump-stjórnarinnar

Lars Christensen skrifar

Donald Trump hefur gert það að sérgrein sinni að úthúða öðrum ríkjum. Reyndar lítur út fyrir að hann ráðist sérstaklega á mikilvægustu viðskiptalönd Bandaríkjanna, Mexíkó og Kína.

Kæri Lars

Agnar Tómas Möller skrifar

Í grein sem þú skrifaðir í Markaðinn í Fréttablaðinu þann 25. janúar síðastliðinn fjallar þú um ástæður þess að ekki sé skynsamlegt að Seðlabanki Íslands slaki á peningalegu aðhaldi sínu, nema síður sé.

Framtíðin er björt

Guðni Bergsson skrifar

Upplifunin síðasta sumar að fylgjast með okkar eigin landsliði á EM í Frakklandi bæði fyrir mig sem fyrrverandi landsliðsfyrirliða og okkur öll var stórkostleg. Næsta sumar munum við svo stolt fylgjast með kvennaliðinu á EM í Hollandi sem er að fara á sitt þriðja stórmót.

Hver er tilgangur fæðingarorlofs?

Sæunn Kjartansdóttir skrifar

„Ég er ekkert viss um að það sé betra að lengja fjarvistina frá vinnumarkaði, út frá starfsþróun og starfsframa. Það gæti jafnvel aukið enn frekar á kynbundna mismunun í starfsþróun.“ Viðhorf félagsmálaráðherra til lengingar fæðingarorlofs í Stundinni varpa skýru ljósi á vanda barna

Klamydía í frímínútum

Óskar Steinn Ómarsson skrifar

Þegar ég var í menntaskóla fékk ég allar námsbækur sem ég þurfti ókeypis. Skólinn gaf mér fartölvu sem ég greiddi fyrir um 15 þúsund krónur á ári og mátti svo eiga að lokinni útskrift. Þá fékk ég 30 þúsund króna styrk mánaðarlega fyrir það eitt að vera í skóla.

Öryggisnetið

Þorbjörn Þórðarson skrifar

Hrepparnir í íslenska þjóðveldinu voru sjálfsprottið velferðarkerfi í þjóðfélagi án ríkisvalds. Íslenska öryggisnetið er þannig þúsund ára gamalt fyrirbæri.

Ráðherrabull

Kári Stefánsson skrifar

Það birtist svolítið viðtal við nýja dómsmálaráðherrann okkar hana Sigríði Á. Andersen í Fréttatímanum á fimmtudaginn. Tilefnið var að öllum líkindum að ég hafði boðið fram þjónustu Íslenskrar erfðagreiningar til þess að reyna að hysja gagnlegar upplýsingar upp úr lífsýnum sem fundust á vettvangi glæpsins hræðilega sem hefur hvílt svo þungt á þjóðinni.

Nýsósíalismi

Sirrý Hallgrímsdóttir skrifar

Rekstrarumhverfi fjölmiðla hefur versnað síðustu árin vegna aukinnar samkeppni um auglýsingar frá erlendum efnisveitum eins og Google og Facebook. Ríkisrekni fjölmiðillinn þykir líka óþarflega plássfrekur á auglýsingamarkaði.

Þökk fyrir Gylfa

Logi Einarsson skrifar

Maðurinn er félagsvera og sá magnaði hæfileiki að vinna saman og miðla þekkingu, innan og milli kynslóða, hefur skapað honum einstaka stöðu meðal dýra. Örlög flestra okkar er að leggja aðeins ofurlítið af mörkum.

Fangar

Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Maður verður bara að vona að ódámurinn hljóti makleg málagjöld en stúlkunum verði hjálpað til að komast á farsælli brautir í lífinu.

Að gera sitt allra besta

Helga Vala Helgadóttir skrifar

Það hefur verið áhugavert að fylgjast með viðbrögðum þjóðarinnar við störfum og framkomu Guðna Th. Jóhannessonar á fyrstu mánuðum í embætti forseta.

Einfalda leiðin

Logi Bergmann skrifar

Ef ég væri svona alvöru pistlahöfundur, sem tæki mig hátíðlega, væri ég núna að fara að skrifa pistil um Donald Trump. En vá hvað ég nenni því ekki. Fer hann ekki bara ef við hættum að tala um hann?

"Ég næ ekki til þín“

Óttar Guðmundsson skrifar

Fræg er sagan í Íslenskri fyndni af bónda nokkrum sem stóð í brakandi þerri í heyflekknum. Skyndilega tók að hellirigna. Hann reiddist ógurlega, skók hrífuna til himins og öskraði: "Þú nýtur þess Guð, að ég næ ekki til þín.“

Sjálfskaparvíti

Kristín Þorsteinsdóttir skrifar

Úttekt WHO minnir okkur á skaðsemi tóbaks. Kannski er ástæða til að banna hreinlega neyslu skaðvaldsins. Sennilega er ekki lengra en ein mannsævi í að sú verði raunin.

Fyrirtæki í fararbroddi um samfélagsábyrgð

Ketill Berg Magnússon skrifar

Mörg íslensk fyrirtæki hafa á undanförnum misserum sýnt eftirtektarvert frumkvæði um samfélagsábyrgð. Fyrir rúmu ári skrifuðu liðlega 100 fyrirtæki undir yfirlýsingu um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og sorps, og fyrr í þessum mánuði undirrituðu tæplega 300 ferðaþjónustufyrirtæki yfirlýsingu um ábyrga ferðaþjónustu.

Öld öfganna

Tryggvi Gíslason skrifar

Árið 1944 kom út á ensku bókin Age of Extremes eftir Eric Hobsbawm. Bókin kom út í íslenskri þýðingu 1999 og var nefnd Öld öfganna, saga heimsins á 20. öld. Eric Hobsbawm fæddist í Alexandríu 1917 – á dögum breska heimsveldisins, en ólst upp í Vínarborg og Berlín.

Batman betri en Barbie?

Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir Waage skrifar

Fyrirmyndir stúlkubarna hafa lengi vel verið áberandi í umræðunni og þykir mér góð ástæða til þeirrar umræðu. Hvað með fyrirmyndir ungra drengja?

Farvegur illskunnar

Bergur Ebbi skrifar

Eins og sagt hefur verið frá í fréttum var íslensk-íranska íþróttamanninum Meisam Rafiei meinað að ferðast til Bandaríkjanna síðastliðinn mánudag.

Við getum þetta!

María Bjarnadóttir skrifar

Allsherjarátakið meistaramánuður stendur nú yfir. Allsherjarátök eru eins og sniðin fyrir samhenta og einsleita þjóð með mikla reynslu af vertíðarvinnu eins og Íslendinga.

Óskabarn í krísu

Hörður Ægisson skrifar

Vöxtur Icelandair hefur verið ævintýri líkastur á undanförnum árum. Flugfélagið hefur spilað lykilhlutverk, sem stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins, í uppgangi nýrrar gjaldeyrisskapandi atvinnugreinar sem hefur átt mestan þátt í þeim umskiptum sem hafa orðið á stöðu íslenska þjóðarbúsins. Eftir nánast linnulausa velgengni eru núna hins vegar blikur á lofti hjá þessu óskabarni þjóðarinnar.

Stöndum með flóttamönnum

Reimar Pétursson skrifar

Ísland hlýtur að taka stöðu með flóttamönnum á móti öflum sem vilja neita þeim um griðastað með gerræðislegum ákvörðunum. Önnur afstaða væri til þess fallin að grafa undan alþjóðlegu samstarfi á þessu sviði og varpa skugga á afstöðu Íslands til mannréttinda.

Rembihnútur

Kristín Þorsteinsdóttir skrifar

Hlutur kvenna í framkvæmdastjórastöðum hjá 800 stærstu fyrirtækjum landsins var aðeins níu prósent í fyrra og stóð í stað frá árinu á undan. Konur voru tólf prósent framkvæmdastjóra hjá meðalstórum fyrirtækjum, líkt og árið 2015.

Nóbelsverðlaun og friður

Þorvaldur Gylfason skrifar

Þegar söngleikurinn South Pacific eftir Rodgers og Hamm­erstein eftir sögu metsöluhöfundarins James Michener komst á fjalirnar í New York öðru sinni 2008 eftir 60 ára hlé vakti það athygli mína í leikslok, þetta var 2009, að varla var þurran hvarm að sjá í salnum.

Lalli verður aftur Lagerbäck

Tómas Þór Þórðarson skrifar

Það var erfitt að sætta sig við það, að Lars Lagerbäck myndi hætta að þjálfa íslenska landsliðið í fótbolta eftir Evrópumótið síðasta sumar. Maður vissi samt að hann skildi eftir sig gott bú og var með eftirmann í Heimi Hallgrímssyni

Sjá næstu 50 greinar