Upp­gjör: Grinda­vík 79-73 Valur | Tóku stórt skref í átt að undan­úr­slitum í spennutrylli

Ísak Orri Leifsson Schjetne skrifar
Keflavík-Grindavík
Vísir/Anton Brink

Kvennalið Grindavíkur er komið í 2-0 forystu í einvíginu gegn Val eftir 79-73 sigur í hörkuleik þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en á lokasekúndum.

Leikurinn fór af stað með nokkrum töfum þar sem dómarar þurftu ítrekað að stöðva leikinn á fyrstu sekúndunum vegna klafs og svo þegar stigið var á línu. En þegar boltinn fór loks að rúlla fann Grindavík betri takt og Abby Claire Beeman kom heimakonum í stöðuna 9-4 með þristi snemma leiks.

Valur hélt sér þó inni í leiknum og Guðbjörg Sverrisdóttir minnkaði muninn í 13-12 með þristi. Mikil flaut dómara einkenndu fyrsta leikhlutann en heimakonur náðu að halda frumkvæðinu og Farhiya Abdi setti þrist á lokasekúndunum sem tryggði þeim forskotið.

Staðan eftir fyrsta leikhluta: Grindavík 22 - 17 Valur.

Valskonur byrjuðu annan leikhluta vel og jöfnuðu leikinn strax í 22-22 með fyrstu fimm stigum leikhlutans. Eftir það tóku Grindavíkurkonur hins vegar völdin og náðu 8-0 stiga kafla, Valskonur svöruðu aðeins en heimakonur héldu áfram og komust í þægilega stöðu, 37-22.

Gestirnir áttu í erfiðleikum sóknarlega á þessum kafla á meðan Abby Claire Beeman og Farhiya Abdi leiddu heimakonur áfram með góðu samspili. Ásta Júlía minnkaði muninn rétt fyrir hálfleik með körfu á síðustu sekúndunni, en Grindavík fór engu að síður með gott forskot inn í hálfleikinn.

Hálfleikur: Grindavík 43 - 32 Valur.

Valskonur mættu af miklum krafti í seinni hálfleik og settu niður þrjá þrista á fyrstu mínútunum sem minnkuðu muninn hratt. Reshwana Rosie Stone kom þeim síðan yfir, 50-51, og skömmu síðar var staðan orðin 50-57.

Grindavík svaraði með fimm stigum í röð undir lok leikhlutans og minnkaði muninn í 55-57, en ljóst var að leikurinn væri galopinn fyrir lokamínúturnar eftir góða endurkomu gestanna.

Staðan eftir þriðja leikhluta: Grindavík 55 - 57 Valur.

Fjórði leikhluti var sannkallaður eltingaleikur þar sem liðin skiptust á að hafa forystu og staðan var hnífjöfn á köflum, 57-57, 59-59 og 61-61.

Grindavík náði svo aftur frumkvæðinu þegar um tvær mínútur voru eftir, 68-67, og Ellen Nyström sýndi mikinn leikskilning þegar hún skaut rétt fyrir brot og fiskaði vítaköst sem hún nýtti vel, 70-67.

Valskonur fengu tækifæri á vítalínunni á lokamínútunum en nýttu skotin illa og tíminn vann með heimakonum. Þegar 29 sekúndur voru eftir var staðan 77-73, en þá skaust Abby Claire Beeman fram, stal boltanum og gulltryggði sigurinn með tveggja stiga körfu hinum megin.

Lokastaða: Grindavík 79 - 73 Valur og eru því Grindvíkingar komnar í 2-0 forystu fyrir þriðja leik liðanna.

Atvik leiksins:

Í fjórða leikhluta þegar Reshwana Rosie Stone fintar Abby Beeman grimmt og klíndi í þrist í þokkabót!

Stjörnur:

Stjörnur dagsins koma úr sitthvoru liðinu:

Reshwana Rosie stone, Valur, með 29 stig

Abby Claire Beeman, Grindavík, með 27 stig

Dómarar:

Þríeyki dagsins skipuðu þeir Bjarni Hlíðkvist, Birgir Örn & Friðrik Á. og dæmdu þeir feikilega vel í leiknum, þeir leyfðu leiknum að ganga faglega og blésu háan og ákveðin blástur í flautuna, flott þríeyki hér á ferð.

Stemning og umgjörð:

Það var vel mætt í sólríku Grindavík í dag, stuðningsmenn beggja liða létu sig ekki vanta í þetta umspils einvígi, það var látið vel í sér heyra og skilaði orkan sér frá stúkunni inn á völl til leikmanna. Það var einnig alvöru stemning í vallarlýsi leiksins, stemningsmaður með kúrekahatt að lesa upp liðin, hvernig er ekki hægt að „peppast“ við það?

Umgjörðin verður að segjast vera hálf klaufaleg hvað varðar fjölmiðlastúkuna, fremur þröngt fyrir gangandi menn sem þurfa að komast fram hjá sitjandi mönnum uppi á pallinum, en fyrir utan það er umgjörðin virkilega góð hér í Grindavíkinni.

Þorleifur Ólafsson - þjálfari Grindavíkur:

Anton Brink

„Virkilega sáttur, kláruðum leikinn mjög vel og bara frábær sigur hjá okkur.“ sagði Þorleifur Ólafsson, þjálfari kvennaliðs Grindavíkur eftir að liðið komst í 2-0 forystu í einvíginu milli þeirra og Vals um sæti í 4-liða úrslitum.

Aðeins fleiri stig skoruð í dag heldur en á þriðjudaginn síðastliðinn þar sem leikar enduðu 55-59 fyrir þeim gulklæddu.

„Fyrri leikurinn var náttúrulega ekki eðlilegur, bæði liðin voru að spila mjög góða vörn og að hitta illa, þessi leikur var aðeins eðlilegri. Það er eiginlega ekkert hægt að bera þessa tvo leiki saman, ég man ekki eftir að hafa þjálfað eða spilað leik eins og var síðast, en við erum komnar 2-0 yfir og það er það sem skiptir máli.“

Hversu mikilvægur var þessi sigur og að komast 2-0 yfir í einvígi eins og þessu gegn virkilega góðu liði Valskvenna?

„Það er alltaf gott að vera 2-0 yfir, sama í hvaða stöðu maður er. Samt sem áður er þetta ekki búið, Valur eru með hörku lið sem við þurfum að taka mjög alvarlega, við verðum að mæta tilbúnar í hvern einasta leik í úrslitakeppninni, þetta er og mun halda áfram að vera mjög jafnt og býst ég við að Valur mæta brjálaðar á fimmtudaginn og við þurfum gjöra svo vel að búa okkur undir það.“

Jamil Abiad- þjálfari Vals:

Jamil Abiad er þjálfari ValsVísir/Pawel

„Alltof mörg klaufamistök í lok leiks, alltof mikilvæg stig sem eru ekki að lenda ofan í körfunni“ sagði Jamil Abiad, þjálfari Vals eftir 79-73 tap gegn Grindavík í dag.

„Þær þrýstu á mistök okkar, við verðum að gera betur í því. Einnig er aftur það að gerast að þær (Grindavík) fá mun fleiri vítaköst fyrir jafn mikil brot báðu megin, við erum að sækja, ef ekki meira en þær, og fáum færri vítaköst, leikurinn í dag var hvað? 19 á móti átta vítaköstum, það er erfitt að keppa í leik ef þú færð ekki jafn mikið launað fyrir sömu vinnu. En mikið af mistökum hjá okkur var það sem brenndi okkur.“

Valsarar fara inn í hálfleikinn 11 stigum undir, en ná svo að jafna leikinn skömmu eftir að seinni hálfleikur var farinn af stað, spurning hvaða taktísku breytingar gestirnir gerðu í hálfleik.

„Það voru engar rosa breytingar, ég sagði stelpunum að núna væri bara að gefa í, leggja öll spilin á borðið og vaða inn í seinni hálfleikinn, og þær skiluðu frá sér frábærri orku með endurkomunni, það hefur verið leikplanið okkar allt tímabilið; að vera með meiri pressu og orkumeiri en andstæðingurinn, en enn og aftur eru það mistökin sem brenndi okkur, þegar við takmörkum mistökin erum við alltaf betra liðið“

0-2 í einvígi sem krefst þrjá sigra er ekki beint óska staða til að lenda í, en Jamil ætlar að einblína að smáatriðum fyrir næsta leik.

„Við þurfum að halda betur í boltann og huga aðeins að „layups-unum“ og reyna að fá ekki eins marga dóma á okkur, þá klárum við leiki.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira