Fleiri fréttir

Afneitun RÚV

Kristín Þorsteinsdóttir skrifar

RÚV skýrslan er tímabært innlegg í umfjöllun um framtíð fjölmiðla á Íslandi. Farið er yfir stöðuna eins og hún blasir við nefndarfólki og reynt að rýna í ástæður fyrir bágri fjárhagsstöðu RÚV. Viðbrögð úr Efstaleiti hafa verið fyrirsjáanleg. Svo virðist sem samanburður á rekstri RÚV og fréttastofu 365 hafi farið sérstaklega fyrir brjóstið á stjórn og starfsfólki.

Myndlist er þjóðarspegill

Fríða Björk Ingvarsdóttir skrifar

Allt frá tímum hellamálverka hefur saga mannkyns verið skráð í myndlist. Stundum er það saga pólitískra átaka, landflutninga, trúarbragða eða hamfara, en einnig og ekki síst saga einstaklingsins, hversdagslífsins og tilfinninganna.

Kirkjan er ávöxtur vináttu og trúar

Bjarni Karlsson og Gregory Aikins skrifar

Við sem þetta ritum höfum lengi verið vinir. Við höfum ræktað með okkur sérstaka vináttu sem okkur langar að deila með öðru fólki. Um árabil hittumst við hvern þriðjudagsmorgun kl. 10 til að lesa Biblíuna, biðja saman og eiga gott samtal með það að markmiði að veita hvor öðrum aðhald til að lifa ósviknu andlegu lífi.

Harmsaga ævi minnar

Óttar Guðmundsson skrifar

Árið 1945 gaf Jóhannes Birkiland, þekktur blaðamaður og skáld í Reykjavík, út bókina, „Harmsaga ævi minnar. Hvers vegna ég varð auðnuleysingi.“ Birkiland uppskar einungis háð og spott fyrir bók sína.

Óheflaðir, kærleiksheftir bavíanar

Sif Sigmarsdóttir skrifar

Ég nenni yfirleitt ekki að tjá mig um tilvist guðs – ekki frekar en um jólasveininn eða samsæriskenningar um hver stóð í alvörunni á bak við árásirnar á tvíburaturnana í New York. En mér er ekki sjálfrátt. Ég er með hita, sýkingu í ennisholum og er heyrnarlaus á öðru eyra.

Atvinnuíþróttalistamenn

Berglind Helgadóttir skrifar

Dagur Myndlistar er vitundarátak þar sem starf myndlistarmannsins er kynnt fyrir almenningi.

656 orð í tilefni af Degi myndlistar

Libia Castro og Ólafur Ólafsson skrifar

Loksins er hann kominn á ný! Dagurinn sem við öll bíðum eftir í ofvæni ár hvert – Dagur myndlistarinnar!

Ríkið mælir ást

Hildur Sverrisdóttir skrifar

Í kvikmyndinni Green Card er Gérard Depardieu hundeltur af bandarískum yfirvöldum vegna gruns um málamyndahjónaband fyrir landvistarleyfi.

RÚV-raunir

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar

Það er erfitt að færa fyrir því rök að eðlilegt sé að stofnun á vegum ríkisins selji auglýsingar í samkeppni við einkaaðila og noti fé sem fengið er með skylduáskriftum til að kaupa erlent afþreyingarefni með yfirboðum á samkeppnismarkaði.

Guð og illa lyktandi trúleysingjar

Gunnar Ingi Gunnarsson skrifar

Þórir Stephensen, fv. dómkirkjuprestur, birtir grein í Fréttablaðinu 27. október, þar sem hann vandar þeim okkar ekki kveðjuna, sem trúum ekki á neinn guð og höfum sagt frá því í Fréttablaðinu. Eftir að hafa talið upp fjölda þekktra stórmenna mannkynssögunnar, sem hafa trúað á guð, eins og hann sjálfur, spyr hann lesendur blaðsins.

Enska á Íslandi

Ebba Ísberg skrifar

Íslendingar leggja mikið upp úr því að varðveita íslenska tungu. Því er spáð að íslenska tungan muni deyja út á næstu 100 árum og er skiljanlegt að Íslendingar séu að reyna að koma í veg fyrir það. En hvernig væri það ef íslenska þjóðin myndi innleiða enskuna.

Frjálsa verslun með áfengi

Guðmundur Edgarsson skrifar

Orðið lýðheilsa er vandmeðfarið. Eins fallega og það hljómar hefur notkun þess meðal ýmissa stjórnmálamanna og álitsgjafa úr háskólasamfélaginu gjarnan falið í sér visst yfirlæti, jafnvel stjórnlyndi, þegar látið er sem heilsa og líðan einstaklingsins sé ekki lengur hans mál eingöngu heldur allrar þjóðarinnar.

Ógnarjafnvægi nýrrar kynslóðar

Bergur Ebbi skrifar

Eitt af því sem skilgreindi kynslóðina sem ólst upp á tímum kalda stríðsins var kjarnorkuváin. Stórveldin stóðu í gagnkvæmum ögrunum og bæði bjuggu þau yfir kjarnorkuvopnum. Heimsbyggðin gat fylgst með enda voru nýir miðlar eins og sjónvarp notaðir sem áróðurstæki til að koma skilaboðum til fólks.

Skref í rétta átt

Óli Kristján Ármannsson skrifar

Niðurstöður kynningar stjórnvalda á undanþágu Seðlabankans til slitabúa föllnu bankanna frá lögum um gjaldeyrismál og áhrifum nauðasamninga við þá í gær eru gleðilegar fyrir land og þjóð. Slitabúin uppfylla stöðugleikaskilyrði og til þjóðarbúsins renna verðmæti upp á fleiri hundruð milljarða króna.

Landspítalinn – Hin sorglega staðreynd málsins

Eymundur Sveinn Leifsson skrifar

Nýlega uppgötvaðist myglusveppur í enn einni byggingu Landspítalans á Hringbraut. Í þetta skiptið á Eiríksgötu þar sem augnskurðdeild og -göngudeild hefur húsaskjól. Það er því ekki nema von að manni bregði við að sjá á fjórða hundrað manns skrifa undir áskorun til stjórnvalda um að hvika hvergi.

1942, 1959 og 2017

Þorvaldur Gylfason skrifar

Misvægi atkvæða eftir búsetu hefur verið eitt helzta bitbein íslenzkra stjórnmála allar götur frá 1849 þegar Fjölnismaðurinn Brynjólfur Pétursson, nýkominn heim af danska stjórnlagaþinginu sem hann sat fyrir Íslands hönd, lagði fram tillögu um jafnt vægi atkvæða.

Þjóðkirkjan 2.0

Atli Fannar Bjarkason skrifar

„Við þurfum app!“ Séra Helgi var staðinn upp úr sæti sínu og baðaði höndum til himins eins og undir lokin á velheppnaðri sunnudagsmessu. Hann leit á kollega sína sem virtust ekki sannfærðir og þögðu.

Tabú sem allir þyrftu að þekkja

Þóra Jónsdóttir skrifar

Samfélag manna virkar að langmestu leyti vel og er langflestum okkar gott. Það er frábært og við ættum að muna oftar eftir að þakka fyrir það. Það gerist ekki endilega af sjálfu sér, því það er verkefni okkar allra að vanda okkur í lífinu og koma ávallt vel fram við aðra, sérstaklega við börn.

Cox og Guð

Valgarður Guðjónsson skrifar

Þórir Stephensen ritar grein í Fréttablaðið 27. október þar sem hann leggur út af því að prófessor Brian Cox hafi sagt að það sé barnalegt að afneita tilvist guðs. Nú er þetta auðvitað lýsandi dæmi um rökleysuna „tilvitnun í vald“ ("Appeal to authority“ / "Ad Verecundiam“)

Í öðrum heimi í umferðinni

Gísli Níls Einarsson skrifar

Endalaust áreiti og truflun er daglegt brauð flestra. Í umferðinni er margt sem glepur hvort sem vegfarendur ganga, hjóla, aka eða ferðast með Strætó. Þar má fyrst nefna farsímana með allri sinni afþreyingu.

Stjórnvöld hafa brugðist öldruðum

Björgvin Guðmundsson skrifar

Alþingi kom saman 8. september. Nokkru áður skrifaði ég grein í Fréttablaðið, þar sem ég skoraði á Alþingi að taka kjaramál aldraðra fyrir strax á fyrstu dögum þingsins og samþykkja að láta aldraða fá jafnmikla hækkun á lífeyri sínum.

Munurinn á útflutningstekjum af ferðaþjónustu og neyslu erlendra gesta

Cristi Frent og Edward Huijbens skrifar

Í nýjum Vegvísi í ferðaþjónustu er áhersla lögð á áreiðanleg gögn og það að "markmið í ferðaþjónustu byggi á áreiðanlegum mælingum á núverandi stöðu“. Slík gögn eru m.a. svokallaðir ferðaþjónustureikningar, sem höfundar Vegvísisins vilja að gefnir verði út árlega.

Umbætur í Hafnarfirði

Rósa Guðbjartsdóttir og Guðlaug Kristjánsdóttir skrifar

Niðurstöður ítarlegrar greiningar á fjárhag og rekstri stofnana Hafnarfjarðarbæjar liggja nú fyrir.

Sparnaðartillaga

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar

Ísland er í sögulegu samhengi kristið land, við syngjum til Guðs í þjóðsöng okkar, á þjóðfánanum er krossmark og hér tökum við okkur lögbundið frí frá vinnu á kristnum hátíðum.

Ánægðir viðskiptavinir með lágmarkstilkostnaði

Guðný Benediktsdóttir skrifar

Straumlínustjórnun eða „Lean“ er aðferð sem beitt er við stjórnun fyrirtækja þar sem áherslan er á að hámarka ánægju viðskiptavina með lágmarks tilkostnaði og sóun.

Yfirborðslegt spjall

María Elísabet Bragadóttir skrifar

Skiljanlega er ekki til íslenskt orð yfir "small talk“. Það er ekki þáttur í menningunni. Fólk ræðir veðrið en aldrei af léttúð. Enda oft spurning um líf og dauða hvort maður fer fótgangandi í vinnuna. Þegar tvær manneskjur ræða um veðrið sameinast auðmjúkar sálir í vanmætti sínum gagnvart ósigrandi náttúruöflum.

Börn og íslenskt táknmál

Heiðdís Dögg Eiríksdóttir skrifar

Fjölskyldur heyrnarlausra barna hafa neyðst til að flytja frá Íslandi þar sem börnin þeirra fá ekki nauðsynlega þjónustu eins og námsefni á íslensku táknmáli. Þetta eru sorglegar fréttir og er mikil eftirsjá að fjölskyldunum.

Hvika hvergi

Lýður Árnason skrifar

Öflugt bréf málsmetandi manna og kvenna birtist nýverið í Fréttablaðinu. Í því er þrýst á tafarlausa uppbyggingu Landspítala við Hringbraut. Þessi ósk hefur bulið á þjóðinni umliðin ár en ekkert gerist.

Úps, gerði það aftur

Bolli Héðinsson skrifar

Landsbankinn seldi frá sér eign til útvalinna vildarvina, eignarhlut sinn í Borgun. Arion banki seldi frá sér eign sína í Símanum til útvalinna vildarvina áður en pöpullinn og lífeyrissjóðirnir fengu tækifæri til að kaupa. Fjármálaráðherrann og flokksbræður hans hrópa nú hver um annan þveran í heilagri vandlætingu.

Umræða á villigötum

Grétar Jónasson skrifar

Að undanförnu hefur mikilli umræðu verið hrundið af stað í fjölmiðlum um störf aðstoðarfólks (sölumanna) á fasteignasölum. Umræðan hefur einnig ratað inn á Alþingi.

Vaðla­heiðar­vega­vinnu­á­hætta

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar

Ríkisendurskoðun gaf ríkisábyrgð á Vaðlaheiðargöngum falleinkunn í nýrri skýrslu í síðustu viku. Alþingi vék ákvæðum laga um ríkisábyrgð til hliðar árið 2012 til að fjármagna gangagerðina og 8,7 milljarða króna lán veitt fyrir framkvæmdinni.

Neyslubrjálæðið

Birgir Örn Guðjónsson skrifar

Mig langar líka til að biðja ykkur um annað. Það er að láta jólasveininn ekki vera á glænýjum og eldrauðum 38 tommu upphækkuðum Landkrúser sem gefur börnum fáránlega dýrar gjafir í skóinn.

Samtal við eigendur RÚV

Magnús Geir Þórðarson skrifar

Stjórnendur og starfsfólk RÚV er nýkomið úr hringferð um landið, þar sem við héldum afar vel sótta fundi í Borgarnesi, Reykjavík, á Egilsstöðum, Ísafirði, Selfossi og Akureyri. Ferðin var farin vegna áherslu okkar á að opna samtalið við almenning um starfsemi RÚV og hlutverk.

Norðurlandaráðsþing hefst í dag

Höskuldur Þórhallsson skrifar

Það er gaman að fá að vera gestgjafi nú þegar þingmenn og ráðherrar Norðurlanda streyma til landsins á árlegan þingfund Norðurlandaráðs sem hefst í Reykjavík í dag. Þing Norðurlandaráðs er haldið til skiptis í aðildarlöndunum fimm og er eins konar uppskeruhátíð norræns samstarfs.

Fordómar, fátækt og fjárlög

Þorbera Fjölnisdóttir og Sigríður Hanna Ingólfsdóttir skrifar

Á hverjum degi lendir fólk í áföllum (s.s. heilablóðfalli eða slysi) sem valda því að fólk verður að reiða sig á hið opinbera með framfærslu. Það geta því allir komist í þá stöðu að þurfa að sækja um örorkulífeyri. Þegar við missum starfsgetuna vegna afleiðinga sjúkdóma eða slysa, viljum við hafa öryggisnet sem grípur okkur.

Það er barnaskapur að segja, að það sé enginn Guð

Þórir Stephensen skrifar

Brian Cox er enskur prófessor í eðlisfræði, lék áður í rokkhljómsveit og er nú maðurinn, sem margir vilja að taki við kyndlinum af sir David Attenborough. Hann er fæddur 1968 og starfar við Manchester University, er víðþekktur vísindamaður og virkur við að kynna rannsóknir sínar á uppruna og eðli alheimsins í vinsælum sjónvarpsþáttum.

Sjá næstu 50 greinar