Fleiri fréttir

Starfstilboð frá einræðisherra

Sif Sigmarsdóttir skrifar

Sama dag og heiminum birtust myndir af blóði drifnu líki fallins einræðisherra Líbíu barst mér starfstilboð úr herbúðum annars ónefnds einræðisherra. Við leigupennar erum vanir verkefnum af hinum ýmsu stærðum og gerðum. En hvort sem verklýsingin kveður á um fágað auglýsingaslagorð fyrir hægðalyf eða innblásinn bæklingatexta fyrir bókhaldsfyrirtæki eiga þessi verkefni ávallt eitt sameiginlegt:

Nýjung á Alþingi í dag - Útbýting þingskjala á vefnum

Ásta R. Jóhannesdóttir skrifar

Í kjölfar nýrra þingskapa verða margar nýjungar í störfum Alþingis á þessum vetri. Í dag, föstudag, verður í fyrsta sinn útbýtt þingskjölum á vef þingsins á milli þingfunda. Þetta var samþykkt með breytingum á þingsköpum í júní. Telst útbýting þingskjala á vef þingsins jafngilda útbýtingu á þingfundi. Hingað til hefur skjölum aðeins verið útbýtt á þingfundi. Breytingarnar munu hafa í för með sér mikla vinnuhagræðingu.

Það geta ekki allir lesið þetta

Sú staðreynd að 23% drengja og 9% stúlkna geti ekki lesið sér til gagns 15 ára sýnir svo ekki verður um villst að aðgerða er þörf í lestrarkennslu á Íslandi. Sá sem getur ekki lesið sér til gagns stendur illa að vígi í langflestum námsgreinum.

Jafnvægi í náttúruvernd

Elvar Árni Lund skrifar

Ari Trausti Guðmundsson skrifar áhugaverða grein í Fréttablaðið 12. október sl. um meðferð dýra á Íslandi, Við og dýrin. Flest af því sem Ari segir þar tek ég heilshugar undir, sér í lagi hvað varðar meðferð og flutning sláturdýra á Íslandi en víst er að líf margra dýra áður en þeim er slátrað til kjötvinnslu er bágborið samanborið við líf villtra dýra og fugla. Lög á Íslandi um dýravernd eru samt að flestra mati góð, en eins og oft vill verða, þá er það eftirfylgnin sem ekki er í lagi og er fjárskorti kennt um.

Bældar minningar á brauðfótum?

Í bókinni „Ekki líta undan“ þar sem Elín Hirst segir sögu Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur Skúlasonar biskups er minnst á sjálfshjálparbók fyrir þolendur kynferðisofbeldis, sem út kom í Bandaríkjunum fyrir nær aldarfjórðungi. Sú heitir „The Courage to Heal“ og hefur verið æði umdeild, svo ekki sé meira sagt. Guðrún Ebba talar um þessa bók í minningum sínum og segir hana hafa verið sér sem uppljómun og eins og skrifaða fyrir sig. Jafnframt lýsir hún því hvernig bókin gaf henni aukna trú á sjálfa sig og kveðst hafa lesið suma kaflana aftur og aftur. (bls. 175)

Allir vinna (sumir meira en aðrir)

Ágúst Karl Guðmundsson skrifar

Átakið "Allir vinna“ hefur sjálfsagt ekki farið framhjá neinum. Um er að ræða sameiginlegt hvatningarátak stjórnvalda, aðila vinnumarkaðarins og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Til þingmanna Samfylkingar

Einn fræknasti útrásarvíkingur Íslands keypti þyrlu, glæsivillu og Elton John í eigin persónu árið 2007. Ég keypti mér sparneytinn fjölskyldubíl, raðhús og geisladisk með Gunna Þórðar.

Eygló og óvinurinn

Ingimundur Gíslason skrifar

Fimmtudaginn 20. október sl. birtist grein eftir Eygló Harðardóttur alþingismann undir heitinu „Plan B á verðtrygginguna“. Greinin ber ríkan keim af þeirri óljósu og þokukenndu notkun á orðum og hugtökum sem tröllríður allri umræðu á Íslandi. Eygló er tíðrætt um skuldara og fjármagnseigendur og rekur svo endahnútinn með áskorun að við (væntanlega við Íslendingar) hættum að koðna frammi fyrir óvininum.

Stjórnsýsluafrek

Staðan sem búið er að koma Bankasýslunni í er ekta íslenzkt stjórnsýsluafrek. Stofnunin hefur enga stjórn, engan forstjóra (nema þennan sem sagði upp í sumar og er á förum), nýtur einskis trúverðugleika lengur og virðist ekki í stakk búin að sinna sínum lögbundnu verkefnum.

Þak á verðtrygginguna?

Agnar Tómas Möller skrifar

Umræðan um leiðir til að afnema eða draga úr verðtryggingu á Íslandi hefur á köflum tekið á sig nokkuð ævintýralegan blæ og hefur slík snúist um að setja þak á verðtryggingu lána, t.d. miðað við fasta árlega verðbólgu.

Spurning um pólitískan vilja

ÓLafur Þ. Stephensen skrifar

Við þekkjum orðið vel talið um að allt sé að fara til andskotans á evrusvæðinu, evran muni líða undir lok og allt það. Sumir tala eins og þeir hlakki beinlínis til. Það getur verið gagnlegt að bregða upp samanburði við önnur öflug gjaldmiðilssvæði. Það gerði Tristan Garel-Jones, fyrrverandi Evrópumálaráðherra í ríkisstjórn Íhaldsflokksins í Bretlandi, í grein í Financial Times í fyrradag.

Sjóleiðis skal það vera

Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar

Nokkur ár eru síðan strandflutningar voru lagðir af á Íslandi og vöruflutningar landshluta á milli fara nú landleiðina með bíl. Tröllvaxnir vöruflutningabílar æða því um þjóðvegina og mylja undan sér malbikið, stundum með tengivagn í eftirdragi, svo það er eins og að mæta járnbrautarlest þegar þeir koma brunandi á móti manni.

Tækifæri í tækni- og hugverkaiðnaði

Jón Ágúst Þorsteinsson og Katrín Dóra Þorsteinsdóttir skrifar

Þjóðir sem ætla sér að verja velferðarsamfélagið hafa áttað sig á því að aflvélin í samfélagi framtíðarinnar verður tækni- og hugverkaiðnaðurinn sem drifinn er áfram af iðn-, tækni- og raungreinamenntuðu fólki. Þessi iðnaður byggir mestmegnis á hugviti og minna á þverrandi náttúruauðlindum og er því í eðli sínu bæði sjálfbær og umhverfisvænn.

Vaknið nátttröll

Alkunna er að hér á Suðurnesjum er atvinnuleysi alvarlegast á landinu. Þversögnin er hins vegar sú að stærsta og raunhæfasta lausnin á atvinnuleysinu er rétt innan seilingar og hefur verið tilbúin undanfarin ár. Það sem á skortir er fyrst og fremst pólitískur vilji ríkisstjórnarinnar til að standa við fjárfestingarsamning um álver í Helguvík og þar með vilji fjármálaráðherra til að létta sérhönnuðum pólitískum fjötrum af Landsvirkjun.

Hvernig eflum við græna hagkerfið

Skúli Helgason skrifar

Ísland getur orðið grænt hagkerfi með áherslu á hreina náttúru, sjálfbæran orkubúskap, nýsköpun og menntun til sjálfbærni. Það er framtíðarsýn nefndar Alþingis um eflingu græna hagkerfisins. Í þessari grein fjalla ég um nokkrar stefnuáherslur nefndarinnar og hvernig þær birtast í einstökum aðgerðum.

Kerfið er ekki að virka

Velferðarkerfið er hornsteinn samfélagsins sem hefur gert öllum kleift, óháð efnahag og aðstæðum, að njóta sama réttar til þjónustu. Verulega er vegið að velferðarkerfinu í því fjárlagafrumvarpi sem ríkisstjórn Íslands hefur nú lagt fyrir Alþingi og lýsir BSRB þungum áhyggjum yfir því.

Vinnuvernd og ábyrgð atvinnurekenda

Ísland hefur tekið virkan þátt í evrópskri vinnuverndarviku sem Evrópusambandið hefur staðið fyrir árlega frá árinu 2000. Viðfangsefni vinnuverndarvikunnar í ár snýst um viðhald og viðgerðir véla og tækja og öryggi þeirra sem sinna viðhaldsvinnu, oft við erfiðar aðstæður og undir miklu álagi.

Réttur barna til vímulauss lífs

Guðni Björnsson skrifar

Vika 43, vímuvarnavikan, verður 23.–30. október í ár en þetta er áttunda árið sem þessi vika er tileinkuð vímuvörnum. Vika 43 er vettvangur félagasamtaka sem hafa forvarnir að markmiði starfs síns eða vilja leggja vímuvörnum lið, til þess að vekja athygli á forvarnastarfi og áfengis- og vímuefnamálum; varpa ljósi á viðfangsefni forvarna og kynna sérstaklega starf sem unnið er á vettvangi félagasamtaka; vekja athygli landsmanna á mikilvægi forvarna, einkum forvörnum gagnvart börnum og unglingum og; virkja þekkingu, styrk og samstöðu grasrótarsamstarfs til eflingar forvarnastarfs.

Eitthvað annað getur ráðið úrslitum

Magnús Halldórsson skrifar

Um átján mánuðir eru í næstu þingkosningar. Samkvæmt nýjustu könnunum á viðhorfi fólks til stjórnmála er spennandi staða uppi, held ég að mér sé óhætt að segja.

Töfrar í tónlistarhúsi

Kjartan Ólafsson skrifar

Hátíðin Norrænir músíkdagar var stofnsett árið 1888 og er því er ein elsta tónlistarhátíð heims á sínu sviði. Hátíðin var að þessu sinni haldin í einu nýjasta tónlistarhúsi Evrópu – Hörpunni í Reykjavík – en skipuleggjandi var Tónskáldafélag Íslands.

Burt með réttindi borgaranna

Tillaga liggur nú fyrir Alþingi um að veita lögreglunni heimildir til að fylgjast með fólki, án þess að nokkur rökstuðningur liggi fyrir um hvort það hefur framið glæp eða ekki. Slíkt athæfi hefur verið klætt í fagmannlegt og ógagnsætt hugtak undir heitinu forvirkar rannsóknarheimildir, en hið ágæta orð njósnir nær því betur.

Óviss vorkoma

Ólafur Þ. Stephensen skrifar

Víg Muammars Gaddafí, fyrrverandi leiðtoga Líbíu, í síðustu viku batt enda á fjörutíu og tveggja ára blóðuga harðstjórn í landinu. Að því leyti markar það kaflaskil og hefur orðið mörgum tilefni til að fagna.

Erfðabreytt matvæli og kanadísku mæðurnar

Í grein sem Fbl. birti 7. okt. sl. lagði ég áherslu á nauðsyn þess að merkja erfðabreytt matvæli. Ég vísaði í kanadíska rannsókn sem enn eina vísbendingu um að erfðabreytt matvæli kunni að valda fólki heilsutjóni. Þann 20. okt. svarar Jón Hallsson dósent grein minni, reynir að varpa rýrð á kanadísku rannsóknina og umfjöllun mína um hana, og sakar mig um „hræðsluáróður“. Jafnan má deila um orðalag í túlkun rannsókna en mig undrar að kjarni rannsóknarinnar skuli reynast háskólakennara svo léttvægur sem grein hans ber vott um.

Vistvænni byggð!

Sigríður Björk Jónsdóttir skrifar

Undanfarin ár hefur skilningur á mikilvægi þess að lágmarka skaðleg áhrif á umhverfi okkar aukist til muna. Ástæður þess eru meðal annars áhrif alþjóðlegra samninga, viðmiða og reglugerða á markaðsumhverfið ásamt öflugu rannsóknarstarfi á vegum menntastofnana og ýmissa opinberra aðila á heimsvísu. Þessar áherslur endurspeglast nú í almennum stefnumiðum íslenskra stjórnvalda eins og nýjum mannvirkja- og skipulagslögum. Fyrirtæki á markaði hafa einnig áttað sig á mikilvægi þess að þau marki sér umhverfisstefnu sem samræmist alþjóðlegum viðmiðum.

Ryðjum hindrunum úr vegi

Vilhjálmur Egilsson skrifar

Skortur á fjárfestingum, lítill hagvöxtur og viðvarandi atvinnuleysi eru stóru atriðin sem vantar í glæsimyndina sem stjórnvöld draga upp af árangri sínum af samstarfinu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Ef ekki verður brugðist snarlega við er hætta á að Ísland búi við kreppu út áratuginn.

Vaðlaheiðargöng og forgangsröðun framkvæmda

Þóroddur Bjarnason skrifar

Á undanförnum áratugum hefur margt áunnist í samgöngumálum þjóðarinnar. Bundið slitlag hefur verið lagt á nánast allan hringveginn og flestum erfiðustu umferðarhindrunum á þeirri leið verið rutt úr vegi. Helstu umferðaræðar innan borgarmarkanna hafa verið tvöfaldaðar eða jafnvel þrefaldaðar og tengingar milli þeirra víða auðveldaðar með mislægum gatnamótum.

Af sögufölsunarfélaginu

Mottó "...að verma sitt hræ við annarra eld og eigna sér bráð sem af hinum var felld var grikkur að raumanna geði“. (E. Ben. Fróðárhirðin)

Að loknu Umhverfisþingi

Svandís Svavarsdóttir skrifar

Við þekkjum öll, að dagarnir geta verið misjafnir. Stundum erum við sérstaklega heppin og höfum ríka ástæðu til að fagna góðu dagsverki. Nýlega átti ég slíkan dag, ásamt ríflega 300 öðrum náttúruverndarsinnum, þegar Umhverfisþing var haldið í sjöunda sinn.

Lestur

Nýlega kom út skýrsla þar sem fram kom að fjórðungur fimmtán ára drengja gæti ekki lesið sér til gagns. Jafnframt kom fram að þeim liði ekki tiltakanlega illa. Það er vísast vegna þess að hvers kyns tækni er víða aðgengileg, ekki síst í tölvum, sem gerir þeim kleift að nálgast þekkingu og styttir þeim leið í námsverkefnum. Hitt er furðulegra, að þessar upplýsingar komi fram svona seint.

Opið bréf til ráðherra

Guðlaug Kristjánsdóttir skrifar

Undanfarnar vikur og mánuði hef ég fyrir hönd Bandalags háskólamanna (BHM) ítrekað reynt að ná fundi ykkar vegna málefnis sem brennur á félagsmönnum BHM. Um er að ræða rétt þess hluta launafólks sem var í fæðingarorlofi mánuðina mars og/eða apríl á þessu ári og hefur ekki fengið greidda samningsbundna eingreiðslu upp á fimmtíu þúsund krónur.

Ójafn leikur

Ólafur Þ. Stephensen skrifar

Bankinn telur sig nú hafa náð tökum á rekstrinum og ætlunin er að selja félagið í byrjun næsta árs, samkvæmt svörum sem Fréttablaðið fékk hjá Arion banka.

Prestvígðar konur gegn ofbeldi

Guðrún Karlsdóttir skrifar

Í tilefni af kvennafrídeginum 24. október 2011 munu prestvígðar konur í þjóðkirkjunni standa fyrir kvennamessu gegn ofbeldi. Í fyrra var kvennamessa af sama tilefni og var þá ákveðið að reyna að gera þetta að árlegum viðburði.

Jafnrétti er lífsgæði

Jóhanna Sigurðardóttir skrifar

Kynbundið ofbeldi og launamunur kynjanna eru þau svið jafnréttismála þar sem hvað mest er að vinna. Vissulega hefur grettistaki verið lyft. Með lögum hafa nektardansstaðir verið bannaðir, vændiskaup gerð refsiverð og úrræðum lögreglu til að fjarlægja ofbeldismenn af heimilum komið á fót. Ísland var eitt 11 ríkja sem í upphafi árs undirrituðu nýjan samning Evrópuráðsins gegn kynbundnu ofbeldi. Aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi er í smíðum. Meirihluti aðgerða í áætlun gegn mansali hefur komið til framkvæmda.

Vændismenn

Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Vændi er mjög sérstök tegund af mannlegu samneyti. Þá greiðir ein manneskja annarri manneskju peninga fyrir einhvers konar atlot og aðgang að líkama þeirrar sem greiðsluna fær, og fer eðli atlotanna og aðgangsins eftir því hversu há greiðslan er.

Kennileiti hagsýna fólksins

Gerður Kristný skrifar

Reglulega berst sá kvittur um landið að sænska verslanakeðjan Hennes og Mauritz hyggist opna útibú á Íslandi. Þráin eftir þessari verslun er býsna sterk því enn hefur ekki reynst flugufótur fyrir sögunni. Íslendingar eiga sér þó þann draum að geta keypt sér ódýr og sæmilega smekkleg föt þótt ekki væri nema á börnin sín, en barnafatadeild Hennes og Mauritz hefur reynst þjóðinni sérstaklega vel. Þegar dró úr utanlandsferðum Íslendinga eftir hrun voru nokkrir landar okkar erlendis snöggir að sjá sér leik á borði og tóku að bjóða upp á innkaup í Hennes og Mauritz gegn greiðslu.

Meira en að metta börn

Steinunn Stefánsdóttir skrifar

Uppeldi barna er verkefni sem nær til allra þátta daglegs lífs. Meðal þess sem þarf að kenna börnum er að næra sig sér til gagns. Þegar farið var að bjóða upp á mat í grunnskólum í stað þess að börnin kæmu með nesti með sér að heiman steig skólinn inn á þetta svið uppeldisins. Næring barna, sem áður var alfarið á ábyrgð heimilisins, er nú að hluta á ábyrgð skóla og þar með menntayfirvalda.

Meira um nýjan Landspítala

Eygló Ingadóttir skrifar

Um fátt er eins mikið rætt um þessar mundir og nýbyggingu Landspítalans sem áætlað er að rísi við Hringbraut á næstu misserum og sýnist sitt hverjum. Hæst heyrist í efasemdaröddum; að við þurfum ekki meiri steypu, að flest heilbrigðisstarfsfólk sé farið til útlanda og að staðarvalið sé afleitt.

Alvarlegir geðsjúkdómar: Eru þeir læknanlegir?

Margrét Eiríksdóttir skrifar

Sennilega hefur enginn sjúkdómaflokkur verið eins tengdur vanþekkingu og fordómum og alvarlegir geðsjúkdómar. Læknisfræðilegar skilgreiningar á alvarlegum geðsjúkdómi fela í sér að sá sjúki hafi einkenni geðrofs (psykosis) og þarfnist meðferðar þeirra vegna í 2 ár eða lengur. Enn fremur að sjúklingurinn þjáist vegna sjúkdómseinkenna sinna eða hafi skerta færni til náms, starfs eða samskipta þeirra vegna. Langflestir sem leita aðstoðar heilbrigðisstarfsmanna vegna slíkra veikinda fá sjúkdómsgreiningar um

Grettistaki lyft í jöfnun skattbyrða

Össur Skarphéðinsson skrifar

Við myndun núverandi ríkisstjórnar var það eitt af yfirlýstum markmiðum að breyta þeirri ranglátu ójafnaðarstefnu sem einkenndi skattkerfið eftir tólf ára ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Strax á fyrstu mánuðum var unnið að því að innleiða nýja skattastefnu sem byggðist á sjónarmiðum jöfnuðar. Sú stefna er hófleg að því leyti að hún stillir Íslandi rétt um miðbik OECD-ríkjanna, og hefur að auki verið blessuð í bak og fyrir af AGS sem sjálfbær skattastefna.

Þreyttir jafnaðarmenn

Guðmundur Örn Jónsson skrifar

Fyrir nokkrum misserum gerðist sá merki atburður að einkafyrirtæki fór að keppa við ríkisstyrktan landbúnaðinn og bjóða upp á mjólkurvörur. Þrátt fyrir að ríkisstyrkir til mjólkurframleiðslu séu líklegast hvergi hærri en hérlendis, virtist Mjólku ganga ágætlega í samkeppninni. Hrun ríkisstyrkts landbúnaðar var því í vændum þar sem engin ástæða var lengur fyrir styrkjunum. Hægt var að framleiða án þeirra.

Launajafnrétti kynjanna – barátta í hálfa öld

Guðbjartur Hannesson skrifar

Barátta fyrir launajafnrétti kynjanna á sér langa sögu, oft þyrnum stráða. Ég fer þó ekki lengra aftur í tímann en hálfa öld, til að rifja upp þegar Alþingi samþykkti árið 1961 lög um launajöfnuð kvenna og karla. Laun kvenna skyldu hækka í áföngum til jafns við laun karla fyrir sömu störf í almennri verkakvennavinnu, verksmiðjuvinnu og verslunar- og skrifstofuvinnu, fyrst með hækkun um 1/6 hluta launamismunarins og síðan árlega þar til fullum launajöfnuði væri náð árið 1967.

Sjá næstu 50 greinar