Fleiri fréttir

Það þarf að sjúga og sleikja

Sigga Dögg skrifar

Samfarir á efri árum geta verið erfiðleikum bundnar, það að vera fullur vilja en ris á typpinu ekki til staðar, jafnvel þótt konan hafi áhuga og sleipiefni til staðar. Á hinn veginn, konan ekki til þegar karlinn er með typpið í þolanlegu lagi. Hvað getur þú ráðlagt okkur í þessum efnum?

Komum hugmyndum í framkvæmd

Kristján Freyr Kristjánsson og Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir skrifar

Til þess að koma viðskiptahugmynd í framkvæmd þarf margt að koma til. Augljóslega þarf hugmyndin að vera góð, en ekki síður þarf frumkvöðullinn að finna sér gott fólk til vinna með, hann þarf að finna fjármagn, fá rágjöf og komast yfir margvíslegar hindranir sem verða á leið allra þeirra sem vilja stofna ný fyrirtæki.

Ákall til menntamálayfirvalda

Svanborg R. Jónsdóttir skrifar

Nú stendur yfir endurskoðun aðalnámskráa grunnskóla með nýrri stefnu menntamálayfirvalda sem felur í sér kjarna sem settur er saman úr sex grunnþáttum: læsi, sjálfbærni, lýðræði, jafnrétti, heilbrigði og velferð og sköpun. Meginmarkmið nýrrar stefnu eru m.a. að undirbúa nemendur til að verða gagnrýnir, virkir og hæfir þátttakendur í jafnréttis- og lýðræðissamfélagi, með áherslu á getu og hugarfar sjálfbærni sem meðal annars felur í sér gagnrýna hugsun og lýðræði og skapandi færni. Þessi nýja stefna krefst nýs hugsunarháttar og skipulags af kennurum og skólastjórum en algengast er og fellur vel að hugsunarhætti og verklagi nýsköpunar- og frumkvöðlamenntar.

Er uppgjöf í störfum Jafnréttisráðs?

Eitt af megin verkefnum Jafnréttisráðs er að jafna stöðu kynjanna á vinnumarkaði og samþætta atvinnu- og fjölskyldulíf. Allt frá 1992 hefur ráðið staðið að því að veita árlega sérstaka viðurkenningu fyrirtækjum, stofnunum, sveitarfélögum, félagasamtökum eða einstaklingum sem lagt hafa sitt af mörkum til að jafna stöðu kynjanna.

Ísland, ESB og LÍÚ

Inga Sigrún Atladóttir skrifar

Nú standa yfir viðræður Íslands við Evrópusambandið. Í þeim viðræðum er afar mikilvægt hagstæðir samningar náist um sjávarútvegsmál. Ísland hefur mikla sérstöðu meðal ESB ríkja í sjávarútvegsmálum og það væri ósanngjarnt og óeðlilegt að öðrum aðildarríkjum yrði veitt hlutdeild í veiðum innan okkar fiskveiðilögsögu. Miðin við Ísland eiga að vera skilyrðislaus þjóðareign og rétturinn til nýtingar á að vera íslensku þjóðarinnar.

Skuldafangelsi Íslandsbanka

Kristinn H. Gunnarsson skrifar

Viðskiptabankarnir beita öllu afli sínu og verja óbreytt kvótakerfi. Þeir hæla kerfinu á hvert reipi og Íslandsbanki lofar það í hástert. Bankastjórinn segir áróðursstríð vera í gangi og nú verði allir velunnarar þeirra sem eiga ótímabundinn einkarétt á hagnaðinum að verjast áformum stjórnvalda. Það er um mikla peninga að tefla, arðurinn er talinn verða 35-45 milljarðar króna á hverju ári.

Er vændi auglýst í Fréttablaðinu?

Hildur Sverrisdóttir skrifar

Yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar sagði í fréttum RÚV 28. september sl. að enginn vafi léki á því að vændi sé auglýst í smáauglýsingum Fréttablaðsins undir yfirskini nuddauglýsinga. Hann sagði jafnframt að í rannsókn væri hvort þarna væri um milligöngu vændis að ræða, og staðfesti síðar í viðtali að þar hefði hann átt við milligöngu Fréttablaðsins. Gera verður athugasemdir við þessi vinnubrögð af hálfu lögreglu, þar sem þessi ummæli mætti túlka sem ásakanir um refsiverð brot, þótt þær séu í þessu tilviki ekki vel rökstuddar. Í ljósi þessara ummæla er ástæða til að skýra stöðuna eins og hún snýr að útgáfufélagi Fréttablaðsins, 365 miðlum.

Að vera eða vera ekki

Þröstur Ólafsson skrifar

Góður kunningi minn lagði fyrir mig eftirfarandi spurningu, Hvort er óþjóðlegra að Nupo fái aðgang að Grímsstöðum á Fjöllum eða að erlendir vogunarsjóðir fái í hendur aðfararheimild að íslenskum fjölskyldum ? Fáránleg spurning og byrjaði að brosa út í annað, en eftir að hann hafði útskýrt fyrir mér stöðu margra íslenskra fjölskyldna, eftir að umsaminn afsláttur af lánum til nýju bankanna skilaði sér ekki til lántakanda, og tveir bankar komnir í eigu útlendinga, skildi ég alvöru fáránleikans. Hann bætti við:

Betra fiskveiðistjórnunarkerfi til framtíðar

Lilja Rafney Magnúsdóttir og Ólína Þorvarðardóttir skrifar

Sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd Alþingis hefur verið með í umsagnarferli frumvarp til laga um stjórn fiskveiða sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra mælti fyrir á Alþingi sl. vor.

Farðu heim, krakki

Pawel Bartoszek skrifar

Brottvísun kanadíska námsmannsins Jordan Chark er skömm fyrir íslensk stjórnvöld. Lýsing talsmanna Útlendingastofnunar á gildandi lögum er villandi og lögin sjálf löggjafanum og ráðamönnum til lítils sóma.

Skjaldborg um verðtrygginguna

Ásmundur Einar Daðason skrifar

Eitt þeirra mála sem Alþingi afgreiddi nú í september var frumvarp sem gerir Íbúðalánasjóði kleift að bjóða upp á óverðtryggð útlán og jafnframt að veita sjóðnum heimild til að slík útlán beri breytilega vexti. Mikil samstaða var á þingi um þetta mál. Hins vegar er mikilvægt að fram komi að hér er aðeins um mjög lítið skref að ræða og ekki er tekið á því vandamáli sem verðtryggingin hefur þegar valdið heimilum og fyrirtækjum.

Undirstaða velferðarinnar

Ólafur Þ. Stephensen skrifar

Óánægja lögreglumanna með kjör sín er vel skiljanleg. Þeir hafa bent á að þeir hafi dregizt aftur úr þeim viðmiðunarhópum, sem voru skilgreindir þegar lögreglumenn voru sviptir verkfallsrétti. Niðurstöðu gerðardóms telja þeir ekki taka mið af þessu kjaramisgengi. Láti vinnuveitandi þeirra, ríkið, kjaradeilur ævinlega ganga til gerðardóms eins og nú séu lögreglumenn fastir í láglaunagildru.

Upphafið skyldi einnig skoða

Þorvaldur Gylfason skrifar

Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur flutti fróðlegt erindi á aðalfundi Stjórnarskrárfélagsins í vor leið, „Tjaldað til einnar nætur á Þingvöllum 17. júní 1944“ (sjá stjornarskrarfelagið.is). Þar spurði hann: Hvers vegna hófst endurskoðun stjórnarskrárinnar jafnvel áður en hún gekk í gildi í slagviðrinu á Þingvöllum 17. júní 1944? Gefum Guðna orðið og stiklum á stóru.

Strangari agi og stærri sjóðir

Ólafur Þ. Stephensen skrifar

Þegar aðildarríki Evrópusambandsins ráku smiðshöggið á Efnahags- og myntbandalag Evrópu um aldamótin urðu ýmsir til að gagnrýna að þrátt fyrir að myntbandalagið væri í höfn með upptöku evrunnar vantaði mikið upp á efnahagsbandalagið. Ekki væru til neinir sjóðir til að aðstoða aðildarríki sem lentu í efnahagsvanda og engin raunveruleg sameiginleg efnahags- og ríkisfjármálastefna. Reglurnar sem áttu að tryggja að aðildarríkin héldu sig innan skilyrða Maastricht-sáttmálans um fjárlagahalla og skuldasöfnun ríkissjóðs væru sömuleiðis of veikar.

Setning Alþingis fari fram í kyrrþey

Kristján Guðlaugsson skrifar

Nú er svo komið að eitt elsta starfandi þing mannkynssögunnar þorir ekki að ganga þá 50 metra sem eru frá dyrum Dómkirkjunnar í Reykjavík að Alþingishúsi Íslendinga. Að sögn Helga Bernódussonar, skrifstofustjóra Alþingis, hefur verið ákveðið að færa þingsetningu frá hefðbundnum tíma, eða klukkan 13.30, til klukkan tíu á laugardagsmorgni. Þetta er gert, að sögn skrifstofustjórans, í þeim tilgangi „að gefa þingmönnum og starfsmönnum færi á að komast fyrr inn í helgina“.

Af hverju reykleysismeðferð?

Ingibjörg Katrín Stefánsdóttir skrifar

Tóbaksreykingar eru meðal stærstu heilbrigðisvandamála samtímans. Helmingur þeirra sem reykja mun deyja úr sjúkdómum sem rekja má til reykinga og þar af helmingurinn á miðjum aldri. Auk þessa munu margir þessara einstaklinga búa við skert lífsgæði verulegan hluta ævinnar. Fyrir hverja tvo sem tekst að aðstoða við að hætta að reykja er komið í veg fyrir að einn deyi fyrir aldur fram.

„Skynsami“ Guðni

Guðni Ágústsson, fyrrum ráðherra í ríkisstjórn Íslands, skrifaði grein í Fréttablaðið þann 17. september sl. Þar talar Guðni um Evrópusambandið og vill ýmist telja lesendum trú um að fyrirbærið sé fyrirtæki, stjórnmálaflokkur eða ríki. Þar kemur hann einnig fram sem talsmaður félagsskapar sem kennir sig við hugtakið skynsemi. Í ljósi þess velti ég því fyrir mér hvar skynsemi í jafn ruglingslegum og kolröngum tilfinningaskrifum ráðherrans fyrrverandi liggi. Ég ber fulla virðingu fyrir skoðun Guðna en verð að setja spurningamerki við rangar upplýsingar hans sem eru beinlínis afvegaleiðandi fyrir fólk sem les blaðið.

Samræmd könnunarpróf á réttardaginn – villa nútímans

Ágúst Ólason skrifar

Það er kannski verið að bera í bakkafullan lækinn að leggja orð í belg um samræmd próf. Þeim sem hér ritar er mikið niðri fyrir á þessum haustdögum þegar ungmenni grunnskólanna í 10., 7. og 4. bekk takast á við þetta viðfangsefni. Varla eru liðnar fjórar vikur frá skólasetningu sem nemendur og starfsfólk skólanna hafa notað til að koma sér fyrir, draga fram námsefni, setja sér markmið og gera áætlanir fyrir skólastarf komandi vetrar.

Skattastefna eða skammtímareddingar?

Almar Guðmundsson skrifar

Nú styttist í birtingu fjárlaga fyrir árið 2012. Tekjuhlið fjárlaga hefur tekið mjög miklum breytingum á síðustu þremur árum. Vissulega lá ljóst fyrir eftir bankahrun að ná þyrfti tökum á ríkisfjármálum og að auka þyrfti tekjuöflun ríkissjóðs samfara því. Á því tel ég að ríki nokkuð góður skilningur meðal einstaklinga og fyrirtækja.

Noregur og Ísland vinna saman á norðurslóðum

Ísland og Noregur eru sannar vinaþjóðir, norðurskautsríki með sameiginlega sögu og menningu. Löng hefð er fyrir samstarfi ríkjanna tveggja, á vettvangi norrænnar og evrópskrar samvinnu og meðal Atlantshafsríkja. Við eigum sameiginlegra hagsmuna að gæta þegar kemur að þróun mála á norðurslóðum – okkar heimaslóð. Það verður meginefnið á fundi okkar á Akureyri í dag.

Fjölmiðlar hvetja til eineltis

Það er ekki laust við að það örli á smá holhljóði í fjölmiðlum þessa dagana vegna hörmulegs sjálfsvígs ungs drengs í Sandgerði á dögunum og umræðu um einelti vegna þessa atviks.

Að velja fyrirmynd

Mánudaginn 19. september birti Fréttablaðið grein sem bar fyrirsögnina: Spara má mikið fé hjá ferðaþjónustu fatlaðra. Greinin segir frá hugmyndum Framkvæmdahóps Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um að nýta hagkvæmni stærðarinnar og sameinast í útboði á ferðaþjónustu við fatlaða.

Háskóli Íslands 100 ára (einsemd!)

Háskóli Íslands er 100 ára á þessu ári. Er látið í það skína að hann muni brátt verða meðal 100 bestu háskóla í heimi en hvernig miðar?

Hvar liggja skilin á milli sérhagsmuna og almannahagsmuna?

Heita má að í hvert sinn, sem einhver hefur mótmælt núverandi áformum um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu, stígi Ólína Þorvarðardóttir fram og segi þennan og hinn í sérhagsmunagæslu. Hversu marga þarf eiginlega til að mótmæla þessu frumvarpi þannig að það sé skilgreint sem almannahagsmunir í huga þingmannsins?

Spennið beltin kæru farþegar

Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar

Eitt hataðasta fyrirtæki landsins hefur fengið nýjan forstjóra. Það var viðtal við hann hér í blaðinu um síðustu helgi, Birgi Jónsson, forstjóra Iceland Express. Hann hafði reyndar áður verið forstjóri fyrirtækisins um tíma fyrir nokkrum árum og í viðtalinu viðurkenndi hann að skammast sín fyrir forstjóratitilinn í ferilskránni.

Atvinnupólitík Samtaka atvinnulífsins

Vilmundur Jósefsson skrifar

Í Fréttablaðinu í gær sakar Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra mig um að hafa farið með ósannindi á fundi SA um atvinnumál í Hörpu á mánudaginn.

Af hverju ég?

Gunnar M. H. Diego skrifar

Margir spyrja sig "Af hverju ég“ oft á dag án þess að fá svör við þeirri spurningu. Fæddist ég svona ljótur og leiðinlegur eða varð ég svona allt í einu? Er ég dæmdur til að lifa við þetta alla ævi?

Í dag erum við öll Sandgerðingar

Litli drengurinn er dáinn. Eftir sitjum við hin agndofa og reynum að skilja hvernig það má vera að hann sé horfinn frá okkur og komi aldrei aftur. Við reynum að setja okkur í spor foreldranna og fjölskyldunnar sem eftir situr og það setur að okkur óhug. Það ætti enginn að þurfa að jarða börnin sín.

Samstaða um málshöfðun vegna beitingar hryðjuverkalaga

Þann 18. nóvember 2010 lögðu allir þingmenn Framsóknarflokksins (að Guðmundi Steingrímssyni undanskildum), þingmenn Hreyfingarinnar og nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins fram þingsályktunartillögu um málshöfðun á hendur breska ríkinu fyrir alþjóðlegum dómstól vegna beitingar hryðjuverkalaga gegn Íslandi.

Löggæzlan gæti vel að lögunum

Ólafur Þ. Stephensen skrifar

Ábending Ríkisendurskoðunar um innkaup löggæzlustofnana, sem birt var í gær, er grafalvarlegt mál fyrir embætti ríkislögreglustjóra og einstök lögregluembætti.

RÚV og Ríkisútvarp

Að undanförnu hafa margir tekið eftir því að núorðið er jafnan vísað til Ríkisútvarpsins með skammstöfuninni RÚV í kynningu á efni í miðlum félagsins, á vefsíðu þess og víðar. Þetta ræða menn og telja sumir að verið sé að útrýma hugtakinu Ríkisútvarp. Það er mikill misskilningur enda sjá og heyra glöggir notendur miðla RÚV að ekki er öllu dagskrárgerðarfólki þetta nýmæli tamt og það notar þá að sjálfsögðu það hugtak sem því fellur betur. Vangaveltur um nafngiftina komu meðal annars fram í pistli Eiðs Guðnasonar nýlega, en hann telur útvarpsstjóra hafa staðið einan að þessari breytingu.

Konan kennd við ryðdallinn

Sif Sigmarsdóttir skrifar

Meistaraverk!“ hugsaði ég með sjálfri mér um leið og ég batt með punkti enda á fræðigrein sem ég vann að. Það skrölti í Rúmfatalagers-skrifborðsstólnum mínum er ég hallaði mér kotroskin aftur og hóf að láta mig dreyma um þá vegsemd sem biði mín í kjölfar vel unnins verks. Í höfði mér glumdi lófatak og fyrir augum mér svifu fálkaorður. Sigurvímunnar fékk ég hins vegar ekki að njóta lengi. Ég komst nefnilega að því að aðeins sjö manns lesa að meðaltali hverja birta fræðigrein. Sjö manns! Ef ég gerði ráð fyrir að pabbi og mamma væru tveir þessara einstaklinga, eiginmaðurinn einn, bræðurnir… ja, þeir myndu líklega bara bíða eftir kvikmyndaútgáfunni… þá voru fjórir eftir.

Allar hliðar máls

Algengasta meginorsök alvarlegra umferðarslysa er því miður röng mannleg breytni. Allir vegfarendur þurfa að vanda sig, hvort sem þeir eru gangandi, hjólandi eða kjósa annan fararmáta. Vegfarendur þurfa að hafa hugann við umferðina, nota öryggisbúnað s.s. spenna beltin, gæta að hraða, vera allsgáðir og óþreyttir, vanda til ástands ökutækja og vera meðvitaðir um ástand vega/gatna og umhverfi þeirra svo nokkur dæmi séu tekin. Ef varlega er farið eru minni líkur á slysum.

Viljum við enn vera í skotgröfum?

Það vakti undrun mína á Alþingi hinn 16. september að Sjálfstæðisflokkurinn greiddi atkvæði gegn því að skipuð yrði nefnd þingmanna til að vinna að þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland.

Lágmark að sitja við sama borð

Steinunn Stefánsdóttir skrifar

Þegar litið er um öxl virðist ljóst að mun farsælla hefði verið fyrir Palestínumenn að samþykkja tillögu Sameinuðu þjóðanna 1947 um skiptingu lands þeirra milli gyðinga og Palestínumanna. Hafa verður þó í huga að um var að ræða land sem þeir höfðu haft fullt forræði yfir öldum saman og búið á með gyðingum sem þó voru mikill minnihluti í landinu. Síðan eru liðin meira en sextíu ár og ástandið í Palestínu kunnara en frá þurfi að segja. Ísraelsmenn hafa hernumið þorra þess lands sem Sameinuðu þjóðirnar ætluðu Palestínumönnum og fara þar með öll völd.

Í tilefni niðurstöðu launakönnunar VR 2011

Maríanna Traustadóttir skrifar

Eitt af hlutverkum verkalýðshreyfingarinnar er að fylgja eftir markmiðum laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Það felur m.a. í sér að komið verði á og viðhaldið jafnrétti og jöfnum tækifærum kvenna og karla á öllum sviðum samfélagsins. Til þess að ná fram ofangreindum markmiðum er nauðsynlegt að efla og styrkja samstarf við alla aðila vinnumarkaðarins og önnur hagsmuna- og félagasamtök sem vinna að jafnrétti kvenna og karla.

Er verið að púsla saman nýju stjórnmálaafli?

Það hefur ekki farið fram hjá neinum að þessa dagana eru hræringar í tengslum við nýjan stjórnmálaflokk undir forystu Guðmundar Steingrímssonar. Er hér um nýja hugmynd að ræða eða er gömul hugmynd að taka á sig mynd? Það er áhugavert að standa á hliðarlínunni, horfa og hlusta. Nú er það komið upp á borð að Besti flokkurinn, eða einstaklingar innan hans, ætlar sér í landsmálin, bjóða fram í öllum kjördæmum með Guðmundi og ýmsum öðrum áhugasömum. Við heyrum Guðmund segja frá því að fólk úr ýmsum áttum hafi gefið sig fram og lýst yfir áhuga. En áhuga á hverju?

„Besta“ heilbrigðiskerfi í heimi?

Sölvi Jónsson skrifar

Árni Richard Árnason sagði í Fréttablaðinu 19. september frá ótrúlegum samskiptum sínum við lækna í Orkuhúsinu og Landlækni. Svona er mín saga:

Vald og virðing

Jónína Michaelsdóttir skrifar

Þrátt fyrir landhelgisbaráttuna höfum við lengst af verið í góðum tengslum og viðskiptum við Breta og Bandaríkjamenn. Þegar Bretar hertóku Ísland 10. maí 1940, vöknuðu sumir við framandi flugvélarhljóð í vornóttinni. Borgarstjórinn í Reykjavík, sem var fárveikur, leitaðist við að setjast upp og kallaði á dóttur sína: „Hvaða merki er á flugvélinni? Hverjir eru þetta?“ Hún stóð við gluggann og sagði eftir smástund: „Þetta eru Bretar.“ Fargi var létt af borgarstjóranum sem sagði um leið og hann hneig aftur niður á koddann: „Guði sé lof, Guði sé lof!“ Allir vissu hvers var að vænta ef þetta hefðu verið Þjóðverjar.

Sjá næstu 50 greinar