Fleiri fréttir

Mugison föndrar enn

Tónlistarmaðurinn Mugison er þekktur fyrir að fara sínar eigin leiðir við hönnun á plötuumslögum sínum. Platan Lonely Mountain kom út í 300 eintökum í pappaumslögum sem hann saumaði sjálfur í saumavél, umslag Mugiboogie braut hann sjálfur saman ásamt vinum sínum og í fyrrakvöld var enn komið að föndurstund hjá Mugison.

Löggur og bófar á gráu svæði

Vísir frumsýnir hér nýjan þátt um gerð myndarinnar Borgríki. Að þessu sinni er kafað í persónusköpun myndarinnar og helstu leikarar og handritshöfundar teknir tali.

Hrifinn af Gosling

Hjartaknúsarinn fimmtugi George Clooney er gríðarlega ánægður með kollega sinn Ryan Gosling og segir hann afar hæfileikaríkan. Gosling leikur á móti Clooney í myndinni The Ides of March, sem Clooney leikstýrir einnig.

Heldur betur heit í hlébarðakjól

Þýska fyrirsætan og Project Runway stjórnandinn, Heidi Klum, 38 ára, stillti sér upp klædd í hlébarðakjól við sundlaugarbakka í Los Angeles með nýja ilmvatnið sitt í fanginu. Ég er svo spennt yfir nýja ilmvatninu mínu, Shine. Loksins fáið þið að prófa það! skrifaði Heidi á Twitter síðuna sína. Þá má einnig sjá fyrirsætuna með eiginmanni sínum, Seal, í Disneylandi.

Steindi og Björn Bragi fara illa með Loga Bergmann

Logi Bergmann er frægur fyrir að láta ekkert slá sig út af laginu þegar hann les fréttirnar og ákváðu Björn Bragi og Steindi Jr. að leggja fyrir hann verkefni í nýjasta þætti Týndu kynslóðarinnar. Þeir skálduðu upp fréttir fyrir Loga sem hann átti að lesa á meðan þeir reyndu eftir fremsta megni að trufla hann. Útkoman var óborganleg.

Hollywood Reporter á Íslandi

„Þetta er alveg frábært og mikill heiður,“ segir Hrönn Marinósdóttir hjá Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, Riff.

Hvernig væri að stokka upp kynlífið?

Þetta snýst algjörlega um það að hafa gaman, segir Erla Björg Gunnarsdóttir í meðfylgjandi myndskeiði þar sem hún sýnir spilastokk sem hefur að geyma 52 spil sem hvetja til nýrra ævintýra í kynlífinu. Á hverju spili er að finna ansi frumlegar hugmyndir og ábendingar sem stokka upp kynlífið. Fantasíur, hlutverkaleikir, stellingar, kynlífsráð – þetta er allt í kortunum og öll spilin eru tromp sem kveikja nýjan losta.

Kátur Clooney á frumsýningu

Það eru mörg fræg nöfn á leikaralista myndarinnar The Ides of March og því mikið um dýrðir á rauða dreglinum við frumsýningu myndarinnar í Beverly Hills á dögunum. George Clooney mætti í nýpressuðum svörtum jakkafötum og einnig nýja kærasta kappans, leikkonan Stacy Keibler, en hún brosti breitt í gulllituðum kjól. Sjarmörinn Ryan Gosling, sem er í aðalhlutverki eins og Clooney, var flottur að venju í flöskugrænum jakkafötum og lakkskóm. Leikkonan unga Evan Rachel Wood mætti töffaraleg í hvítum jakkafötum og Marisa Tomei var í vínrauðum kjól með eins konar leðursvuntu. Báðar leika þær í myndinni.

Spila fyrir unglinga

Tónleikaröðin Drullumall hóf göngu sína á miðvikudagskvöld í skúr við Austurbæjarskóla. Verkefnið er ætlað fyrir unglinga í 8. til 10. bekk og eru það félagsmiðstöðvar Kamps í miðborg Reykjavíkur og Hlíðum sem hrintu því af stað í von um að efla grasrótina í íslensku tónlistarlífi.

Madonna kaupir hús á Ítalíu

Í meðfylgjandi myndaalbúmi má sjá Madonnu, 53 ára, á leiðinni á Kabbalah samkomu með sólgleraugu á nefinu og hatt á höfði...

Vesturport biðlar til Reykjavíkurborgar

Vesturport fer þess á leit í erindi sem lagt var fyrir á fundi menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar á mánudag að borgin semji við leikhópinn til þriggja ára. Samningurinn myndi hljóða upp á að borgin greiði leikhópnum 6-8 milljónir króna á ári. Í erindinu kemur jafnframt fram að Vesturport ætli að fara þess á leit við menntamálaráðuneytið að það geri slíkt hið sama. Undir erindið skrifar Gísli Örn Garðarsson.

Vill viskí, kerti og handáburð

Bandaríski grínistinn Charlie Murphy, bróðir gamanleikarans Eddie Murphy, kemur fram í Hörpu á laugardagskvöld.

Ánægð eftir skilnaðinn

Leik- og söngkonan Jennifer Lopez er komin aftur til starfa sem dómari í sjónvarpsþáttunum American Idol og að sögn samstarfsmanna hennar er ekki á henni að sjá að hún hafi verið að skilja.

Fjölgun í fjölskyldunni

Bandaríska söngkonan Jessica Simpson er sögð ganga með sitt fyrsta barn undir belti. Simpson hyggst giftast kærasta sínum, íþróttakappanum Eric Johnson, í nóvember. Nýverið hélt parið upp á afmæli Johnsons ásamt vinum en athygli vakti þegar Simpson neitaði að skála fyrir unnusta sínum í kampavíni og telja nú slúðurmiðlar að söngkonan sé ólétt.

Gillz tekur upp í sólinni

Egill Gillzenegger og leikstjórinn Hannes Halldórsson eru á leiðinni til Spánar þar sem tökur á nýrri sjónvarpsþáttaröð hefjast. Blikinn Egill ber mikla virðingu fyrir KR-ingnum Hannesi.

Er mín alltaf í símanum?

Leikkonan Katie Holmes, 32 ára, var mynduð í verslunarleiðangri og í ræktinni í New York í vikunni. Allt lítur út fyrir að hún tali endalaust í símann ef marka má myndirnar af henni. Þá eyddi leikkonan og dóttir hennar vikunni þar áður í Pittsburgh þar sem eiginmaður Katie og barnsfaðir, Tom Cruise, hefur verið upptekinn við að leika í nýrri mynd sem ber heitið One Shot. Ég er mjög venjuleg í alla staði. Ég dett um sjálfa mig, ég helli niður á mig og ég segi asnalega hluti. Ég er alls ekki með´etta, sagði Katie símamær.

Þór þrumuguð í diskóstuði

„Við settumst aðeins yfir þetta, ég og Kiddi Hjálmur [Guðmundur Kristinn Jónsson] og enduðum í einhverju diskóstuði," segir Bragi Valdimar Skúlason, sem hefur samið lagið Elding fyrir teiknimyndina Hetjur Valhallar: Þór sem verður frumsýnd um miðjan október. Myndin er dýrasta kvikmynd Íslandssögunnar og er leikstýrt af Óskari Jónassyni. Með hlutverk Þórs í myndinni fer Atli Rafn Sigurðarson en Þórhallur Sigurðsson, Laddi, talar fyrir hamarinn.

Bloom ekki bannaður

Framleiðendur kvikmyndarinnar The Good Doctor opnuðu kampavínsflösku á dögunum og slettu rækilega úr klaufunum eftir að ljóst varð að kvikmyndin yrði einungis bönnuð innan 13 ára í Bandaríkjunum.

Brynjar Már frumsýnir rosalega græju á Oliver

Brynjar Már, útvarpsmaður, tónlistarmaður og plötusnúður lætur ársgamlan draum sinn rætast á föstudaginn á skemmtistaðnum Oliver þegar hann frumsýnir glænýja DJ-græju sem er eins og klippt út úr framtíðarmynd.

Eurovision-fólk hittist

Félag áhugafólks um söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva heldur sérstakan kynningarfund á skemmtistaðnum Barböru í kvöld klukkan átta. „Við höfum fengið mjög góð viðbrögð og það er fullt af hlutum sem við stefnum á að gera í vetur,“ segir Eyrún Ellý Valsdóttir, einn af stofnmeðlimum félagsins.

Ferðast með 11 töskur

Stjörnustílistinn Rachel Zoe mætti með stæl á tískuvikuna í París en hún dró með sér hvorki meira né minna en ellefu stórar ferðatöskur fullar af fötum. Zoe setti mynd af öllum farangrinum á samskiptasíðuna Twitter og þar sást í sveittan eiginmann Zoe flytja herlegheitin á vagni.

Færri komast að en vilja

„Ég hvet alla sem vilja tryggja sér miða til að mæta snemma, koma með heitt kakó í brúsa og iPodinn og bíða bara spennt,“ segir Kamilla Ingibergsdóttir hjá tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves.

Góð helgi framundan í kvikmyndahúsum

Bíónörd ættu að eiga góða helgi fram undan því nýjasta kvikmynd Stevens Soderbergh, Contagion, verður frumsýnd í Sambíóunum um helgina. Soderbergh hafa verið mislagðar hendur að undanförnu en miðað við leikhóp myndarinnar ætti fátt að geta klikkað; Jude Law, Matt Damon, Kate Winslet, Laurence Fishburne og Marion Cotillard svo fáeinir séu nefndir.

Dularfull Demi: Ég sé í gegnum þig

Nú hafa myndir af leikaranum Ashton Kutcher, 33 ára, birst í fjölmiðlum þar sem hann er staddur á skemmtistaðnum Fluxx í San Diego sem hann yfirgaf í fylgd 23 ára stúlku sem segist hafa eytt nóttinni með honum. Þá póstaði Demi Moore, 48 ára, mynd af sér með lokuð augun sem skoða má í myndasafni með skilaboðuðunum: Ég sé í gegnum þig....

Hollenskur furðufugl til landsins

„Ég hvet engan til að sjá þessa mynd, í fullri alvöru. Hostel-myndirnar eru bara léttvæg upphitun við hliðina á þessari,“ segir Ísleifur B. Þórhallsson hjá Græna ljósinu.

KR-ingar leita að opinni rútu

„Menn hafa verið að kasta á milli sín hugmyndum um sigurhátíðina í vikunni," segir Kristinn Kjærnested, formaður knattspyrnudeildar KR.

Landar stóru hlutverki í sjónvarpsþætti vestanhafs

Anita Briem hefur tekið að sér aðalhlutverkið í bandaríska sjónvarpsþættinum Radical. Leikstjóri þáttanna er Cynthia Mort sem er stórt nafn í bransanum vestanhafs. Um er að ræða prufuþátt (pilot) en vonir standa til að þættirnir komist á dagskrá næsta vetur. Þegar Fréttablaðið náði tali af Anitu var hún ekki reiðubúin til að segja nákvæmlega frá því um hvað Radical væri en samkvæmt vefmiðlum þar vestra, sem fylgst hafa með gangi mála, er um að ræða spennu- og hasarþáttaröð.

Tryggir á sér brjóstin

Fyrrverandi sambýliskona Hugh Hefner, Holly Madison, 31 árs, hefur tryggt á sér brjóstin sem eru metin á 117,6 milljónir krónur, hjá Lloyd tryggingafélaginu. Hún ákvað að tryggja á sér barminn, sem er stærð 36D, eftir að hún ákvað að dansa í burlesque danssýningu í Las Vegas. Ef eitthvað kemur fyrir brjóstin á mér verð ég fyrir gríðarlegu vinnutapi, svaraði Holly spurð út í tryggingarnar en hún kemur fram ber að ofan í sýningunni.

Leitað að nýjum Eurovision-kóngi

„Þetta er náttúrlega mjög leiðinlegt og við grátum brotthvarf Páls Óskars enda var hann sjálfkjörinn í þetta hlutverk. En allt rennur sitt skeið og við ætlum okkur að halda áfram í einhverju formi án Páls,“ segir Sigrún Stefánsdóttir, dagskrárstjóri RÚV.

Línur farnar að skýrast í Óskarnum

Nú þegar stærstu kvikmyndahátíðir heims eru yfirstaðnar (Cannes, Toronto, Feneyjar) fara kvikmyndaspekúlantar á stjá og reyna spá fyrir um hvaða kvikmyndir, leikarar og leikkonur verði tilnefndar til Óskarsverðlauna. Hin svokölluðu „gúrú“ kvikmyndavefsíðunnar moviecitynews.com hafa þótt nokkuð getspök þegar kemur að þessum leik og voru fyrstu niðurstöðurnar birtar í gær.

Mercury til Akureyrar

Vegna mikillar eftirspurnar verða haldnir tónleikar til heiðurs Freddie Mercury, fyrrum söngvara Queen, í menningarhúsinu Hofi á Akureyri 18. nóvember. Nú þegar er uppselt á þrenna Mercury-tónleika sem verða í Hörpu 23. og 24. nóvember.

Heyrðu hún heimtaði einkasundlaug

Lady Gaga, 25 ára, tékkaði sig inn á Cosmopolitan hótelið í Tribecca hverfinu í New York en skráði sig aftur út korteri síðari...

Myndar lausagöngu ferðamanna

Umboðsmaðurinn og tónleikahaldarinn Kári Sturluson heldur sína fyrstu ljósmyndasýningu á gistiheimilinu Kex Hostel í október. Sýningin heitir Lausaganga ferðamanna í borgarlandinu.

Gaurinn er greinilega að gera eitthvað fyrir þig

Leikkonan Jennifer Aniston, 42 ára og unnusti hennar leikarinn Justin Theroux pósuðu saman fyrir ljósmyndarann Terry Richardson. Það eru engar eftirsjár í lífinu, bara lærdómur, sagði Jennifer. Eins og sjá má er Jennifer hamingjusöm með leikaranum. Þá má sjá fleiri nýjar myndir af henni í myndasafni.

Ashton hélt framhjá Demi

Hjónakornin Ashton Kutcher og Demi Moore eru að skilja ef marka má fréttaflutning Star Magazine. Leikarinn er greinilega ekki mikið að syrgja, en til hans sást á föstudagskvöldið á skemmtistað í San Diego þar sem hann var umkringdur fögrum fljóðum og fékk ein stúlkan að fylgja leikaranum upp á hótel.

Gott að vera á heimavelli

Þrátt fyrir að aðeins sé rúm vika síðan Eyrún Ósk Jónsdóttir fagnaði þrítugsafmælinu hefur hún nú þegar öðlast mikla reynslu af leiklist og leikstjórn. Í kvöld frumsýnir hún sína fyrstu kvikmynd en hún byggir á samnefndri bók eftir Eyrúnu og Helga Sverrisson sem kom út fyrir tæpu ári.

Særði blygðunarkennd bónda

Poppstjarnan Rihanna lenti í vandræðum við tökur á myndbandi á Írlandi á dögunum. Rihanna var búin að fá leyfi hjá bónda til að taka upp myndband á akrinum hans en þegar bóndinn sá hversu léttklædd Rihanna var við tökur var hann ekki lengi að stöðva þær.

Hlífðargallar eru bara fyrir kerlingar

Írena Líf Jónsdóttir, sextán ára Suðurnesjamær, gerði sér lítið fyrir og synti Viðeyjarsund ósmurð og án hlífðargalla á tímanum 1:18:07, sem er besti tími sem nokkur – kona eða karl – hefur náð ósmurður í Viðeyjarsundi.

Barnsfaðir Britney eignast barn

Kevin Federline, 33 ára, barnsfaðir Britney Spears, var myndaður ásamt unnustu sinni, blakspilaranum Victoriu Prince, 28 ára, og sex vikna stúlkunni þeirra, Jordan Kay. Með Britney á Kevin drengina Sean Preston, 5 ára, og Jayden, 4 ára. Þá á hann stúlkuna Kori, 9 ára, og drenginn Kaleb, 6 ára, með Shar Jackson.

Gjörbreytt 37 kg léttari

Meðfylgjandi myndir voru teknar af söngkonunni Jennifer Hudson, 30 ára, í Chicaco í gær þegar Weight Watchers stöð var opnuð formlega í hennar nafni..

Logi og Steindi fíla sig í óeirðalöggunni

Logi Bergmann og Steindi Jr. kalla ekki allt ömmu sína eins og kemur bersýnilega í ljós í næsta þætti af Týndu kynslóðinni. Þar fara þeir félagar í óeirðalögguleik og samkvæmt þessu sýnishorni virðast þeir taka leikinn ansi alvarlega.

Sjúklega sæt í stígvélum

Leikararnir Salma Hayek, 45 ára, og Antonio Banderas, 51 árs, stilltu sér upp ásamt nokkrum krúttlegum köttum á Ritz Carlton hótelinu í Moskvu í Rússlandi eins og sjá má á myndunum.

Sjá næstu 50 fréttir