Fleiri
Black tvisvar hótað lífláti 21.4.2011 21:00 Fallegustu prinsessur og prinsar heims Vefsíðan BeautifulPeople.com fékk yfir hundrað þúsund manns til að velja tíu fallegustu prinsessur heims og kom nokkuð á óvart að Kate Middleton, tilvonandi eiginkona Vilhjálms Bretaprins, þótti fallegri en Díana prinsessa, móðir Vilhjálms. 21.4.2011 20:00 Gæsapartí á Ritz Söngkonan Lily Allen ætlar að halda gæsapartí sitt á glæsihótelinu The Ritz í London. Allen ætlar að giftast unnusta sínum Sam Cooper í bænum Stroud í Glouchesterskíri 11. júní. 21.4.2011 19:00 Hárinu vegnar vel Sex sýningum er lokið á söngleiknum Hárinu í Silfurtunglinu á Akureyri. Frumsýningin var á föstudaginn í síðustu viku í menningarhúsinu Hofi og gekk hún eins og í sögu. Sýningarnar halda áfram um páskana, eða á föstudaginn langa, páskadag og annan í páskum. 21.4.2011 18:00 Sjá næstu 50 fréttir
Hér er svarið ef þú ert með krullur Í meðfylgjandi myndskeiði sýnir Sandra Olgeirsdóttir hárgreiðslumeistari hvernig hægt er að færa krulluðu hári raka, skerpa á krullunum og koma í veg fyrir að hárið verði úfið. Hún notar undraefni frá Aveda sem heitir Be Curly Style-Prep. Aveda á Facebook Aveda.is 28.4.2011 08:43
Þarf að læra Quarashi-lögin aftur Quarashi kemur saman á nýjan leik á Bestu útihátíðinni sem verður haldin í júlí. Söngvarinn Höskuldur Ólafsson snýr aftur eftir að hafa hætt óvænt árið 2003. Rappsveitin Quarashi, sem hætti störfum árið 2005, hefur ákveðið að snúa aftur og spila á Bestu útihátíðinni sem verður haldin aðra helgina í júlí. Tíðindin eru óvænt, sérstaklega í ljósi þess að forsprakkinn Sölvi Blöndal vísaði endurkomunni algjörlega á bug í samtali við Fréttablaðið í síðasta mánuði. Endurkoma Quarashi er sérstök að því leyti að þetta verður í fyrsta skiptið sem rappararnir Höskuldur Ólafsson, Steinar Fjeldsted, Ómar "Swarez" Hauksson og Egill "Tiny" Thorarensen koma allir saman fram með sveitinni. 28.4.2011 07:00
Kate Hudson trúlofuð Leikkonan Kate Hudson og Muse tónlistarmaðurinn Matthew (Matt) Bellamy, sem eiga von á barni saman, eru trúlofuð. Kate tilkynnti trúlofunina í sjónvarpsþættinum Today show í vikunni eftir að spyrillinn spurði leikkonuna hvaðan demantshringurinn sem hún bar á baugfingri vinstri handar kæmi. Kate svaraði himinlifandi: Ég er trúlofuð! Það gerðist fyrir viku síðan. Ég er í skýjunum eins og þú sérð en ég hef ekki ennþá sent út fréttatilkynningu. Í meðfylgjandi myndasafni má sjá nýjar myndir af Kate og Matt. 27.4.2011 18:20
Sjáðu hvað prinsessan er alltaf smart Ný könnun sýnir að vinsældir Kate Middleton, 29 ára, verðandi eiginkonu Vilhjálms bretaprins, eru jafnmiklar og vinsældir Díönu prinsessu, móður hans heitinnar. Burtséð frá vinsældum má skoða þessa stórglæsilegu prinsessu sem er ávallt settleg og til fyrirmyndar þegar kemur að klæðnaði í meðfylgjandi myndasafni. 27.4.2011 14:30
Þetta er algjör snilld í hárið Í meðfylgjandi myndskeiði sýnir Sandra Olgeirsdóttir hárgreiðslumeistari og einn af eigendum hársnyrtistofunnar 101 Hárhönnun á Skólavörðustíg hvernig nota má undraefni frá Aveda í hárið sem kallast Pure Abundance. Sandra kryddar hárið með efninu sem gefur hárinu lygilega lyftingu með því að nudda púðrinu í hársvörðinn. 27.4.2011 12:48
Lindsay horfist í augu við sjálfa sig Bandaríska leikkonan Lindsay Lohan hefur ákveðið að líta í eigin barm. Hún viðurkenndi í spjallþætti Jay Leno í gærkvöldi að hún hefði gert mörg mistök í lífi sínu. 27.4.2011 11:30
Með tvö lög í þáttunum So You Think You Can Dance "Þetta er frekar kúl. Ég horfi alltaf á þættina. Þeir eru í miklu uppáhaldi hjá mér,“ segir tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds, sem á tvö lög í næstu þáttaröð af So You Think You Can Dance sem fer í loftið í lok maí. Ólafur tekur fram að enn eigi eftir að klippa þættina en miklar líkur séu þó á að lögin tvö, Kjurrt og Gleypa okkur, verði í þáttunum. "Maður veit aldrei hvað endar í sjónvarpi og hvað ekki," segir hann varkár. Lögin eru af síðustu plötu Ólafs, …And They Have Escaped the Weight of Darkness sem kom út í fyrra. Þau eru bæði mjög róleg en tveir dansarar í þáttunum völdu þau fyrir dansatriði sín. 27.4.2011 11:00
Prinsessan pollróleg Á meðfylgjandi myndum má sjá Kate Middelton, 29 ára, með systur sinni sem heitir Pippa, yfirgefa heimili þeirra í Berkshire í gær og það væntanlega í síðasta sinn fyrir stóra daginn. Eins og sjá má virðist Kate vera pollróleg þrátt fyrir að eftir aðeins tvo daga gengur hún að eiga Vilhjálm bretaprins. Eldsnemma í morgun, klukkan 04:30, hófst lokaæfing hirðarinnar fyrir brúðkaupið. Garðyrkjumenn voru einnig snemma á ferðinni að koma trjám fyrir í Buckingham höllinni eins og sjá má í myndasafni. 27.4.2011 09:45
Airwaves reynir við Fleet Foxes „Fleet Foxes er flott band, Seattle er góð borg og það væri vissulega gaman að fá þá á Airwaves,“ segir Grímur Atlason, framkvæmdastjóri tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves. 27.4.2011 09:00
Stoltur af eiginkonunni Michael Douglas segir í nýjasta þætti Opruh Winfrey að hann sé ákaflega stoltur af eiginkonu sinni, Catherine Zeta-Jones. Hann sé hins vegar sorgmæddur yfir þeirri staðreynd að hún hafi verið neydd af fjölmiðlum til að ræða veikindi sín opinberlega. 27.4.2011 08:30
Dreymir stundum Nágranna Snjólaug Bragadóttir hefur þýtt alla sex þúsund þættina af Nágrönnum sem hafa verið sýndir á Stöð 2. Suma hverja hefur hún horft á tvisvar. Snjólaug segist ekki hafa orðið fyrir neinum skaða af því að horfa á Nágranna; þeir læðist reyndar stundum inn í draumana hennar. „Nei, það eru engar öfgar í þessum þáttum, þetta er bara venjulegt fólk þótt núna séu reyndar farnar að slæðast inn morðtilraunir og framhjáhald. Og þetta eru heldur ekki spillandi þættir, börnum er kennt að vera með hjálm og vera góð við dýrin." 27.4.2011 11:30
Mín loksins gengin út Söngkonan LeAnn Rimes og Eddie Cibrian kysstust fyrir nærstadda ljósmyndara eins og sjá má í myndasafni en þau giftu sig í látlausri athöfn með nánustu fjölskyldu og vinum föstudaginn síðasta. 26.4.2011 18:29
Útskriftarsýning Listaháskóla Íslands Útskriftarsýning Listaháskóla Íslands stendur yfir þessa dagana í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Meðfylgjandi má sjá verk rúmlega sjötíu nemenda í hönnunar- og arkitektúrdeild og myndlistardeild skólans sem eru á sýningunni sem stendur yfir til 8. maí og er aðgangur að henni ókeypis.Útskriftarsýning 26.4.2011 16:57
Prinsessan hefur hrunið í þyngd Dyngjudömurnar Björk Eiðsdóttir og Nadia Katrín Banine spjalla um væntanlegt brúðkaup Vilhjálms prins og Kate Middleton sem gifta sig á föstudaginn kemur í meðfylgjandi myndskeiði. Þær eru sammála því að þyngdartap Kate tengist væntanlega gríðarlegu álagi sem hvílir á henni fyrir daginn stóra sem öll heimsbyggðin mun fylgjast með. Þær ætla að kryfja brúðkaupið í þættinum þeirra Dyngjan klukkan 21:05 í kvöld á Skjá einum. 26.4.2011 14:09
Lady Gaga brotnar niður Stundum líður með eins og ég sé misheppnaður auli..." segir Lady Gaga meðal annars í meðfylgjandi myndskeiði. Söngkonan brotnar niður því hún vill ekki bugast og bregðast aðdáendum sínum. Hún viðurkennir m.a. að henni líði oftar en ekki eins og þegar henni leið sem verst í menntaskóla. Um er að ræða klippu úr þætti sem verður frumsýndur 7. maí á HBO sjónvarpsstöðinni þar sem fylgst er með Lady Gaga á tónleikum. 26.4.2011 11:15
Með endurkomu að hætti Travolta Björn Jörundur Friðbjörnsson, oftast kenndur við hljómsveitina Nýdönsk, hefur verið ráðinn í lítið hlutverk í kvikmyndinni Svartur á leik. Björn mun leika smáglæpamanninn Skara Tattoo en upphaflega stóð til að Hilmir Snær færi með hlutverkið. "Öll mín hlutverk í gegnum tíðina hafa komið þannig til að Hilmir hefur verið of upptekinn við að leika þau. Nema náttúrlega í Englunum, því þá lékum við saman,“ segir Björn á nokkuð kaldhæðinn hátt. Þetta verður fyrsta 26.4.2011 05:30
Leiðarljós snýr aftur á dagskrá "Við erum búin að reyna mikið og loksins tókst okkur að ná samningum til eins árs," segir Sigrún Stefánsdóttir, dagskrárstjóri RÚV. Leiðarljós, sjónvarpssápan vinsæla, snýr aftur á dagskrá Ríkissjónvarpsins um leið og HM U-21 lýkur í lok júní. 26.4.2011 03:30
Allt annað að sjá þig svona Meðfylgjandi myndir voru teknar af sönkonunni Beyonce Knowles í París í dag ásamt eiginmanni hennar Jay-Z. Stíll söngkonunnar breytist dag frá degi. Í gær var hún með sólgleraugu á nefinu með slegið hárið í svörtum samfesting. Í dag var hún klædd svarta í hælaskó, doppóttan Marc Jacobs kjól sem fór henni afskaplega vel, með hárið tekið aftur. 25.4.2011 19:49
Þórunn Erna: Sjonni verður með okkur allan tímann Nú styttist í Eurovision keppnina sem haldin verður í Þýskalandi um miðjan maí. Þórunn Erna Clausen, textahöfundur íslenska sigurlagsins Aftur heim eða Coming home eins og það heitir upp á ensku, og ekkja Sjonna Brink sem samdi lagið er í ítarlegu viðtali á Eurovision.is í dag. Þar ræðir hún hvernig tilfinning það var að sigra keppnina hér heima svo stuttu eftir að Sjonni lést. 25.4.2011 14:11
Kate jafnvinsæl og Díana Ný könnun sýnir að vinsældir Kate Middleton, verðandi brúðar Vilhjálms bretaprins, eru jafnmiklar og vinsældir Díönu prinsessu, móður hans heitinnar. 25.4.2011 13:23
Þessum leiddist ekki um helgina Meðfylgjandi myndir tók Sveinbi ljósmyndari Superman.is á veitingahúsinu Sódóma þar sem Rottweiler spilaði fyrir fullu húsi. Þá var ekki minna stuð á veitingahúsunum Kaffi Zimsen, Vestur, Hressó og Hvíta Perlan um helgina. 25.4.2011 13:09
Katie Price heppin að vera á lífi Glamúr-fyrirsætan Katie Price slapp með minniháttar meiðsl þegar bíll sem hún var farþegi í ók á tvo villihesta í Argentínu. 25.4.2011 11:34
Sheen sparkað með SMS Klámmyndaleikkonan Bree Olson sagði leikaranum Charlie Sheen upp með SMS skilaboðum um helgina. Sheen var í Fort Lauderdale í Flórída þegar að hann fékk skilaboðin. 25.4.2011 11:25
Mun komast að því hver faðirinn er Stórsöngvarinn Elton John hefur tilkynnt að hann ætli sé að komast að því hver líffræðilegur faðir sonar hans er. 25.4.2011 11:08
Stofnuðu eigin pönkútgáfu Plötuútgáfan PBP, eða Paradísarborgarplötur, hefur gefið út sjö plötur síðan hún var sett á laggirnar árið 2009. 24.4.2011 12:00
Með sama ennið Ronald Fenty, faðir söngkonunnar Rihönnu, komst nýverið að því að hann ætti þrjú fullorðin börn með þremur konum. Söngkonan á því þrjú hálfsystkin sem öll eru töluvert eldri en hún sjálf. Fenty segir fréttirnar hafa komið sér á óvart á sínum tíma. 24.4.2011 10:00
Justin Bieber óttast um öryggið Popparinn ungi Justin Bieber á erfitt með að venjast því að vera hundeltur af öskrandi stelpum hvert sem hann fer. Þrátt fyrir að vera vanur sviðsljósinu finnst honum sú gríðarlega athygli sem hann fær á degi hverjum einum of mikil. 24.4.2011 08:00
Hannar föt úr bambus Guðmundur Jörundsson nýútskrifaður fatahönnuður frá Listaháskóla Íslands sýnir lokaverkefnin sín í Listasafni Reykjávikur, Hafnarhúsinu. Guðmundur notar m.a. leður, ull og bambus í fatnaðinn sem hann hannar eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði. 23.4.2011 17:13
Seldi Dorrit pils Nýútskrifaður fatahönnuður frá Listaháskóla Íslands, Hjördís Gestsdóttir, er með lokaverkefnin sín til sýnis í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu. Hjördís var að vonum ánægð með að Dorrit Moussaieff forsetafrú pantaði hjá henni sítt pils eftir hana eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði. 23.4.2011 16:42
Fjölmenni á útskriftarsýningu Listaháskóla Íslands Meðfylgjandi myndir voru teknar í dag á útskriftarsýningu Listaháskóla Íslands í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Þar eru sýnd verk 72 útskriftarnema úr myndlistar-, hönnunar- og arkitektúrdeildum. Sýningin stendur til 8. maí og er opin daglega frá kl. 10.00 – 17.00, fimmtudaga frá kl. 10.00 – 20.00. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Sýningin verður opin páskadag og annann í páskum kl. 10.00 - 17.00 23.4.2011 16:19
Vill vinna með Brad Það eru liðin tólf ár síðan Edward Norton og Brad Pitt léku saman í kvikmyndinni Fight Club. Norton hefur lýst yfir áhuga á því að endurtaka leikinn og vinna með Pitt á ný. Norton telur það eina sem standi í vegi fyrir því að úr þessu rætist sé tímaleysi þeirra beggja. „Það er möguleiki að úr þessu verði. Við höfum rætt þetta oft. En það er flókið að finna tíma sem hentar okkur báðum,“ sagði leikarinn um málið. 23.4.2011 15:15
Leitað að norrænum Gillzenegger "Ég veit ekki hversu langt á veg þetta er komið en það eru einhverjar þreifingar í gangi,“ segir Kristófer Dignus, handritshöfundur og einn af prímusmótorunum á bakvið sjónvarpsþættina Mannasiði Gillz. 23.4.2011 14:00
Kjóllinn hennar Kate Enn er allt á huldu um hver hannar og hvernig brúðarkjóll Kate Middleton verður er hún gengur í það heilaga með Vilhjálmi bretaprins þann 29. apríl næstkomandi. Bæði Sarah Burton, sem hannar fyrir tískuhús Alexander McQueen, og Bruce Oldfield þykja líkleg. 23.4.2011 13:30
Tilnefndir til danskra verðlauna Vefsíðan Billetlugen.dk hefur verið tilnefnd til E-Handelsprisen vefverðlaunanna í Danmörku. Fimm Íslendingar starfa hjá síðunni, þar af fjórir sem tóku þátt í uppbyggingu Midi.is hér á landi. 23.4.2011 13:00
Súkkulaðibrúnir helköttaðir hörkukroppar Meðfylgjandi myndir voru teknar á Íslandsmótinu í Fitness í Háskólabíó í gær þegar konur stigu á svið og pósuðu eins og enginn væri morgundagurinn. Eins og myndirnar sýna voru keppendur í sínu besta formi og heltanaðir auðvitað. Í kvennaflokki + 163 cm sigraði Ranný Kramer, Freyja Sigurðardóttir landaði öðru sætinu og Björk Varðardóttir því þriðja. Þá má einnig sjá myndir af kvenkyns keppendum í - 163 cm flokki, + 35 ára og unglingaflokki í meðfylgjandi myndasafni. 23.4.2011 10:25
Hætti við hlutverkið Leikarinn og leikstjórinn Ben Affleck er hættur við að leika í kvikmynd Baz Luhrmann sem verður byggð á skáldsögu F. Scott Fitzgerald, The Great Gatsby. Fregnirnar komu stuttu eftir að Isla Fisher samþykkti að leika hjákonu Toms Buchanan, sem Affleck átti að leika. Leikarinn ákvað að einbeita sér að næsta leikstjórnarverkefni sínu. Það er myndin Argo, sem fjallar um gíslatöku í Íran. Á meðal leikara í The Great Gatsby eru Leonardo DiCaprio, Tobey Maguire og Carey Mulligan. 23.4.2011 10:00
Verða að haga sér vel Raunveruleikaþættirnir Jersey Shore hafa slegið rækilega í gegn vestan hafs og nú er áætlað að færa út kvíarnar. Snookie, J-WOW og hinar stjörnurnar munu halda til Flórens á Ítalíu þar sem nýjasta þáttaröðin verður tekin upp. 23.4.2011 09:00
Grét í tökum Leikarinn og sjarmörinn Robert Pattison viðurkennir að hafa grátið í tökum á nýjustu mynd sinni Water for elephants. Pattison segist hafa fellt tár á meðan á upptökum stóð á kynlífssenum myndarinnar og að það hafi verið vegna fegurð mótleikkonu sinnar Reese Witherspoon „Hún var einfaldlega svo kynþokkafull í atriðinu að ég gat ekki annað en að bresta í grát,“ segir Pattison í viðtali við blaðið Extra á frumsýningunni. 23.4.2011 08:00
Tískusýningargestir troðfylltu Hafnarhúsið Níu nemendur* við fatahönnunardeild Listaháskóla Íslands sýndu lokaverkefni sín á tískusýningu sem fram fór í Listasafni Reykjavíkur í gærkvöldi. Fjöldi manns lagði leið sína í Hafnarhúsið til að sjá afraksturinn sem var glæsilegur eins og meðfylgjandi myndir sýna. Þá má einnig sjá gesti sýningarinnar í myndasafni. *Gyða Sigfinnsdóttir, Jenný Halla Lárusdóttir, Elsa María Blöndal. Hjördís Gestsdóttir, Halldóra Lísa Bjargardóttir, Guðmundur Jörundsson, Gígja Ísis Guðjónsdóttir, Signý Þórhallsdóttir og Sigga Mæja. 22.4.2011 10:51
Skrælingjasýning Kristínar Svövu Skrælingjasýningin nefnist ný ljóðabók eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur sem Bjartur gefur út nú í Dymbilviku. Þetta er önnur ljóðabók Kristínar Svövu, en hún vakti talsverða athygli fyrir frumraun sína, Blótgælur, sem kom út fyrir jól 2007. Var hún meðal annars valin ljóðabók ársins af starfsfólki bókaverslana. 22.4.2011 10:00
Dikta og GusGus opna Hörpu Dikta, GusGus, Víkingur Heiðar og að sjálfsögðu Sinfóníuhljómsveitin verða meðal þeirra listamanna sem troða upp á opnunartónleikum Hörpunnar 13. maí. Opnunarathöfnin verður í beinni útsendingu Sjónvarpsins. 21.4.2011 21:00
Fallegustu prinsessur og prinsar heims Vefsíðan BeautifulPeople.com fékk yfir hundrað þúsund manns til að velja tíu fallegustu prinsessur heims og kom nokkuð á óvart að Kate Middleton, tilvonandi eiginkona Vilhjálms Bretaprins, þótti fallegri en Díana prinsessa, móðir Vilhjálms. 21.4.2011 20:00
Gæsapartí á Ritz Söngkonan Lily Allen ætlar að halda gæsapartí sitt á glæsihótelinu The Ritz í London. Allen ætlar að giftast unnusta sínum Sam Cooper í bænum Stroud í Glouchesterskíri 11. júní. 21.4.2011 19:00
Hárinu vegnar vel Sex sýningum er lokið á söngleiknum Hárinu í Silfurtunglinu á Akureyri. Frumsýningin var á föstudaginn í síðustu viku í menningarhúsinu Hofi og gekk hún eins og í sögu. Sýningarnar halda áfram um páskana, eða á föstudaginn langa, páskadag og annan í páskum. 21.4.2011 18:00