Fleiri fréttir

Áhrif úr austri í sumartískunni

Austurlensk áhrif skjóta reglulega upp kollinum í tískuheiminum, en þau verða mjög áberandi í sumartískunni þetta árið.

Marta María skilin

Skilnaður Mörtu Maríu Jónasdóttur ritstjóra Smartlands er aðalfrétt tímaritsins Séð og heyrt þessa vikuna. Hún og Jóhannes Ingimundarson sjónfræðingur eru skilin eftir sex ára hjónaband en saman eiga þau tvo drengi. Marta og Jóhannes fluttu nýverið í einstaklega fallegt Sigvaldahús í Brekkugerði í Reykjavík sem hún innréttaði húsið á fallegan máta en leyfði upprunalegum innréttingum að njóta sín.

Logi Bergmann grillar stjórnmálamenn

Það verða tímamót í skemmtiþættinum Spurningabombunni í kvöld þegar formenn sex stjórnmálaflokka keppast um að hrósa sigri í þættinum vinsæla.

Ólafur Ragnar sló í gegn á RFF

Meðfylgjandi myndir voru teknar í opnunarteiti RFF 2013 á Hótel Borg í gær. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson setti hátíðina með ræðu sem sló í gegn hjá prúðbúnum gestum.

RFF fór vel af stað

Reykjavík Fashion Festival fór vel af stað, en tískuhátíðin var formlega sett af Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, í Gyllta salnum á Hótel Borg í gærkvöldi.

Ræddi Gere

Fyrirsætan Cindy Crawford var gestur í sjónvarpsþættinum Ophra‘s Master Class og ræddi þar meðal annars hjónaband sitt og Richard Gere. Hún telur að aldursmunurinn milli þeirra hafi orðið til þess að hjónabandið leið undir lok.

Óvenju margar stelpur spila

Músíktilraunir hefjast á sunnudaginn í Hörpu þegar tíu fyrstu hljómsveitirnar af 39 stíga á stokk.

Eru dansarar og ljósamenn á danssýningu

Katrín Gunnarsdóttir og Melkorka Magnúsdóttir setja upp danssýninguna Coming Up. Á sýningunni gegna þær einnig hlutverki hljóð- og ljósamanns.

Kátur með eiginkonunni

Leikarinn Ben Affleck kveðst njóta þess að eiga frí vikurnar eftir Óskarsverðlaunin. Hann eyðir tíma sínum með börnum sínum og eiginkonu.

Björgvin Páll verður pabbi í sumar

Björgvin Páll Gústavsson handboltakappi með meiru sem spilar með SC Magdeburg og eiginkona hans, Karen Einarsdóttir eiga von á sínu fyrsta barni í sumar. "Ég og þessi fallega kona (Karen Einarsdóttir) eigum von á okkar fyrsta barni núna í byrjun ágúst! Krílið er hinsvegar ekki á þeim buxunum að gefa upp kyn sitt ennþá þannig að þær upplýsingar verða að bíða í smá tíma í viðbót. ;)" skrifaði Björgvin á Facebook síðuna sína fyrir um klukkustund. Ekki nóg með að fjölskylda landsliðsmarkmannsins stækki í sumar heldur skiptir hann um lið og fer yfir til Bergischer HC sem er lið í vestur - þýskalandi.

Berjast um tískusigur

Söngkonan Rihanna og athafnakonan Nicole Richie eru báðar yfirleitt frekar smart.

Berar sig fyrir Brian Atwood

Fyrirsætan Eva Herzigova varð nýlega fertug en vílar ekki fyrir sér að bera líkama sinn í nýrri auglýsingaherferð fyrir skórisann Brian Atwood.

Tapaði milljónum á vindmyllum

Stórleikarinn Kelsey Grammer tapaði tugum milljóna á fjárfestingu í vindmyllum en hann bjóst við að þetta útspil hans yrði arðvænlegt. Það fór ekki sem skyldi.

Súpermódel með hálskraga

Ofurfyrirsætan Miranda Kerr spókaði sig um í Los Angeles í vikunni með hálskraga en Victoria's Secret-engillinn slasaðist í bílslysi.

Með bert á milli

Disney stjarnan Selena Gomez mætti í þessu sumarlega dressi frá Dolce & Gabbana á frumsýningu nýjustu myndar sinnar, Spring Breakers, í Los Angeles fyrr í vikunni.

Anna Wintour fær nýtt starf

Anna Wintour, ritstýra bandaríska Vogue til 25 ára, hefur fengið stöðu sem listrænn stjórnandi útgáfurisans Condé Nast.

24ra karata hjólastóll

Poppfuglinn Lady Gaga er að jafna sig á mjaðmaraðgerð og lætur ekki keyra sig um í hvaða hjólastól sem er.

Tískuvaka í miðbænum

Í tilefni af Reykjavík Fashion Festival og HönnunarMars verður haldin svokölluð Tískuvaka í miðbæ Reykjavíkur í kvöld. Tískuvakan er haldin að erlendri fyrirmynd, en margir kannast við Fashion's Night Out sem haldin er samhliða stóru tískuvikunum í New York og London.

Missti vinnuna í hruninu og lét drauminn rætast

Hönnuður Stubba, Gústaf A. Hermannsson byggingafræðingur er einn af mörgum í byggingageiranum sem varð atvinnulaus eftir hrun. Hann hafði lengi gengið með þann draum í maganum að hanna húsgögn fyrir krakka enda hafði langafi hans verið duglegur við að smíða leikföng. Gústaf vildi hanna eitthvað alveg sérstaklega fyrir börn en ekki eingöngu smækkaða útgáfu af fullorðinshúsgögnum.

Reykjavík Fashion Festival hefst í kvöld

Tískuhátíðin Reykjavík Fashion Festival hefst formlega í kvöld. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, mun setja hátíðina í Gyllta salnum á Hótel Borg að viðstöddum fjölda íslenskra og erlendra fjölmiðla, ásamt áhrifafólki úr tískuheiminum.

Forritarar eru ekki sveittir lúðar

"Það sjá margir forritara fyrir sér sem einhverja sveitta lúða. En þetta er alls ekki þannig," segir Elísabet Jónsdóttir sem kemur til með að vera einn dómaranna á Forritunarkeppni framhaldsskólanna

Ég á líf frumsýnt í dag

Myndband lagsins Ég á líf, framlags Íslands til Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, verður frumsýnt með pompi og prakt á hádegi.

Þetta er fjandi töff bók

Stefán Máni rithöfundur fékk hugmynd að skáldsögu í ágúst í fyrra. Afraksturinn verður gefinn út í næstu viku, skáldsagan Úlfshjarta, en að sögn höfundarins er hún ætluð ungu fólki.

Rómantískt sjónarhorn

Snotur sýning, eins konar sýnishorn fyrir ákveðin tímabil í listasögunni, og gefur smá viðbótarinnsýn í íslenska listsköpun fyrir og eftir aldamótin 1900.

Ást og hörmungar

Anna Karenina verður frumsýnd annað kvöld. Myndin er byggð á stórvirki rússneska höfundarins Leo Tolstoj og fjallar um forboðna ást og afleiðingar hennar.

Íslenska ullin heillar tískuheiminn

Hönnunartvíeykið Eley Kishimoto hefur endurhannað Selsham Víkur Prjónsdóttur og verður hann hluti af haustlínu hins fræga, breska tískuhússins.

Snúa aftur með stæl

Bloodsports, fyrsta plata Suede í 11 ár með nýju efni, kemur út á mánudaginn.

Hver er þessi Conny?

Þýska „krautrokkið“ sem kom fram á áttunda áratugnum lifir góðu lífi á meðal tónlistaráhugamanna í dag. Það má heyra áhrif frá því hjá mörgum tónlistarmönnum af yngri kynslóðinni og frumkvöðlarnir njóta enn mikillar virðingar.

Sjá næstu 50 fréttir