Fleiri fréttir

Hreimur Örn gefur út nýtt lag

"Ég setti saman skemmtilegt myndskeið á Youtube frá mínum ferðum um landið og miðin undanfarið ár og ég vona að þið hafið gaman af. Þetta er ég með flestum af mínum nánustu vinum úr tónlistarbransanum á góðum stundum...

Slétt sama í eins bol

Hollywoodstjörnurnar Mila Kunis og Ashton Kutcher klæddust eins bolum og ekki ósvipuðum gallabuxum þegar þau röltu um götur New York borgar um helgina. Þau leiddust, föðmuðust og hlógu eins og sjá má ef myndasyrpan hér er skoðuð...

Stjörnurnar elska líka slúðrið

Já, stjörnurnar liggja líka yfir slúðurblöðunum eins og sjá má á meðfylgjandi mynd sem tekin var af Kim Kardashian á Sydney Kingsford-Smith flugvellinum um helgina. Sást raunveruleikastjarnan flettta hverju blaðinu á fætur öðru en oftar en ekki er það hún og hennar fjölskylda sem prýðir forsíður blaðanna.

Eltir konur vestur um haf

Jón Ársæll var að sanka að sér efni í nýja þáttaröð af Sjálfstæðu fólki sem fer í loftið á sunnudaginn.

Veisla fyrir augu og eyru

Hljómsveitin Nýdönsk hefur verið að í aldarfjórðung og af því tilefni var boðið til afmælistónleika. Og stórafmælum dugar ekkert minna en Eldborgarsalur í Hörpunni.

Hannar fyrir stórfyrirtæki í Suður-Kóreu

Sigríður Heimisdóttir iðnhönnuður hefur hannað heimilislínu fyrir suður-kóreska stórfyrirtækið Jaju. Fyrirtækið er í eigu barnabarns stofnanda Samsung-samsteypunnar.

Grín-endurfundir

Í kvöld kemur í ljós hvort lengi lifi í gömlum glæðum.

Baggalútur blæs til þriðju jólatónleikanna

Baggalútur hefur ákveðið að bæta við þriðju jólatónleikum sínum laugardaginn 15. desember enda hefur aðsóknin verið slík að þegar er uppselt á tvenna jólatónleika.

Auðvitað er kómík alls staðar

Nína Dögg Filippusdóttir hefur verið áberandi í leiklistinni undanfarin ár, í sýningum Vesturports sem hún og maður hennar, Gísli Örn Garðarsson, stofnuðu ásamt hópi fólks, í kvikmyndum og hjá Borgarleikhúsinu. Um næstu helgi stígur hún á svið í aðalhlutverki í Á sama tíma að ári. Friðrika Benónýsdóttir ræddi við hana um sýninguna, Vesturport, skrifin og draumana.

Tískublogg fagnar á Borginni

Tískubloggsíða Tinnu Alavis og Brynju Norðfjörð, Secrets.is, hélt teiti á Hótel Borg á föstudagskvöldið. Fjölmenni mætti og fylgdist meðal annars með veglegri tískusýningu sem Bragi Kort ljósmyndari myndaði. Skoða má myndirnar hér. Skoða tískubloggið hér.

Gullgyðja með myndarlega brjóstaskoru

Jennie Garth, sem er hvað best þekkt fyrir að leika Kelly í sjónvarpsþáttunum Beverly Hills 90210, geislaði í orðsins fyllstu merkingu í partíi til að hita upp fyrir Emmy-verðlaunahátíðina...

Baywatch-bjútí reynir að grenna sig

Leikkonan Nicole Eggert skellti sér í kraftgöngu með dótturina Keegan í Los Angeles um helgina. Hún losnaði ekki við paparassana sem virðast vera á hverju strái en Nicole hefur verið mikið á milli tannanna á fólki undanfarið...

Látið mig í friði!

Ólétta fyrirsætan Gisele Bundchen fílaði aldeilis ekki að ljósmyndarar væru að elta hana á röndum í Boston á föstudaginn...

Bert á milli og bling

Ungstirnið Miley Cyrus sýndi tónaðan magann í athyglisverðu dressi á iHeartRadio-tónlistarhátíðinni í Las Vegas um helgina..

Skiptir sér milli Scala og Hörpu

Tómas Tómasson barítón er orðinn meðal fremstu óperusöngvara Íslands. Í haust fer hann með burðarhlutverk í Lohengrin eftir Wagner í Scala-óperunni í Mílanó, ásamt Jonasi Kaufman. Áður en að því kemur syngur hann í Zürich í Sviss og í Il Trovatore í Íslensku óperunni. Gunnþóra Gunnarsdóttir hringdi í kappann og forvitnaðist um sönglífið og frægðina.

Þetta atriði sló í gegn á afmælistónleikum Nýdanskrar

Meðfylgjandi myndband var tekið á fyrri afmælistónleikum Nýdanskrar í Eldborgarsal í Hörpunni í gærkvöldi þegar Unnsteinn Manuel Stefánsson úr hljómsveitinni Retro Stefson söng lagið Fram á nótt með Nýdönsk...

Víkingur Heiðar og önnur hugmynd um norðrið

Á þriðjudaginn kemur hefði kanadíski píanóleikarinn Glenn Gould orðið áttræður. Þann dag heldur Víkingur Heiðar Kristjánsson píanóleikari tónleika í Hörpu undir yfirskriftinni Önnur hugmynd um norðrið. Heitið kallast á við útvarpsþætti sem Gould gerði, The Idea of North, en í þeim talaði Gould við íbúa sem bjuggu á afskekktum slóðum í Kanada.

Nýtt íslenskt verk frumsýnt í Skotlandi

"And the Children Never Looked Back“ eftir leikskáldið Sölku Guðmundsdóttur verður frumsýnt í Oran Mor-leikhúsinu í Glasgow á mánudag og sýnt út vikuna. Leikstjóri er Graeme Maley, sem setti meðal annars upp Djúpið eftir Jón Atla Jónasson við sama leikhús fyrir þremur árum, og segir Salka að hann hafi í raun átt frumkvæðið að verkinu.

Verst nærbuxnatökum

Rokkaradóttirin Kelly Osbourne hefur ýmis brögð uppi í erminni til að koma í veg fyrir að papparassa-ljósmyndarar nái myndum af hennar allra heilagasta. Í sjónvarpsviðtali nýverið lýsti Osbourne reynslu sinni af ljósmyndurum sem hreinlega leggjast á hnén gagngert til að ná myndum af nærbuxum til að selja slúðurblöðum. „Þeir eru stundum svo svæsnir að þeir leggjast á hnén til að ná góðu skoti upp pilsfaldinn hjá manni. Besta vörnin er að sparka í átt til þeirra. Þá láta þeir þetta svæði vera,“ segir Osbourne, sem hefur þó skilning á starfi ljósmyndaranna. „Þetta er fylgifiskur frægðarinnar og það hjálpar að vera almennilegur við þá. Þetta er nú einu sinni vinnan þeirra, þótt við hötum þetta.“

Giftir sig í Valentino

Leikkonan Anne Hathaway trúlofaðist leikaranum Adam Shulman í nóvember í fyrra eftir þriggja ára tilhugalíf. Brúðkaupið er á næsta leyti og staðfestir hönnuðurinn Valentino Garavani að Anne muni ganga upp að altarinu í Valentino-kjól.

Veitir fólki innblástur með risaverki

"Það þarf að lífga upp á þetta hverfi því þarna er lítið útsýni. Vonandi veitir þessi mynd fólki innblástur,“ segir listakonan Rafaella Brizuela Sigurðardóttir.

Rihanna á strippklúbb

Barbados-bjútíið Rihanna ákvað að skella sér á strippklúbb í vikunni og deildi auðvitað reynslu sinni á Twitter.

Syngur um Eydísi á eitíslegri plötu

„Er ég að syngja til konu sem heitir Eydís eða er söngvarinn bara svona linmæltur og saknar níunda áratugarins? Það er spurningin sem hlustendur verða að velta fyrir sér,“ segir Felix Bergsson um nýtt lag sitt, Eydís, sem hljómað hefur ótt og títt á öldum ljósvakans síðustu daga. Lagið, sem Felix segir að verði meðal annars fáanlegt á Tónlist.is á næstu dögum, er það fyrsta af væntanlegri plötu sem söngvarinn vinnur nú að ásamt Jóni Ólafssyni.

Master of Puppets best

Master of Puppets með Metallica hefur verið kjörin besta þungarokksplata allra tíma af lesendum bandaríska tímaritsins Rolling Stone. Í öðru sæti lenti Paranoid með Black Sabbath, og Sabbath átti einnig plötuna í þriðja sæti sem er samnefnd sveitinni.

Júlíus Kemp kveikir líf í Korteri

„Ég taldi einfaldlega að sagan væri gott efni í kvikmynd,“ segir kvikmyndagerðarmaðurinn Júlíus Kemp. Framleiðslufyrirtæki hans og Ingvars Þórðarsonar, Kvikmyndafélag Íslands, hefur fest kaup á kvikmyndaréttinum að skáldsögunni Korter eftir Sólveigu Jónsdóttur.

Sigurjón digri vígður formlega

Það vantar ekki frumlegheitin og fjörið þegar þeir Simmi og Jói eiga í hlut en þeir vígðu nýjan hamborgara á Hamborgarafabrikkunni, í gær sem ber nafnið Sigurjón digri, og sömuleiðis eina frægustu tertu Íslandssögunnar, Astraltertu, sem aldrei hefur verið bökuð áður. Sigurjón digri og Astraltertan komu fyrir í Stuðmannamyndinni Með allt á hreinu eins og alþjóð veit en myndin er þrjátíu ára um þessar mundir. Eins og sjá má á myndunum mætti hljómsveit allra landsmanna, Stuðmenn, og tóku lagið Sigrujón digra við mikinn fögnuð matargesta Hamborgarafabrikkunnar. Sindri Sindrason mætti á staðinn en vigslan sýnd í Íslandi í dag á Stöð 2 á mánudaginn kemur strax að loknum kvöldfréttum.

Miley Cyrus spreðar í sportbíl

Turtildúfurnar Miley Cyrus og Liam Hemsworth eiga greinilega nægan pening því þær keyptu sér nýverið McLaren-sportbíl á eitthvað yfir tvö hundruð þúsund dollara, tæpar 25 milljónir króna.

Epísk tískuslys á rauða dreglinum

Emmy-verðlaunahátíðin verður haldin hátíðleg á sunnudaginn. Þar keppast stjörnurnar í Hollywood ekki aðeins um verðlaunastyttu heldur líka hver getur borið af á rauða dreglinum.

Auðmjúkur gagnvart verkinu

Þormóður Dagsson og hljómsveit hans Tilbury hafa tekið upp ábreiðu af lagi Nýdanskrar, Á sama tíma að ári. Útgáfa Tilbury hljómar í samnefndri leiksýningu sem verður frumsýnd á næstunni í Borgarleikhúsinu.

Rapparinn Hopsin mætir á sveitta hipphopp-hátíð

"Þessi strákur er á barmi þess að springa út og verða risastór. Hann á rosalega aðdáendahópa alls staðar, líka hér á Íslandi,“ segir umboðsmaðurinn Óli Geir hjá Agent.is um rapparann Hopsin.

Uma snýr aftur

Leikkonan Uma Thurman var svo sannarlega glæsileg í galaveislu í New York á miðvikudagskvöldið en þetta var fyrsta partíið sem hún mætir í síðan hún eignaðist sitt þriðja barn um miðjan júlí.

Tvö líf með árlegan haustfagnað

"Við erum að halda upp á árlegan hautfögnuð eða í áttunda sinn, segir Sigga Lára annar eigandi verslunarinnar Tvö Líf í Holtasmára í Kópavogi sem býður 20% af öllum vörum hjá sér á morgun laugardag. "Það er alltaf mikið stuð og traffík hjá okkur þennan dag. Við bjóðum afsláttinn aðeins þennan eina dag (laugardag). Við fáum hana Kristínu Dögg stílista til liðs við okkur og ætlar hún að veita fría ráðgjöf og hjálpa þeim sem vilja að fullkomna sitt lúkk. Allir sem versla fara í lukkupott og munu fimm heppnir verða dregnir út og fá vörur úr verslun í verðlaun. Þá munum við bjóða upp á léttar veitingar," segir hún. Tvölíf.is

Stjörnubörn með litað hár

Stjörnubörnin í Hollywood fá frjálsar hendur þegar kemur að hárinu og eru þau ansi ung þegar þau lita það í fyrsta sinn.

Lady Gaga er ólétt

Mikið hefur verið slúðrað um Lady Gaga og skyndilega þyngdaraukningu hennar en lafðin er með aðeins meira kjöt á beinunum þessa dagana.

Bæ bæ skinka - halló náttúrulegt útlit

Mónika Kavalaite og Arnar Tómasson hárgreiðslumeistarar á hárgreiðslustofunni Salon Reykjavík eru nýkomin heim frá París þar sem þau sóttu sýningu á vegum heimssamtakanna Haute Coiffure Francaise. Lífið spurði meistarana um nýjustu straumana þegar kemur að hári. "Sýningar á vegum samtakanna eru haldnar tvisvar á ári en við förum alltaf á þær til að taka sumar- og vetrarlínuna inn. Haustlínan í ár ber heitið V.O. en það stendur fyrir Original Version. Það nýjasta í hári er þegar litir eru annars vegar. Þá er það dökkur grunnur sem er lýstur upp með karmellulitum strípum inn á milli. Þannig kemur falleg hreyfing í hárið." segir Arnar. Skoða myndir sem teknar voru á umræddri sýningu hér. "Náttúrulegt útlit og mikil mýkt í litunum eru áherslurnar í ár en ljósu litirnir eins og svokallaður skinku-litur alveg búinn. Nú er fallegur beislitaður tónn ríkjandi undir og fallegar aflitunarstrípur settar í hárið inn á milli. Hárrótin verður þar af leiðandi ekki eins ljós. Lína einkennist líka mikið af bylgjum og hreyfing í dag. Við eigum allt önnur tæki í dag og aðferðirnar eru nútímalegri og efnin að sama skapi. Glamúrinn, elegans og stærra og mýkra hár er inni," segir Arnar. Hjá herrum er gamla útlitið komið til baka ef við tökum sem dæmi hárgreiðslu James Dean og Elvis Presley. Facebooksíða Salon Reykjavik.

Vandaður virðingarvottur

Flestir Íslendingar þekkja söguna af Helliseyjarslysinu, þar sem hinn rúmlega tvítugi Guðlaugur Friðþórsson synti sex kílómetra leið í nístingskulda frá sökkvandi skipi alla leið til Heimaeyjar.

Húllumhæ hjá ´78 á morgun

Samtökin ´78 ætla að byrja vetrarstarf sitt með sannkölluðu Hausthúllumhæi á morgun! Flóamarkaður og gleði að Laugavegi 3, fjórðu hæð. Þá verður Fjölskylduhjálp Íslands með glæsilegan vintage kjólamarkað, allt söluandvirði rennur óskipt til Fjölskylduhjálparinnar.

Sjá næstu 50 fréttir