Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hjálmar án rafmagns Órafmögnuð tónleikaröð hefst í Hvítu perlunni í kvöld þar sem vefsíðan Gogoyoko fær uppáhaldshljómsveitirnar sínar til að setja bestu lög sín í nýjan búning. Tónleikarnir verða festir á filmu og gefnir út á mynddiski fyrir næstu jól. Hljómsveitin Hjálmar, sem gefur út nýja plötu í haust, ríður á vaðið og spilar lögin sín órafmögnuð. Aðeins eitt hundrað miðar verða í boði á tónleikana og fer miðasala fram í versluninni 12 Tónum. 26.5.2011 10:00
Þú ert ómótstæðileg svona ólétt Victoria Beckham, 37 ára, var vægast sagt ómótstæðileg klædd í svartan kjól eftir sjálfa sig, eins og sjá má í myndasfani, síðasta mánudag þegar hún ásamt elsta syni sínum, Brooklyn, fylgdist með þegar Simon Fuller, gaurinn á bak við Idolið, fékk eigin stjörnu á Hollywood Boulevard. Simon hefur verið vinur Beckham hjónanna undanfarin 15 ár en hann er umboðsmaður Victoriu. 26.5.2011 09:30
Paris á endalaust margar töskur Paris Hilton setti tilkynningu á Twitter síðuna sína þess efnist að nú má nálgast töskurnar hennar á netinu. Í meðfylgjandi myndasafni má sjá örlítið brotabrot af persónulegum töskum Parisar. Þá twittaði Paris eftirfarandi: Ég er í skýjunum yfir öllum ástarkveðjunum sem aðdáendur mínir senda mér. Þið skiptið mig svo gríðarlega miklu máli. Ég elska ykkur. Takk. Ástarkveðja Paris. 26.5.2011 09:15
Fitnessdrottning opnar matardagbók Freyja Sigurðardóttir Fitnessdrottning með meiru leyfði okkur að skyggnast örlítið inn í líf sitt með því að skrá niður matardagbókina sína. Hún segir vatnsdrykkju vera gríðarlega mikilvæga sem og góður svefn. Vaknaði 04:45. Græjaði mig í vinnuna, fékk mér heimatilbúið múslí. Það samanstendur af tröllahöfrum, rúsínum, þurrkuðum ávöxtum, hnetum og Hleðslu próteindrykk út á. Tók inn tvær CLA fitusýrur, vítamín og eitt risastórt vatnsglas. Þá brunaði ég Reykjanesbrautina og mætti í Hreyfingu klukkan 6:00 til að þjálfa en ég starfa þar sem einkaþjálfari. Klukkan 7:00 tók ég sjálf æfingu. Fyrir æfinguna fékk ég mér HydroxyCut Hardcore brennslu efni blandað í vatn og tók síðan hrikalega á því. Eftir æfingu fékk ég mér súkkulaði próteindrykk Whay Isolate frá Fitnesssport. Ég elska þennan próteindrykk en bragðið er alveg æðislegt. Klukkan 8:15 hélt ég áfram að þjálfa kroppalingana mína í Hreyfingu. Klukkan 10:00 fékk ég mér eitt epli og vatn. Klukkan 12:00 fékk ég mér NINGS en ég alveg elska heilsuréttina þaðan. Á Nings á ég fjóra uppáhalds rétti en ég mæli hiklaust með þeim fyrir þá sem vilja huga vel að því sem þeir setja ofan í sig. Nr.88 Tröllatrefjar með kjúklingi og grænmeti. Nr.60 Tofukjöt og blandað grænmeti með Satay sósu Nr.65 Steiktar eggjanúðlur með kjúklingi, eggjum og grænmeti Nr.68 Ristaðar hrísgrjónanúðlur með kjúklingi, eggjum og grænmeti. Fyrir valinu í dag var réttur númer 88. Réttirnir frá Nings eru alveg ekta, allt þeirra hráefni er lífrænt. Ég drakk vatn með. Þjálfaði þennan dag til klukkan 15:00. Á heimleiðinni drakk ég eina ískalda karmellu Hleðslu og borðaði einn banana. Hlustaði á Hljóma og Valdimar í botn á leiðinni. Var síðan mætt til Keflavík City klukkan 16:00 en þá voru vaktaskipti á börnunum mínum þremur. Halli, maðurinn minn, fór á æfingu og ég tók við duglegum strákum. Við fórum saman í Nettó að versla í matinn. Jökull Máni elsti strákurinn minn fékk að velja kvöldmat og fyrir valinu varð Fahitas og Taco með fullt af grænmeti. Kvöldmatur klukkan 19:00. Fahitas, grænmeti, Taco sósa, sýrður rjómi 5% og fituminna hakk. Þessi réttur slær alltaf í gegn. Síðan fórum við í smá hjólatúr en fjölskyldan er nýbúin að fjárfesta í hjólum. Drakk alveg fullt af vatni yfir daginn en það er gríðarlega mikilvægt. Svo var ég alveg búin á því klukkan22:00. Svefn er líka mikilvægur og þess vegna reyni ég að hvílast vel því næsta dag vakna ég klukkan 05:20. 26.5.2011 08:15
Gusgus spilar á Bestu hátíðinni Hljómsveitin Gusgus og fjöldi annarra þekktra flytjenda hafa staðfest komu sína á Bestu útihátíðina sem verður haldin á Gaddstaðaflötum við Hellu helgina 8. til 10. júlí. Gusgus gaf nýverið út sjöttu plötu sína, Arabian Horse, og sveitin er þekkt fyrir að spara hvergi til þegar kemur að sviðsframkomu. Sveitin spilar á laugardagskvöldinu, sama kvöld og hljómsveitin Quarashi rís upp frá dauðum. 26.5.2011 08:00
Heimilislegt yfirbragð Bandaríska hljómsveitin Death Cab for Cutie er mætt með sína sjöundu hljóðversplötu. Heimilið er þar í aðalhlutverki. Sjöunda hljóðversplata bandarísku indíhljómsveitarinnar Death Cab for Cutie kemur út í næstu viku. Þrjú ár eru liðin frá útgáfu síðustu plötu, Narrow Stairs, sem fékk fínar viðtökur víðast hvar. 26.5.2011 08:00
Fékk danskt barnabarn Leikarinn Jack Nicholson brosir breitt þessar dagana en dóttir hans, hin danska Honey Hollman, eignaðist son á dögunum og gerði því hinn 74 ára gamla leikara að afa. Nicholson er þekktur fyrir kvensemi sína en hann á fjögur börn með þremur konum og er Holly afrakstur sambands Nicholson við dönsku fyrirsætuna Winnie Hollman árið 1981. Feðginin eru náin og hefur Honey verið með annan fótinn hjá pabba sínum í Hollywood síðan hún var lítil. 26.5.2011 07:00
Berjast við vampírur Spennumyndin Dylan Dog: Dead of Night með Anitu Briem í einu af aðalhlutverkunum var frumsýnd í Laugarásbíói í gær. 26.5.2011 06:00
Stjörnurnar sáu svart á Billboard Þær voru ekki af verri endanum stjörnurnar sem prýddu rauða dregilinn á hinum árlegu Billboard verðlaum sem fór fram í Las Vegas um liðna helgi. 26.5.2011 05:00
Sumarbrúðkaup í vændum Leikstjórinn Sofia Coppola ætlar að ganga að eiga kærasta sinn og barnsföður, rokkarann Thomas Mars, á Suður-Ítalíu í sumar. Ætlunin er að halda rómantíska athöfn við sumarhús Coppola-fjölskyldunnar að viðstöddum nánustu fjölskyldumeðlimum. 26.5.2011 04:00
Þýsk hljómsveit með tónleika Þýska hljómsveitin Die Ukrainiens heldur tvenna tónleika um helgina. Þeir fyrri verða á Faktorý á föstudagskvöld og þeir seinni verða á Vertinum á Hvammstanga á laugardagskvöld. Die Ukrainiens er frá Dresden í Þýskalandi og hefur tónlist hennar verið lýst sem blöndu af Rússadiskói og Balkantónlist. Lög sveitarinnar eru ýmist þekkt þjóð- og popplög frá Rússlandi, Úkraínu og öðrum Austur-Evrópulöndum eða frumsamin lög. Tónleikar Die Ukrainiens þykja kraftmiklir og dansvænir og minna um margt á austur-evrópsk brúðkaup og/eða jarðarfarir. 26.5.2011 03:30
Reynir við Ermarsundið Árni Þór Árnason, framkvæmdastjóri og sjósundkappi, ætlar að verða annar Íslendingurinn sem synt hefur yfir Ermarsund. „Benedikt Hjartarson kláraði þetta sund árið 2008 og ég hef ekki verið látinn vera síðan," segir Árni Þór glettinn. 25.5.2011 22:00
Hannaði mínimalískan heyrnatólamagnara Heyrnartólamagnari, bókaskápur og bakki eru meðal verka Snorra Þórðarsonar Reykdal á vorsýningu Iðnskólans í Hafnarfirði, sem var opnuð á laugardaginn. 25.5.2011 20:00
Nýtt austurrískt leikrit byggt á 10 ráðum eftir Hallgrím Leikrit byggt á síðustu bók Hallgríms Helgasonar, 10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp, verður frumsýnt í Salzburg í Austurríki í haust. Sjaldgæft er að leikrit byggð á bókum íslenskra höfunda séu sett á fjalirnar erlendis. 25.5.2011 19:00
Tískuföt á meðgöngu Hera Guðmundsdóttir, nemandi á öðru ári í fatahönnun við Listaháskóla Íslands, sigraði í samkeppni um meðgöngu- og brjóstagjafafatnað fyrir verslunina Tvö líf. Lína Heru þótti bæði praktísk og flott. 25.5.2011 17:00
105 réttir úr stofu 105 Andrea Guðmundsdóttir og Margrét Þóra Þorláksdóttir úr mötuneyti LHÍ hafa gefið út matreiðslubók. 25.5.2011 16:00
Vill hanga í himninum Áslaug Rán Einarsdóttir og Aníta H. Björnsdóttir fljúga á svifvængjum um allan heim í nafni kvenfrelsis. "Við erum báðar með ódrepandi ferðabakteríu og sáum þarna tækifæri til að sameina tvö áhugamál." 25.5.2011 16:00
Snorri Helga klárar nýja plötu Snorri Helgason, fyrrum liðsmaður Sprengjuhallarinnar, er að ljúka vinnu að annarri breiðskífu sinni. Plötuna vinnur hann með aðstoð Sindra Má Sigfússonar úr Seabear og Sin Fang í hljóðveri hans í Reykjavík. 25.5.2011 15:09
Í spor einhverfra „Ég gerði bók um einhverfu,“ segir Jóhann Leó Linduson, nemi í grafískri hönnun, um útskriftarverkefni sitt. Jóhann Leó stefnir á að útskrifast úr grafískri hönnun nú í vor. Bókin ber heitið Í annarra manna spor og Jóhann segir að tilgangurinn með henni sé að útskýra á einfaldan hátt vandamál tengd einhverfu. 25.5.2011 15:00
Söngvararnir stela senunni Arabian Horse er mjög sterk og sannfærandi Gusgus-plata og mun aðgengilegri og skemmtilegri en sú síðasta. Hún ætti að geta stækkað áheyrendahóp sveitarinnar enn frekar, bæði hér á landi og erlendis. 25.5.2011 14:00
Maria Shriver ræður spæjara Maria Shriver hefur ráðið einkaspæjara til að rannsaka þær fullyrðingar að fyrrverandi eiginmaður hennar, Arnold Schwarzenegger, eigi fleiri en eitt barn utan hjónabands þeirra. Þetta kom fram á fréttasíðunni RadarOnline.com. 25.5.2011 14:00
Hvernig dettur þér í hug að vera svona til fara? Söngkonan Lady Gaga kynnti nýju plötuna sína, Born This Way, í New York með látum í fyrradag. Þá var hún meðal annars mynduð fyrir utan upptökuver sjónvarpsþáttarins The Late Show með David Letterman þar sem hún var gestur. Eins og sjá má í myndasafni var söngkonan léttklædd vægast sagt. 25.5.2011 11:20
Örlög smáblóma í írónískum heimi Skemmtilegasta ljóðabók sem út hefur komið lengi, en um leið hárbeitt og ögrandi samfélagsmynd sem sest að í minninu og vekur óróa. 25.5.2011 11:00
Þessi toppar þá alla (svei mér þá) Jennifer Lopez, 41 ára, var klædd í bláan Zac Posen kjól í gær þegar Simon Fuller, gaurinn á bak við Idolið, fékk eigin Hall of Fame stjörnu sem þykir mikill heiður í skemmtanabransanum. Þá má sjá eiginmann Jennifer, Marc Anthony, og Randy Jackson einn af dómurum American Idol keppninnar í myndasafni. 25.5.2011 09:30
Önnur upprisa Fönixins í kvöld Seinni sýning Ferðalags fönixins verður á Stóra sviði Borgarleikhússins á Listahátíð í Reykjavík í kvöld. Í sýningunni fást Eivör Pálsdóttir söngkona, Reijo Kela nútímadansari og María Ellingsen leikkona hver á sinn hátt við hina táknrænu goðsögu um Fönixinn. 25.5.2011 09:30
Bieber setur konuilmvatn á markað Söngvarinn Justin Bieber setur á markað konuilmvatn, sem ber heitið Someday, eftir 25 daga. Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá auglýsingu ilmvatnsins. Í tilkynningu frá söngvaranum er skýrt tekið fram að Justin lét gera ómótstæðilegan ilm fyrir aðdáendur sína sem eru ófáir um víða veröld. Hann fær ekki nóg af því að lykta af Someday ilminum. 25.5.2011 08:43
Tenórinn í Hörpu með grúppíuhóp Hátt í fjögur hundruð erlendir aðdáendur þýska tenórsins Jonasar Kaufmann voru í Eldborgarsal Hörpunnar þegar hann þandi raddböndin með Sinfóníuhljómsveit Íslands á Listahátíð Reykjavíkur. Margra mánaða og jafnvel ára bið er eftir miðum á tónleika Kaufmanns í Evrópu. 25.5.2011 08:00
Úr tónlist í tískuna Plötuútgefandinn Haraldur Leví Gunnarsson opnaði tískuverslunina Lólu við Laugaveg 55 ásamt kærustu sinni, Eddu Ýr Aspelund, í gær. Verslunin selur notaðan fatnað og er hver flík sérvalin af Haraldi og Eddu. "Við ætluðum okkur að opna verslun síðasta sumar en það varð ekkert úr því þá. Við ákváðum því að kýla á þetta í sumar og höfum nú unnið hörðum höndum að því að koma öllu í stand. Við höfum staðið hér undanfarna daga með pensil í hönd og unnið að því að koma húsnæðinu í almennilegt stand," segir Haraldur Leví sem einnig er eigandi hljómplötuútgáfunnar Record Records og fyrrum trymbill hljómsveitanna Lödu Sport og Lifun. 24.5.2011 22:00
Fimm atriði sem þú vissir ekki um Claudiu Schiffer Claudia Schiffer var ein vinsælasta fyrirsæta tíunda áratugarins og var lengi andlit tískuhússins Chanel. Hún þykir sláandi lík kvikmyndastjörnunni Brigitte Bardot og hefur á ferli sínum prýtt forsíður meira en 500 tímarita. 24.5.2011 21:30
Brjálaðir tónleikagestir Algerlega frábær skemmtun með stórkostlegum listamanni. Áheyrendur gengu gersamlega af göflunum! Kaufmann var klappaður upp hvað eftir annað, og söng hvorki meira né minna en fjögur aukalög. Þetta voru ótrúlegir tónleikar. Ljóst er að tónlistarlífið í Hörpu byrjar vel. 24.5.2011 21:00
Gulur, rauður, grænn og blár Dökkir litir hafa verið ríkjandi í snyrtivörum í vetur en nú taka bjartari tímar við. Pastellitir, appelsínugulir tónar og fallegir fjólubláir litir munu leysa af dökka varaliti og svört naglökk. 24.5.2011 20:30
Mikið rétt fallega fólkið sigraði Hugmynd okkar sem komum að keppninni Goð og Gyðjur var að finna einstaklinga sem hafa sterka sjálfsvirðingu og hafa ákveðið að fara vel með anda sinn, sál og líkama, sagði Ósk Norðfjörð spurð út í keppnina sem hún hélt síðustu helgi. Sigurvegararnir Björn M. Sveinbjörnsson, 33 ára, lögreglumaður og Íris María Bjarkardóttir, 23 ára, nemi voru leyst út með gjöfum. Ljósmyndarinn Sveinbi hjá Superman.is tók flestar myndirnar í meðfylgjandi myndasafni. 24.5.2011 18:06
Sigraði fatahönnunarkeppni fyrir barnshafandi konur Meðfylgjandi myndir voru teknar í versluninni Tvö Líf þegar úrslitin í samvinnuverkefni milli fatahönnunarnema Listaháskóla Íslands og verslunarinnar Tvö líf, sem selur fatnað fyrir konur á meðgöngu, voru kynnt. Hera Guðmundsdóttir nemandi á öðru ári í fatahönnun sigraði en hún ásamt fleiri nemenda tóku þátt í námskeiði undir leiðsögn Lindu Bjargar, fagstjóra fatahönnunarbrautar, þar sem markmiðið var að hanna fatalínu fyrir Tvö líf. Hver nemandi hannaði tíu alklæðnaði fyrir barnshafandi konur. Tvö Líf á Facebook. 24.5.2011 15:26
Hryllingurinn ögrar og ógnar Við sáum skrímsli er vel formuð sýning en hnökrar í útfærslu og úrvinnslu koma í veg fyrir að hún uppfylli möguleika sína. Frammistaða flytjendanna var fín. Lovísa Ósk Gunnarsdóttir og Sigríður Soffía Níelsdóttir voru ekki áberandi en fylltu samt mjög vel upp í sviðið þegar þær dönsuðu. Ásgeir Helgi Magnússon fékk bæði að láta ljós sitt skína í dansi og atriðum sem kröfðust meiri leikrænnar tjáningar. Dúettinn hans við ljáinn var áhrifamikill sem og atriðið með höndunum. Valdimar Jóhannsson sem þreytti frumraun sýna sem dansari í dansverki skilaði sínu með prýði enda var hlutverkið hans vel sniðið að getu hans. Hann notaði röddina skemmtilega og tónlistin sem var hans hugarfóstur passaði vel við stemmingu dansverksins hverju sinni. 24.5.2011 15:00
Brilljant hönnun skemmtilegra hluta Í meðfylgjandi myndasafni má finna myndir af hlutum þar sem ýmsir ungir hönnuðir hafa skemmtanagildið að leiðarljósi við hönnun hluta með hversdagleg notagildi. Það er skemmtilegt að krydda upp á tilveruna með fallegum hlutum og á það ekki síst við þegar hugmyndin á bak við hlutinn er jafn brilljant og margar af þeim sem sjá má í þessu skemmtilega myndasafni. 24.5.2011 14:49
Íslensk list í skýjunum Meðfylgjandi myndskeið var tekið þegar Iceland Express í samvinnu við listahópinn VIÐVERA setti formlega í gang sameiginlegt verkefni sem snýr að kynningu á íslenskum listamönnum og verkum þeirra um borð í vélum Iceland Express. Verkefnið kallast Listagallerí háloftanna og er listasýningin sem sýnd er um borð er í formi póstkortabókar sem seld er í vélum Iceland Express og í verslunum Eymundsson á jörðu niðri. Þá má einnig sjá myndir af starfsfólki Iceland Express fagna verkefninu. 24.5.2011 11:33
Ertu ekkert leið á sjúskaða lúkkinu stelpa? Á milli þess sem Lindsay Lohan, 24 ára, vinnur í þágu samfélagsins í Los Angeles eftir að hún var dæmd fyrir að rjúfa skilorð þegar skartgripasali sakaði hana um að stela hálsmeni frá sér, situr hún fyrir. Eins og sjá má í myndasafni pósaði Lindsay í húðlituðum sundbol fyrir Plum Miamai tímaritið í gær. 24.5.2011 11:04
Hvað er í gangi hérna (og hvað með grímuna)? Í meðfylgjandi myndskeiði og myndasafni má sjá söngkonurnar Rihönnu og Britney Spears dansa upp við súlur ögrandi klæddar vægast sagt þegar þær fluttu saman lag Rihönnu, S&M, á Billboard hátíðinni síðastliðið sunnudagskvöld. Þá mætti Britney með svarta grímu með kanínueyrum eins og sjá má. 24.5.2011 10:20
Kvikmyndin Reykjavik - Stór mynd með stórum stjörnum „Við erum búinn að vera að vinna í þessu verkefni mjög lengi og höfum sinnt mikilli rannsóknarvinnu. Við höfum rætt við fólk sem kom að þessum fundi, bæði á Íslandi, í Bandaríkjunum og Rússlandi,“ segir Stewart MacKinnon, einn af aðalframleiðendum kvikmyndarinnar Reykjavik. 24.5.2011 10:00
Fallegir opnunartónleikar Skúli Sverrisson og Ólöf Arnalds fylltu Norðurljósasal Hörpunnar af fallegum tónum á vel heppnuðum tónleikum. Dagskráin samanstóð af lögum þeirra beggja, aðallega af plötum Skúla, Sería og Sería II og Ólafar, Við og við og Innundir skinni. Tónleikarnir hófust á lögunum Spontanious Kindness og Sería eftir Skúla og svo komu Englar og dárar og Klara eftir Ólöfu og þannig hélt dagskráin áfram út tónleikana, lögin þeirra til skiptis. 24.5.2011 10:00
Sumir líta fáránlega vel út (42 ára) Ástralska söngkonan Kylie Minogue, 42 ára, var klædd í svartan Alexander McQueen kjól og Alexander McQueen hælaskó á rauða dreglinum síðustu helgi. Eins og myndirnar sýna var Kylie vægast sagt glæsileg. 24.5.2011 09:25
Myndaveisla frá Hlustendaverðlaunum FM957 Meðfylgjandi myndir tók Sveinbi hjá Superman.is á Hlustendaverðlaunum FM 957 sem fram fóru í Hörpu og á skemmtistaðnum Nasa en þar hélt útvarpsstöðin partý eftir hátíðina. 24.5.2011 08:41
Miklar matarkröfur Eagles Matarkröfur Eagles fyrir tónleikaferð sína Long Road Out Of Eden eru gríðarlegar samkvæmt lista sem Fréttablaðið komst yfir. Búast má við að íslenskir tónleikahaldarar þurfi að uppfylla einhverjar af þessum kröfum þótt þeir geti eflaust ekki reddað Starbucks-kaffi eins og beðið er sérstaklega um. Ísleifur B. Þórhallsson, sem stendur fyrir tónleikum Eagles, sagðist ekkert vilja tjá sig um kröfur Eagles, þær væru trúnaðarmál. Matarkröfurnar eru jafn strangar og þær eru margar. Mikilvægt er að maturinn sé heilsusamlegur þar sem fólk í föruneyti Eagles er að reyna að hugsa um heilsuna, eins og kemur fram á kröfulistanum á netinu. Öll búningsherbergi verða að vera full af ferskum ávöxtum og grænmeti ásamt nýbökuðu brauði. Mikilvægt er að harðsoðin egg sem verða í boði séu köld, með sprungulausri skurn. Þá verða vínber að vera svo fersk, að þegar þau eru hrist slitna þau ekki úr klasanum. 24.5.2011 08:00
Listahátíð sett í Hörpunni Listahátíð í Reykjavík var sett í anddyri Hörpunnar síðastliðinn föstudag. Ólöf Arnalds, Högni Egilsson og karlakórinn Fóstbræður voru á meðal þeirra sem komu fram. 24.5.2011 07:00
Fékk tíu fyrir barnalínu Herdís Björk Þórðardóttir útskrifaðist með einkunnina 10 í grafískri hönnun við Myndlistaskólann á Akureyri síðastliðinn þriðjudag. Hún hannaði vörulínu fyrir börn sem nefnist Bimbi. 23.5.2011 20:30