Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Allen gerir Barcelona að Manhattan Bandaríski leikstjórinn Woody Allen er byrjaður að sópa til sín leikurum fyrir sína næstu mynd. Meðal þeirra sem þegar hafa verið ráðnir eru Javier Bardem og Penelope Cruz og nýlega bættist Patricia Clarkson í hópinn. Fyrir þessari þrenningu fer síðan auðvitað Scarlett Johansson sem Allen virðist vera hugfangin af. 5.7.2007 02:30
„..frá því ég gat haldið á skærum“ Borin verða upp þau nýmæli í versluninni og menningarsetrinu 12 Tónum á næstu vikum að þar verður uppi myndlistarsýning: Það er listakonan Sigríður Níelsdóttir sem sýnir þar klippimyndir. 5.7.2007 02:30
Brad leikur Bullitt Brad Pitt mun leika aðalhlutverk í endurgerð á myndinni Bullitt frá árinu 1968. Pitt mun fara með hlutverk Franks Bullitt sem leikarinn Steve McQueen gerði ódauðlegan í myndinni. „Brad á margt sameiginlegt með McQueen. Hann elskar mótorhjól og er mikið fyrir hraðskreiða bíla. Þetta var því draumahlutverk fyrir hann,“ sagði heimildarmaður. 5.7.2007 02:15
Kira Kira í kvöld í Iðnó Tónlistarkonan Kira Kira eða Kristín Björk Kristjánsdóttir heldur tónleika í kvöld af því tilefni að hún hefur nú lokið upptökum á nýju safni tónsmíða sem væntanlegar eru á markað síðla árs eða í ársbyrjun 2008. Með henni á sviði gamla Iðnaðarmannahússins verða Seabear og Hudson Wayne. Herlegheitin hefjast upp úr tíu að kvöldi og verður vonandi friður fyrir lendingum einkaþotna yfir Tjörninni þessa kvöldstund. 5.7.2007 02:00
Paris og Lindsay Lohan á góðu róli Hótelerfinginn Paris Hilton er alveg blússandi hamingjusöm þessa dagana enda nýsloppin úr fangelsi. Fjölmiðlafárið í kringum hana hefur verið rosalegt og 3,2 milljónir áhorfenda fylgdust með viðtali hennar við Larry King. Gaman er að geta þess að kappræður repúblikana fengu minna áhorf. 5.7.2007 01:45
Hádegistónleikar í Ketilhúsinu Nú stendur yfir Listasumar á Akureyri og er margt um dýrðir í bænum. Í hádeginu í á morgun verða tónleikar í Ketilshúsinu: það eru ungir listamenn sem stíga þar fram og flytja blandaða dagskrá þekktra sönglaga við undirleik Antoníu Havesi píanóleikara: Hlöðver Sigurðsson tenór og Þórunn Marinósdóttir sópran. Hefjast tónleikarnir kl. 12. 5.7.2007 01:30
Velkomin aftur Einmitt þegar ég hélt að White Stripes væru búin að „missa það“ snúa þau tvíefld til baka og stinga puttanum beint framan í okkur efasemdamennina. En hvað átti maður annars að halda? Get Behind Me Satan var nær sálarlaus með öllu og virkaði líkt og herra Jack White væri eingöngu að þessu peninganna vegna. Ekki skánaði dæmið þegar The Raconteurs birtist í fyrra. 5.7.2007 01:00
Dagurinn sem þú hittir Guð Kvikmyndin Evan Almighty var frumsýnd í gær en hún er sjálfstætt framhald Bruce Almighty sem sló í gegn fyrir fjórum árum. Þá fékk Jim Carrey að vera Guð en að þessu sinni er það Steve Carell sem fær skemmtilegt hlutverk hjá almættinu. 5.7.2007 00:01
Einhentur listamaður Catherine Ness opnaði einkasýningu í Gallerí Tukt síðasta laugardag en þetta er fyrsta einkasýningin hennar hér á landi. Catherine er ansi sérstæð listakona að því leyti að hún málar og prjónar muni þrátt fyrir að vera með aðeins eina hönd. 4.7.2007 20:54
Díana prinsessa fyrirmynd Angelinu Jolie Angelina Jolie segir að Díana heitin Bretaprinsessa sé fyrirmynd hennar í góðgerðarstarfi sínu. Leikkonan gerðist ötull talsmaður mannréttinda eftir að hún lék í kvikmynd í Kambódíu árið 2001. Hún sagðist í viðtali við Contacmusic að hún vonist til að geta líkt og prinsessan, lagt sitt af mörkum til að gera heiminn að betri stað. 4.7.2007 17:13
Al Gore yngri tekinn á ofsahraða með fíkniefni Al Gore III, sonur Als Gore fyrrverandi varaforseta bandaríkjanna, var handtekinn í dag, grunaður um vörslu fíkniefna. Hinn 24 ára Gore var stöðvaður þar sem hann keyrði Prius-bíl sinn á 160 kílómetra hraða eftir hraðbraut í Kaliforníu. 4.7.2007 16:49
Pete Doherty finnst hann ofsóttur af Kate Moss Pete Doherty hætti með Kate Moss en ekki öfugt. Doherty er nefnilega orðinn svo þreyttur á því að ofurfyrirsætan ofsæki sig. Parið lenti í alvarlegum rifrildum eftir að orðrómur komst á kreik um það að Babyshambles söngvarinn hefði haldið framhjá Moss með suður-afrískri fyrisætu. Í einu rifrildanna á Doherty að hafa líkt sambandinu við að búa með geðsjúkum aðdáanda. 4.7.2007 15:25
Nicole Richie ólétt Nicole Richie er ólétt. Að minnsta kosti telja TMZ.com og In Touch Weekly sig hafa staðfest það. ,,Nicole vildi ekki segja neinum frá því fyrr en hún væri komin lengra en þrjá mánuði á leið" sagði vinur stjörnunnar við In Touch ,,Henni tókst að halda þessu leyndu fyrir öllum" 4.7.2007 10:32
Magni syngur bandaríska þjóðsönginn „Ég spurði hvort ég mætti taka Hendrix-útgáfuna. Það var ekki tekið neitt sérstaklega vel í það,“ segir söngvarinn Magni Ásgeirsson, en hann mun syngja bandaríska þjóðsönginn í einkasamkvæmi á vegum ameríska sendiráðsins í dag í tilefni af þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna. 4.7.2007 10:15
Johnny Knoxville sækir um skilnað Jackass stjarnan Johnny Knoxville, sem réttu nafni heitir P.J. Clapp, hefur sótt um skilnað frá eiginkonu sinni til tólf ára. Í skilnaðarpappírunum sem voru lagðir fram í rétti í Los Angeles í dag er ósættanlegum ágreiningi lýst sem ástæðu skilnaðarins. 4.7.2007 10:07
Geri grátbað um fyrirgefningu Geri Halliwell grátbað Victoriu Beckham um fyrirgefningu vegna þess hvernig hún yfirgaf hinar Kryddpíurnar á sínum tíma, sem síðar átti eftir að leiða til upplausnar stúlknasveitarinnar í heild sinni. Afsökunarbeiðnin kom fyrst frá Geri árið 2004 en það var ekki fyrr en nú sem Victoria ákvað að samþykkja hana. Þessar sögulegu sættir urðu til þess að Kryddpíurnar hafa komið saman að nýju. Þessu er haldið fram í enska götublaðinu The Sun í gær. 4.7.2007 10:00
Gerir pitsurnar sjálfur Níu leikarar útskrifuðust frá Listaháskóla Íslands fyrir skemmstu og er ábyggilega ekki langt að bíða þar til andlit þeirra verða Íslendingum að góðu kunn. Á næstu dögum munu þessir nýjustu leikarar landsins sitja fyrir svörum hjá Fréttablaðinu, hver í sínu lagi. Í dag er það Bjarni Snæbjörnsson sem situr fyrir svörum. 4.7.2007 09:45
Ólafur flýgur yfir sveitina á 150 milljóna króna þyrlu Ólafur Ólafsson í Samskipum ferðast ekki um á hefðbundnu farartæki þessa dagana, en um er að ræða stóra og mikla þyrlu af gerðinni Eurocopter AS 350 B3. 4.7.2007 09:45
Horfinn dagur kominn út Minningarútgáfa með tónsmíðum Árna Björnssonar tónskálds er komin út á tveimur diskum sem geyma úrval tónsmíða hans: kammerverk, kór- og einsöngslög, auk þriggja dægurlaga sem hann samdi. Útgáfan er helguð minningum þeirra hjóna, Árna og Helgu konu hans. Er nú loks fáanlegt yfirlit um höfundarverk þessa virta tónlistarmanns sem hrifinn var frá verki á miðjum aldri. 4.7.2007 09:15
Verslun Apu slær í gegn Markaðssetning Simpsons-kvikmyndarinnar er komin á fullt skrið í Bandaríkjunum og er óhætt að fullyrða að framleiðendur og markaðsmenn fari óhefðbundnar leiðir í þeim efnum. 4.7.2007 09:00
Innipúkinn á nýjum tónleikastað „Planið er að hafa þetta minna í sniðum en síðustu ár. Ná kósí stemningu og hafa það huggulegt frekar en að hafa þetta eitthvert stórt festival,“ segir Björn Borko Kristjánsson, einn skipuleggjenda tónlistarhátíðarinnar Innipúkans, sem verður haldin í Reykjavík um verslunarmannahelgina. 4.7.2007 09:00
Ólafur sagður sænskur Íslendingar lenda stundum í því að nöfnum þeirra sé snúið á hvolf og farið er með rangt þjóðerni þeirra. Ólafur Jóhannesson er nýjasta fórnarlambið. 4.7.2007 08:30
Sumartónleikar tvítugir Á þessu sumri eru tuttugu ár liðin síðan Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari hratt Sumartónleikum á Mývatni af stað. Þessi menningarauki fyrir heimamenn og gesti hefur árlega glætt sumarnóttina tónabirtu þó atriðin hafi mörg verið flutt af fáum en vel sótt. 4.7.2007 07:30
Sverrir Bergman í fótspor Oasis „Ég reikna með að fara þarna út í ágúst,“ segir tónlistarmaðurinn Sverrir Bergman en hann hyggst halda í upptökuverið Sawmills og taka upp sólóplötu. Sverrir reiknaði fastlega með því að platan myndi taka þátt í hinu árlega jólaplötuflóði. 4.7.2007 07:15
Skemmtileg og einföld íþrótt fyrir almenning Frisbígolf, folf, er fyrirbæri sem fer ekki mikið fyrir á Íslandi þótt það sé bráðskemmtileg íþrótt sem allir ættu að geta stundað. 4.7.2007 07:00
Silikonbrjóst í skiptum fyrir dónamyndir Vefsíða sætir gagnrýni fyrir að notfæra sér neyð kvenna. Bresk heilbrigðisyfirvöld hafa fordæmt vefsíðu sem hvetur konur til að safna peningum fyrir brjóstastækkunaraðgerð í skiptum fyrir eggjandi myndir, spjall við karla á rásum, gjafir og aðra þjónustu. 4.7.2007 06:30
Náttúruvernd á Nasa Styrktartónleikar náttúruverndarsamtakanna Saving Iceland fóru fram við góðar undirtektir á Nasa á mánudagskvöld. Fjöldi manns var þar samankominn til að styðja málstaðinn og hlýða á nokkra af helstu tónlistarmönnum þjóðarinnar. 4.7.2007 06:00
Göngum saman í New York og Reykjavík Hópur íslenskra kvenna gengur 63 km í New York til styrktar rannsóknum og meðferð við brjóstakrabbameini. 4.7.2007 05:00
Notar bara einkavélar Rapparinn og upptökustjórinn Timbaland neitar með öllu að fljúga með almennum flugfélögum þar sem hann óttast sýkla og kvefpestir sem almúgurinn kann að bera. Timbaland ferðast aðeins um í einkaþotum og helst með eins fáum samfarþegum og mögulegt er. 4.7.2007 04:00
Sökk eða stökk Hópur listamanna leggur alþjóðlegri ráðstefnu lið sem haldin verður hér um komandi helgi með því að gefa verk eftir sig. Verða verkin boðin upp á uppboði á fimmtudag en þau verða til sýnis í Startart á Laugavegi 12b í dag og á morgun á afgreiðslutíma verslana. Klukkutíma fyrir uppboðið, sem verður kl. 17 á fimmtudag, kynna listamennirnir verkin áhugasömum. 4.7.2007 03:45
Oliver Stone satanískur að sögn Ahmadinejad Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans hefur afþakkað boð leikstjórans Oliver Stone um að gera heimildarmynd um hann, á þeim forsendum að Stone sé hluti af satanísku menningarveldi. 3.7.2007 16:38
Endurnýja ekki samning við Kate Moss Aumingja Kate Moss. Fyrst heldur Pete Doherty framhjá henni með annari fyrirsætu, og núna eru nærfataframleiðendurnir Agent Provocateur að dömpa henni fyrir fimmtán árum yngri brúnettu. 3.7.2007 14:33
Ruslið hennar Parisar Hilton rokselst Tóm dós undan hundamat sem tekin var úr ruslatunnu Parisar Hilton seldist á tæpar nítján þúsund krónur á uppboðsvefnum Ebay. Sölumennirnir, sem voru frá vefsíðunni HollywoodStarTrash.com, voru með ýmsa aðra muni til sölu. 3.7.2007 12:36
Mýrin fær góðar viðtökur erlendra gagnrýnenda Mýrin var frumsýnd á erlendum vettvangi á sunnudagskvöldið þegar hún var sýnd fyrir troðfullu húsi í 1200 manna sal á kvikmyndahátíðinni í Karlovy Vary í Tékklandi. 3.7.2007 11:25
Lögreglan fylgist með klámframleiðslu „Ég stefni á að byrja á miðvikudag. Við ætlum að vera í bílskúr hjá félaga mínum og nýta hann sem sviðsmynd," segir Sigurður Valdimar Steinþórsson, eigandi vefsíðunnar klam.is, hann hyggst hefja framleiðslu á íslensku netklámi. 3.7.2007 10:00
Dívustælar Hermione Harry Potter stjarnan Emma Watson er víst örlítil díva í sér. Hin sextán ára gamla leikkona sem fer með hlutverk Hermione er dugleg við að kvarta undan álagi og þrætir við framleiðendurna. 3.7.2007 09:30
Sprengjuhótun í Moskvu „Það fór aðeins um okkur,“ segir Birgir Þórarinsson liðsmaður Gus Gus, en sveitin varð fyrir heldur óskemmtilegri lífsreynslu í Moskvu um helgina. Hljómsveitin átti að spila í vöruskemmu frammi fyrir sex þúsund manns þegar ljósin í húsinu voru kveikt og rödd bað alla gesti um að fara út. Hafði þá tónleikahöldurum borist sprengjuhótun en ekki er ljóst frá hverjum hún var. 3.7.2007 09:15
Gögn um listir á Artprice Veffyrirtækið Artprice og hagsmunasamtök myndréttarhafa ADAGP hafa gengið frá samkomulagi sín á milli um gjald fyrir birtingu mynda af listaverkum á vefsíðu Artprice. Artprice heldur úti vefsíðum á fimm tungumálum þar sem myndlist gengur kaupum og sölum. 3.7.2007 09:00
Mýrin í nýju ljósi Tékkneska kvikmyndahátíðin í Karlovy Vary stendur nú sem hæst og eru Íslendingar áberandi þetta árið. Kvikmyndin Mýrin eftir Baltasar Kormák keppir um aðalverðlaun hátíðarinnar. 3.7.2007 08:45
Kate Moss hætt með Pete Doherty Kate Moss er flúin til Parísar eftir að hafa fengið fréttir af meintu framhjáhaldi Pete Doherty. Hin þrjátíu og þriggja ára gamla Kate er miður sín en Pete hélt víst framhjá henni með suður-afrískri fyrirsætu að nafni Lindy. Kate náði ekki í Pete í marga daga eftir að hann fór á fyllirí og sást hann kela og knúsast með hinni dökkhærðu Lindy. 3.7.2007 08:30
Getur síst verið án gormabókarinnar Níu leikarar útskrifuðust frá Listaháskóla Íslands fyrir skemmstu. Á næstu dögum munu þessir nýjustu leikarar landsins sitja fyrir svörum hjá Fréttablaðinu, hver í sínu lagi. 3.7.2007 07:00
Tískugúrúinn Ási í útrás Fatahönnuðurinn og stílistinn Ásgrímur Már Friðriksson, sem hefur meðal annars getið sér góðs orðs hér á landi fyrir sköpunarverk sín fyrir Silvíu Nótt, er lagstur í útrás og fluttur til Danmerkur. 3.7.2007 06:45
Glaðir og fjörugir hálfvitar Gleðisveitin Ljótu hálfvitarnir gerði allt brjálað í Borgarleikhúsinu á föstudaginn þegar sveitin hélt útgáfutónleika en hún gaf nýlega út disk sem ber nafn sveitarinnar. 3.7.2007 06:30
Rokk og ról hjá Cartier í París Cartier-snyrtifyrirtækið rekur stórt safn í Paris á Boulevard Raspail. Húsið er hannað af Jean Nouvel arkitekt, þeim sem datt út í lokaumferð keppninnar um Tónlistarhúsið í Reykjavík. 3.7.2007 06:00
Útgáfu Rafskinnu fagnað DVD-Sjónritið Rafskinna kom út í fyrsta sinn nú á laugardaginn. Rafskinna er sambland af hefðbundnu pappírstímariti og alls konar efni á DVD-diski, myndböndum, viðtölum og öðru. 3.7.2007 06:00