Fleiri fréttir

Ólafur sagður sænskur

Íslendingar lenda stundum í því að nöfnum þeirra sé snúið á hvolf og farið er með rangt þjóðerni þeirra. Ólafur Jóhannesson er nýjasta fórnarlambið.

Sumartónleikar tvítugir

Á þessu sumri eru tuttugu ár liðin síðan Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari hratt Sumartónleikum á Mývatni af stað. Þessi menningarauki fyrir heimamenn og gesti hefur árlega glætt sumarnóttina tónabirtu þó atriðin hafi mörg verið flutt af fáum en vel sótt.

Sverrir Bergman í fótspor Oasis

„Ég reikna með að fara þarna út í ágúst,“ segir tónlistarmaðurinn Sverrir Bergman en hann hyggst halda í upptökuverið Sawmills og taka upp sólóplötu. Sverrir reiknaði fastlega með því að platan myndi taka þátt í hinu árlega jólaplötuflóði.

Silikonbrjóst í skiptum fyrir dónamyndir

Vefsíða sætir gagnrýni fyrir að notfæra sér neyð kvenna. Bresk heilbrigðisyfirvöld hafa fordæmt vefsíðu sem hvetur konur til að safna peningum fyrir brjóstastækkunaraðgerð í skiptum fyrir eggjandi myndir, spjall við karla á rásum, gjafir og aðra þjónustu.

Náttúruvernd á Nasa

Styrktartónleikar náttúruverndarsamtakanna Sav­ing Iceland fóru fram við góðar undirtektir á Nasa á mánudagskvöld. Fjöldi manns var þar samankominn til að styðja málstaðinn og hlýða á nokkra af helstu tónlistarmönnum þjóðarinnar.

Notar bara einkavélar

Rapparinn og upptökustjórinn Timbaland neitar með öllu að fljúga með almennum flugfélögum þar sem hann óttast sýkla og kvefpestir sem almúgurinn kann að bera. Timbaland ferðast aðeins um í einkaþotum og helst með eins fáum samfarþegum og mögulegt er.

Sökk eða stökk

Hópur listamanna leggur alþjóðlegri ráðstefnu lið sem haldin verður hér um komandi helgi með því að gefa verk eftir sig. Verða verkin boðin upp á uppboði á fimmtudag en þau verða til sýnis í Startart á Laugavegi 12b í dag og á morgun á afgreiðslutíma verslana. Klukkutíma fyrir uppboðið, sem verður kl. 17 á fimmtudag, kynna listamennirnir verkin áhugasömum.

Oliver Stone satanískur að sögn Ahmadinejad

Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans hefur afþakkað boð leikstjórans Oliver Stone um að gera heimildarmynd um hann, á þeim forsendum að Stone sé hluti af satanísku menningarveldi.

Endurnýja ekki samning við Kate Moss

Aumingja Kate Moss. Fyrst heldur Pete Doherty framhjá henni með annari fyrirsætu, og núna eru nærfataframleiðendurnir Agent Provocateur að dömpa henni fyrir fimmtán árum yngri brúnettu.

Ruslið hennar Parisar Hilton rokselst

Tóm dós undan hundamat sem tekin var úr ruslatunnu Parisar Hilton seldist á tæpar nítján þúsund krónur á uppboðsvefnum Ebay. Sölumennirnir, sem voru frá vefsíðunni HollywoodStarTrash.com, voru með ýmsa aðra muni til sölu.

Lögreglan fylgist með klámframleiðslu

„Ég stefni á að byrja á miðvikudag. Við ætlum að vera í bílskúr hjá félaga mínum og nýta hann sem sviðsmynd," segir Sigurður Valdimar Steinþórsson, eigandi vefsíðunnar klam.is, hann hyggst hefja framleiðslu á íslensku netklámi.

Dívustælar Hermione

Harry Potter stjarnan Emma Watson er víst örlítil díva í sér. Hin sextán ára gamla leikkona sem fer með hlutverk Hermione er dugleg við að kvarta undan álagi og þrætir við framleiðendurna.

Sprengjuhótun í Moskvu

„Það fór aðeins um okkur,“ segir Birgir Þórarinsson liðsmaður Gus Gus, en sveitin varð fyrir heldur óskemmtilegri lífsreynslu í Moskvu um helgina. Hljómsveitin átti að spila í vöruskemmu frammi fyrir sex þúsund manns þegar ljósin í húsinu voru kveikt og rödd bað alla gesti um að fara út. Hafði þá tónleikahöldurum borist sprengjuhótun en ekki er ljóst frá hverjum hún var.

Gögn um listir á Artprice

Veffyrirtækið Artprice og hagsmunasamtök myndréttarhafa ADAGP hafa gengið frá samkomulagi sín á milli um gjald fyrir birtingu mynda af listaverkum á vefsíðu Artprice. Artprice heldur úti vefsíðum á fimm tungumálum þar sem myndlist gengur kaupum og sölum.

Mýrin í nýju ljósi

Tékkneska kvikmyndahátíðin í Karlovy Vary stendur nú sem hæst og eru Íslendingar áberandi þetta árið. Kvikmyndin Mýrin eftir Baltasar Kormák keppir um aðalverðlaun hátíðarinnar.

Kate Moss hætt með Pete Doherty

Kate Moss er flúin til Parísar eftir að hafa fengið fréttir af meintu framhjáhaldi Pete Doherty. Hin þrjátíu og þriggja ára gamla Kate er miður sín en Pete hélt víst framhjá henni með suður-afrískri fyrirsætu að nafni Lindy. Kate náði ekki í Pete í marga daga eftir að hann fór á fyllirí og sást hann kela og knúsast með hinni dökkhærðu Lindy.

Getur síst verið án gormabókarinnar

Níu leikarar útskrifuðust frá Listaháskóla Íslands fyrir skemmstu. Á næstu dögum munu þessir nýjustu leikarar landsins sitja fyrir svörum hjá Fréttablaðinu, hver í sínu lagi.

Tískugúrúinn Ási í útrás

Fatahönnuðurinn og stílistinn Ásgrímur Már Friðriksson, sem hefur meðal annars getið sér góðs orðs hér á landi fyrir sköpunarverk sín fyrir Silvíu Nótt, er lagstur í útrás og fluttur til Danmerkur.

Glaðir og fjörugir hálfvitar

Gleðisveitin Ljótu hálfvitarnir gerði allt brjálað í Borgarleikhúsinu á föstudaginn þegar sveitin hélt útgáfutónleika en hún gaf nýlega út disk sem ber nafn sveitarinnar.

Rokk og ról hjá Cartier í París

Cartier-snyrtifyrirtækið rekur stórt safn í Paris á Boulevard Raspail. Húsið er hannað af Jean Nouvel arkitekt, þeim sem datt út í lokaumferð keppninnar um Tónlistarhúsið í Reykjavík.

Útgáfu Rafskinnu fagnað

DVD-Sjónritið Rafskinna kom út í fyrsta sinn nú á laugardaginn. Rafskinna er sambland af hefðbundnu pappírstímariti og alls konar efni á DVD-diski, myndböndum, viðtölum og öðru.

Sigurjónssýning í Friðriksborgarhöll

Mannamyndir Sigurjóns Ólafssonar verða efni í sýningu haustið 2008 á Nationalhistorisk Museum á Friðriksborgarsloti. Hingað komu í liðinni viku þrír sérfræðingar á vegum safnsins í Hilleröd til að velja verkin í samráði við Birgitte Spur, forstöðukonu Sigurjónssafns í Laugarnesi og ekkju Sigurjóns.

Vinnumiðlunin Future Future

„Ég held að það sé hinn óþrjótandi brunnur sköpunar hljómsveitarmeðlima Future Future sem veldur þessu," segir Siggi Oddsson, söngvari Future Future.

Wii selst betur en PS3

Nintendo Wii leikjatölvan hefur selst betur en keppinauturinn PlayStation 3 í Japan. Japanskt útgáfufélag segir að sex Wii tölvur hafi selst jafn hratt og ein PS3 tölva í júní.

Kynþokkafyllstu grænmetisæturnar fundnar

Idolstjarnan Carrie Underwood var kosin kynþokkafyllsta grænmetisætan í kosningu dýraverndunarsamtakanna PETA. Hún hefur ekki borðað kjöt síðan hún var 13 ára gömul, eða í meira en 11 ár.

Heidi Fleiss opnar þvottahús og kyntröllabúgarð

Athafnakonan Heidi Fleiss, sem þekktust er fyrir rekstur sinn á kynlífsþjónustu í Hollywood, hyggst nú hasla sér völl í nýjum geira. Hórumamman fyrrverandi er að opna sjálfsala-þvottahús í Pahrump nálægt Las Vegas, á meðan hún vinnur að uppbyggingu á nýju hórkarlahúsi.

Hefði ekki fengið hlutverk í Latabæjarsýningunni sjálfur

„Þetta var ótrúlega ánægjulegt og eiginlega bara algjör snilld,“ segir Magnús Scheving en hann var viðstaddur áheyrnarprufur á miðvikudag fyrir Latabæjar-leiksýningu sem setja á upp í London í febrúar á næsta ári.

Sjónvarp dauðans

Þess berast nú fregnir að Þjóðverjar hyggist á haustdögum setja á stofn sérstaka sjónvarpsrás sem helguð verður dauðanum. Vefrit Deutsche Welle greinir frá því að samband þýskra útfararstjóra standi að baki stöðinni sem mun sjónvarpa efni allan sólarhringinn en þar verði meðal annars fjallað um sorgarferli, útfararsiði, reglugerðir og annað tilstand er fylgir þessu óumflýjanlega hlutskipti.

Tónleikar Stones í Belgrad færðir vegna hrossa

Fyrirhugaðir risatónleikar Rolling Stones í Belgrad í Serbíu hafa verið færðir vegna mikilla mótmæla dýraverndunarsinna um þau slæmu áhrif sem tónlistin gæti haft á hross í nágrenninu.

Jim Carrey drekkur stíft

Gamaleikarinn Jim Carrey ætlar að framleiða og leika aðal­hlutverkið í gamanmyndinni Sober Buddies. Fjallar hún um drykkfelldan forstjóra tölvufyrir­tækis sem er fyrir rétti dæmdur til að taka með sér félaga á ráðstefnu í Las Vegas sem á að halda honum frá Bakkusi. Þróast málin þannig að félaginn, sem er leikinn af Carrey, missir sjálfur fótana í drykkjunni og lendir í hinum ýmsu vandræðum.

Sýking í sjávardýragarðinum á Ísafirði

„Fiskarnir fengu sýkingu í augun og þess vegna þurfti ég að tæma búrið,“ segir Lísbet Harðardóttir, sjávardýragarðsstjóri á Ísafirði. Eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir skömmu opnaði Lísbet lítinn sjávardýragarð, sem var í raun eitt 1.800 lítra fiskabúr, utandyra í Neðsta kaupstað á Ísafirði. Sjávardýragarðurinn vakti mikla lukku en nú stendur hann tómur.

Örvar með framhaldssögu um fótbolta

Tónlistarmaðurinn Örvar Þóreyjarson Smárason úr hljómsveitinni Múm hefur samið framhaldssöguna Kempur í knattspyrnu. Gerist hún í Vestur-Þýskalandi á sjötta áratugnum og fjallar um hinn drykkfellda fótboltakappa, Ottmar Oberfüss. Inga Birgisdóttir, systir Jónsa úr Sigur Rós, myndskreytir söguna.

Rokkabillí brimbrettagæjar

Brimbrettagæjar voru Alexander McQueen greinilega hugleiknir er hann hannaði nýjustu herralínu sína sem sýnd var í Mílanó á dögunum.

41 lag um Þjóðhátíð

Tvöfalda safnplatan Í brekkunni – Á Þjóðhátíð í Eyjum er komin út. Á plötunum, sem innihalda 41 lag, eru flest af vinsælustu Þjóðhátíðarlögunum í gegnum tíðina og einnig lög sem hafa tengsl við Þjóðhátíð og stemninguna í Eyjum.

Vilhjálmur aftur í fang Kate

Vilhjálmur Bretaprins var kominn aftur í fang kærustu sinnar, Kate Middleton, aðeins fjórum dögum eftir að þau tilkynntu að þau væru hætt saman. Þau hafa haldið sambandi sínu leyndu síðan í apríl.

Dansarar hnoðast um bæinn

Danshópurinn Hnoð samanstendur af fjórum ungum stúlkum sem stunduðu allar nám í Listdansskóla Íslands. „Við erum aðallega að vekja athygli á dansi, leikum okkur mikið með spuna og vinnum út frá aðstæðunum. Þetta er svolítið í dansleikhússtíl,“ segir Ásrún Magnúsdóttir en hópurinn er hluti af Skapandi sumarstarfi Hins hússins.

Þjóðlögin óma alls staðar að

Þjóðlagahátíðin á Siglufirði hefst eftir helgina en að þessu sinni verða kvæðamenn áberandi á hátíðinni en þá verður einnig boðið upp á námskeið á háskólastigi um íslenska þjóðlagatónlist.

Stella mótmælir á netinu

Stella McCartney mun setja á svið fyrstu netmótmæli í heimi gegn pelsum þann 12. júlí næstkomandi. Þá hyggst hún mótmæla notkun á dýrafeldi í tískuheiminum en þetta gerir hún í samvinnu við PETA dýraverndunarsamtökin.

Dita strippaði fyrir fræga fólkið

Fatafellan Dita von Teese kom nýlega fram á einkasýningu fyrir fólk eins og Jasmine Guiness, Rosario Dawson, Henry Holland, Gareth Pugh og Steven Tyler. Hún er andlit nýs varalits frá MAC sem nefnist Viva Glam og á sýningunni dansaði hún upp á risastórum þriggja metra háum, dökkbleikum Viva Glam varalit.

Velgengnin mömmu að kenna

Systkinin Smári og Fríða Dís Guðmundsbörn er fólkið á bakvið blúshljómsveitina Klassart, sem nýverið gaf út sína fyrstu plötu og á lag vikunnar á Tónlist.is.

Sýn leigjendanna

Samsýningin „Leigjendurnir“ var opnuð í húsakynnum SÍM á Seljavegi 32 á dögunum. Þar sýna fimm erlendir gestalistamenn verk sín sem eru í vinnslu á vinnustofum þeirra.

Stórtónleikar fyrir austan

„Við stefnum að sjálfsögðu að því að fylla húsið enda er þetta metnaðarfullt prógramm,“ segir Áskell Heiðar Ásgeirsson sem stendur fyrir tónleikum á Borgarfirði eystri 28. júlí næstkomandi.

Sjá næstu 50 fréttir