Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Framdi sjálfvíg Úrskurðað hefur verið að Brad Delp, söngvari bandarísku hljómsveitarinnar Boston, hafi framið sjálfsvíg. Delp, sem var 55 ára, eitraði fyrir sjálfum sér á heimili sínu í bænum Atkinson í New Hampshire. „Það er gott að vita að hann geti loksins farið í friði,“ sagði í yfirlýsingu fjölskyldu hans. 16.3.2007 07:45
Mynd um Tinna Kvikmyndaframleiðandinn Dreamworks, sem er m.a. í eigu Stevens Spielberg, ætlar að gera að minnsta kosti eina kvikmynd um belgísku teiknimyndahetjuna Tinna. Er fyrsta myndin væntanleg í kvikmyndahús eftir um það bil tvö ár. 16.3.2007 07:30
Hví ekki Afríka? Tvær ljósmyndasýningar verða opnaðar í Þjóðminjasafninu við Suðurgötu á morgun. Annars vegar er sýning á verkum Katrínar Elvarsdóttur sem hún kallar „Sporlaust“ og hins vegar sýning á ljósmyndum eftir frönsku listakonuna Dominique Darbois og á afrískum skúlptúrum. Sýningin ber yfirskriftina „Hví ekki Afríka?“ 16.3.2007 07:15
Kúbíski Kjarvalinn í danska forvörslu fyrir heimkomu Kjarvalsverkið, sem slegið var fyrir metupphæð á uppboði í Kaupmannahöfn í síðasta mánuði, er ekki komið til landsins. Að sögn Jóhanns Ágústs Hansen listaverkasala fara danskir forverðir um það höndum og verið er að velja ramma við hæfi. Nafn hins raunverulega kaupanda verður gefið upp í fyllingu tímans. 16.3.2007 07:00
Guðfeður diskópönksenunnar Hljómsveitin !!! sendi frá sér sína þriðju breiðskífu í síðustu viku. Steinþór Helgi Arnsteinsson heyrði í hluta af sveitinni af því tilefni. Hljómsveitin !!! (oftast borið fram chk chk chk en táknar í raun hvaða samhljóða sem er. 16.3.2007 07:00
Ánægð með nýja stílinn Leikkonan Reese Witherspoon er ánægð með að vera skilgreind sem tískutákn eftir skilnað sinn við Ryan Phillippe á síðasta ári. Reese vakti mikla athygli í gulum kjól og með nýja hárgreiðslu á Golden Globe-verðlaunahátíðinni í janúar. „Mér finnst ég líta allt öðruvísi út en ég hef áður gert. Og er ánægð með það,“ segir Reese sem á nýtt útlit sitt hönnuðinum Olivier Theyskens hjá Ninu Ricci að þakka. „Ég hef áður verið með stílista en þessa dagana geri ég allt sem Olivier vill.“ 16.3.2007 06:45
Njóta stuðningsins Fegurðarsamkeppnin Ungfrú Vesturland fór fram á Akranesi um síðustu helgi. Svo skemmtilega vildi til að stúlkurnar sem lentu í þremur efstu sætunum eru bestu vinkonur til margra ára. Agla Harðardóttir hreppti titilinn, Helena Rúnarsdóttir lenti í öðru sæti og það þriðja hlaut Fríða Ásgeirsdóttir. 16.3.2007 06:30
Brotinn Vignir Snær en ekki beygður „Ég datt í hálkunni fyrir utan upptökuverið mitt í morgun [gær] og braut bein í vinstri upphandlegg,“ segir Vignir Snær Vigfússon, gítarleikarinn góðkunni og tónlistarstjóri sjónvarpsþáttarins X-Factor. Vignir tók enga áhættu og hringdi á sjúkrabíl sem flutti hann á slysavarðstofuna þar sem gert var að brotinu. 16.3.2007 06:15
Venus - fjórar stjörnur Maurice og Ian eru leikarar sem mega muna fífil sinn fegurri. Áður fylktu áhorfendur liði í leikhúsið til að berja þá augum en nú er liðið á ævikvöldið og hlutverkin ekki upp á marga fiska; Maurice fær stöku sinnum að geispa golunni í kvikmyndum en Ian hefur enn vott af sjálfsvirðingu og tekur ekki í mál að leika lík. Fyrir utan hvorn annan eiga þeir félagsskap í fáum og lifa nánast sem hjón, graðga í sig pillum saman á morgnana, klippa táneglurnar hvor á öðrum og lesa minningargreinar um fallna kollega. 16.3.2007 06:00
Máni tilnefndur til Emmyverðlauna fyrir Latabæjartónlist Máni Svavarsson, höfundur tónlistarinnar í þáttunum um Latabæ, er á meðal þeirra sem tilnefndir eru til Emmy verðlauna í ár fyrir tónlistarstjórnun og tónverk (Outstanding Achievement in Music Direction and Composition). Þetta er fyrsta tilnefning íslensks tónlistarmanns til verðlaunanna. 16.3.2007 00:01
Britney búin að eignast ,,vin” Partíprinsessan Britney Spears dvelur nú sem kunnugt er á meðferðarheimili eftir að hún náði botninum þegar hún rakaði af sér hárið og fékk sér tattoo. Britney ku vera búin að eignast góðan vin í meðferðinni, hann Jason Filyaw, gítarleikara hljómsveitarinnar RIVA. 15.3.2007 16:34
Carmen Eelctra tekur heimilið fram yfir tjúttið Kynbomban Carmen Electra, sem hvað þekktust er fyrir hlutverk sitt í Strandvörðum, er nýskilin við Rockstardómarann Dave Navarro. Carmen segir að eftir að skilnaðinn hafi hún ekki haft gaman af því að fara á skemmtistaði. Henni finnist miklu skemmtilegra að vera heima í góðra vina hópi. Lífið snúist ekki lengur um að fara út á lífið. 15.3.2007 16:08
Tori Spelling orðin mamma Beverly Hills 90210 leikkonan Tori Spelling hefur eignast dreng með manni sínum, leikaranum Dean McDermott. Þau Tori og Dean trúlofuðu sig um jólin 2005 og gengu í það heilaga hálfu ári síðar á Fijieyjum. 15.3.2007 15:48
Hæ, þetta er Heather Breska lögreglan hefur varað Heather Mills, brátt fyrrverandi eiginkonu Sir Pauls McCartneys, við því að hringja of oft í neyðarnúmer lögreglunnar til þess að kvarta undan ljósmyndurum. Talsmaður lögreglunnar upplýsti ekki hversu oft hún hefði hringt, en sagði að í nokkur skipti hafi lögreglan farið að heimili hennar og talið þá ferð ástæðulausa. 15.3.2007 14:18
Henrik prins vill verða kóngur Danskir fjölmiðlar segja nokkuð háðskir frá því að Henrik prins, eiginmaður Margrétar Þórhildar drottningar vilji fá konungstitil. Prinsinn hafði orð á þessu í viðtali við franska blaðið Point de Vue. Prinsinn vísar til jafnréttis karla og kvenna. Kona sem í dag kvænist konungi fái titilinn drottning. Karlmaður fái hinsvegar ekki konungstign við að kvænast drottningu. 15.3.2007 10:20
Alltaf í góðu skapi Hljómsveitin Spaðar heldur sitt árlega ball á Nasa á föstudagskvöld. Sveitin sendi frá sér plötuna Stundaglasaglaum fyrir síðustu jól og hefur hún hlotið góðar viðtökur. Verða bæði spiluð lög af henni og gamlir og góðir slagarar. 15.3.2007 10:00
Daðar Íslands stofna hagsmunafélag Nýstofnað hagsmunafélag íslenskra Daða er ein nýjasta viðbótin í síbreytilega Myspace-flóruna. Á vinalista félagsins má nú þegar finna tæplega þrjátíu Daða, og frá því að síðan fór í loftið í síðustu viku hefur hún verið heimsótt yfir 3.000 sinnum, að sögn forsvarsmannsins Daða Rúnars Péturssonar. „Við samþykkjum bara Daða sem vini á síðunni, fyrir utan Arnþór Jón Þorvarðsson, sem er guðfaðir samtakanna,“ sagði Daði Rúnar. 15.3.2007 09:45
Ekkert betra en eldhúsið: Sesam kjúklingabringur með appelsínusósu Tónlistarmaðurinn Davíð Olgeirsson nýtur sín vel í eldhúsinu sínu. Þar er það oftast kjúklingur sem ratar í pottana. 15.3.2007 09:30
Fabúla til Kanada Tónlistarkonan Fabúla er á leiðinni í tónleikaferðalag til Kanada í lok apríl. Hún mun spila á listahátíð í Winnipeg sem henni var boðið á auk þess sem hún ætlar að halda tónleika í Calgary og hugsanlega í Toronto. „Þetta verður mjög spennandi. Ég vona að ég geti farið með alla hljómsveitina með mér, ég veit það bara ekki enn þá,“ segir Fabúla, sem heitir réttu nafni Margrét Kristín Sigurðardóttir. Mun hún dvelja í Kanada í tíu daga. 15.3.2007 09:15
Grín að stórmyndum Fjórir munaðarleysingjar sem allir eiga það sameiginlegt að hafa komist í hann krappan fara í heimsókn til súkkulaðiframleiðandans Willy. Þar komast þau á snoðir um dularfullar dyr sem flytja þau til Gnarníu en þar hefur hinn illa hvíta tík lagt álög á íbúa héraðsins. Fjórmenningarnir taka því höndum saman og berjast gegn henni. 15.3.2007 09:00
Hayek ófrísk Leikkonan Salma Hayek á von á sínu fyrsta barni með franska viðskiptajöfrinum Francois-Henri Pinault. Að auki eru þau skötuhjú búin að setja upp hringana. Ekki hefur verið gefið upp hvenær barnið kemur í heiminn. 15.3.2007 09:00
Vona að ég nái fimmtugu Baldur Trausti Hreinsson, leikari, er fertugur í dag. Þegar Fréttablaðið náði tali af honum í vikunni þótti leikaranum varla um stórt afmæli að ræða. „Í sjálfu sér ekki. En þetta er ákveðinn áfangi, jú. Ég er búinn að kvíða þessu svolítið, en ég er að jafna mig,“ sagði Baldur. „Þetta er eins og einhver sagði, það er annað hvort þetta eða að fara hina leiðina. Ég held að þessi sé skárri,“ bætti hann við. 15.3.2007 09:00
Kaiser Chiefs: Yours Truly, Angry Mob - tvær stjörnur Það er lag á nýju Kaiser Chiefs-plötunni sem heitir Everything Is Average Nowadays og ég er svona að reyna að gera það upp við mig hvort þeim finnist það bara hið besta mál eða ekki, því lagið, platan og þessi blessaða hljómsveit er akkúrat það, í meðallagi. 15.3.2007 08:30
Kristján í úrslit trúbadorkeppni „Þeir sem keppa til úrslita eru, og fyrst ber að nefna sjálfa stjörnuna Kristján Þorvaldsson, en aðrir eru Einar Örn Konráðsson, Andri Már Sigurðsson og síðust til að komast í úrslitin er Ísabella Magnúsdóttir,“ segir Friðrik Indriðason, blaðamaður og helsti skipuleggjandi Stóru trúbadorkeppninnar á Sportbarnum. 15.3.2007 08:30
Stór nöfn bætast við Hljómsveitirnar Muse og Arcade Fire hafa bæst í hóp þeirra sem troða upp á Hróarskelduhátíðinni í byrjun júlí. Muse gaf út plötuna Absolution í fyrra sem hefur fengið góðar viðtökur. Arcade Fire, sem hefur aldrei spilað á Hróarskeldu, gaf nýverið út sína aðra plötu, Neon Bible. 15.3.2007 08:15
Píkusögur í öllum fjórðungum V-dagurinn verður haldinn hátíðlegur í sjötta skipti hér á landi 15.-18. mars. Að þessu sinni verður dagskrá í tilefni dagsins í hverjum landsfjórðungi en á Akureyri, Egilsstöðum, Ísafirði og Selfossi munu athafnakonur á hverjum stað taka þátt í flutningi á leikriti Eve Ensler, Píkusögum. 15.3.2007 08:00
Kveikti í hárinu á sér á Loftleiðum „Allir eru alveg rosalega ánægðir og þetta gekk mjög vel," segir Auðunn Blöndal en um helgina fóru fram áheyrnarprufur fyrir raunveruleikaþáttinn Leitin þar sem ærslabelgjatríóið Strákarnir reynir að finna arftaka sinn. Félagarnir voru mættir klukkan hálf tíu á sunnudagsmorgni og voru ekki komnir til síns heima fyrr en laust eftir miðnætti. 15.3.2007 08:00
Remba í Reykjavík Gamanleikurinn Remba sem hefur glatt geð manna á Laugum í Reykjadal nú um nokkurt skeið verður sýndur af leikflokknum Vönum mönnum í Reykjavík föstudags- og laugardagskvöld og er enn einhver von um að fá megi miða á sýninguna á Cafe Rósenberg í Reykjavík. 15.3.2007 08:00
Þjóðin má vera stolt af mér „Ég er í alveg rosalega fínum hópi. Ég held að ég geti verið stoltur að ná inn á þennan lista,“ segir Einar Örn Benediktsson, fyrrverandi söngvari Sykurmolanna, sem hefur verði kjörinn fimmti versti söngvari allra tíma af breska tónlistartímaritinu Q. Á meðal fleiri söngvara á listanum eru Yoko Ono, Fred Durst úr Limp Bizkit, Mariah Carey, Celine Dion, Bobby Gillespie og Ozzy Osbourne, sem situr í toppsætinu. 15.3.2007 08:00
Kvikmyndaveisla í stofunni Græna ljósið og SkjáBíó efna til mikillar veislu heima í stofu fyrir áskrifendur Skjásins. Kvikmyndaveislan hefst í dag með sýningu írönsku kvikmyndarinnar Offside en hún hlaut Silfurbjörninn í Berlín í fyrra. 15.3.2007 07:45
Himneskur svanasöngur Kammerkórinn Carmina frumflytur Requiem eða Sálumessu eftir spænska endurreisnartónskáldið Tomás Luis de Victoria á tónleikum í Kristskirkju um helgina. 15.3.2007 07:45
Rómantískt afmæli Pete Ofurfyrirsætan Kate Moss kom kærastanum Pete Doherty á óvart á afmæli hans á mánudaginn. Kate leigði þyrlu fyrir þau skötuhjúin sem flutti þau á rólegan stað úti á landi þar sem þau fóru í lautarferð. 15.3.2007 07:15
Jolie ættleiddi dreng frá Víetnam Kvikmyndastjarnan Angelina Jolie hefur ættleitt þriggja ára gamlan víetnamskan dreng. Hún sótti drenginn á munaðarleysingjahæli í Ho Chi Minh-borg í gær. Þetta er þriðja barnið sem Jolie ættleiðir en áður hefur hún ættleitt börn frá Kambódíu og Eþjópíu, auk þess á hún eitt barn sjálf með leikaranum Brad Pitt. 15.3.2007 07:00
Michelin-kokkur á Holtinu Hótel Holt bauð gestakokkinn Jean-Yves Johany velkominn til leiks í vikunni, en hann er fyrstur þriggja franskra kokka sem kemur hingað til lands í tengslum við frönsku menningarhátíðina Pourquoi-pas?. Kokkarnir hafa allir hlotið eina eða tvær Michelin stjörnur og því um mikinn feng fyrir íslenska matarunnendur að ræða. Tveir matreiðslumeistaranna verða á Hótel Holti, en sá þriðji hjá Sigga Hall. 15.3.2007 07:00
Orrustan sem bjargaði Evrópu Kvikmyndin 300 sló í gegn um síðustu helgi í Bandaríkjunum og er þegar farið að tala um metaðsókn. Myndin verður frumsýnd í Sambíóunum um helgina en bardaginn við Laugarskörð hefur sjaldan eða aldrei birst jafn ljóslifandi á hvíta tjaldinu og nú. 15.3.2007 06:15
R.E.M. á leið í hljóðver Hljómsveitin R.E.M. er á leiðinni í hljóðver til að taka upp sína fyrstu plötu síðan Around the Sun kom út árið 2004. Upptökustjóri verður Írinn Jacknife Lee, sem er þekktastur fyrir að hafa tekið upp How to Dismantle an Atomic Bomb með U2 og Final Straw með Snow Patrol. 15.3.2007 06:00
Handmáluð hauskúpa Róbert Stefánsson handmálaði hauskúpu á Mözduna sína með airbrush-tækni. Verkið kallaði á nokkurn undirbúning. Í öðru auga kúpunnar er rautt díóðu-ljós sem bora þurfti fyrir. 15.3.2007 06:00
Á mörkunum Finnski ljósmyndarinn Sari Poijärvi opnar sýningu sína „Photo-graphic Work“ í Skotinu í anddyri Ljósmyndasafns Reykjavíkur kl. 17 í dag. Sari er með meistaragráðu í myndlist og hefur haldið fjölda einka- og samsýninga víða um lönd. Í september árið 2005 dvaldi hún í gestaíbúð SÍM í Reykjavík og á því tímabili tók hún mikið af myndum sem margar hverjar er að finna á sýningunni í Skotinu. 15.3.2007 05:45
Dean og Rússarnir Fjalakötturinn heldur áfram veglegri dagskrá sinni í Tjarnarbíói. Kvikmyndaklúbburinn hyggst sýna allar þrjár myndir bandaríska eðaltöffarans James Dean en þetta eru Austur við Eden, Syndir feðranna og Risinn. Sýningarnar í Tjarnarbíói verða 17., 18. og 19. mars en áhorfendum gefst einnig kostur á að sjá heimildarmyndina Forever Young sem gerð var fyrir tveimur árum. 15.3.2007 05:00
Mischa Barton slæm fyrirmynd Leikkonan Mischa Barton úr O.C. er ekki góð fyrirmynd litlu systur sinnar, Haniu, en Hania er nýkomin úr meðferð. Mischa var úti að skemmta sér með vinum sínum á Anchor barnum í NY. Hún skemmti sér með drykk í hönd og dansaði við lög Madonnu, Beyonce og Nelly Furtado. Kvöldið var þó ekki eintóm skemmtun. 14.3.2007 17:05
Tískuhönnuður kærður fyrir nauðganir Tískuhönnuðurinn Anand Jon, sem er þekktur meðal stjarnanna Vestanhafs, hefur verið handtekinn fyrir tvær nauðganir. Anand er sagður hafa misþyrmt fjórum mismunandi fórnarlömbum frá október 2004 fram til dagsins í dag. Ofan á nauðgunarkærurnar tvær er hann kærður fyrir kynferðislega líkamsárás og að hafa framið brot gegn tveimur börnum. Yngsta fórnarlambið er 15 ára. 14.3.2007 16:41
Sarah Jessica Parker með eigin fatalínu SATC stjarnan Sarah Jessica Parker er að fara að selja sína eigin fatalínu undir nafninu Bitten. Sarah hélt hádegisfund með tískuritstjórum á veitingastaðnum Indochine í gær. Samkvæmt heimildum NY Post mun línan verða fáanleg í versluninni Steve & Barry's, sem er lágvörukeðja með eina búð í verslunarmiðstöð á Manhattan. 14.3.2007 16:11
Jessica Simpson vill ætleiða Jessica Simpson er farin að huga að því að eignast barn. Hún er sögð vera öfundsjúk út í þær Hollywood stjörnur sem undanfarið hafa tekist á við móðurhlutverkið eins og Angelina Jolie og Britney Spears. Söngkonan undirbýr sig nú undir barneignir með því að sjá um hundana sína þar sem þeir hjálpa henni að virkja móðureðlið í sér. 14.3.2007 15:48
Þjóðin hefur dæmt í Smáralindarmáli Ágúst Þórðarson, faðir fyrirsætu á fermingarbæklingi Smáralindar er ósáttur við skrif Guðbjargar Hildar Kolbeins og skilur ekki af hverju hún biðst ekki afsökunar. 14.3.2007 10:15
300 setti met Epíska stríðsmyndin 300 náði inn tæpum 4,7 milljörðum króna á sinni fyrstu sýningarhelgi í Bandaríkjunum, sem er met fyrir frumsýndar myndir í mars þar í landi. 14.3.2007 10:00
Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“ Menning